Grindavík Ný bílastæði stytta göngu á útsýnisstaði á eldgosið Þeir sem vilja ganga að eldstöðinni í Fagradalsfjalli hafa núna möguleika á að stytta gönguna með því að nýta sér ný bílastæði sem tekin hafa verið í notkun. Þá er í bígerð að lagfæra vinsælustu gönguleiðina upp á Langahrygg til að draga úr slysahættu. Innlent 20.8.2021 22:22 Allt gengið vel þrátt fyrir fimm mánaða eldgos í bakgarðinum Eftir fimm mánaða eldgos í útjaðri Grindavíkur segir formaður bæjarráðs það standa upp úr hvað allt hafi gengið vel, þrátt fyrir miklar hættur og gríðarlegt álag. Jarðvísindamaður segir það einkenna gosið hvað það sé stöðugt og máttlítið. Innlent 19.8.2021 22:42 Tíminn nýttur til hins ýtrasta til að ræða atvinnuleysi og ógn af eldgosinu Fulltrúar sveitarstjórna á Suðurnesjum funda nú með ríkisstjórninni í Grindavík. Þeir ætla sér að nýta þá tvo tíma sem þeir fá með ráðherrum vel til að vekja athygli á helstu hagsmunamálum svæðisins. Innlent 10.8.2021 13:55 Fundi ríkisstjórnar lokið en ráðherra veitir ekki viðtal Ríkisstjórnin situr á árlegum sumarfundi sínum í Salthúsinu í Grindavík þar sem aðgerðir innanlands vegna Covid-19 eru til umræðu. Núverandi aðgerðir til þriggja vikna, sem fela meðal annars í sér 200 manna samkomubann og eins metra reglu, gilda til föstudagsins 13. ágúst. Innlent 10.8.2021 11:26 Langtíma sóttvarnaaðgerðir ekki kynntar í dag Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ekki reiknað með að í dag verði kynntar sóttvarnaaðgerðir til lengri tíma. En ríkisstjórnin kemur saman til reglulegs fundar á Suðurnesjum í dag og fundar einnig með sveitarstjórnarfólki þar. Innlent 10.8.2021 08:36 Engin merki um neðansjávargos Áhöfn varðskipsins Þórs sá enga bólstra í hafinu sunnan við Reykjanes eftir að hafa farið í könnunarleiðangur þangað í kvöld. Innlent 8.8.2021 00:06 Kanna hvort eldgos sé hafið neðansjávar Varðskipið Þór hefur verið sent til þess að kanna hvort að eldgos sé hafið neðansjávar, vestur af Krísuvíkurbergi. Engin merki um eldgos sjást þó á mælum Veðurstofunnar. Innlent 7.8.2021 21:39 Grindavík sigraði botnliðið og FH hafði betur í toppslagnum Í kvöld fóru fram tveir leikir í Lengjudeild kvenna. Grindavík vann 1-0 sigur gegn botnliði Augnablik og FH tyllti sér á toppinn með 2-0 útisigri gegn KR í toppslag deildarinnar. Fótbolti 5.8.2021 23:00 Tvö útköll vegna vélarvana báta í kvöld Björgunarskip frá Grindavík og björgunarbátur frá Þorlákshöfn eru nú á leið að vélarvana báti suðvestur af Þorlákshöfn. Innlent 18.7.2021 21:38 Eldgosið í Fagradalsfjalli orðið stærra en meðalgos á svæðinu Vísbendingar eru um að það hægi á landssigi við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir að þær breytingar sem nú sjáist á eldgosinu gætu verið byrjunin á endalokunum. Engu sé þó hægt að slá föstu um goslok. Innlent 8.7.2021 21:21 Hanna varnir fyrir Svartsengi, Grindavík og Reykjanesbraut Eldgosið í Fagradalsfjalli tók kipp í gærkvöldi með miklum hraunflæðigusum og mældust óróakviðurnar um tíma þær mestu frá upphafi gossins. Byrjað er að hanna varnarmannvirki til að verja Grindavík, Svartsengi og Reykjanesbraut. Innlent 30.6.2021 22:57 Gerðu ítrekaðar tilraunir til að ræða við Hrauneigendur en var aldrei svarað Framkvæmdastjóri Norðurflugs segir að þyrlufyrirtækið hafi ítrekað gert tilraunir til að ná í landeigendur Hrauns á Reykjanesi þegar eldgosið í Geldingadölum var nýbyrjað en aldrei borið erindi sem erfiði. Innlent 30.6.2021 22:01 