Scholz ver símtal sitt við Pútín Enga hugarfarsbreytingu var að merkja hjá Vladímír Pútín gagnvart stríðsrekstri hans í Úkraínu í símtali við Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, fyrir helgi. Scholz á í vök að verjast vegna símtalsins og er sakaður um að rjúfa samstöðu með Úkraínu. 18.11.2024 09:01
Felldu talsmann Hezbollah í miðborg Beirút Aðaltalsmaður Hezbollah-samtakanna féll í loftárás Ísraelshers á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar hafa gert harðar árásir á Líbanon undanfarnar vikur en fæstar þeirra hafa verið á miðborgina. 17.11.2024 14:21
Stefna lögreglu og leyniþjónustu vegna morðsins á Malcolm X Fjölskylda Malcolms X, blökkumannaleiðtoga sem var myrtur fyrir tæpum sextíu árum, stefndi bandarísku alríkislögreglunni og leyniþjónustunni auk lögreglunnar í New York fyrir að koma ekki í veg fyrir morðið. 17.11.2024 11:23
Einar umfangsmestu loftárásir Rússa á orkuvinnviði Úkraínu Rússar hafa látið sprengjum rigna úr lofti yfir orkuinnviði víðsvegar um Úkraínu í nótt og rafmagn hefur verið tekið af í þremur héruðum vegna þess. Árásirnar eru sagðar þær umfangsmestu frá því í lok sumars. 17.11.2024 09:12
Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Nokkuð var um pústra í miðbæ Reykjavíkur í nótt og segir lögregla að töluverður hiti hafi verið í fólki. Sex gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Hafnarfirði. 17.11.2024 08:05
Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga Um sex þúsund hænsni drápust í eldsvoða á eggjabúi Nesbús við Voga á Vatnsleysuströnd í nótt. Slökkvilið glímdi við eldinn í þaki eins vinnslurýma búsins langt fram á morgun. 17.11.2024 07:39
Rússar segja til hver annars líkt og á tímum Stalíns Færst hefur í aukana að Rússar tilkynni pólitíska glæpi samborgara sinna til yfirvalda frá því að innrásin í Úkraínu hófst af fullu afli fyrir að nálgast þremur árum. Nýleg dæmi eru um að fólk hafi verið dæmt í fangelsi á grundvelli slíkra tilkynninga. 16.11.2024 09:01
Þrýst á Scholz að víkja fyrir vinsælasta stjórnmálamanni landsins Flokkssystkini Olafs Scholz Þýskalandskanslara þrýsta nú hann að víkja fyrir varnarmálaráðherra sínum sem leiðtogi sósíaldemókrata fyrir þingkosningar í febrúar. Enginn kaslari Þýskalands hefur mælst eins óvinsæll í skoðanakönnunum og Scholz. 15.11.2024 15:06
Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að 650 milljónir króna verði lagðar í að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Landspítalans svo að sjúklingar þurfi ekki að dvelja á göngum hennar á næsta ári. Þá verði 2,5 milljarðar krónar teknir af framkvæmdafé nýs Landspítala á næsta ári sem ekki er þörf á. 15.11.2024 10:57
„En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Sonur Jóns Gunnarssonar sagði föður sinn ætla að afgreiða hvalveiðileyfi fyrir kosningar en að ekki mætti tala um að hann gerði það fyrir Kristján Loftsson, vin hans, á leynilegum upptökum sem voru gerðar af honum. Jón hefði tekið sæti á lista Sjálfstæðisflokksins gegn því að fá stöðu. 15.11.2024 09:06