Fótbolti

Ís­land nær sigri í slagnum við Kanada

Sindri Sverrisson skrifar
Glódís Perla VIggósdóttir var á sínum stað í vörn Íslands sem fékk ekki á sig mark í kvöld.
Glódís Perla VIggósdóttir var á sínum stað í vörn Íslands sem fékk ekki á sig mark í kvöld. Getty/Michael Wade

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta gerði markalaust jafntefli við sterkt lið Kanada í kvöld í fyrri vináttulandsleik sínum á Pinatar Arena á Spáni.

Kanada er í 6. sæti heimslista FIFA en Ísland í 13. sætinu. Það var þó íslenska liðið sem var nær sigri í leik liðanna í kvöld.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fékk besta tækifærið til að skora í leiknum, þegar Lysianne Proulx markvörður Kanada sendi boltann óvart á hana, en Proulx bjargaði sér með því að verja skot Karólínu.

Þetta var snemma í seinni hálfleik en Karólína var einnig nálægt því að koma Íslandi yfir á 20. mínútu leiksins, þegar þær Sveindís Jane Jónsdóttir spiluðu sig inn í teig Kanada en markvörðurinn Sabrina D'Angelo, sem lék fyrri hálfleikinn, náði að verjast á síðustu stundu.

Ísland átti fleiri færi og Sveindís átti til að mynda skot utan teigs sem fór rétt yfir markið, þegar um korter var til leiksloka.

Kanada komst ekki sérstaklega nálægt því að skora og Cecilía Rán Rúnarsdóttir, sem fékk tækifæri í byrjunarliðinu, gerði það sem hún hefur verið svo vön að gera með Inter á Ítalíu í vetur, og hélt markinu hreinu.

Ísland mætir næst Danmörku á mánudagskvöld, en leikirnir eru liður í undirbúningi fyrir næsta ár þar sem meðal annars bíður Íslands Evrópumót í Sviss.


Tengdar fréttir

Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands í vináttulandsleiknum við Kanada í kvöld, á Pinatar Arena á Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×