Landeigendur vilja fá 20 þúsund krónur fyrir hverja lendingu Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Norðurflugs segir komna glýju í augu landeigenda og lögbann á þyrlur fyrirtækisins sé spennandi lögfræðilegt álitaefni. Ferðaþjónustan er harðorð vegna áformanna. Innlent 30.6.2021 10:16 Fá lögbann á lendingar þyrla Norðurflugs Þyrlufyrirtækið Norðurflug má ekki lengur lenda með ferðamenn við gossvæðið í Geldingadölum. Þetta ákvað sýslumaðurinn á Suðurnesjum í gær og setti lögbann við lendingum frá fyrirtækinu. Innlent 30.6.2021 07:01 Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi Bandaríski ferðamaðurinn sem leitað hefur verið að við gosstöðvarnar á Reykjanesi er fundinn heill á húfi. Hann fannst um fjóra kílómetra norðvestur af gosstöðvunum og hafði gengið í þveröfuga átt. Innlent 26.6.2021 19:37 Nafn mannsins sem leitað er við gosstöðvarnar Maðurinn sem leitað hefur verið við gosstöðvarnar síðan í gær er Bandaríkjamaðurinn Scott Estill. Lögreglan á Suðurnesjum lýsir nú eftir honum. Innlent 26.6.2021 16:12 Leit að erlendum ferðamanni enn engan árangur borið Fjölmennt lið björgunarsveitarfólks leitar enn erlends ferðamanns sem hefur verið saknað við gosstöðvarnar á Reykjanesi frá því um miðjan dag. Lítið skyggni er á svæðinu og leiðinlegt veður en leitað verður fram á nótt ef þörf krefur. Innlent 25.6.2021 22:59 Umfangsmikil leit að manni á gosstöðvunum Björgunarsveitarfólk af Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu leitar nú að karlmanni á gosstöðvunum á Reykjanesi. Leitar- og sporhundar frá höfuðborgarsvæðinu hafa einnig verið sendir til að aðstoða við leitina. Innlent 25.6.2021 19:52 Varnargarður rís í Nátthaga Þriggja til fimm metra hár varnargarður verður reistur í dalsmynni Nátthaga. Varnargarðinum er ætlað að seinka framrás hrauns úr Nátthaga niður að Suðurstrandarvegi og Ísólfsskála. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Innlent 25.6.2021 10:03 Bjarga verðmætum áður en hraunið tekur bæinn Landeigendur Ísólfsskála keppast nú við að bjarga lausamunum og öðrum verðmætum áður en hraun flæðir yfir jörðina. Á sama tíma er verið að stika nýja gönguleið á stað þaðan sem sést yfir eldgíginn og áformað að opna nýtt bílastæði. Innlent 23.6.2021 22:26 Svona gæti hraunið litið út í lok sumars Veðurstofan og Háskóli Íslands hafa gefið út nýtt hraunflæðilíkan, sem sýnir tvær mögulegar sviðsmyndir fyrir hraunflæði úr Nátthaga. Óvissa er uppi um hvenær hraun byrjar að flæða suður úr Nátthaga eftir að svæðið fyllist af hrauni. Innlent 22.6.2021 17:23 Vara fólk við „lífshættulegum fíflaskap“ Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu með yfirskriftinni „Lífshættulegur fíflaskapur – ekki hetjuskapur,“ þar sem því er beint til fólks sem leggur leið sína upp að gosstöðvunum í Geldingadölum að ganga ekki á nýstorknuðu hrauninu sem þar er að finna. Innlent 22.6.2021 15:03 Varnarvirki í bígerð til að verja Grindavíkurbæ Unnið er að hönnun varnarvirkja ef ske kynni að hraun úr Geldingadölum færi í átt að Grindavíkurbæ eða Reykjanesbraut. Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir missi af Suðurstrandarvegi en að það hefði orðið of kostnaðarsamt að verja hann. Innlent 19.6.2021 19:16 Hrauninu verður leyft að flæða yfir Suðurstrandarveg Ekki verður reynt að koma í veg fyrir að hraun úr Geldingadölum flæði yfir Suðurstrandarveg, en þess í stað verður hugað að því að verja Grindavíkurbæ og nærliggjandi vegi. Búist er við að hraunið muni skríða yfir veginn á næstu vikum. Innlent 18.6.2021 18:31 Næsti Balti er rauðhærður Grindvíkingur Óskar Kristinn Vignisson kvikmyndaleikstjóri er að ljúka námi við Danske Film School og gerir það með glans. Útskrifarmynd hans fer beint á kvikmyndahátíðina í Cannes – sem er fáheyrt. Bíó og sjónvarp 17.6.2021 07:01 Fjögurra metra hár leiðigarður settur upp syðst í Geldingadölum Almannavarnir, Grindavíkurbær og aðgerðastjórn vegna eldgossins í Geldingadölum hafa ákveðið að ráðast í gerð leiðigarðs syðst í Geldingadölum og varnargarðs til að minnka líkur á að hraun renni niður í Nátthagakrika. Innlent 14.6.2021 16:37 Hafa gengið að rótum gígsins og flúið undan flæðandi hrauni Lögreglu- og björgunarsveitarmenn í Grindavík hafa í dag hafa þurft að hafa afskipti af nokkrum einstaklingum sem hafa gengið út á nýstorknað hraunið, milli útsýnisstaða, og að rótum sjálfs stóra gígsins í Fagradalsfjalli. Innlent 11.6.2021 14:00 Varnargarðurinn hafi staðið „ótrúlega lengi“ Hraun hóf að renna yfir vestari varnargarðinn við gosstöðvarnar við Fagradalsfjall í morgun en verkfræðingur segir garðinn hafa staðið ótrúlega lengi. Verið er að skoða nýja leið til að stjórna hraunrennsli úr Nátthaga. Innlent 5.6.2021 20:00 Hraunspýja rauf vestari varnargarðinn Hraunspýja braut sér leið meðfram útsýnishólnum við eldstöðvarnar við Fagradalsfjall í morgun og streymdi loks yfir vestari varnargarðinn, sem reistur var í Syðri-Meradölum. Innlent 5.6.2021 13:48 Hraun komið yfir gönguleiðina upp á útsýnishólinn Hraun er komið yfir gönguleiðina upp á hól sem nýst hefur sem útsýnisstaður við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Innlent 4.6.2021 11:12 « ‹ 57 58 59 60 61 62 63 64 65 … 74 ›
Ný bílastæði stytta göngu á útsýnisstaði á eldgosið Þeir sem vilja ganga að eldstöðinni í Fagradalsfjalli hafa núna möguleika á að stytta gönguna með því að nýta sér ný bílastæði sem tekin hafa verið í notkun. Þá er í bígerð að lagfæra vinsælustu gönguleiðina upp á Langahrygg til að draga úr slysahættu. Innlent 20.8.2021 22:22
Allt gengið vel þrátt fyrir fimm mánaða eldgos í bakgarðinum Eftir fimm mánaða eldgos í útjaðri Grindavíkur segir formaður bæjarráðs það standa upp úr hvað allt hafi gengið vel, þrátt fyrir miklar hættur og gríðarlegt álag. Jarðvísindamaður segir það einkenna gosið hvað það sé stöðugt og máttlítið. Innlent 19.8.2021 22:42
Tíminn nýttur til hins ýtrasta til að ræða atvinnuleysi og ógn af eldgosinu Fulltrúar sveitarstjórna á Suðurnesjum funda nú með ríkisstjórninni í Grindavík. Þeir ætla sér að nýta þá tvo tíma sem þeir fá með ráðherrum vel til að vekja athygli á helstu hagsmunamálum svæðisins. Innlent 10.8.2021 13:55
Fundi ríkisstjórnar lokið en ráðherra veitir ekki viðtal Ríkisstjórnin situr á árlegum sumarfundi sínum í Salthúsinu í Grindavík þar sem aðgerðir innanlands vegna Covid-19 eru til umræðu. Núverandi aðgerðir til þriggja vikna, sem fela meðal annars í sér 200 manna samkomubann og eins metra reglu, gilda til föstudagsins 13. ágúst. Innlent 10.8.2021 11:26
Langtíma sóttvarnaaðgerðir ekki kynntar í dag Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ekki reiknað með að í dag verði kynntar sóttvarnaaðgerðir til lengri tíma. En ríkisstjórnin kemur saman til reglulegs fundar á Suðurnesjum í dag og fundar einnig með sveitarstjórnarfólki þar. Innlent 10.8.2021 08:36
