Grindavík Hætta á að hraun loki fólk inni Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokað endanum á gönguleið A að gosinu í Geldingadölum vegna hættu á að fólk lokist inni þegar hraun renni yfir gönguleiðina en fyrirséð er að það muni gerast á næstunni. Vettvangsstjóri segir fólk hunsa lokunarborða. Innlent 31.5.2021 11:49 Grindavík og ÍBV með sigra í Lengjudeildinni Tveir leikir fóru fram í Lengjudeildinni í dag. Grindavík heimsótti Vestra og vann góðan 3-2 sigur og ÍBV tók á móti Víking Ó. þar sem niðurstaðan varð 2-0 sigur heimamanna. Íslenski boltinn 30.5.2021 19:13 Allt sem gat farið úrskeiðis í kvöld fór úrskeiðis Tímabilinu er lokið hjá Grindavík eftir að hafa látið Stjörnuna valta yfir sig í oddaleik. Leikurinn endaði með 32 stiga sigri Stjörnunnar 104-72. Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Grindavíkur var afar ósáttur með sína menn í kvöld Sport 28.5.2021 20:25 Myndi vilja leggja sig hjá kúnum í Nátthaga og láta hrauna yfir sig Guðbergur Bergsson rithöfundur heimsótti æskuslóðir sínar á Ísólfsskála í dag þar sem fornleifafræðingar frá Minjastofnun vinna í kappi við hraunrennslið að kanna fornminjar. Sjálfur skoðaði Guðbergur nýja hraunið í Nátthaga þar sem hann var kúasmali á yngri árum. Innlent 27.5.2021 23:13 Grindvíkingar alsælir með nýjan eldgosabúning Nýr varabúningur knattspyrnudeildar Grindavíkur, svokallaður Eldgosabúningur, hefur fallið vel í kramið hjá stuðningsmönnum, bæjarbúum og knattspyrnuáhugamönnum um allt land. Þemað er nýstorknað hraun sem flæðir fram með kröftugan kvikugang beggja vegna. Fótbolti 27.5.2021 21:13 Kannski ætti fólkið líka að hafa tilverurétt, ekki bara náttúran Formaður Landeigendafélags Ísólfsskála óttast að umræða um náttúrurask verði til þess að yfirvöld heykist á því að verja jörðina með varnargörðum og segir mannfólkið einnig hafa tilverurétt. Innlent 26.5.2021 20:10 Engin sekt eða bann vegna hnefahögganna í Grindavík „Þó að við beitum ekki sektum eða heimaleikjabanni þá lítum við þetta að sjálfsögðu alvarlegum augum,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður körfuknattleikssambands Íslands, um áflogin í Grindavík í gærkvöld. Körfubolti 26.5.2021 13:49 „Við höfum smá tíma“ Hraun úr eldgosinu í Fagradalsfjalli stefnir niður að sjó og yfir Suðurstrandarveg ef gosið heldur áfram um óákveðinn tíma. Hvort það byrji að gerast eftir tvær vikur eða fleiri mánuði er enn óljóst. Innlent 26.5.2021 10:00 Segir alveg skelfilegt að sjá hraunið stefna á Ísólfsskála Talsmaður landeigenda Ísólfsskála segir alveg skelfilegt að hraun stefni núna á bæjarstæðið og hvetur til þess að reynt verði bægja því frá með rásum. Innlent 25.5.2021 22:44 Njarðvík og Grindavík í úrslit Njarðvík og Grindavík tryggðu sér sæti í úrslitaleik 1. deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Sigurvegari úrslitaleikurinn tryggir sér sæti í Domino´s deild kvenna á næstu leiktíð. Körfubolti 25.5.2021 21:31 Geldingadalir gætu fyllst og hraunið leitað niður gönguleiðina Óvíst er hvenær hraun nær Suðurstrandarvegi; sumir telja að það gæti orðið eftir vikur en aðrir mánuði. Kannað verður á næstu dögum hvort reisa eigi leiðigarða við gosið. Innlent 