Baldur: Vöknuðu af værum blundi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. ágúst 2011 08:48 Stjarnan verður líklega með í N1-deild kvenna í vetur. Mynd/Pjetur Allt útlit er fyrir að kvennalið Stjörnunnar í handknattleik verði með í N1-deild kvenna í vetur. Formaður og varaformaður handknattleiksdeildar félagsins sögðu af sér í gær. Þetta segir Baldur Ó. Svavarsson, fráfarandi formaður deildarinnar, í samtali við Vísi. Hann, ásamt stjórn deildarinnar, sendi frá sér yfirlýsingu í fyrradag þar sem því er lýst yfir að Stjarnan muni draga lið sitt úr keppni í N1-deild kvenna. „Þetta vakti menn af værum blundi hér í bænum," sagði Baldur. „Maður leikur sér þó ekki að því að gera svona lagað. Og þetta var ekki gert í þeim tilgangi að vekja menn til lífsins. En þetta varð engu að síður til þess að stuðningsmenn, aðalstjórn félagsins og stjórnmálamenn tóku við sér. Menn voru á fundum og í símum í allan gærdag," segir hann og rekur nú atburði gærdagsins.Sendum boltann yfir á aðalstjórnina „Aðalstjórn Stjörnunnar fundaði með bæjarstjórninni í gær, allavega formaðurinn. Síðan voru hringingar og fundir allan daginn. Við í stjörn handknattleiksdeildarinnar funduðum klukan 17.30 og fórum yfir stöðuna. Á sama tíma fundaði aðalstjórn félagsins." „Stuttu síðar vorum við, ég og varaformaðurinn Ragnheiður Traustadóttir, beðin um að mæta á fund til aðalstjórnar. Þar skiluðum við inn umboði okkar sem stjórnarmenn og gáfum boltann yfir til aðalstjórnar." „Aðalstjórnin setti svo saman bráðabirgðastjórn og tók varaformaðurinn, Sigurður Bjarnason, tímabundið við formennsku í handknattleiksdeild. Við fórum svo á fund með þeim og leikmönnum í Mýrinni þar sem þetta var tilkynnt." „Svo hófst umræða um hvort starfið ætti að halda áfram og hvort liðið ætti að keppa í vetur. Það var mikill vilji til þess, þó svo að skýr niðurstaða hafi ekki fengist. En ég tel að það sé yfirlýsing væntanleg þess efnis í dag." „En það er alveg ljóst að nú er búið að berja í brestina og menn voru einhuga um að láta þetta ekki fara svona. Það verður því spilað í vetur."Var algert neyðarúrræði Hann segir að það hafi ekki verið tilgangurinn að nota fjölmiðla til að vekja athygli á stöðu kvennaliðs Stjörnunnar. Það hafi hins vegar skilað sínu en um algert neyðarúrræði hafi verið að ræða. „Við vildum að þetta kæmi skýrt fram. Að það yrði ekki pískrað um þetta. Að það yrði ekki farið í felur með þetta - enda væri þetta það alvarlegt mál. Viðbrögðin yrðu að vera snör. Leikmennirnir þurfa sinn undirbúning áður en tímabilið hefst og það var einfaldlega ekki lengur hægt að sitja endalausa fundi og bíða. Það verður að taka ákvörðun."Töluðum lengi fyrir daufum eyrum Baldur segir að bæði hann og þeir sem sitja í meistaraflokksráði kvenna hafi talað fyrir daufum eyrum lengi - bæði gagnvart aðalstjórninni og bæjaryfirvöldum. „Þeir og við höfum gert þessum aðilum ítrekað grein fyrir því að þessi niðurskurður á afreksstarfinu sem hefur átt sér stað hefur gert líf okkar mjög erfitt. Og í raun eru þeir í meistaraflokksráði ósáttir við þessi málalok." „Þeir eiga eflaust eftir að láta í sér heyra. Þeir vilja að það sé tekin skýrari afstaða til þessa máls. Þetta eru afar metnaðarfullir menn sem eiga ekki síst stóran þátt í þeim árangri sem hefur náðst á undanförnum árum. Þeir vilja að enn meiri peningur verði sett í þetta afreksstarf - að það verði settur sá peningur í sem reksturinn kostar. Þeir vilja ekki halda úti miðlungsliði enda er metnaður þeirra meiri en svo."Vilji leikmanna skiptir öllu máli Nú hefur verið skipt út formanni í meistaraflokksráði kvenna og reyndar karla líka, segir Baldur. En hann segir að það sem mestu hafi skipt í öllu þessu er vilji leikmanna til að halda áfram. „Lykilleikmenn gáfu það út að þeir myndu vera áfram. Það er það sem er algjört lykilatriði. Þetta er fyrst og fremst spurningin um hvað þær vilja. Og þær voru tilbúnir að láta á þetta reyna." Florentina Stanciu, markvörður, gekk til liðs við ÍBV fyrir skömmu og átti það stóran þátt í því að ákveðið var í fyrradag að hætta öllu saman. „Nú er verið að leita að markverði og öðrum leikmönnum reyndar líka. Það vantar enn leikmenn til að vera með fullan varamannabekk." „En það voru allir sammála um að láta reyna á þetta og spila. Það var einhugur um það." Olís-deild kvenna Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Í beinni: Holland - Ísland | Fyrsti leikur stelpnanna á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Jenas missir annað starf Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Enski boltinn Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Fleiri fréttir Í beinni: Holland - Ísland | Fyrsti leikur stelpnanna á EM „Þær eru bara hetjur“ „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Skrýtið en venst Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri ÍBV (eða Haukar) í erfiðan slag í bikarnum „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Porto lagði Val í Portúgal Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu Sjá meira
