Ferðuðust tæpa 650 kílómetra á utandeildarleik og fengu bjór að launum Níu stuðningsmenn Brackley Town, sem leikur í Vanarama National League North deildinni á Englandi, hafa fengið mikið lof á samfélagsmiðlum fyrir að ferðast tæplega 650 kílómetra til að styðja liðið. Fótbolti 3. febrúar 2023 07:00
Nýliðarnir ekki hættir á markaðnum þrátt fyrir að glugginn sé lokaður Nýliðar Nottingham Forest eru búnir að semja við ganverska landsliðsmanninn Andre Ayew um að leika með liðinu það sem eftir lifir tímabils í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fótbolti 2. febrúar 2023 20:30
Greenwood æfir hvorki né spilar fyrr en rannsókn United lýkur Knattspyrnumaðurinn Mason Greenwood mun hvorki æfa né spila með Manchester United fyrr en félagið hefur lokið sinni eigin rannsókn á máli leikmannsins. Fótbolti 2. febrúar 2023 18:01
Mega standa í fyrsta sinn í 35 ár Úrslitaleikur Manchester United og Newcastle síðar í þessum mánuði mun marka tímamót á Englandi hvað áhorfendur snertir. Enski boltinn 2. febrúar 2023 16:31
Ekki orðinn þrítugur en hættur í franska landsliðinu Raphael Varane tilkynnti í dag að hann væri hættur að spila fyrir franska landsliðið í fótbolta, þrátt fyrir að vera aðeins 29 ára gamall. Fótbolti 2. febrúar 2023 15:31
Greenwood laus allra mála Allar ákærur á hendur Mason Greenwood hafa verið felldar niður, rúmu ári eftir að þessi 21 árs gamli leikmaður Manchester United var handtekinn grunaður um nauðgunartilraun, líkamsárás og þvingunartilburði. Enski boltinn 2. febrúar 2023 14:29
Arsenal strákur markahæstur í frönsku deildinni: Ofar en Mbappe og Neymar Folarin Balogun skoraði þrennu fyrir Reims í frönsku deildinni í gær og er þar með orðinn markahæsti leikmaðurinn í Ligue 1. Fótbolti 2. febrúar 2023 13:30
Segir United betra eftir að orkusugurnar Pogba og Ronaldo fóru Roy Keane hrósaði Erik ten Hag í hástert eftir að Manchester United tryggði sér sæti í úrslitum enska deildabikarsins í gær. Hann sagði að United væri betra lið eftir brotthvarf tveggja stórstjarna. Enski boltinn 2. febrúar 2023 07:30
Forseti La Liga segir eyðslu enskra liða ógna stöðugleika fótboltans í Evrópu Javier Tebas, forseti La Liga – spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, segir að eyðsla enskra úrvalsdeildarfélaga ógni stöðugleika fótboltans í álfunni. Ensk lið hafa eytt fjármunum sem aldrei fyrr í janúar og er Tebas ekki sáttur. Enski boltinn 2. febrúar 2023 07:01
„Hjá Man United verður að halda ákveðnum standard“ „Auðvitað er gaman að vinna undanúrslitaleiki en fyrri hálfleikurinn var ekki frábær ef ég á að vera hreinskilinn,“ sagði Erik Ten Hag um frammistöðu Manchester United í 2-0 sigrinum á Nottingham Forest í kvöld. Lærisveinar Ten Hag unnu fyrri leikinn 3-0 og voru komnir með annan fótinn á Wembley. Enski boltinn 1. febrúar 2023 23:46
Man United örugglega í úrslit eftir sigur á Forest Manchester United mætir Newcastle United í úrslitum enska deildarbikarsins. Man United vann Nottingham Forest 2-0 í kvöld og einvígi liðanna því samtals 5-0. Enski boltinn 1. febrúar 2023 21:55
Umboðsmaður Haaland segir að hann sé eins milljarðs evra virði Umboðsmaður norska framherjans Erling Braut Haaland hefur gefið út sitt mat á því hvað leikmaðurinn hans ætti að kosta ef allt væri tekið til greina. Enski boltinn 1. febrúar 2023 18:01
Gefur lítið fyrir gagnrýni Mersons á Sabitzer: „Bayern kaupir ekki aulabárða“ Rio Ferdinand gefur lítið fyrir gagnrýni Pauls Merson á félagaskipti Marcels Sabitzer til Manchester United og segir að hún einkennist af vanþekkingu. Enski boltinn 1. febrúar 2023 16:30
Ten Hag segir að tækling Carrolls eigi ekki heima í fótbolta Andy Carroll er ekki á jólakortalista Eriks ten Hag, knattspyrnustjóra Manchester United, eftir að hann meiddi Christian Eriksen í bikarleiknum gegn Reading á laugardaginn. Enski boltinn 1. febrúar 2023 12:31