24.5.2021 19:18 Telur hraunið geta náð Suðurstrandarvegi á einni til tveimur vikum Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur telur hraunið geta náð Suðurstrandarvegi á einni til tveimur vikum. Hann segir skynsamlegt að ráðist verði í varnir í Nátthaga til að þrengja för hraunsins í átt að veginum og út í sjó svo sem minnst tjón verði. Innlent 23.5.2021 17:17 Svona rann hraun niður í Nátthaga Hraun fór að flæða niður í Nátthaga eftir hádegi í dag. Varnargarðar voru settir upp til að reyna að hindra það að hraun myndi flæða niður í Nátthaga og yfir Suðurstrandarveg. Innlent 22.5.2021 14:19 Hraun flæðir niður í Nátthaga „Það er víst. Hraunið er farið að renna niður í Nátthaga,“ segir Bogi Adolfsson, formaður Björgunarsveitarinnar Þorbjörns þegar fréttastofa hafði samband við hann. Mbl.is greindi fyrst frá. Innlent 22.5.2021 13:08 Ráðleggur fólki frá því að vera efst í Nátthaga Umhverfis- og byggingaverkfræðingur ráðleggur fólki frá því að vera efst í Nátthaga þar sem líkur eru á að hraun fari fljótlega að renna niður brekkuna og ofan í Nátthaga. Innlent 22.5.2021 10:37 Hraunið komið yfir nýlagðan ljósleiðara Ljósleiðari var grafinn niður fyrir framan annan varnargarðinn á gosstöðvunum síðasta þriðjudag til að mæla áhrif hraunrennslis á ljósleiðara. Ljóst er að ef gosið heldur mikið lengur áfram mun hraun á endanum renna niður að Suðurstrandavegi en áður en það næði þangað myndi það renna yfir ljósleiðara Mílu sem hringtengir Reykjanesið. Innlent 21.5.2021 18:01 Varnargarðarnir alls ekki sóun ef Reykjanesið hefur vaknað til lífs Þó að varnargarðarnir á gosstöðvunum reynist gagnslausir í baráttunni við að halda hrauninu frá innviðum á Reykjanesi telur Hörn Hrafnsdóttir, umhverfis- og byggingarverkfræðingur hjá Verkís sem stýrir gerð varnargarðanna, að reynslan af verkefninu verði gífurlega gagnleg í framtíðinni ef eldstöðvar á Reykjanesi hafa vaknað til lífsins. Innlent 20.5.2021 22:31 Ýttu upp neyðargörðum fram á nótt til að verjast hraunrennsli Stíflugerðarmenn á gosstöðvunum í Fagradalsfjalli stóðu í æsispennandi kapphlaupi í gærkvöldi og fram á nótt við að ryðja upp neyðargörðum þegar hraunrennsli stefndi á eystri varnargarðinn ofan Nátthaga. Búið er að bæta við annarri jarðýtu til að hraða styrkingu varnargarðanna. Innlent 20.5.2021 13:25 Telur tíu til tuttugu eldgos geta fylgt í kjölfarið á Reykjanesskaga Landsmenn þurfa að vera viðbúnir tíu til tuttugu eldgosum á Reykjanesskaga á næstu tveimur til þremur öldum, að mati Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings. Gera verði ráð fyrir mun myndarlegri hraungosum en því sem nú stendur yfir. Innlent 19.5.2021 22:44 Náttúruspjöll við Geldingadali Eldgos eru einhverjar alstórfenglegustu náttúruhamfarir sem verða á jörðinni. Íslendingar hafa frá upphafi byggðar þurft að takast á við þessi öfl náttúrunnar, og oft á tíðum orðið fyrir miklum búsifjum af völdum jarðelda. Síðari ár höfum við þó einnig notið fegurðar þeirra og margbreytileika. Skoðun 19.5.2021 16:32 Guðni á gosstöðvunum: „Ólýsanleg og ógleymanleg stund“ „Þetta var ólýsanleg og ógleymanleg stund sem ég var þess heiðurs aðnjótandi að eiga í