Auðveldur sigur Liverpool á PSV Liverpool er komið með annan fótinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir fádæma öruggan 3-0 útisigur á hollenska liðinu PSV Eindhoven í kvöld. Steven Gerrard, John Arne Riise og Peter Crouch skoruðu mörk enska liðsins og var sigurinn aldrei í hættu. Síðari leikur liðanna á Anfield ætti því að vera formsatriði fyrir Liverpool eftir þennan frábæra sigur í kvöld. Fótbolti 3. apríl 2007 20:31
Kaka kemur Milan yfir á ný Brasilíski miðjumaðurinn Kaka er búinn að koma AC Milan yfir á ný gegn Bayern 2-1 í leik liðanna á San Siro. Markið var það sjöunda hjá Kaka í Meistaradeildinni í vetur, en það skoraði hann úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Vítaspyrnudómurinn var afar strangur og hætt við að Þjóðverjarnir eigi eftir að láta í sér heyra eftir leikinn, enda óttuðust þeir mjög reynsluleysi rússneska dómarans fyrir viðureignina í kvöld. Fótbolti 3. apríl 2007 20:24
Bayern jafnar í Mílanó Bayern Munchen er búið að jafna metin í 1-1 gegn AC Milan í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Það var Daniel van Buyten sem skoraði þetta gríðarlega þýðingarmikla mark fyrir þýska liðið og ljóst að heimamenn verða að sækja stíft síðustu 10 mínúturnar í leiknum. Fótbolti 3. apríl 2007 20:21
Crouch klárar dæmið fyrir Liverpool Liverpool er komið í 3-0 gegn PSV í Meistaradeildinni. Markið skoraði Peter Crouch með laglegum skalla eftir fyrirgjöf Steve Finnan frá hægri og nú er útlitið orðið mjög dökkt hjá hollenska liðinu, sem á útileikinn eftir á Anfield. Markið kom á 63. mínútu, en staðan í leik AC Milan og Bayern er enn 1-0 fyrir Milan. Fótbolti 3. apríl 2007 20:10
Þrumufleygur frá Riise - Liverpool komið í 2-0 Norðmaðurinn John Arne Riise hefur komið Liverpool í 2-0 gegn PSV í Hollandi. Markið kom í upphafi síðari hálfleiks og var þar á ferðinni dæmigert mark fyrir bakvörðinn knáa - bylmingsskot af löngu færi í bláhornið. Fótbolti 3. apríl 2007 19:50
Hálfleikur í Meistaradeildinni Nú er kominn hálfleikur í leikjunum tveimur sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu. Liverpool hefur yfir 1-0 á útvelli gegn PSV Eindhoven með marki Steven Gerrard og Andrea Pirlo kom AC Milan í 1-0 gegn Bayern Munchen í Mílanó. Leikirnir eru sýndir beint á rásum Sýnar. Fótbolti 3. apríl 2007 19:30
Pirlo kemur Milan yfir Andrea Pirlo hefur komið AC Milan yfir 1-0 gegn Bayern Munchen í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Pirlo skoraði með góðum skalla á 40. mínútu, en skömmu áður hefði Milan líklega átt að fá vítaspyrnu þegar Kaka var brugðið í teignum. Fótbolti 3. apríl 2007 19:26
Mourinho: Við erum hættir að spreða Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að það sé liðin tíð að liðið spreði milljörðum í leikmenn eins og tíðkaðist fyrr í stjórnartíð hans. Stjórinn segir að einmitt þess vegna muni félagið ekki kaupa spænska framherjann David Villa frá Valencia í sumar eins og breskir fjölmiðlar hafa haldið fram. Enski boltinn 3. apríl 2007 19:15
Gerrard kemur Liverpool yfir Steven Gerrard er búinn að koma Liverpool í 1-0 gegn PSV í Hollandi. Hann skoraði með skalla eftir laglega fyrirgjöf frá Steve Finnan eftir um 27 mínútur. Staðan í leik AC Milan og Bayern er enn 0-0. Báðir leikir eru í beinni útsendingu á rásum Sýnar, en áskrifendur VefTV geta séð leik Liverpool í beinni útsendingu hér á Vísi. Fótbolti 3. apríl 2007 19:13
Þrjár breytingar á liði Liverpool Rafa Benitez hefur gert þrjár breytingar á byrjunarliði Liverpool sem sækir PSV heim í Meistaradeildinni í kvöld. Alvaro Arbeloa, Jermaine Pennant og Mark Gonzalez detta út úr liðinu og í stað þeirra koma inn bakverðirnir John Arne Rise, Steve Finnan og framherjinn Dirk Kuyt. Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan. Fótbolti 3. apríl 2007 18:18
