Skoðun

Berum brjóstin

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir skrifar

Brjóstakrabbamein er ein algengasta tegund krabbameins sem herjar á konur. Milljónir kvenna um allan heim greinast með brjóstakrabbamein ár hvert, en samkvæmt heimildum frá World Health Organization voru 2.3 milljón einstaklinga greindir með brjóstakrabbamein árið 2022 og um 670 þúsund dauðsföll eru rakin til krabbameinsins. Brjóstakrabbamein er algengasta krabbameinið meðal íslenskra kvenna og um 200 konur greinast með krabbameinið hér á landi ár hvert.

Þó svo að brjóstakrabbamein greinist í undantekningartilvikum í körlum þá eru það aðallega konur sem verða að vera á varðbergi gagnvart því. Engir sérstakir áhættuþættir eru þekktir fyrir krabbamein af þessu tagi, og því er mikilvægt að allar konur fylgist með og fari reglulega í skimun. Brjóstaskimun gegnir lykilhlutverki í forvörnum og baráttunni gegn sjúkdómnum. Með skimun eru brjóstakrabbamein greint snemma, áður en einkenni koma fram, og eykur því verulega líkurnar á árangursríkari meðferð og bata.

Krabbameinsskimun bjargar mannslífum og lækkar líkur á andláti sökum krabbameinsins umtalsvert.

Peningur á ekki að vera vandamál

Þrátt fyrir mikilvægi skimunar hefur dregið úr þátttöku kvenna í skimunum á krabbameini, m.a. brjóstakrabbameini. Þetta á við konur á öllum aldri, þó sérstaklega yngri konur. Það er áhyggjuefni innan heilbrigðisstéttarinnar, enda hafa flestar konur vitund á því hversu mikilvægt það er að fara í skimun þó svo að dregist hefur úr þátttöku.

Miðað við athugasemdir þá virðist dvínandi þátttaka aðallega stafa af tveimur ástæðum. Þær eru hár komukostnaður, þ.e. 6.000 kr., og að konur þurfa að finna tíma úr vinnu til að mæta.

Skiljanlega dregur hár komukostnaður úr áhuga fólks við að mæta í skimun, þó mikilvægt sé að allar konur mæti reglulega. Enginn á að þurfa að fresta eða hætta við að tryggja heilbrigði sitt sökum kostnaðar. Heilbrigðisþjónusta skal vera öllum aðgengileg óháð efnahag.

Í þessu samhengi er einnig vert að minnast á rétt kvenna til að taka frí frá vinnu til að mæta í skimun.

Heilbrigðisráðherra lækkar gjaldið umtalsvert

Í gær boðaði Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, breytingar á gjaldtöku vegna skimunar fyrir brjóstakrabbameini.

Frá og með 14. október lækkar komugjald fyrir brjóstaskimun í 500 krónur og önnur gjöld verða felld niður. Það sem áður kostaði 6.000 kr. kostar nú minna en einn americano og croissant á kaffihúsi.

Þarna er heilbrigðisráðherra að mæta áhyggjum beint og lækka kostnaðinn umtalsvert, um rúmlega 90%, m.a. í þeim tilgangi að tryggja jafnt aðgengi fyrir allar konur, óháð búsetu eða efnahag, og stuðla að virkri skimun fyrir brjóstakrabbameini í öllum konum.

Höldum áfram

Þessi aðgerð hefur mikla þýðingu fyrir kvenheilsu til framtíðar á Íslandi, en þó svo um stórt skref sé að ræða þá verðum við að vinna saman að forvörnum og fyrirbyggjandi aðgerðum sem samfélag. Við þurfum að halda áfram að hvetja allar konur til að mæta reglulega í skimun, stuðla að fræðslu fyrir konur um brjóstakrabbamein og einkenni þess og upplýsa þær um rétt sinn til að taka frí úr vinnu til að forgangsraða heilsu sinni og lífsgæðum með því að mæta í brjóstaskimun.

Höfundur er þingmaður Framsóknar.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×