Erlent

Vilja að­komu Kínverja að rann­sókn á skemmdum sæstrengjum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Vel er fylgst með Yi Peng 3, sem hefur legið við akkeri í Kattergat frá 19. nóvember.
Vel er fylgst með Yi Peng 3, sem hefur legið við akkeri í Kattergat frá 19. nóvember. AP/Ritzau Scanpix/Mikkel Berg

Stjórnvöld í Svíþjóð hafa formlega óskað eftir samvinnu Kínverja við að komast til botns í því hvernig tveir neðansjávarstrengir skemmdust í Eystrasalti.

Strengirnir liggja á milli Svíþjóðar og Litháen annars vegar og Finnlands og Þýskalands hins vegar. Báðir skemmdust 17. nóvember síðastliðinn, á svæði innan sænskrar lögsögu.

Wall Street Journal greindi frá því að rannsakendur grunaði að áhöfn kínverska skipsins Yi Peng 3, sem sigldi yfir strengina á sama tíma, hefði unnið skemmdir á þeim með því að draga akkeri skipsins eftir sjávarbotninum.

Um viljaverk hafi verið að ræða.

Yfirvöld hafa þó ekki staðfest fregnirnar, né heldur slegið því á föstu að um skemmdarverk hafi verið að ræða.

Sérfærðingar segja kenninguna hins vegar rökrétta, þar sem engar sprengingar sáust á skjálftamælum, líkt og gerðist þegar skemmdarverk voru unnin á Nord Stream 1 og 2 í september árið 2022.

Ulf Kristerson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segist ekki eiga von á öðru en samvinnu frá kínverskum stjórnvöldum. Hann segist vilja fara varlega í að saka neinn um neitt, á meðan rannsókn er ólokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×