Skoðun

Sjálf­skapar­víti Sam­fylkingar og Við­reisnar

Birta Karen Tryggvadóttir skrifar

Það hefur verið erfitt að sitja á sér undanfarna daga þegar að frambjóðendur Samfylkingarinnar lofa betri tíð fyrir kjósendur með bættri efnahagsstjórn. Þar er rætt um að „negla niður verðbólgu og vexti“, eins og það sé einfalt verkefni. Á sama tíma heyrum við frambjóðendur Viðreisnar lofa jafnvægi á húsnæðismarkaði og vöxtum í takt við Evrópusambandið. Þar virðist hins vegar sú staðreynd hafa gleymst að lágir vextir innan ESB koma helst til vegna lítils hagvaxtar og staðnaðs efnahagslífs, sem telst seint eftirsóknarvert.

Skuggastjórn borgarstjórnar Reykjavíkur

Húsnæðisskortur er eitt stærsta viðfangsefni næstu ríkisstjórnar, og keppast flokkarnir við að leggja fram lausnir í þeim málaflokki. Það er aftur á móti ljóst að meirihlutinn í borgarstjórn, sem Viðreisn og Samfylkingin hafa átt aðkomu að um langa hríð, ber ríka ábyrgð á langvarandi vanda á húsnæðismarkaði. Einstrengisháttur þeirra í húsnæðisuppbyggingu hefur skapað viðvarandi skort á húsnæði með tilheyrandi hækkunum á húsnæðisverði og fasteignamati sem áfram leiðir til hækkana á fasteignasköttum um tugi þúsunda króna. Á sama tíma hefur þjónustan ekki batnað – ef eitthvað, þá hefur hún versnað. Langir biðlistar eftir leikskólaplássi og almennt lakari grunnþjónusta eru dæmi um það.

Myllusteinn um háls ungs fólks

Áhrif stefnu borgarstjórnar Reykjavíkur teygja sig lengra en til fasteignamarkaðarins. Húsnæðisverð hefur drifið áfram verðbólgu, sem hefur verið meginástæða hárra stýrivaxta um langa hríð. Þetta veldur óhjákvæmilega miklu álagi á ungar fjölskyldur, sem standa frammi fyrir háum greiðslum af lánum þannig minna er eftir til að mynda til að standa undir þátttöku barna þeirra í íþróttum eða öðrum dýrmætum tómstundum. Þá eru möguleikar ungs fólks til að kaupa sína fyrstu eign eða að stækka við sig þegar fjölskyldan stækkar takmarkaðir.

Nýleg lækkun stýrivaxta Seðlabankans ber merki um árangur fráfarandi ríkisstjórnar, þrátt fyrir gagnrýni. Enn eru vextir alltof háir, en aðhald í ríkisfjármálum og tryggt framboð af húsnæði til lengri tíma eru lykilatriði við að ná niður verðbólgu og vöxtum. Í því samhengi skiptir miklu máli að greina loforð flokkanna í samhengi við raunverulega aðstæður. Það er því frekar kaldhæðnislegt að Viðreisn og Samfylkingin boði stórátaki í uppbyggingu húsnæðis á sama tíma og þau hafa lagt stein í götu nauðsynlegrar húsnæðisuppbyggingar með þeirri stefnu sem rekin hefur verið í borginni. Eða lofi að „útrýma biðlistum barna“ á sama tíma og biðlistar eftir leikskólaplássum í Reykjavík eru mun lengri en í öðrum sveitarfélögum á Höfuðborgarsvæðinu.

Núverandi ríkisstjórn, undir forystu Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt grunninn að áframhaldandi vaxtalækkunum og aukinni velsæld. Það væri óráð að spilla þeim árangri með borgarferð undir leiðsögn Samfylkingar og Viðreisnar.

Höfundur er hagfræðingur og ungur sjálfstæðismaður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×