Innlent

„Förum ekki að stefna öryggi fólks í hættu“

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Kristín Edwald er formaður landskjörstjórnar. 
Kristín Edwald er formaður landskjörstjórnar.  Vísir/Einar

Formaður landskjörstjórnar telur ólíklegt að fresta þurfi kjörfundi vegna veðurviðvarana í kvöld. Líklega gangi allt upp samkvæmt áætlun. 

„Það verður allt gert innan skynsamlegra marka,“ segir Kristín Edwald formaður landskjörstjórnar í samtali við fréttastofu. „Við förum ekki að stofna öryggi fólks í hættu. “

Mögulega seinki talningu vegna veðurs. „Við sjáum það bara betur í kvöld, hvernig færðin verður. Það er ekkert hægt að segja til um það fyrr en þá,“ segir Kristín. 

Veðurviðvaranir hafa verið gefnar út víðast hvar um landið og gætu haft áhrif á talningu í Norðvestur- og Norðausturkjördæmi. 

Hún segir að staðan verði metin síðar í dag. Yfirkjörstjórnir hafi skipulagt þannig að allt gangi upp samkvæmt áætlun. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×