gærkvöldi,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem fór að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli í gær. Hann segir gosið nánast vera eins og gjöf til þjóðarinnar frá æðri máttarvöldum – leið til að kynna land og þjóð nú þegar verið er að opna á ferðalög á ný. Lífið 19.5.2021 14:30 Kostar 1.000 krónur frá og með deginum í dag að leggja við gosstöðvarnar Von er á tilkynningu frá Landeigendafélagi Hrauns sf. í dag, þar sem tilkynnt verður um gjaldtöku á bílastæðunum við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. Nú þegar er hægt að greiða fyrir að leggja bílnum í Parka-smáforritinu. Innlent 19.5.2021 06:27 Framkvæmd Suðurnesjalínu 2 í uppnámi Fyrirhuguð framkvæmd Landsnets á Suðurnesjalínu 2 er komin í uppnám að sögn upplýsingafulltrúa Landsnets, Steinunnar Þorsteinsdóttir. Þetta kemur þeim sem fylgst hafa með málinu kannski ekki á óvart en það hefur farið fram og til baka í kerfinu síðan árið 2008, þegar leggja átti svonefnda Suðvesturlínu. Innlent 19.5.2021 06:16 Segir sóun að ætla að stöðva hraunið með varnargörðum Hafist var handa í dag við að hækka varnargarða á gosstöðvunum upp í átta metra hæð eftir að ríkisstjórnin samþykkti í morgun að verja tuttugu milljónum króna til verksins. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur telur þetta sóun, engin leið sé að stöðva hraunið með varnargörðum. Innlent 18.5.2021 22:44 Tuttugu milljónir í að hækka varnargarðana Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að verja allt að 20 milljónum króna til þess að hækka varnargarða fyrir ofan Nátthaga. Nú þegar hafa verið reistir tveir fjögurra metra háir varnargarðar og verða þeir hækkaðir í allt að átta metra. Innlent 18.5.2021 11:17 Hraunið byrjað að banka upp á báða varnargarðana Almannavarnir vilja að strax verði farið í að hækka varnargarða á gosstöðvunum upp í átta metra hæð. Sérfræðingur telur að garðarnir muni að minnsta kosti tefja fyrir því að hraunið steypist niður í Nátthaga og þar með í átt að Suðurstrandarvegi. Innlent 17.5.2021 22:11 Stefna á að klára varnargarðana á morgun Áfram er unnið að því að reisa garða til að varna því að hraunið úr Geldingadölum renni niður í Nátthaga og ógni þannig Suðurstrandarvegi. Stefnt er að því að ljúka verkinu fyrir lok dags á morgun. Innlent 15.5.2021 19:16 Hófu í nótt gerð varnargarða við gosstöðvarnar Stór jarðýta hófst handa við það í nótt að ryðja upp varnargörðum við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. Innlent 14.5.2021 06:53 Versta brekkan orðin breiður göngustígur Aðalgönguleiðin að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli, svokölluð A-leið, er núna orðin mun greiðfærari og hættuminni en áður. Leiðin var lokuð í gær meðan unnið var að framkvæmdum en opnuð á ný í gærkvöldi. Innlent 13.5.2021 22:44 Telja varnargarða ekki mega bíða lengi Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir áhyggjuefni ef hrauntaumur rennur niður í Nátthaga og heldur þaðan áfram í átt að Suðurstrandarvegi. Bæjarráð Grindavíkur ályktaði í síðustu viku um það að gera þyrfti allt sem mögulegt væri til þess að hefta framrás hraunsins niður í Nátthaga og hefur nú þegar verið ráðist í hönnun á þess til gerðum mannvirkjum. Innlent 13.5.2021 16:00 « ‹ 58 59 60 61 62 63 64 65 66 … 74 ›