Skotinn niður og út úr leiknum í sigri Newcastle í gær Newcastle komst í gær í sinn fyrsta úrslitaleik á Wembley í 24 ár þegar liðið vann 2-1 sigur á Southampton í seinni undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum. Enski boltinn 1. febrúar 2023 12:01
Hækkað um tæplega hundrað milljónir punda í verði á hálfu ári Eftir langar viðræður gekk Chelsea loks frá kaupunum á Enzo Fernández frá Benfica í gær, á lokadegi félagaskiptagluggans. Óhætt er að segja að argentínski heimsmeistarinn hafi hækkað verulega í verði undanfarna mánuði. Enski boltinn 1. febrúar 2023 11:30
Conte í aðgerð eftir gallsteinakast Antonio Conte, knattspyrnustjóri Tottenham, gengst undir aðgerð í dag þar sem gallblaðran verður fjarlægð úr honum. Enski boltinn 1. febrúar 2023 10:53
Chelsea klúðraði félagaskiptunum og Ziyech fór í fýluferð til Parísar Svo virðist sem Chelsea hafi klúðrað félagaskiptum Hakims Ziyech til Paris Saint-Germain. Enski boltinn 1. febrúar 2023 07:31
Fjórir af sjö nýjum leikmönnum Chelsea geta ekki tekið þátt í Meistaradeildinni Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea þarf að velja og hafna leikmönnum þegar kemur að því að skrá 25 manna hóp sem getur tekið þátt í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 1. febrúar 2023 07:00
Lokadagur gluggans: Enzo dýrastur í sögunni og Arsenal sótti Evrópumeistara til nágrannanna Félagsskiptaglugginn í Evrópu lokaði í kvöld og eins og við var að búast var af nægu að taka. Stærstu fréttirnar eru þær að Chelsea náði að öllum líkindum að ganga frá kaupum á argentínska miðjumanninn Enzo Fernandez á metfé og Arsenal fékk Evrópumeistarann Jorginho frá nágrönnum sínum í Chelsea. Enski boltinn 1. febrúar 2023 00:40
Sabitzer á láni til United Austurríski knattspyrnumaðurinn Marcel Sabitzer er genginn til liðs við Manchester United á láni frá Þýskalandsmeisturum Bayern München. Fótbolti 1. febrúar 2023 00:21
Nýliðarnir fá þrefaldan Evrópumeistara Nýliðar Nottingham Forest hafa fengið markvörðinn Keylor Navas á láni frá franska stórveldinu Paris Saint-Germain. Fótbolti 31. janúar 2023 23:24
Sjálfsmark tryggði Blackburn sæti í 16-liða úrslitum Blackburn er á leið í 16-liða úrslit enska FA-bikarsins í knattspyrnu eftir 1-0 sigur gegn Birmingham í framlengdum leik þar sem sjálfsmark skildi á milli liðanna. Fótbolti 31. janúar 2023 22:24
Tíu leikmenn Newcastle tryggðu sér sæti í úrslitum Newcastle er á leið í úrslit enska deildarbikarsins eftir 2-1 sigur gegn Southampton í kvöld. Newcastle vann 1-0 sigur í fyrri leik liðanna og liðið vann einvígið því samanlagt 3-1. Fótbolti 31. janúar 2023 22:07
Jorginho genginn í raðir Arsenal Ítalski knattspyrnumaðurinn Jorginho er genginn til liðs við Arsenal frá Chelsea fyrir tólf milljónir punda, eða rúma tvo milljarða íslenskra króna. Fótbolti 31. janúar 2023 20:15
Nýja Chelsea-stjarnan baðst afsökunar á gömlu myndbandi Úkraínumaðurinn Mykhailo Mudryk, nýja stjarnan í liði Chelsea, neyddist til að biðjast afsökunar á TikTok-myndbandi sem birtist síðasta sumar, þar sem hann fór með línur úr rapplagi og notaði N-orðið. Enski boltinn 31. janúar 2023 17:01
Tæklingin reyndist áfall fyrir Manchester United Nú er orðið ljóst að danski miðjumaðurinn Christian Eriksen mun ekki spila með Manchester United næstu mánuðina en búist er við því að hann verði frá keppni fram í lok apríl eða byrjun maí vegna ökklameiðsla. Enski boltinn 31. janúar 2023 12:30
Dyche skellihló að dauðþreyttum leikmönnum Everton Sean Dyche, nýráðinn knattspyrnustjóri Everton, lofaði að láta leikmenn liðsins svitna og miðað við fyrstu æfinguna undir hans stjórn ætlar hann að standa við loforðið. Enski boltinn 31. janúar 2023 12:01
Jóhann Berg framlengir Jóhann Berg Guðmundsson hefur framlengt samning sinn við Burnley til eins árs með möguleika á árs framlengingu. Enski boltinn 31. janúar 2023 11:17
Jorginho á leið til Arsenal Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, er að ganga frá kaupunum á ítalska miðjumanninum Jorginho frá Chelsea. Enski boltinn 31. janúar 2023 10:30