Fótbolti

Sterkt lið Ís­lands gegn Kanada í kvöld

Sindri Sverrisson skrifar
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir eru báðar í byrjunarliðinu í kvöld.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir eru báðar í byrjunarliðinu í kvöld. vísir/Anton

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands í vináttulandsleiknum við Kanada í kvöld, á Pinatar Arena á Spáni.

Á meðan stelpurnar okkar í handboltalandsliðinu eru að hefja sitt Evrópumót í Austurríki, með leik við Holland, þá undirbúa stelpurnar okkar í fótboltalandsliðinu sig undir Evrópumótið í Sviss næsta sumar með leikjum við Kanada og Danmörku á Spáni.

Þorsteinn hefur gefið út að hann muni gera umtalsverðar breytingar á byrjunarliði sínu á milli leikja en í fyrri leiknum í þessari törn, gegn Kanada í kvöld, er liðið þannig skipað:

Byrjunarlið Íslands gegn Kanada á Spáni.KSÍ

Lykilmenn liðsins á borð við þær Glódísi Perlu Viggósdóttur, Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur og Sveindísi Jane Jónsdóttur, eru allar í byrjunarliðinu í kvöld.

Fyrirliðinn Glódís er leikjahæst í liðinu en hún leikur sinn 131. A-landsleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×