Skoðun

Þurfum aftur al­vöru náttúru­vernd í um­hverfis­ráðu­neytið

Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar

Saga náttúruverndarmála á Íslandi hefur verið samofin ásókn virkjanaaðila í víðerni og villta náttúru landsins, ekki síst miðhálendið. Náttúruvernd hérlendis hefur einkennst af þrotlausri varnarbaráttu hugsjónafólks úr öllum þjóðfélagshópum, náttúruverndarsamtaka og fagfólks í náttúrufræðum. Fyrir baráttu þessa fólks verð ég ævinlega þakklátur.

En náttúruverndarbaráttan hefur ekki bara verið vörn, heldur líka sókn. Friðlýsingar eru eitt öflugasta tækið í náttúruvernd. Á síðustu 25 árum voru tveir þjóðgarðar stofnsettir hérlendis, Vatnajökulsþjóðgarður og Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull, og nokkrir tugir náttúruperlna og verðmætra svæða hafa verið friðlýst. Í tíð Svandísar Svavarsdóttur í umhverfisráðuneytinu voru sett ný náttúruverndarlög og um 25 svæði friðlýst. Í tíð minni í ráðuneytinu voru rúmlega 30 svæði friðlýst og unnið ötullega að stofnun tveggja þjóðgarða, Hálendisþjóðgarðs og Dynjandaþjóðgarðs á Vestfjörðum.

Undanfarin þrjú ár hafa því miður einkennst af miklu áhugaleysi frá ráðherra málaflokksins og kyrrstöðu í málaflokknum. Núverandi ráðherra hefur friðlýst sex svæði eftir því sem ég kemst næst. Það er nú öll náttúruverndin. Og þrátt fyrir skýrt ákvæði í stjórnarsáttmála um stofnun Hálendisþjóðgarðs hefur núverandi umhverfisráðherra lítið hreyft sig í því máli. Það er mjög miður, enda um að ræða stærsta náttúruverndarverkefni í langan tíma. Mér hefur einnig þótt grátlegt að horfa upp á ráðherra Sjálfstæðisflokksins einfalda alla orðræðu um umhverfis- og náttúruverndarmál niður í umræðu um græna orku. Umhverfismál eru svo miklu meira en það.

En virkjanaaðilum hefur vaxið ásmegin með ráðherra sem er þeim hliðhollur. Þetta bitnar á náttúrunni og náttúruverndinni sem hefur eignast fleiri óvini. Því miður hafa flestir flokkar á Alþingi tekið undir orðræðu ráðherrans.

Við í VG höfum sýnt í verki að okkur er dauðans alvara þegar kemur að verndun dýrmætrar náttúru Íslands. Við viljum koma á neti þjóðgarða og friðlýstra víðerna hérlendis sem taki meðal annars til miðhálendisins, hálendis Vestfjarða, Breiðafjarðar, Langaness, Gerpissvæðisins og víðar. Við viljum að litið sé á náttúruna sem friðhelga og nýting sé undantekning á því. Nýting náttúruauðlinda okkar er nauðsynleg en náttúran er ekki óendanleg auðlind og brýnt er að standa vörð um hana, bæði náttúrunnar sjálfrar vegna og til að framtíðarkynslóðir fái einnig að njóta góðs af henni.

Umfram allt þurfum við alvöru náttúruvernd og náttúruverndarsinna á þing og endurvekja náttúruverndina í umhverfisráðuneytinu. VG býður upp á slíkan valkost. Við munum tala máli náttúrunnar, hátt og skýrt, hér eftir sem hingað til.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vinstri grænna og skipar 1. sæti VG í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×