Allt útlit er fyrir að kvennalið Stjörnunnar í handknattleik verði með í N1-deild kvenna í vetur. Formaður og varaformaður handknattleiksdeildar félagsins sögðu af sér í gær. Þetta segir Baldur Ó. Svavarsson, fráfarandi formaður deildarinnar, í samtali við Vísi. Hann, ásamt stjórn deildarinnar, sendi frá sér yfirlýsingu í fyrradag þar sem því er lýst yfir að Stjarnan muni draga lið sitt úr keppni í N1-deild kvenna. „Þetta vakti menn af værum blundi hér í bænum," sagði Baldur. „Maður leikur sér þó ekki að því að gera svona lagað. Og þetta var ekki gert í þeim tilgangi að vekja menn til lífsins. En þetta varð engu að síður til þess að stuðningsmenn, aðalstjórn félagsins og stjórnmálamenn tóku við sér. Menn voru á fundum og í símum í allan gærdag," segir hann og rekur nú atburði gærdagsins.Sendum boltann yfir á aðalstjórnina „Aðalstjórn Stjörnunnar fundaði með bæjarstjórninni í gær, allavega formaðurinn. Síðan voru hringingar og fundir allan daginn. Við í stjörn handknattleiksdeildarinnar funduðum klukan 17.30 og fórum yfir stöðuna. Á sama tíma fundaði aðalstjórn félagsins." „Stuttu síðar vorum við, ég og varaformaðurinn Ragnheiður Traustadóttir, beðin um að mæta á fund til aðalstjórnar. Þar skiluðum við inn umboði okkar sem stjórnarmenn og gáfum boltann yfir til aðalstjórnar." „Aðalstjórnin setti svo saman bráðabirgðastjórn og tók varaformaðurinn, Sigurður Bjarnason, tímabundið við formennsku í handknattleiksdeild. Við fórum svo á fund með þeim og leikmönnum í Mýrinni þar sem þetta var tilkynnt." „Svo hófst umræða um hvort starfið ætti að halda áfram og hvort liðið ætti að keppa í vetur. Það var mikill vilji til þess, þó svo að skýr niðurstaða hafi ekki fengist. En ég tel að það sé yfirlýsing væntanleg þess efnis í dag." „En það er alveg ljóst að nú er búið að berja í brestina og menn voru einhuga um að láta þetta ekki fara svona. Það verður því spilað í vetur."Var algert neyðarúrræði Hann segir að það hafi ekki verið tilgangurinn að nota fjölmiðla til að vekja athygli á stöðu kvennaliðs Stjörnunnar. Það hafi hins vegar skilað sínu en um algert neyðarúrræði hafi verið að ræða. „Við vildum að þetta kæmi skýrt fram. Að það yrði ekki pískrað um þetta. Að það yrði ekki farið í felur með þetta - enda væri þetta það alvarlegt mál. Viðbrögðin yrðu að vera snör. Leikmennirnir þurfa sinn undirbúning áður en tímabilið hefst og það var einfaldlega ekki lengur hægt að sitja endalausa fundi og bíða. Það verður að taka ákvörðun."Töluðum lengi fyrir daufum eyrum Baldur segir að bæði hann og þeir sem sitja í meistaraflokksráði kvenna hafi talað fyrir daufum eyrum lengi - bæði gagnvart aðalstjórninni og bæjaryfirvöldum. „Þeir og við höfum gert þessum aðilum ítrekað grein fyrir því að þessi niðurskurður á afreksstarfinu sem hefur átt sér stað hefur gert líf okkar mjög erfitt. Og í raun eru þeir í meistaraflokksráði ósáttir við þessi málalok." „Þeir eiga eflaust eftir að láta í sér heyra. Þeir vilja að það sé tekin skýrari afstaða til þessa máls. Þetta eru afar metnaðarfullir menn sem eiga ekki síst stóran þátt í þeim árangri sem hefur náðst á undanförnum árum. Þeir vilja að enn meiri peningur verði sett í þetta afreksstarf - að það verði settur sá peningur í sem reksturinn kostar. Þeir vilja ekki halda úti miðlungsliði enda er metnaður þeirra meiri en svo."Vilji leikmanna skiptir öllu máli Nú hefur verið skipt út formanni í meistaraflokksráði kvenna og reyndar karla líka, segir Baldur. En hann segir að það sem mestu hafi skipt í öllu þessu er vilji leikmanna til að halda áfram. „Lykilleikmenn gáfu það út að þeir myndu vera áfram. Það er það sem er algjört lykilatriði. Þetta er fyrst og fremst spurningin um hvað þær vilja. Og þær voru tilbúnir að láta á þetta reyna." Florentina Stanciu, markvörður, gekk til liðs við ÍBV fyrir skömmu og átti það stóran þátt í því að ákveðið var í fyrradag að hætta öllu saman. „Nú er verið að leita að markverði og öðrum leikmönnum reyndar líka. Það vantar enn leikmenn til að vera með fullan varamannabekk." „En það voru allir sammála um að láta reyna á þetta og spila. Það var einhugur um það."
Olís-deild kvenna Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Í beinni: Holland - Ísland | Fyrsti leikur stelpnanna á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Jenas missir annað starf Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Enski boltinn Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Fleiri fréttir Í beinni: Holland - Ísland | Fyrsti leikur stelpnanna á EM „Þær eru bara hetjur“ „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Skrýtið en venst Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri ÍBV (eða Haukar) í erfiðan slag í bikarnum „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Porto lagði Val í Portúgal Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu Sjá meira