Skoðun

Breytum þessari sér­hags­muna­gæslu

Aðalsteinn Leifsson skrifar

Lög sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og VG keyrði í gegnum Alþingi í vor til að gefa afurðastöðvum, sem jafnframt eru stórtækir innflytjendur á kjötvöru, undanþágu frá samkeppnislögum er skýrt dæmi um það þegar sérhagsmunir þeirra sem hafa pólitísk ítök eru teknir fram fyrir hagsmuni almennings og eðlilegar leikreglur heilbrigðs atvinnulífs eru teknar úr sambandi.

Samráð gert löglegt

Lögin heimila kjötafurðastöðvum að hafa með sér samráð sem er með öllu ólögmætt í öðrum atvinnugreinum. Undanþágan er mun víðtækari en í nágrannalöndum okkar enda gengur hún þvert á grundvallarsjónarmið um samkeppni og neytendavernd og bitnar bæði á neytendum og bændum sem selja til afurðastöðvanna. Kjötafurðastöðvar sem einnig eru í hópi stærstu innflytjenda á kjötvöru hafa þannig fullt sjálfdæmi um verðlagningu til smásala/neytenda og bænda án nokkurs aðhalds og geta átt samráð og sameinast, án nokkurra takmarkana. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að allar afurðastöðvar, þ.e. í kindakjöti, nautakjöti, svínakjöti og kjúklingakjöti, hafi með sér samkeppnishamlandi samstarf eða sameinist.

Gegn hagsmunum neytenda og bænda

Fyrirkomulagið gengur augljóslega gegn hagsmunum neytenda þar sem samráð í stað samkeppni hefur þau áhrif að hækka verð og minnka vöruúrval. Fyrirkomulagið gagnast bændum heldur ekki, þar sem engar kröfur voru gerðar í lögunum um eignarhald bænda á afurðastöðvunum, ólíkt því sem var í upphaflegu frumvarpi matvælaráðherra, sem stjórnarmeirihlutinn í atvinnuveganefnd endurskrifaði. Þetta sést vel á því að þegar KS keypti Kjarnafæði-Norðlenska eftir að lögin voru sett nýtti félagið sér heimild í hlutafjárlögum til að krefjast innlausnar hlutabréfa þeirra bænda sem ekki vildu selja. Með öðrum orðum snerist löggjöf, sem í upphafi var sögð til að styrkja stöðu bænda, upp í að bændum sem vildu áfram eiga hlut í afurðastöðinni sinni var ýtt út.

Samráð einnig mögulegt í innflutningi

Allar afurðastöðvar geta nýtt sér undanþáguna frá samkeppnislögum til samráðs. Það á einnig við um stórfyrirtækin í svínakjötsframleiðslu og -innflutningi á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma og forstjórar afurðastöðvanna geta átt samráð bæði um eigin framleiðslu og innflutning eiga aðrir innflytendur á kjöti yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi fyrir sömu hegðun. Það er ekki hægt skálda svona ævintýralega vitleysu.

Breytum þessu

Íslendingar borga nú þegar næsthæsta matvælaverð í Evrópu meðal annars vegna hárra tolla og fákeppni. Ofan á þetta eru samkeppnislög tekin úr sambandi til þess að örfá fyrirtæki, afurðastöðvar, geti átt samráð um verðlagningu til verslana og þar með alls almennings sem verslar í búðunum. Eins og bæði Samkeppniseftirlitið og Neytendasamtökin hafa bent á eru líklegar afleiðingar verðhækkun á kjötvöru og þar með aukin verðbólga.

Þessar kosningar snúast um að ná efnhagslegu jafnvægi til að bæta kjör heimila og fyrirtækja. Til þess þarf flokk sem stendur fyrir viðskiptafrelsi og almennar, heilbrigðar leikreglur til hagsbóta fyrir öll en ekki sérreglur fyrir örfá handvalin. Kjósum Viðreisn og breytum þessu.

Höfundur er fyrrverandi ríkissáttasemjari og í 3. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×