Mjótt á munum í Mónakó Aðeins 0.1 sekíndu var á milli fyrstu fimm ökumannanna á lokaæfingu keppnisliða í Mónakó í dag. Fernando Alonso á Renault náði besta tíma og var hann aðeins 0.069 sekúndum á undan Jenson Button á Brawn bíl. Formúla 1 23. maí 2009 10:14
Lewis Hamilton: Hef lært af mistökunum Bretinn Lewis Hamilton keppir í Mónakó um helgina og ekur í tímatökum í dag. Ökumenn segja að tímatakan gildi 70% í þessum kappakstri þegar kemur að því að ná árangri. Hamilton vann mótið í fyrra með McLaren. Formúla 1 23. maí 2009 07:44
Ecclestone hótar Ferrari lögsókn Deilumálið á milli Ferrari og annara keppnisliða og FIA hefur tekið á sig nýja mynd. Bernie Ecclestone hótaði Ferrari í dag lögsókn ef þeir virða ekki samninga sem FOM, fyrirtæki Ecclestone er með og lláti af hótunum um að hætta í Formúlu 1. Formúla 1 22. maí 2009 11:03
Harður slagur um besta tíma í Mónakó Mjög mjótt var á munum á seinni æfingu keppnisliða í Mónakó í dag. Heimamaðurinn Nico Rosberg, sem er reyndar fæddur í Þýskalandi, en býr í Mónakó var með næsta besta tíma á Williams. Formúla 1 21. maí 2009 13:33
Evrovisjón stjarna spyrnir í Mónakó Jóhanna Guðrún, söngstjarna okkar Íslendinga spyrnir um götur Mónakó í kvöld, en keppt er í Formúlu 1 í furstadæminu í um helgina. Jóhann tekur slaginn í kapp við klukkuna í ökuhermi á Stöð 2 Sport í þættinum Rásmarkið kl. 20.00 í kvöld. Formúla 1 21. maí 2009 11:19
Barrichello fyrstur, Ferrari og McLaren eflast Brasilíumaðurinn Rubens Barrichello á Brawn var fljótastur á fyrstu æfingu keppnisliða í morgun um Mónakó brautina. Barrichello varð 0.3 sekúndum fljótari en Felipe Massa á Ferrari. Nokkuð mikill munur var annars á fremstu bílunum á æfingunni. Formúla 1 21. maí 2009 09:31
Ökumenn uggandi um framtíð Formúlu 1 Dómurinn í máli Ferrari gegn FIA í dag hefur valdið því að margir ökumenn eru uggandi um hag sinn hvað næsta ár varðar. Fjölmörg lið hafa hótað því að hætta, en samtök keppnisliða kemur saman í Mónakó þar sem keppt er um helgina. Formúla 1 20. maí 2009 22:22
Ferrari tapaði máli gegn FIA FIA er í fullum rétti að setja 40 miljón sterlingspunda útgjaldaþak á Formúlu 1 lið á næsta ári að mati dómstóls í París. Niðurstaða í kæru Ferrari gegn FIA var birt í dag. Formúla 1 20. maí 2009 13:55
Kæra Ferrari gegn FIA dómtekin Ferrari leggur inn formlega kæru fyrir franskan dómara í dag gagnvart FIA í París í dag. Ferrari liiðið er ósátt við nýjar reglur um rekstrarkostnað sem FIA ætlar að taka í notkun á næsta ári. Formúla 1 19. maí 2009 11:09
Brawn bjartsýnn fyrir Mónakó Ross Brawn, framkvæmdarstjóri Brawn liðsins er bjartsýnn fyrir Mónakó kappaksturinn um næstu helgi. Lið hans leiðir meistarakeppni ökumanna og bílasmiða, en mótið í Mónakó er það sjötta á árinu Formúla 1 19. maí 2009 08:04
Mosley blæs á Formúlu 1 krísu Forseti FIA, Max Mosley segir að umræða um að Formúlu 1 sé í krísu eigi ekki viði rök að styðjast. Hann fundaði með Formúlu 1 liðum í dag, en ekkert samkomulag náðist á milli samtaka Formúlu 1 liða og FIA. Formúla 1 15. maí 2009 17:30
FIA og Formúlu 1 lið funda á föstudag Deilurnar á milli Formúlu 1 liða og FIA, alþjóðabílasambandsins verða ræddar á fundi málsaðila á föstudag. Fjögur Formúlu 1 lið hafa hótað að hætta í Formúlu 1 í lok ársins ef reglur varðandi rekstrarkostnað taka gildi fyrir 2010. Formúla 1 14. maí 2009 08:28
Renault hótar að hætta Renault hefur bæst í hóp Formúlu 1 liða sem hóta að keppa í Formúlu 1, ef nýjar reglur FIA ná fram að ganga fyrir næsta ár. Ferrari, Red Bull, Torro Rosso og Renault hafa öll formlega sagt að þau dragi sig úr keppni í lok ársins hefur FIA nær sínu fram. Formúla 1 13. maí 2009 13:32
Nico Rosberg gæti yfirgefið Williams Þjóðverjinn Nico Rosberg hefur verið sprettharður á föstudagsæfingum í á árinu, en hefur samt aðeins nælt í 4.5 stig í mótum. Hann er í viðræðum við ýmis lið varðandi næsta ár og segir allt koma til greina varðandi störf sín 2010 Formúla 1 13. maí 2009 10:04
Ferrari hættir ef FIA gefur sig ekki Stjórn Ferrari kom saman í dag og ræddi reglubreytingar sem FIA hyggst taka í notkun á næsta ári sem takmarkar mjög möguleika liða til að þróa bíla sína og verja því fjármagni sem bílaframleiðendur vilja kosta til. Formúla 1 12. maí 2009 15:36