Hætta á að hraun loki fólk inni Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokað endanum á gönguleið A að gosinu í Geldingadölum vegna hættu á að fólk lokist inni þegar hraun renni yfir gönguleiðina en fyrirséð er að það muni gerast á næstunni. Vettvangsstjóri segir fólk hunsa lokunarborða. Innlent 31.5.2021 11:49
Grindavík og ÍBV með sigra í Lengjudeildinni Tveir leikir fóru fram í Lengjudeildinni í dag. Grindavík heimsótti Vestra og vann góðan 3-2 sigur og ÍBV tók á móti Víking Ó. þar sem niðurstaðan varð 2-0 sigur heimamanna. Íslenski boltinn 30.5.2021 19:13
Allt sem gat farið úrskeiðis í kvöld fór úrskeiðis Tímabilinu er lokið hjá Grindavík eftir að hafa látið Stjörnuna valta yfir sig í oddaleik. Leikurinn endaði með 32 stiga sigri Stjörnunnar 104-72. Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Grindavíkur var afar ósáttur með sína menn í kvöld Sport 28.5.2021 20:25
Myndi vilja leggja sig hjá kúnum í Nátthaga og láta hrauna yfir sig Guðbergur Bergsson rithöfundur heimsótti æskuslóðir sínar á Ísólfsskála í dag þar sem fornleifafræðingar frá Minjastofnun vinna í kappi við hraunrennslið að kanna fornminjar. Sjálfur skoðaði Guðbergur nýja hraunið í Nátthaga þar sem hann var kúasmali á yngri árum. Innlent 27.5.2021 23:13
Grindvíkingar alsælir með nýjan eldgosabúning Nýr varabúningur knattspyrnudeildar Grindavíkur, svokallaður Eldgosabúningur, hefur fallið vel í kramið hjá stuðningsmönnum, bæjarbúum og knattspyrnuáhugamönnum um allt land. Þemað er nýstorknað hraun sem flæðir fram með kröftugan kvikugang beggja vegna. Fótbolti 27.5.2021 21:13
Kannski ætti fólkið líka að hafa tilverurétt, ekki bara náttúran Formaður Landeigendafélags Ísólfsskála óttast að umræða um náttúrurask verði til þess að yfirvöld heykist á því að verja jörðina með varnargörðum og segir mannfólkið einnig hafa tilverurétt. Innlent 26.5.2021 20:10
Engin sekt eða bann vegna hnefahögganna í Grindavík „Þó að við beitum ekki sektum eða heimaleikjabanni þá lítum við þetta að sjálfsögðu alvarlegum augum,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður körfuknattleikssambands Íslands, um áflogin í Grindavík í gærkvöld. Körfubolti 26.5.2021 13:49
„Við höfum smá tíma“ Hraun úr eldgosinu í Fagradalsfjalli stefnir niður að sjó og yfir Suðurstrandarveg ef gosið heldur áfram um óákveðinn tíma. Hvort það byrji að gerast eftir tvær vikur eða fleiri mánuði er enn óljóst. Innlent 26.5.2021 10:00
Segir alveg skelfilegt að sjá hraunið stefna á Ísólfsskála Talsmaður landeigenda Ísólfsskála segir alveg skelfilegt að hraun stefni núna á bæjarstæðið og hvetur til þess að reynt verði bægja því frá með rásum. Innlent 25.5.2021 22:44
Njarðvík og Grindavík í úrslit Njarðvík og Grindavík tryggðu sér sæti í úrslitaleik 1. deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Sigurvegari úrslitaleikurinn tryggir sér sæti í Domino´s deild kvenna á næstu leiktíð. Körfubolti 25.5.2021 21:31
Geldingadalir gætu fyllst og hraunið leitað niður gönguleiðina Óvíst er hvenær hraun nær Suðurstrandarvegi; sumir telja að það gæti orðið eftir vikur en aðrir mánuði. Kannað verður á næstu dögum hvort reisa eigi leiðigarða við gosið. Innlent 24.5.2021 19:18
