Scholes ekki með í Kænugarði Miðjumaðurinn Paul Scholes verður ekki með Manchester United í kvöld þegar liðið sækir Dynamo Kiev heim í Meistaradeildinni eftir að hann meiddist á hné á æfingu í gærkvöld. Hann tók fyrstu vél heim til Manchester þar sem hann mun fara í myndatöku. Þetta eru fjórðu meiðsli kappans til þessa á leiktíðinni. Fótbolti 23. október 2007 13:30
Eiður missti næstum af fluginu Eiður Smári Guðjohnsen var nærri búinn að missa af fluginu til Glasgow með félögum sínum í Barcelona ef marka má fréttir í spænskum miðlum í dag. Fótbolti 23. október 2007 12:05
Eiður verður í byrjunarliði Barcelona Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, hefur staðfest að Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliðinu á Ibrox í kvöld þegar liðið sækir Rangers heim í Meistaradeildinni. Fótbolti 23. október 2007 11:13
Walcott gæti byrjað í kvöld Líklegt þykir að framherjinn ungi Theo Walcott verði í fyrsta sinn í byrjunarliði Arsenal í Meistaradeildinni í kvöld þegar liðið tekur á móti Slavia Prag í H-riðli. Fótbolti 23. október 2007 11:01
Tíundi leikur Dynamo án sigurs? Manchester United á fyrir höndum erfiða heimsókn til Kænugarðs í kvöld þegar liðið sækir Dynamo Kiev heim. Heimamenn hafa þó ekki náð að landa sigri í síðustu níu leikjum í röð í keppninni - þar af fjórum heimaleikjum í röð. Fótbolti 23. október 2007 10:42
Eiður gæti byrjað í Glasgow Barcelona sækir Glasgow Rangers heim í E-riðli Meistaradeildarinnar í kvöld. Ef marka má spænska miðla má allt eins gera ráð fyrir að Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliði spænska liðsins. Fótbolti 23. október 2007 10:31
Torres fer ekki til Istanbul Liverpool verður án framherjans Fernando Torres í leiknum gegn Besiktas í Meistaradeildinni annað kvöld. Torres er enn meiddur á læri og var heldur ekki með þegar Liverpool lék við granna sína í Everton um helgina. Fótbolti 23. október 2007 10:26
Meistaradeildin í kvöld Í kvöld hefst þriðja umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og því verður mikið um dýrðir á sjónvarpsrásum Sýnar eins og venjulega. Fótbolti 23. október 2007 10:01
Vidic í byrjunarliðinu Serbneski varnarmaðurinn Nemanja Vidic verður í byrjunarliði Manchester United í leiknum gegn Dynamo Kiev á morgun. Vidic er nýbyrjaður að æfa aftur eftir meiðsli sem hann hlaut í leik gegn Wigan fyrr í þessum mánuði. Fótbolti 22. október 2007 23:30
Óvíst með Zlatan Sóknarmaðurinn Zlatan Ibrahimovic er með flensu og óvíst hvort hann geti leikið með ítalska liðinu Inter í Meistaradeildinni á morgun. Inter leikur gegn CSKA í Moskvu og hefst leikurinn klukkan 16:30. Fótbolti 22. október 2007 23:00
Theodór Elmar með Celtic til Portúgal Theodór Elmar Bjarnason er í leikmannahópi Glasgow Celtic sem mætir Benfica í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag. Leikurinn fer fram á heimavelli Benfica í Portúgal. Fótbolti 22. október 2007 19:32
Of mikið álag á Börsungum Deco, miðjumaður Barcelona, segir að álagið á leikmenn liðsins sé einfaldlega of mikið. Meiðsli herja á leikmenn liðsins sem leikur gegn Glasgow Rangers í Meistaradeild Evrópu annað kvöld. Fótbolti 22. október 2007 15:00
Bann Dida stytt Markvörðurinn Dida hjá AC Milan þarf aðeins að sitja af sér eins leiks bann í Meistaradeildinni í stað tveggja eftir að áfrýjun ítalska félagsins náði fram að ganga í dag. Fótbolti 22. október 2007 12:01
Milan bregst hart við banni Dida Forráðamenn AC Milan eru reiðir yfir ákvörðun Knattspyrnusambands Evrópu um að sekta Celtic um aðeins 12,500 pund vegna uppákomunnar í leik liðanna í Meistaradeildinni á meðan Dida markvörður hefur verið settur í tveggja leikja bann fyrir leikaraskap. Fótbolti 12. október 2007 09:35
Dida fékk tveggja leikja bann Dida, markvörður AC Milan, var í dag dæmdur í tveggja leikja bann fyrir leikaraskap í leik liðsins gegn Celtic í Meistaradeildinni. Fótbolti 11. október 2007 23:58
