Skoðun

Flokkur fólksins er til­búinn í ríkis­stjórn!

Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Traust og trúverðugleiki

Kjósendur þurfa nú að vega og meta hverjum er best treyst fyrir stjórn landsins og hvernig samfélagi þeir vilja búa í á komandi árum.

Kjósendur eru í raun að taka frambjóðendur flokka í atvinnuviðtöl og ráða síðan í framhaldinu í vinnu með almannahagsmuna að leiðarljósi næstu fjögur árin.

Fögur loforð eða efndir

Stefnumál og áherslur flokka spanna breitt svið frá vinstri til hægri og allt þar á milli. Það eru fjölbreytt viðfangsefni hverju sinni sem kalla á fjölbreyttar lausnir sem ekki er alltaf hægt að flokka í hólf vinstri eða hægri heldur hvort unnið er í þágu almannahagsmuna eða sérhagsmuna peningaaflanna.

Reynslan sýnir að flokkar sem komast til valda missa oft sjónar á erindi sínu og efndum við kjósendur sína og stefnu. Margar eru nefndirnar og litlar eru efndirnar.

Það á enginn neitt í pólitík

Í okkar lýðræðisþjóðfélagi er mikilvægt að gefa flokkum tækifæri á að sýna framá hvort þeim sé treystandi í það ábyrgðarhlutverk að stjórna landinu og koma sínum stefnumálum í framkvæmd.

Það er að sjálfsögðu vitað að alltaf þarf að málamiðla en forgangsmál og áherslur flokkanna skipta miklu þegar við göngum til kosninga. Ferilskrá síðustu ríkisstjórnar liggur fyrir þar sem margt hefur farið úrskeiðis og klúðrast sem bitnað hefur harkalega á kjörum almennings þó ekki sé allt sem gert hefur verið ómögulegt svo nokkurrar sanngirni sé gætt. En trúverðugleikinn er horfinn og því þurfa stjórnmálamenn að horfast í augu við það ef endurheimta á traust.

Gefum Flokki fólksins tækifæri

Flokkur fólksins var stofnaður af hugsjónakonunni Ingu Sæland sem fékk gott fólk með sér í lið til að berjast gegn fátækt og fyrir réttlæti fyrir þá sem eiga undir högg að sækja í okkar samfélagi. Flokkur fólksins byggir á réttlæti og bættum kjörum almennings og byggðanna í landinu og boðar að allir fái sömu tækifæri óháð efnahag og búsetu. Flokkur fólksins vill að íbúar njóti auðlinda landsins til sjávar og sveita og berst gegn því að auðlindirnar safnist á fárra manna hendur eins og hefur verið að gerast undanfarin ár.

Hverjir eru „alvöruflokkar“

Það er undirliggjandi hroki sumra gagnrýnenda að afgreiða suma flokka sem einsmálsflokka eða ekki „alvöruflokka“. Það er nauðsynlegt að byggja á fjölbreyttri flóru í stjórnmálum og allir hafa

eitthvað til síns máls en enginn á neitt í pólitík því „verkin sína merkin“. Í stefnuáherslum Flokks fólksins er m.a. lögð áhersla á efnahagsmál, heilbrigðismál, samgöngumál, menntamál, velferðarmál og auðlindamál, svo eitthvað sé nefnt. Eitt útilokar ekki annað og fjölbreyttur hópur frambjóðenda Flokks fólksins endurspeglar sterkar skoðanir þeirra á þjóðmálum, landi og þjóð til heilla.

Flokkur fólksins er klár í ríkisstjórn

Flokkur fólksins hefur vaxið á undanförnum árum og verið öflugur við að leggja fram þingmál til að bæta kjör almennings. Flokkurinn hefur haft áhrif með framgöngu sinni og hefur komið málum í framkvæmd sem snúa að kjörum almennings, aldraðra og öryrkja og þingmenn flokksins eru öflugir talsmenn sjávarbyggðanna í þingsal.

Rödd Flokks fólksins á fullt erindi inn í næstu ríkisstjórn sem vonandi verður byggð á félagslegu réttlæti og almannahagsmunum og séð verði til þess að spillingu og sérhagsmunagæslu verði úthýst.

Höfundur skipar 2. sæti Flokks fólksins Norðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×