2.689 greindust smitaðir af veirunni í gær 2.689 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Þetta kemur fram á heimasíðu covid.is. Innlent 23. febrúar 2022 10:51
Ríkisstjórnin fundar um afléttingu aðgerða í hádeginu Ríkisstjórnin mun í hádeginu funda um afléttingu sóttvarnaaðgerða, sem fyrirhugaðar eru í síðasta lagi á föstudag. Við verðum í beinni útsendingu frá Tjarnargötu. Innlent 23. febrúar 2022 10:00
Hefur verið frá í mánuð vegna covid: „Þetta er ömurlegt“ Handboltakonan Ragnheiður Júlíusdóttir hafði varla misst af leik á ferli sínum í meistaraflokki en nú hefur hún hvorki getað æft né spilað í um mánuð vegna kórónuveirunnar. Handbolti 23. febrúar 2022 09:00
Erfitt að sjá hverju takmarkanir skila þegar útbreiðslan er svona mikil Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir erfitt að sjá hverju sóttvarnatakmarkanir skili nú þegar útbreiðsla kórónuveirunnar er jafn mikil og raun ber vitni. Hann stefnir að því að aflétta öllum sóttvarnaaðgerðum innanlands og á landamærum í síðasta lagi á föstudag. Innlent 23. febrúar 2022 08:53
Bareigendur til í slaginn um helgina og taka afléttingum fagnandi Að óbreyttu verður tilkynnt um afléttingar á öllum takmörkunum innanlands og á landamærunum í síðasta lagi á föstudag. Bareigendur eru farnir að búa sig undir mikil skemmtanahöld um helgina. Innlent 22. febrúar 2022 21:00
Öllu aflétt í síðasta lagi á föstudag Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra á von á því að tilkynnt verði um afléttingar innanlands og á landamærum í allra síðasta lagi á föstudaginn. Þetta kom fram í máli hans að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Innlent 22. febrúar 2022 14:13
Afturför í jafnréttismálum á síðustu tveimur árum COVID-19 heimsfaraldurinn, loftslagsbreytingar og átök hafa orðið til þess að afturför hefur orðið í jafnréttismálum í heiminum á síðustu tveimur árum. Heimsmarkmiðin 22. febrúar 2022 12:42
2.415 greindust smitaðir innanlands í gær 2.415 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Innlent 22. febrúar 2022 10:28
Einn á gjörgæslu 42 liggja á Landspítalanum með Covid-19. Einn er á gjörgæslu, ekki í öndunarvél. Innlent 22. febrúar 2022 10:19
Einangrun verði ekki lengur skylda og smitrakningu hætt í vikunni Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti þinginu í dag að frá og með 1. apríl næstkomandi verði öllum takmörkunum vegna Covid aflétt í landinu. Stór skref verða sömuleiðis tekin til afléttingar síðar í vikunni. Erlent 21. febrúar 2022 23:46
Landspítalinn býst ekki við að kalla fólk úr einangrun Landspítalinn hyggst ekki sækja um undanþágur frá einangrun fyrir starfsfólk sitt nema brýna nauðsyn beri til, að sögn forstjórans. Sóttvarnalæknir segir að forsendur séu fyrir því að veita slíkar undanþágur í ljósi mikillar útbreiðslu kórónuveirusmita og mönnunarvanda á heilbrigðisstofnunum. Innlent 21. febrúar 2022 20:00
Óbólusettir gætu áfram sætt takmörkunum við landamærin Langtímafyrirkomulag sóttvarna á landamærum verður til umræðu á ríkisstjórnarfundi á morgun. Þar má vænta mikilla tilslakana og jafnvel algerra afléttinga fyrir bólusetta. Nokkrar útfærslur eru til skoðunar en samkvæmt heimildum fréttastofu er stærsta spurning hvort halda eigi strangari reglum fyrir óbólusetta sem koma inn í landið. Innlent 21. febrúar 2022 17:52
Fyrsta andlát vegna Covid á Sjúkrahúsinu á Akureyri Karlmaður á tíræðisaldri, sem var smitaður af Covid, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri um helgina. Hann lá inni vegna annarra veikinda en Covid en samkvæmt framkvæmdastjóra lækninga sjúkrahússins er talið næsta víst að Covid-sýkingin hafi verið helsta dánarorsökin. Innlent 21. febrúar 2022 15:57
„Ég er hrædd um að þessi vika verði svolítið skrýtin“ Leikskólastjóra í Stykkishólmi leist ekki á blikuna í gær þegar tilkynningar um fjarveru starfsmanna byrjuðu að hrannast inn hver af annarri. Alls vantaði 16 af 26 starfsmönnum í morgun en flestir eru ýmist í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu PCR-sýnatöku. Innlent 21. febrúar 2022 15:20
Borgarstjóri sá síðasti í fjölskyldunni til að fá Covid-19 Dagur B. Eggertsson hefur fengið staðfestingu á Covid-19 smiti. Hann segir niðurstöðuna ekki koma á óvart enda sé hann sá síðasti af sex meðlimum fjölskyldunnar sem hafa skipst á að smitast frá því í janúar. Innlent 21. febrúar 2022 15:13
