Bankamál vísir að Alonso fari til Ferrari Santander bankinn spænski hyggst auglýsa hjá Ferrari frá árinu 2010 og margir spá í hvort það sé vísir af komu Fernando Alonso til Ferrari. Alonso er með samning við Renault til loka ársins 2010. Formúla 1 27. nóvember 2008 09:36
Sigrar ráða hver vinnur titillinn 2009 Bernie Ecclestone segir að sá sem vinnur flesta sigra 2009 verði heimsmeistari. Breyting á reglum verði gerð á fundi FIA í desember. Formúla 1 26. nóvember 2008 10:51
Red Bull í vanda vegna óhapps Webber Fótbrot Formúlu 1 ökumannsins Mark Webber um síðustu helgi á reiðhjóli gæti haft veruleg áhrif á undirbúning Red Bull liðsins fyrir næsta tímabil. Formúla 1 25. nóvember 2008 10:08
Tífaldur meistari í lið Frakklands á Wembley Tífaldur meistari í ís-kappakstri, Frakkinn Yvan Muller var í dag tilkynntur sem liðsfélagi Sebastian Loeb í meistarakeppni ökumanna á Wembley í London í desember. Formúla 1 24. nóvember 2008 13:09
Formúla 1 í Disneylandi ólíkleg Bernie Ecclestone leitar logandi ljósi að réttum vettvangi fyrir Formúlu 1 í París, en áæltun hans um mótssvæði við Disneyland er trúlega fyrir bí. Formúla 1 24. nóvember 2008 08:23
Webber missir af mótinu á Wembley Ástralinn Mark Webber átti að vera meðal keppenda í meistaramóti ökumanna Wembley 14. desember. Hann átti að vera í úrvali Formúlu 1 ökumanna í mótinu, en hann fótbrotnaði í dag í Ástralíu í þríþrautarkeppni sem hann tók þátt í. Webber lenti framan á bíl á reiðhjóli. Formúla 1 22. nóvember 2008 16:45
Formúlu 1 kappi slasaðist á reiðhjóli Formúlu 1 ökumaðurinn Mark Webber slasaðist á reiðhjóli þegar hann lenti í árekstri við bíl í þríþrautarkeppni í Tasmaníu. Formúla 1 22. nóvember 2008 11:55
Kona Ecclestone sækir um skilnað Slavica Ecclestone, eiginkona formúlumógúlsins Bernie Ecclestone, hefur farið fram á skilnað við bónda sinn. Formúla 1 21. nóvember 2008 21:02
Hamilton í hóp ökumanna á Wembley Bretinn Lewis Hamilton verður í hópi ökumanna sem kemur við sögu á stórmóti kappakstursökumanna á Wembley 14. desember. Þar verður keppt á malbikaðri braut sem lögð verður yfir grasvöllinn. Formúla 1 21. nóvember 2008 13:00
Valentino Rossi alsæll á Ferrari Ítalski mótorhjólameistarinn Valentio Rossi ekur Ferrari Formúlu 1 bíl í dag á Mugello brautinni á Ítalíu. Hann fór sprett á bílnum í gær líka. Formúla 1 21. nóvember 2008 08:16
BMW ljótasti Formúlu 1 bíllinn Christian klien, þróunarökumaður BMW er ekki hrifinn af útliti 2009 bílsins sem hefur verið prófaður á Barcelona brautinni í vikunni. Klien segir bílinn þann ljótasta sem hann hafi séð. Formúla 1 20. nóvember 2008 10:11
Sato vill sæti Rauða Tuddans Japaninn Takuma Sato dreymir um að hann fái sæti hjá Torro Rosso liðinu eftir vel heppnaðar æfingar í Barcelona. Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma, en Sato vill einmitt verða arftaki hans, en hann er búinn að færa sig um set. Formúla 1 19. nóvember 2008 16:41
Ecclestone : Sigrar færi titil ekki stig Bernie Ecclestone er að skoða þá hugmynd að flestir sigrar í Formúlu 1 færi mönnum meistaratitil ökumanna á næsta ári, en ekki stigasöfnun. Formúla 1 19. nóvember 2008 08:45
Rallmeistarinn snöggur í Formúlu 1 Frakkinn Sebastian Loeb, sem er fimmfaldur heimsmeistari í rallakstri æfir á Formúlu 1 bíl í Barcelona í dag og hann ók einnig í gær. Hann náði mjög frambærilegum tíma á Red Bill í samkeppni við reynda kappaksturskappa. Formúla 1 18. nóvember 2008 09:22
Stór stund Senna á Spáni Brasilíumaðurinn Bruno Senna ók Formúlu 1 bíl í fyrsta skipti í gær. Fjölmiðlamenn biðu þess með eftirvæntingu, þar sem Bruno er frændi Ayrtons heitins Senna, sem var goðsögn í Formúlu 1. Formúla 1 18. nóvember 2008 07:21
