Skoðun

Flug­völlur í Hvassa­hrauni eða Ár­borg?

Bragi Bjarnason skrifar

Staðsetning nýs flugvallar hefur lengi verið í umræðunni. Þar hafa nokkur svæði verið nefnd sem álitlegir kostir til að þjóna innanlandsflugi, alþjóðaflugi, vöruflutningum og sem varaflugvöllur fyrir Keflavík. Horft hefur verið til Hvassahrauns en einnig svæða á Suður- og Vesturlandi. Í ljós eldsumbrota og óvissu á hluta Reykjaness er umræðan um varaflugvöll jafnframt orðin meiri og ekki óeðlilegt að velta upp mögulegum staðsetningum.

Flugvallarstæði í Árborg

Þegar breski herinn kom hingað fyrst til landsins á stríðsárunum byggði hann upp flugvöll í Kaldaðarnesi við bakka Ölfusár, milli Selfoss og Eyrarbakka. Það er engin tilviljun að þessi staðsetning varð fyrir valinu, en eftir flóð í ánni 6. mars 1943 fluttu þeir starfsemina að mestu til Keflavíkur, þar sem alþjóðaflugvöllurinn er enn í dag.

Staðsetning á nýjum flugvelli í Árborg hefur oft komist inn í umræðuna og á árunum 2019-2021 fór fram skoðun á því hvort svæði í svokallaðri “Stokkseyrarmýri” gæti verið hentugt undir einnar brautar flugvöll líkt og þekkist víða erlendis. Sú takmarkaða skoðun gaf jákvæð fyrirheit hvað veður, jarðlög og hljóðvist varðar. Þó ætti eftir að gera margar rannsóknir áður en svæðið yrði samþykkt undir flugvöll. Slíkt ferli tekur nokkur ár og því mætti segja að orð séu til alls fyrst ef hefja á slíka vegferð í alvöru.

Ábyrgðarhluti að kanna málið

Í raun má segja að það sé óábyrgt að fá ekki úr því skorið hvort þetta svæði í Árborg sé raunhæfur valkostur og þá betri eða öruggari en Hvassahraunið. Sveitarfélagið Árborg á um 710 hektara á umræddu svæði norðan við Stokkseyri, sjá gulmerkt á mynd, sem telst víst rúmlega nóg undir slíka starfsemi. Þótt niðurstaðan yrði jákvæð úr rannsóknum og samfélagið sátt við slíka uppbyggingu þá er engan veginn í höfn að yfirvöld eða einkaaðilar sjái hag í því að byggja slíkt mannvirki upp í framhaldinu. Kostirnir gætu þó verið ótvíræðir þegar horft er til möguleikanna í nærumhverfinu og á Suðurlandi.

Mynd 1 sýnir það land sem Sveitarfélagið Árborg á í svokallaðri “Stokkseyrarmýri”.

Sterkt svæði til að taka við flugvelli

Ætla má að erlendum ferðamönnum fjölgi áfram og víða eru tækifæri til frekari uppbyggingu ferðaþjónustu. Því er brýnt að tryggja að sama skapi milliandaflug til og frá Íslandi. Við fyrstu hugsun finnst undirrituðum að þessi staðsetning á Suðurlandi geti verið gríðarlegt tækifæri fyrir land og þjóð. Sterkir innviðir eru stutt frá, öflugir þjónustukjarnar, atvinnusvæði sem býður upp á rými til uppbyggingar og hugmyndir um auknar samgöngur í gegnum Ölfus og við Selfoss falla vel að staðsetningunni. Slík breyting má þó aldrei hafa neikvæð áhrif á aðra innviðauppbyggingu á svæðinu líkt og nýja Selfossbrú yfir Ölfusá.

Vert er að benda á að vinna við rannsóknir, umhverfismat og fleira í upphafsferlinu þarf ekki að vera á vegum hins opinbera heldur í höndum áhugasamra aðila sem sjá tækifæri í aukinni samgöngubót bæði innanlands sem og til og frá Íslandi. Flugvöllur í Árborg ætti því að vera áfram í umræðunni, og jafnvel framar en aðrir þeir kostir sem ræddir hafa verið til þessa.

Höfundur er bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×