Innlent

„Langt frá því sem við í Vinstri grænum vonuðum“

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Svandís Svavarsdóttir formaður Vinstri grænna á kosningavöku í Iðnó í gær.
Svandís Svavarsdóttir formaður Vinstri grænna á kosningavöku í Iðnó í gær. Vísir/Viktor Freyr

Svandís Svavarsdóttir formaður Vinstri grænna þakkar stuðningsfólki og samstarfsfólki sínu fyrir samvinnuna í færslu á Facebook fyrr í dag. Samkvæmt niðurstöðum úr Alþingiskosningum þurrkast flokkurinn alveg út af þingi og missir rétt sinn til árlegra fjárframlaga til stjórnmálasamtaka úr ríkissjóði. 

„Niðurstöður kosninganna eru langt frá því sem við Vinstri græn vonuðum. Á komandi kjörtímabili verður enginn fulltrúi VG á Alþingi sem eru sannarlega þáttaskil fyrir okkur öll sem höfum barist fyrir málefnum hreyfingarinnar af lífi og sál, mörg árum saman,“ skrifar Svandís á Facebook

Það hafi verið einstakt að njóta þess heiðurs að sitja á Alþingi og beita sér í þágu réttlætis, jöfnuðar, kvenfrelsis og umhverfisverndar. 

„Greiningar á pólitískri stöðu bíða betri tíma en á þessum tímapunkti vil ég þakka öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum í kosningabaráttunni.“

Þótt flokkurinn verði ekki lengur á þingi muni baráttan halda áfram því gildi hans og hugsjónir lifi áfram í samfélaginu og hjá öllum þeim sem hafa þau í hávegum.

„Framundan er deigla, endursköpun og uppbygging. Þangað beinum við okkar kröftum. Takk fyrir mig.“

Vinstri græn mældust með 2,3 prósent fylgi í kosningunum. Í lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka kemur fram að stjórnmálasamtök sem hafa fengið að minnsta kosti einn mann kjörinn á þing eða náð að lágmarki 2,5 prósent atkvæða eigi rétt til árlegra framlaga úr ríkissjóði. Þannig er ljóst að flokkurinn á ekki rétt til slíkra framlaga miðað við núgildandi lög. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×