Engin merki um neðansjávargos Áhöfn varðskipsins Þórs sá enga bólstra í hafinu sunnan við Reykjanes eftir að hafa farið í könnunarleiðangur þangað í kvöld. Innlent 8.8.2021 00:06
Kanna hvort eldgos sé hafið neðansjávar Varðskipið Þór hefur verið sent til þess að kanna hvort að eldgos sé hafið neðansjávar, vestur af Krísuvíkurbergi. Engin merki um eldgos sjást þó á mælum Veðurstofunnar. Innlent 7.8.2021 21:39
Grindavík sigraði botnliðið og FH hafði betur í toppslagnum Í kvöld fóru fram tveir leikir í Lengjudeild kvenna. Grindavík vann 1-0 sigur gegn botnliði Augnablik og FH tyllti sér á toppinn með 2-0 útisigri gegn KR í toppslag deildarinnar. Fótbolti 5.8.2021 23:00
Tvö útköll vegna vélarvana báta í kvöld Björgunarskip frá Grindavík og björgunarbátur frá Þorlákshöfn eru nú á leið að vélarvana báti suðvestur af Þorlákshöfn. Innlent 18.7.2021 21:38
Eldgosið í Fagradalsfjalli orðið stærra en meðalgos á svæðinu Vísbendingar eru um að það hægi á landssigi við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir að þær breytingar sem nú sjáist á eldgosinu gætu verið byrjunin á endalokunum. Engu sé þó hægt að slá föstu um goslok. Innlent 8.7.2021 21:21
Hanna varnir fyrir Svartsengi, Grindavík og Reykjanesbraut Eldgosið í Fagradalsfjalli tók kipp í gærkvöldi með miklum hraunflæðigusum og mældust óróakviðurnar um tíma þær mestu frá upphafi gossins. Byrjað er að hanna varnarmannvirki til að verja Grindavík, Svartsengi og Reykjanesbraut. Innlent 30.6.2021 22:57
Gerðu ítrekaðar tilraunir til að ræða við Hrauneigendur en var aldrei svarað Framkvæmdastjóri Norðurflugs segir að þyrlufyrirtækið hafi ítrekað gert tilraunir til að ná í landeigendur Hrauns á Reykjanesi þegar eldgosið í Geldingadölum var nýbyrjað en aldrei borið erindi sem erfiði. Innlent 30.6.2021 22:01
Landeigendur vilja fá 20 þúsund krónur fyrir hverja lendingu Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Norðurflugs segir komna glýju í augu landeigenda og lögbann á þyrlur fyrirtækisins sé spennandi lögfræðilegt álitaefni. Ferðaþjónustan er harðorð vegna áformanna. Innlent 30.6.2021 10:16
Fá lögbann á lendingar þyrla Norðurflugs Þyrlufyrirtækið Norðurflug má ekki lengur lenda með ferðamenn við gossvæðið í Geldingadölum. Þetta ákvað sýslumaðurinn á Suðurnesjum í gær og setti lögbann við lendingum frá fyrirtækinu. Innlent 30.6.2021 07:01
Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi Bandaríski ferðamaðurinn sem leitað hefur verið að við gosstöðvarnar á Reykjanesi er fundinn heill á húfi. Hann fannst um fjóra kílómetra norðvestur af gosstöðvunum og hafði gengið í þveröfuga átt. Innlent 26.6.2021 19:37
Nafn mannsins sem leitað er við gosstöðvarnar Maðurinn sem leitað hefur verið við gosstöðvarnar síðan í gær er Bandaríkjamaðurinn Scott Estill. Lögreglan á Suðurnesjum lýsir nú eftir honum. Innlent 26.6.2021 16:12
Leit að erlendum ferðamanni enn engan árangur borið Fjölmennt lið björgunarsveitarfólks leitar enn erlends ferðamanns sem hefur verið saknað við gosstöðvarnar á Reykjanesi frá því um miðjan dag. Lítið skyggni er á svæðinu og leiðinlegt veður en leitað verður fram á nótt ef þörf krefur. Innlent 25.6.2021 22:59
Umfangsmikil leit að manni á gosstöðvunum Björgunarsveitarfólk af Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu leitar nú að karlmanni á gosstöðvunum á Reykjanesi. Leitar- og sporhundar frá höfuðborgarsvæðinu hafa einnig verið sendir til að aðstoða við leitina. Innlent 25.6.2021 19:52
