Innlent

Halla for­seti hittir alla for­mennina á morgun

Jakob Bjarnar skrifar
Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Bjarni Benediktsson forsætisráðherra þegar sá síðarnefndi óskaði eftir þingrofsbeiðni.
Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Bjarni Benediktsson forsætisráðherra þegar sá síðarnefndi óskaði eftir þingrofsbeiðni. vísir/vilhelm

Halla Tómasdóttir forseti Íslands segist ætla að hitta alla formenn flokkanna á morgun, það er þeirra sem náðu inn á þing, með það fyrir augum að taka afstöðu til stjórnarmyndunarumboðs.

Þetta kemur fram í fullveldisdagsávarpi Höllu sem hún birti á Facebook-síðu Forseta Íslands.

„Við skulum gefa því ferli þann tíma og svigrúm sem nauðsyn krefur,“ segir Halla. Hún segir auk þess kosningar aðferð frjálsra og fullvalda lýðræðisþjóða til að ráða ráðum sínum.

„Kjósendur hafa nú falið kjörnum fulltrúum umboð til að setjast á þing og vinna að hagsmunum þjóðarinnar allrar næstu fjögur árin og til framtíðar. Því fylgir bæði ábyrgð og gleði og óska ég öllum þeim til hamingju sem hlotið hafa kosningu, um leið og ég þakka þeim sem nú hverfa á braut úr þingstörfum.“

Forsetinn boðar formenn flokkanna á sinn fund á morgun.vísir/vilhelm

Halla segir að næst sé að komast að samkomulagi um myndun ríkisstjórnarinnar. „Og hyggst ég á morgun funda með formönnum allra flokka sem sæti eiga á þingi með það fyrir augum að taka afstöðu til veitingar stjórnarmyndunarumboðs,“ eins og forsetinn orðar það.

Halla segir óvenjulegt að fullveldisdagurinn fylgi beint í kjölfar almennra kosninga og er þetta aðeins í annað sinn á lýðveldistímanum sem kosið er um hávetur.

„Hefðin hefur verið sú á Íslandi að kjördagur sé að vori og við vorum rækilega minnt á eina af ástæðum þess í landshlutum þar sem vetrarhríð geisaði á kjördag. En íslenska seiglan lætur ekki að sér hæða og kjörsókn var góð, þrátt fyrir allt.“

Forsetinn þakkar öllum þeim sem lögðu mikið á sig til þess að tryggja að kjósendur kæmust á kjörstað og atkvæðin í talningu.

Fréttastofa hefur í dag óskað eftir viðbrögðum forseta við kosningum en því hefur ekki verið sinnt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×