Skoðun

Þú mátt vera afi (og ég má vera amma)

Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Maðurinn minn er breskur en elskar íslenskar hefðir. Eitt af því sem hann heillast af eru eftirnöfnin -dóttir, -son og -bur. Hann vill halda í bresku hefð og láta ættarnafnið sitt ganga niður til barna okkar og stakk hann upp á því að börnin okkar bæru ættarnafnið hans en væru einnig Heiðubörn.

Undanfarið hefur umfjöllun um Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að bæta stöðu kynsegin fólks farið á flug. Ég mæli þó með því að fólk kynni sér frumvarpið áður en það fer að tala í hástöfum og hafa áhyggjur af því að einhver ætli að taka af því einhver hlutverk eða réttindi.

Frumvarpinu er nefnilega einungis ætlað að jafna réttindi fólk og passa að allir hópar sitji að sama borði.

Ég hef til dæmis heyrt því fleygt fram að nái frumvarpið fram að ganga fái afar ekki að kalla sig afa lengur. Það er alls ekki tilfellið, nema síður sé. Það er einungis verið að bæta við flóruna og passa að aðrir hópar þeirra sem eiga barnabörn og barnabörnin sjálf njóti sömu réttinda og afarnir.

Lögin í dag hljóma svona: ,,Heimilt er að ófeðrað barn sé kennt til afa síns.“ (8.gr. Lög um mannanöfn). Með breytingunni munu lögin hljóma svona: ,, Heimilt er að ófeðrað barn sé kennt til foreldris foreldris síns.” Sem þýðir að þar er ömmu bætt við sem og kynsegin aðila sem á barnabarn.

Ef við hjónin ættum barnabarn eins og lögin eru núna mættu þau ekki kenna sig við mig, ömmuna, heldur bara eiginmann minn. Ég sé því ekki annað en að þetta sé til bóta.

Viðreisn styður þetta frumvarp enda er frelsi ein af grunnstoðum flokksins. Það á við um þegar það skaðar ekki aðra. Í þessu tilfelli er verið að stuðla að auknu jafnrétti og verið að standa vörð um frelsi fólks.

Það að einn hópur fái réttindi til jafns á við aðra hópa þýðir ekki skerðing á rétti annarra. Það getur verið öllum hollt að anda ofan í maga, tala við fólk og kynna sér mál áður en ráðist er til atlögu á lyklaborðið.

Fulltrúar Viðreisnar eru tilbúin að taka spjallið og ræða þessi og fleiri frelsismál.

Ég er stolt af því að tilheyra hópi fólks sem vill að allir tilheyri og fái pláss, flokki sem stuðlar að frelsi og réttlæti.

Höfundur er frambjóðandi í 2. sæti á lista Viðreisnar fyrir komandi alþingiskosningar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×