Skoðun

Varist eftir­líkingar

Franklín Ernir Kristjánsson skrifar

Margir þeirra flokka sem nú eru í framboði skreyta sig með því að segjast vera hægri flokkar. Raunin er sú að það er aðeins einn flokkur í boði sem hefur barist fyrir frelsi og minni ríkisafskiptum í bráðum 100 ár. Ekki kaupa ESB viðreisnarköttinn í sekknum né miðflokks-miðjumoðsjálkana - sem hafa helst lagt það til málanna á Alþingi Íslendinga að koma upp ríkisrekinni áburðarverksmiðju.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur frá því hann var stofnaður árið 1929 staðið vörð um einstaklingsfrelsi og atvinnufrelsi. Flokkurinn hefur sýnt þá stefnu skýrt í verkum sínum og mun gera það áfram.

Séreignastefnan:

Séreignastefnan er hornsteinn í húsnæðisstefnu flokksins og við höfum ávallt lagt áherslu á það skýra markmið að gera fólki kleift að eignast sitt eigið húsnæði. Við hvetjum fólk jafnframt til sparnaðar og eigum skuldlaust heiðurinn af því að hafa komið á séreignasparnaðarkerfi lífeyris sem og því að einstaklingar geti ráðstafað hluta þess sparnaðar inn á húsnæðislán sitt. Það er aðgerð sem hefur komið íbúðareigendum landsins mjög vel og gagnast báðum markmiðum; að styðja við séreignastefnuna og að hvetja til sparnaðar.

Lágir skattar

Við sjálfstæðismenn höfum trú á að framtak einstaklingsins sé auðlind og viljum að fólk fái að njóta ávaxta eigin verka í sem mestum mæli. Með þeirri leið er auðvelt að sjá tilgang þess að leggja sig allt fram við að koma nýjum hugmyndum í framkvæmd með það að markmiði að sjá sér og sínum farborða og auka lífsgæði. Þess vegna hefur Sjálfstæðisflokkurinn ávallt barist fyrir lækkun skatta, einföldu og skýru skattkerfi og einföldun regluverks.

ESB?

Okkar stefna er skýr varðandi Evrópumálin. Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki að Ísland gangi í ESB en vill sterkan EES-samning enda hefur hann nýst þjóðinni mjög vel. Árið 2009 sótti vinstri stjórnin sem þá stýrði málum um aðild að ESB án þess að hugur fylgdi máli. Orðræðan þá var að kíkt skyldi í pakkann, sjá hvað væri í boði og tíma fjölda fólks og gríðarlegu fjármagni eytt í aðildarviðræður við ESB. En stefna Sjálfstæðisflokksins, þá sem nú, er skýr: Ef maður sækir um aðild að ESB þá er ljóst hvað er í boði, það er ESB. Núna virðist þetta mál vaknað að nýju þar sem Viðreisn, sem nú rís hátt í skoðanakönnunum, hefur þá stefnu að ganga í ESB og hefur lýst yfir að fram skuli fara atkvæðagreiðsla um hvort „kíkja skuli í pakkann“. Sjálfstæðisflokkurinn styður ekki slíka skógarferð enda er það kalt hagsmunamat að hagsmunum lands og þjóðar er betur borgið utan ESB en innan þess.

Þeir sem velta fyrir sér að kjósa flokka sem eru yfirlýstir stuðningsmenn þess að þröngva Íslandi inn í ESB þurfa að velta fyrir sér afleiðingum inngöngu. Bera þarf saman lífskjör, atvinnuleysistölur, hagvöxt á Íslandi og í Evrópu. Einnig þarf að ræða áhrif þess ef orkuauðlindir þjóðarinnar verða hluti af evrópskum markaði.

Í hnotskurn

Margir þeirra flokka sem nú eru í framboði skreyta sig með því að segjast vera hægri flokkar. Raunin er sú að það er aðeins einn flokkur í boði sem hefur barist fyrir frelsi og minni ríkisafskiptum í bráðum 100 ár. Vörumst eftirlíkingar og kjósum alvöru hægri flokk, Sjálfstæðisflokkinn.

Höfundur er stjórnarmaður í Sambandi ungra sjáflstæðismanna.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×