Létta á reglum um einangrun og smitgát fyrir starfsmenn Landspítalinn hefur nú tekið fyrsta skref í átt að því að reyna að leysa mönnunarvanda vegna fjölda smitaðra starfsmanna. Framvegis mega þríbólusettir og einkennalausir starfsmenn spítalans mæta til vinnu beint eftir fimm daga einangrun. Innlent 21. febrúar 2022 14:27
Stefnir í að skerða þurfi valþjónustu enn frekar Sigurður Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri segir að með þessu áframhaldi sé útlit fyrir að skerða þurfi valþjónustu enn frekar. Innlent 21. febrúar 2022 13:18
Justin Bieber er með Covid og frestar tónleikum Söngvarinn Justin Bieber þurfti að aflýsa tónleikum sínum í Las Vegas í gær með aðeins sólarhrings fyrirvara. Fulltrúi poppstjörnunnar staðfesti í samtali við People að ástæðan væri að Bieber greindist með Covid. Lífið 21. febrúar 2022 13:16
Forsendur fyrir því að heimila covid-smituðu heilbrigðisstarfsfólki að mæta til vinnu Sóttvarnalæknir telur forsendur fyrir því að heimila starfsfólki heilbrigðisstofnana að mæta til vinnu, sé það einkennalaust. Þegar hefur eitt hjúkrunarheimili fengið undanþágu frá einangrun. Innlent 21. febrúar 2022 12:44
2.393 greindust smitaðir innanlands í gær 2.393 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Það eru töluvert færri en í fyrradag en þá greindust 2.692 smitaðir af veirunni. Innlent 21. febrúar 2022 10:48
Túristar aftur velkomnir til Ástralíu Ástralía hefur opnað á komu erlendra gesta í fyrsta sinn í rúmlega tvö ár en landinu var svo gott sem lokað í kórónuveirufaraldrinum í mars árið 2020. Erlent 21. febrúar 2022 07:09
Elísabet Bretadrottning með Covid Elísabet Bretadrottning hefur greinst með kórónuveiruna. Í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni segir að hún sé með væg kvefeinkenni eins og er. Erlent 20. febrúar 2022 12:15
Nærri fimm hundruð starfsmenn Landspítalans í einangrun 480 starfsmenn Landspítalans eru nú í einangrun vegna Covid-19 og hafa þeir aldrei verið fleiri. Innlent 20. febrúar 2022 10:34
Covid-smitaður skutlari á von á sekt Karlmaður sem átti að vera í einangrun vegna Covid-19 var gripinn af lögreglu í gær er hann var að skutla fólki niður í miðborg Reykjavíkur í nótt. Innlent 20. febrúar 2022 07:29
Sökuð um spillingu í upphafi Covid farsóttarinnar Forseti heimastjórnarinnar í Madrid er sökuð um að hafa látið heilbrigðisyfirvöld í höfuðborginni kaupa sóttvarnagrímur fyrir andvirði 200 milljónir króna af fyrirtæki besta vinar síns og bróður síns og fullyrt er að bróðir hennar hafi hagnast um andvirði 40 milljóna króna á viðskiptunum. Erlent 19. febrúar 2022 14:30
2.692 greindust smitaðir í gær 2.692 greindust smitaðir af Covid-19 innanlands í gær. 141 greindist á landamærunum. Þetta segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna, í samtali við fréttastofu. Innlent 19. febrúar 2022 13:37
Starfsfólki í einangrun fjölgar sífellt Aldrei hafa fleiri starfsmenn Landspítala verið í einangrun. Stjórnendur spítalans funda um stöðuna á eftir og segjast munu gera allt til að koma í veg fyrir að kalla þurfi einkennalaust starfsfólk úr einangrun í vinnu. Innlent 19. febrúar 2022 12:48
Fækkar um fimm á spítalanum Fjörutíu sjúklingar liggja nú inni á Landspítala með Covid-19 og fækkar þeim um fimm á milli daga. Innlent 19. febrúar 2022 10:55
Ekkert sé til í því að fyrirtæki maki krókinn með styrkjum Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekkert benda til þess að fullyrðing Alþýðusambandsins, um að mörg fyrirtæki hafi makað krókinn á ríkisstyrkjum, eigi við rök að styðjast. Hann fagnar því þó að ASÍ kalli eftir ábyrgð í ríkisfjármálum. Innlent 18. febrúar 2022 22:12
Tekur stöðuna í næstu viku Yfir hundrað þúsund manns hafa nú greinst með kórónuveiruna innanlands frá upphafi faraldurs en sóttvarnalæknir bendir á að þeir gætu í raun verið allt að tvö hundruð þúsund og hjarðónæmi þannig mögulega handan við hornið. Hann telur ekki rétt að meta það fyrr en í næstu viku hvort fresta ætti allsherjarafléttingum, í ljósi erfiðrar stöðu í heilbrigðiskerfinu. Innlent 18. febrúar 2022 13:07