BMW sýnir 2009 útlitið Fjöldi Formúlu 1 liða æfir í Barcelona á Spáni næstu dagana og fyrsta æfing er í dag. Formúla 1 17. nóvember 2008 14:08
Viktori boðið í Formúlu 2 Viktori Þór Jensen hefur verið boðið að keppa í nýrri mótaröð sem verður undir merkjum FIA. Mótaröðin nefnist Formúla 2 og verður í umsjá fyrrum Formúlu 1 ökumanns. Formúla 1 17. nóvember 2008 09:02
Senna ætlar að standa undir nafni Bruno Senna, frændi Ayrtons Senna fær tækifæri á að senna getu sína með Honda liðinu í næstu viku og gæti komið inn sem ökumaður í stað Rubens Barrichello. Formúla 1 14. nóvember 2008 07:43
Meistaramót ökumanna á Stöð 2 Sport Fjöldi Formúlu 1 ökumanna verður í meistarakeppni kappakstursökumanna á Wembley þann 14. desember. Samningar hafa náðst um að sýna mótið í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Formúla 1 13. nóvember 2008 16:17
Massa heiðraður í heimalandinu Brasilíumaðurinn Felipe Massa var heiðraður í heimalandi sínu fyrir árangur í Formúlu 1. Massa hlaut Gullna hjálminn sem er veittur fyrir besta árangur kappakstursökumanns í Brasilíu. Formúla 1 13. nóvember 2008 10:26
Mótssvæðið Singapúr kosið best Flóðlýsta Formúlu 1 mótssvæðið í Singapúr var lkjörið besta mótssvæðið í akstursíþróttum á verðlaunaafhendingu fagmanna á akstursíþróttageiranum í Köln í gær. Formúla 1 12. nóvember 2008 13:26
Formúla 1 er vinsæl hjá konum Lokamótið í Formúlu 1 á Stöð 2 Sport fékk 28% áhorf samkvæmt mælingum Capacent, en það var lokaslagurinn um meistaratitilinn á milli Lewis Hamilton og Felipe Massa. Formúla 1 12. nóvember 2008 07:48
Mótorhjólameistarinn Rossi prófar Ferrari Ferrari staðfesti í dag að Ítalinn Valentino Rossi, margfaldur meistari í mótorhjólakappakstri mun prófa Ferrari Formulu 1 bíl í tvo daga í nóvember. Formúla 1 11. nóvember 2008 18:59
Miðasala tífaldast á Silverstone Aðstandendur Silverstone kappakstursins í Bretlandi hafa tilkynnt gríðarlega aukningu á miðasölu á kappakstur næsta árs í kjölfar þess að Lewis Hamilton varð heimsmeistari á dögunum. Formúla 1 11. nóvember 2008 10:17
Forseti Ferrari stútaði sjónvarpinu Luca Montezemolo forseti Ferrari stútaði sjónvarpinu í stofunni þegar ljóst varð að Felipe Massa varð ekki meistari í Brasilíu á dögunum. Hann taldi eins og flestir að Massa hefði orðið meistari í dramatískum endasprett. Formúla 1 10. nóvember 2008 12:19
Force India hættir með Ferrari Milljarðamæringurinn Vijay Mallay sem á Force India liðið hefur ákveðið að slíta samstarfi við Ferrari og mun Force India liðið nota búnað frá Mercedes á næsta ári. Formúla 1 7. nóvember 2008 14:30
Kapphlaup um sæti hjá Honda Sannkallað einvígi verður um ökumannssæti hjá Honda á næsta ári í nóvember. Honda tilkynnti í dag að Brasilíumaðurinn Lucas di Grassi komi til með að prófa bíl liðsins, en fyrr í vikunni var sagt frá því að Bruno Senna frá sama landi mun prófa bíl liðsins. Formúla 1 7. nóvember 2008 10:36
Hamilton: Kynþáttahatur er ekki grín Lewis Hamilton er ekki sammála ummælum Bernie Ecclestone þess efnis að gert hafi verið of mikið úr atvikum sem telja verður kynþáttahatur í garð Hamiltons og þetta væri bara grín. Formúla 1 6. nóvember 2008 20:39
Örlög að Hamilton vann titilinn Bretinn Ross Brawn, framkvæmdarstjóri Honda segir að hann hafi ekki upplifað jafn magnþrunginn endasprett og í Brasilíu um síðustu helgi. Brawn var aðal tæknistjórinn á bakvið sjö titla Michael Schumacher á hans ferli. Formúla 1 6. nóvember 2008 10:21
Alonso og Piquet áfram hjá Renault Fernando Alonso og Nelson Piquet voru í dag tilkynntir sem ökumenn Renault á næsta ári og Alonso gerði tveggja ára samning við Renault Formúla 1 5. nóvember 2008 15:35