McLaren lítur á björtu hliðarnar Martin Whitmarsh framkvæmdarstjóri McLaren segir að lið sitt verði öflugra í Mónakó um aðra helgi, en reyndist rauninn í Barcelona á sunnudaginn. Hvorugur ökumanna liðsins komst á verðlaunapall, Lewis Hamilton varð tíundi og Heikki Kovalainen féll úr leik vegna bilunnar. Formúla 1 12. maí 2009 09:02
Ferrari hótar að hætta í Formúlu 1 Stjórn Ferrari kemur saman á morgun til að skoða framtíð fyrirtækisins í Formúlu 1. Forseti Ferrari hefur þegar hótað að draga lið sitt úr Formúlu 1, en nýjar reglur varðandi rekstrarkostnað taka gildi á næsta ári. Fleiri lið eru að skoða stöðu sína. Formúla 1 11. maí 2009 16:59
Button: Sæki til sigurs í öllum mótum Jenson Button vann sinn fjórða sigur í fimm mótum í Barcelona í gær og um aðra helgi keppir hann á heimavelli í Mónakó. Þó Button sé breskur að uppruna býr hann í skattaparadísinni Mónakó. Formúla 1 11. maí 2009 07:30
Barrichello sár að tapa fyrir Button Rubens Barrichello var svekktur að tapa fyrir liðsfélaga sínum Jenson Button í Formúlu 1 mótinu í Barcelona í dag. Brawn liðið breytti keppnisáætlun sinni, þannig að Button stóð uppi sem sigurvegari í stað Barrichello sem hafði náð forystu. Formúla 1 10. maí 2009 20:50
Enn einn sigurinn hjá Button Bretinn Jenson Button vann sinn fjórða sigur í Formúlu 1 kappakstrinum á tímabilinu í dag er hann bar sigur úr býrum í spænska kappakstrinum í Barcelona. Formúla 1 10. maí 2009 13:54
Barist til sigurs í Barcelona Jenson Button á Brawn bíl er fremstur á ráslínu í Formúlu 1 kappaksrinum í Barcelona í dag. Ross Brawn eigandi liðsins egir liðið verði að halda vöku sinni, þó það sé efst í stigamótinu. Formúla 1 10. maí 2009 07:01
Button stal ráspólnum af Vettel Bretinn Jenson Button á Brawn stal ráspólnum af Sebastian Vettel á síðustu sekúndum tímatökunnar í Barcelona. Button varð 0.1 sekúndu á undan Vettel eftir mjög harða og spennandi tímatölku. Formúla 1 9. maí 2009 13:11
Ferrari stal senunni á lokaæfingu Felipe Massa og Kimi Raikkönen náðu besta tíma á lokaæfingu keppnisliða á Barcleona brautiinni á Spání morgun. Munaði aðeins 89/1000 úr sekúndu á köppunum tveimur. Þeir virðast komnir aftur með stæl eftir slakt gengi á árinu. Formúla 1 9. maí 2009 10:03
Alonso öflugur á heimavelli Fernando Alonso frá Spáni náði þriðja besta aksturstímanum á æfingum á Barcelona brautinni í gær og ekur í tímatökum í dag. Hann var annar á ráslínu í fyrra og heimamenn heimta frambærilega árangur. Alonso er í guðttölu á Spáni eftir tvo meistaratitla á ferlinum. Formúla 1 9. maí 2009 07:18
Rosberg og Nakajima fljótir á Spáni Williams ökumennirnir Nico Rosberg og Kazuki Nakajima náðu besta aksturstíma á seinni æfingu keppnisliða í Barcelona í dag, en heimamaðurinn Fernando Alonso á Renault náði þriðja besta tíma. Enn og aftur eru Ferrari og McLaren hvergi nærri toppnum. Formúla 1 8. maí 2009 13:41
Ferrari og McLaren verða að vinna Ferrari og McLaren liðin verða að taka til hendinni í Formúlu 1 mótinu á Spáni um helgina. Fimmta mót ársins verður ræst af stað á sunnudag og liðin tvö hafa ekki unnið mót, né hafa ökumenn liðsins komist á verðlaunapall. Formúla 1 8. maí 2009 10:14
Button byrjar vel á Spáni Bretinn Jenson Button á Brawn bíl byrjaði fyrstu æfingu Formúlu 1 liða vel. Hann náði besta tíma og var 0.355 sekúndum á undan Jarno Trulli á Toyota. Formúla 1 8. maí 2009 09:35
Íslenskar poppstjörnur prófa Formúlu 1 Tvær af skærustu söngstjörnum landsins spretta úr spori í Formúlu 1 ökuhermum í þættinum Rásmarkið á Stöð 2 Sport í kvöld. Það eru Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson sem mun reyna með sér á Barcelona brautinni, en keppt verður á henni um helgina. Formúla 1 7. maí 2009 09:43
Sonur Max Mosley fannst látinn Sonur Max Mosley forseta alþjóða bílasambandsins fannst látinn á heimili sínu í London í gær. Alexander Mosley var 39 ára efnahagsfræðingur og frannst á heimili sínu í Notting Hill í gær. Formúla 1 6. maí 2009 13:29
Kristján Einar lánsamur að geta keppt Kristján Einar Kristjánsson lauk keppni um helgina í sinni fyrstu Formúlu 3 keppni á þessu ári, en hann keppir í opnu evrópsku Formúlu 3 mótaröðinni sem er skipulögð af Spánverjum og fer fram víða í Evrópu, m.a. á þekktum Formúlu 1 brautum. Formúla 1 6. maí 2009 09:57