Ferguson: Við verðum að stöðva Totti Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að hans menn verði að finna leið til að halda aftur af Francesco Totti ef þeir ætli sér að leggja Roma í Meistaradeildinni annað kvöld. Þetta er fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitunum og verður hann að sjálfssögðu sýndur beint á Sýn klukkan 18:30. Fótbolti 3. apríl 2007 17:11
Stórveldin slást í beinni á Sýn Extra Evrópustórveldin AC Milan og Bayern Munchen mætast í kvöld í fyrri leik sínum í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og fer leikurinn fram á San Siro í Mílanó. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra og hefst útsending klukkan 18:30. Þetta eru tvö af sigursælustu liðum Evrópuknattspyrnunnar og hafa unnið titilinn tíu sínum samtals. Fótbolti 3. apríl 2007 12:48
PSV - Liverpool í beinni á Sýn í kvöld Fyrri leikur PSV Eindhoven og Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar verður sýndur beint á Sýn í kvöld klukkan 18:30. Þetta verður þriðja viðureign liðanna í vetur þar sem þau léku saman í riðlakeppninni. Liverpool ætti að vera klárt í slaginn eftir frábæran sigur á Arsenal um helgina, en hollenska liðinu hefur ekki gengið sérlega vel í deildinni undanfarið. Fótbolti 3. apríl 2007 12:39
Cole stefnir á endurkomu á miðvikudaginn Miðjumaðurinn Joe Cole hjá Chelsea hefur sett stefnuna á að vera með liði sínu á ný í Meistaradeildarleiknum gegn Valencia á miðvikudagskvöldið. Cole hefur verið frá keppni í fjóra mánuði og vonast til að fá að spila nokkrar mínútur sem varamaður í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitunum. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra. Fótbolti 2. apríl 2007 20:20
Rafa: Vanmetum ekki PSV Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur komið þeim skilaboðum áleiðis til leikmanna sinna að láta ekki blekkjast af slöku gengi PSV Eindhoven í hollensku deildinni undanfarið. Liverpool sækir PSV heim í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 18:30. Fótbolti 2. apríl 2007 16:45
Villa: Mitt hlutverk að nýta færin Spænski landsliðsframherjinn David Villa hjá Valencia segir að hann og hans menn séu meira en klárir í slaginn við Chelsea í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra klukkan 18:30. Fótbolti 2. apríl 2007 15:23
Rummenigge ósáttur við dómaraval Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, hefur lýst yfir áhyggjum sínum í kjölfar þess að lítt reyndur rússneskur dómari var settur á leik liðsins gegn AC Milan í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinna. Rummenigge segir rússneska dómara ekki hafa reynst liði sínu vel í keppninni til þessa. Fótbolti 2. apríl 2007 14:59
Finnan með annað augað á úrslitaleiknum Varnarmaðurinn Steve Finnan hjá Liverpool segist ekki geta neitað því að hann sé kominn með annað augað á úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Liverpool mætir PSV Eindoven í fjórðungsúrslitum keppninnar annað kvöld í leik sem sýndur verður beint á Sýn klukkan 18:30. Fótbolti 2. apríl 2007 13:08
Rómverjar segja Ronaldo vera leikara Þeir Amantino Mancini og Christian Panucci hjá ítalska liðinu Roma hafa nú sent út fyrstu kyndingarna fyrir leik Roma og Manchester United í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Þeir félagar segja að Cristiano Ronaldo megi ekki búast við neinni sérmeðferð frá dómurum leiksins og segja hann leikara. Fótbolti 2. apríl 2007 12:26
Saha fer ekki með til Rómar Franski framherjinn Louis Saha fer líklega ekki með Manchester United til Rómar þar sem enska liðið spilar fyrri leik sinn við Roma í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudagskvöldið. Saha er nú óðum að ná sér eftir fimm vikna fjarveru vegna meiðsla á læri. Fótbolti 2. apríl 2007 12:16