Varnargarður rís í Nátthaga Þriggja til fimm metra hár varnargarður verður reistur í dalsmynni Nátthaga. Varnargarðinum er ætlað að seinka framrás hrauns úr Nátthaga niður að Suðurstrandarvegi og Ísólfsskála. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Innlent 25.6.2021 10:03
Bjarga verðmætum áður en hraunið tekur bæinn Landeigendur Ísólfsskála keppast nú við að bjarga lausamunum og öðrum verðmætum áður en hraun flæðir yfir jörðina. Á sama tíma er verið að stika nýja gönguleið á stað þaðan sem sést yfir eldgíginn og áformað að opna nýtt bílastæði. Innlent 23.6.2021 22:26
Svona gæti hraunið litið út í lok sumars Veðurstofan og Háskóli Íslands hafa gefið út nýtt hraunflæðilíkan, sem sýnir tvær mögulegar sviðsmyndir fyrir hraunflæði úr Nátthaga. Óvissa er uppi um hvenær hraun byrjar að flæða suður úr Nátthaga eftir að svæðið fyllist af hrauni. Innlent 22.6.2021 17:23
Vara fólk við „lífshættulegum fíflaskap“ Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu með yfirskriftinni „Lífshættulegur fíflaskapur – ekki hetjuskapur,“ þar sem því er beint til fólks sem leggur leið sína upp að gosstöðvunum í Geldingadölum að ganga ekki á nýstorknuðu hrauninu sem þar er að finna. Innlent 22.6.2021 15:03
Varnarvirki í bígerð til að verja Grindavíkurbæ Unnið er að hönnun varnarvirkja ef ske kynni að hraun úr Geldingadölum færi í átt að Grindavíkurbæ eða Reykjanesbraut. Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir missi af Suðurstrandarvegi en að það hefði orðið of kostnaðarsamt að verja hann. Innlent 19.6.2021 19:16
Hrauninu verður leyft að flæða yfir Suðurstrandarveg Ekki verður reynt að koma í veg fyrir að hraun úr Geldingadölum flæði yfir Suðurstrandarveg, en þess í stað verður hugað að því að verja Grindavíkurbæ og nærliggjandi vegi. Búist er við að hraunið muni skríða yfir veginn á næstu vikum. Innlent 18.6.2021 18:31
Næsti Balti er rauðhærður Grindvíkingur Óskar Kristinn Vignisson kvikmyndaleikstjóri er að ljúka námi við Danske Film School og gerir það með glans. Útskrifarmynd hans fer beint á kvikmyndahátíðina í Cannes – sem er fáheyrt. Bíó og sjónvarp 17.6.2021 07:01
Fjögurra metra hár leiðigarður settur upp syðst í Geldingadölum Almannavarnir, Grindavíkurbær og aðgerðastjórn vegna eldgossins í Geldingadölum hafa ákveðið að ráðast í gerð leiðigarðs syðst í Geldingadölum og varnargarðs til að minnka líkur á að hraun renni niður í Nátthagakrika. Innlent 14.6.2021 16:37
Hafa gengið að rótum gígsins og flúið undan flæðandi hrauni Lögreglu- og björgunarsveitarmenn í Grindavík hafa í dag hafa þurft að hafa afskipti af nokkrum einstaklingum sem hafa gengið út á nýstorknað hraunið, milli útsýnisstaða, og að rótum sjálfs stóra gígsins í Fagradalsfjalli. Innlent 11.6.2021 14:00
Varnargarðurinn hafi staðið „ótrúlega lengi“ Hraun hóf að renna yfir vestari varnargarðinn við gosstöðvarnar við Fagradalsfjall í morgun en verkfræðingur segir garðinn hafa staðið ótrúlega lengi. Verið er að skoða nýja leið til að stjórna hraunrennsli úr Nátthaga. Innlent 5.6.2021 20:00
Hraunspýja rauf vestari varnargarðinn Hraunspýja braut sér leið meðfram útsýnishólnum við eldstöðvarnar við Fagradalsfjall í morgun og streymdi loks yfir vestari varnargarðinn, sem reistur var í Syðri-Meradölum. Innlent 5.6.2021 13:48
Hraun komið yfir gönguleiðina upp á útsýnishólinn Hraun er komið yfir gönguleiðina upp á hól sem nýst hefur sem útsýnisstaður við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Innlent 4.6.2021 11:12