Uefa tekur Dida inn á teppi Knattspyrnusamband Evrópu hefur nú tekið til rannsóknar meint agabrot markvarðarins Dida hjá AC Milan eftir að honum var skipt af velli í leik liðsins gegn Glasgow Celtic í síðustu viku. Fótbolti 8. október 2007 13:53
Kvenmannslaust í Kænugarði Josef Sabo, þjálfari Úkraínumeistara Dynamo í Kænugarði, kennir eiginkonum og kærustum leikmanna um skelfilega byrjun liðsins í titilvörninni. Dynamo var í botnbaráttu í fyrstu umferðunum en hefur nú unnið sig aftur upp í þriðja sætið. Fótbolti 8. október 2007 13:14
UEFA kærir Celtic Knattspyrnusamband Evrópu hefur kært Glasgow Celtic fyrir atvikið undir leik liðsins gegn AC Milan í vikunni. Fótbolti 6. október 2007 11:48
Ég missti mig aðeins Robert McHendry segir að hann hafi "misst sig aðeins" þegar hann ákvað að hlaupa inn á völlinn í viðureign Celtic og Milan í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Hann sló til Dida markvarðar í leiðinni og gæti þetta uppátæki átt eftir að hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér. Fótbolti 5. október 2007 20:08
Ítalir brjálaðir út í Dida Knattspyrnuáhugamenn á Ítalíu eru alls ekki ánægðir með leikræna tilburði brasilíska markvarðarins Dida. Fótbolti 5. október 2007 13:45
Stuðningsmaður Celtic í lífstíðarbann 27 ára gamall stuðningsmaður Glasgow Celtic var í dag dæmdur í lífstíðarbann frá leikjum liðsins eftir að hann réðist inn á völlinn í leik liðsins gegn AC Milan í Meistaradeildinni í gær og sló til markvarðar ítalska liðsins. Fótbolti 4. október 2007 18:21
Celtic bíður milli vonar og ótta Forráðamenn Glasgow Celtic bíða nú milli vonar og ótta um hvort Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, refsi félaginu fyrir árásina á Dida í gær. Fótbolti 4. október 2007 09:29
Grant: Við lékum til sigurs Avram Grant, stjóri Chelsea, segist vonast til þess að sigur liðsins á Valencia í kvöld verði til að þagga aðeins niður í gagnrýnisröddunum á Englandi. Hann segir hugarfar leikmanna lykilinn að sigrinum í kvöld. Fótbolti 3. október 2007 23:20
Benitez: Við vorum lélegir Rafa Benitez, stjóri Liverpool, var spurður að því hvort hræringar hans með leikmannahópinn hefðu haft eitthvað með það að gera að liðið tapaði 1-0 heima fyrir Marseille í Meistaradeildinni í kvöld. Fótbolti 3. október 2007 23:13
Ljótt atvik varpar skugga á sigurhátíð Celtic Glæsilegur sigur Glasgow Celtic á Evrópumeisturum AC Milan í kvöld gæti átt eftir að reynast félaginu dýr, því ljótt atvik undir lokin setti svip sinn á leikinn. Fótbolti 3. október 2007 21:19
Liverpool lá heima Það var nokkur dramatík í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Liverpool tapaði 1-0 fyrir Marseille á heimavelli, Chelsea vann mjög sterkan útisigur á Valencia og Celtic lagði Evrópumeistara AC Milan á heimavelli með marki á síðustu mínútunni. Fótbolti 3. október 2007 20:37
Jafnt í Valencia í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Staðan í leik Valencia og Chelsea er jöfn 1-1 þar sem David Villa kom heimamönnum yfir eftir 9 mínútur en Chelsea jafnaði eftir 21 mínútu með sjálfsmarki frá Moretti. Fótbolti 3. október 2007 19:35
Cisse vill þagga niður í Anfield Framherjinn Djibril Cisse hjá Marseille segist enn elska stuðningsmenn Liverpool en ætlar sér að þagga niður í þeim þegar hann mætir þangað með franska liðinu í kvöld. Fótbolti 3. október 2007 18:10
Terry reyndi að meiða mig Fernando Morientes, framherji Valencia, segir að John Terry fyrirliði Chelsea hafi viljandi reynt að meiða sig þegar liðin mættust í Meistaradeildinni í fyrra. Þá var Morientes meiddur á öxl, en í kvöld er það Terry sem spilar meiddur. Fótbolti 3. október 2007 17:59
Terry spilar með grímu í kvöld John Terry verður í byrjunarliði Chelsea gegn Valencia í Meistaradeildinni í kvöld. Enski boltinn 3. október 2007 16:25