Bann Navarro stytt Aganefnd Knattspyrnusambands Evrópu hefur stytt keppnisbann leikmanna Valencia og Inter Milan sem slógust eftir leik liðanna í Meistaradeildinni fyrr í þessum mánuði. David Navarro hjá Valencia fær þannig sex mánaða bann í stað sjö. Bæði félög áfrýjuðu þungum refsingum og höfðu erindi sem erfiði. Fótbolti 28. mars 2007 16:50
Alonso hefur trú á Liverpool Xabi Alonso, hinn spænski miðjumaður Liverpool, hefur fulla trú á að liðið getið endurtekið leikinn frá árinu 2005 og farið alla leið í Meistaradeild Evrópu á þessum tímabili. Alonso segir leikmenn liðsins spila af miklu sjálfstrausti í Meistaradeildinni. Fótbolti 26. mars 2007 17:00
Navarro vill vægari refsingu David Navarro, leikmaður Valencia á Spáni, vonast til þess að afsökunarbeiðni hans til Nicolas Burdisso, leikmann Inter, verði til þess að sjö mánaða leikbannið sem hann var dæmdur í hjá UEFA og FIFA fyrir skemmstu verði stytt. Navarro, sem nefbraut Burdisso í leik liðanna í Meistaradeildinni í síðasta mánuði, hefur áfrýjað dómnum. Fótbolti 24. mars 2007 14:30
Man Utd og Lille sektuð Manchester United og Lille voru í dag sektuð fyrir uppákomurnar sem urðu á leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í síðasta mánuði. Stuðningsmenn beggja liða höguðu sér illa og þá var öryggiskröfum ekki framfylgt. Fótbolti 22. mars 2007 19:58
Bann Van Bommel stytt Marc van Bommel hjá Bayern Munchen hefur fengið leikbann sitt í Meistaradeildinni stytt og verður því löglegur í síðari leik Bayern og AC Milan í 8-liða úrslitum keppninnar. Hann var dæmdur í tveggja leikja bann fyrir nokkrum dögum, en Bayern áfrýjaði og hefur bannið nú verð stytt. "Ég trúði ekki öðru en að banninu yrði breytt í einn leik," sagði van Bommel. Fótbolti 21. mars 2007 14:23
Valencia og Inter áfrýja Knattspyrnufélögin Valencia á Spáni og Inter Milan á Ítalíu hafa bæði áfrýjað dómi Knattspyrnusambands Evrópu í dögunum þar sem leikmönnum liðanna var refsað harðlega fyrir slagsmálin sem urðu eftir leik þeirra í Meistaradeildinni þann 6. mars. Fótbolti 20. mars 2007 12:23
Navarro gengst við banni sínu David Navarro, leikmaður Valencia á Spáni, ætlar ekki að áfrýja sjö mánaða keppnisbanninum sem hann var settur í af aganefnd Knattspyrnusambands Evrópu eftir slagsmálin sem brutust út eftir leik Valencia og Inter í Meistaradeildinni á dögunum. Fótbolti 15. mars 2007 14:33
Platini leggur fram umdeildar tillögur Michel Platini, forseti evrópska knattspyrnusambandsins, lagði í dag fram tillögur sínar um breytingar á keppnisfyrirkomulagi í Meistaradeild Evrópu. Platini kynnti þessar tillögur áður en hann bauð sig fram til forseta fyrir nokkrum vikum og voru þær harðlega gagnrýndar af forráðamönnum stærstu knattspyrnudeilda Evrópu. Fótbolti 14. mars 2007 18:54
Navarro í sjö mánaða bann fyrir slagsmál Knattspyrnusamband Evrópu tilkynnti í dag að David Navarro hefði verið dæmdur í sjö mánaða keppnisbann eftir ofbeldisfulla tilburði hans á leik Valencia og Inter í Meistaradeildinni á dögunum. Sambandið hefur óskað þess að bannið nái yfir allar keppnir. Hann var einn sex leikmanna sem fá keppnisbann fyrir slagsmálin og verða bæði lið auk þess sektuð um rúmlega 100 þúsund pund. Fótbolti 14. mars 2007 13:56
Van Bommel verður ekki með gegn Milan Hollenski miðjumaðurinn Mark van Bommel hjá Bayern Munchen mun að öllum líkindum missa af báðum leikjunum við AC Milan í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Van Bommel var í dag dæmdur í tveggja leikja bann af aganefnd knattspyrnusambands Evrópu og eru forráðamenn Bayern mjög ósáttir við þessa niðurstöðu. Fótbolti 13. mars 2007 21:00