Skoðun

Reddarinn Geiri í Glaum­bæ - gömul saga og ný

Jakob Frímann Magnússon skrifar

Húsið þar sem nú er Listasafn Íslands við Fríkirkjuveg var á sínum tíma byggt sem íshús, en hýsti síðan heitasta skemmtistað landsins, Glaumbæ, á sjötta og sjöunda áratugnum. Þúsundir ungmenna sóttu Glaumbæ um hverja helgi. Iðulega máttu þó jafmmargir og inn komust híma í portinu utan dyra þar sem leyfilegur hámarksfjöldi innan Glaumbæjar reyndist afstætt hugtak og teygjanlegt. Úr Glaumbæjarportinu heyrðist jafnan langt fram eftir nóttu hávært ákall æskulýðsins: Geiri! Geiri!

Hver var þessi Geiri?

Geiri, réttu nafni Siggeir Eiríksson, var dyravörðurinn, sjálfur Lykla - Pétur Glaumbæjar. Bróðir eigandans, Sigurbjörns Eiríkssonar og maðurinn sem hafði það á valdi sínu að geta hleypt hinum útvöldu inn í hlýjuna sælu, þar sem dansinn dunaði og framtíðin gat ráðist. Reddarinn mikli!Það skipti sköpum að vera í náðinni hjá Geira. Hugmyndir kviknuðu í Glaumbæ, jafnvel líf.

Mun Geiri okkar í Glaumbæ við Kalkofnsveg láta undan þrýstingi?

En nú er öldin önnur og annar Geiri allsráðandi í öðrum Glaumbæ. Þessum þarna við Kalkofnsveg, þar sem glaumur þrútinna fjármagnseigenda hefur aldrei verið meiri.

Á meðan eru hrópandi skuldaþrælar fyrir utan og nú háværari en nokkru sinni: Geiri! Geiri!

Seðlabankastjórinn Ásgeir Jónsson, sonur VG sem skipaði hann á sínum tíma, virðist gráta þurrum tárum þetta harmakvæl þeirra sem úti mega híma. Glaumbæjarglaumurinn innan dyra hefur verið svo stórkostlegur og gefandi – fyrir hina útvöldu: Glaumbæjargosana.

Þegar neyðin er stærst...

Nú mun þó vera búið að koma fyrir kraftmiklum hátölurum úr nærliggjandi húsum, byggingum á borð við Arnarhvál, gamla fangelsishúsið við Lækjartorg og í öðrum ráðuneytum þar sem framhaldslíf tilekinna ráðherra eru í húfi.

Úr þessum háværu glymskröttum mun tekið að glymja sem aldrei fyrr: Geiri! Geiri!

Mætti ekki gera ráð fyrir því að bænakallið berist nú loksins á ögurstundu, gegnum allan skarkalann og fjármálaglauminn? Og þá vonandi alla leið í eyrnatóftirnar á honum Geira okkar, svo náð og miskunn verði kannski að lokum sýnd og þá væntanlega útskýrð sem „Tímabær stýrivaxtalækkun af völdum árangursríkrar fjármálastefnu!“

Mættu þá kannski blessaðir ráðherrarnir endurheimta traust sitt og völd að nýju, a.m.k. til næstu fjögurra ára?

Hann Geiri okkar hlýtur að fara að sjá aumur á blessuðu fólkinu og láta undan, rétt eins og forðum. Redda málunum! Og hlýtur þetta þá ekki bara allt að fara að koma?

Höfundur skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík norður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×