Telur hraunið geta náð Suðurstrandarvegi á einni til tveimur vikum Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur telur hraunið geta náð Suðurstrandarvegi á einni til tveimur vikum. Hann segir skynsamlegt að ráðist verði í varnir í Nátthaga til að þrengja för hraunsins í átt að veginum og út í sjó svo sem minnst tjón verði. Innlent 23.5.2021 17:17
Svona rann hraun niður í Nátthaga Hraun fór að flæða niður í Nátthaga eftir hádegi í dag. Varnargarðar voru settir upp til að reyna að hindra það að hraun myndi flæða niður í Nátthaga og yfir Suðurstrandarveg. Innlent 22.5.2021 14:19
Hraun flæðir niður í Nátthaga „Það er víst. Hraunið er farið að renna niður í Nátthaga,“ segir Bogi Adolfsson, formaður Björgunarsveitarinnar Þorbjörns þegar fréttastofa hafði samband við hann. Mbl.is greindi fyrst frá. Innlent 22.5.2021 13:08
Ráðleggur fólki frá því að vera efst í Nátthaga Umhverfis- og byggingaverkfræðingur ráðleggur fólki frá því að vera efst í Nátthaga þar sem líkur eru á að hraun fari fljótlega að renna niður brekkuna og ofan í Nátthaga. Innlent 22.5.2021 10:37
Hraunið komið yfir nýlagðan ljósleiðara Ljósleiðari var grafinn niður fyrir framan annan varnargarðinn á gosstöðvunum síðasta þriðjudag til að mæla áhrif hraunrennslis á ljósleiðara. Ljóst er að ef gosið heldur mikið lengur áfram mun hraun á endanum renna niður að Suðurstrandavegi en áður en það næði þangað myndi það renna yfir ljósleiðara Mílu sem hringtengir Reykjanesið. Innlent 21.5.2021 18:01
Varnargarðarnir alls ekki sóun ef Reykjanesið hefur vaknað til lífs Þó að varnargarðarnir á gosstöðvunum reynist gagnslausir í baráttunni við að halda hrauninu frá innviðum á Reykjanesi telur Hörn Hrafnsdóttir, umhverfis- og byggingarverkfræðingur hjá Verkís sem stýrir gerð varnargarðanna, að reynslan af verkefninu verði gífurlega gagnleg í framtíðinni ef eldstöðvar á Reykjanesi hafa vaknað til lífsins. Innlent 20.5.2021 22:31
Ýttu upp neyðargörðum fram á nótt til að verjast hraunrennsli Stíflugerðarmenn á gosstöðvunum í Fagradalsfjalli stóðu í æsispennandi kapphlaupi í gærkvöldi og fram á nótt við að ryðja upp neyðargörðum þegar hraunrennsli stefndi á eystri varnargarðinn ofan Nátthaga. Búið er að bæta við annarri jarðýtu til að hraða styrkingu varnargarðanna. Innlent 20.5.2021 13:25
Telur tíu til tuttugu eldgos geta fylgt í kjölfarið á Reykjanesskaga Landsmenn þurfa að vera viðbúnir tíu til tuttugu eldgosum á Reykjanesskaga á næstu tveimur til þremur öldum, að mati Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings. Gera verði ráð fyrir mun myndarlegri hraungosum en því sem nú stendur yfir. Innlent 19.5.2021 22:44
Náttúruspjöll við Geldingadali Eldgos eru einhverjar alstórfenglegustu náttúruhamfarir sem verða á jörðinni. Íslendingar hafa frá upphafi byggðar þurft að takast á við þessi öfl náttúrunnar, og oft á tíðum orðið fyrir miklum búsifjum af völdum jarðelda. Síðari ár höfum við þó einnig notið fegurðar þeirra og margbreytileika. Skoðun 19.5.2021 16:32
Guðni á gosstöðvunum: „Ólýsanleg og ógleymanleg stund“ „Þetta var ólýsanleg og ógleymanleg stund sem ég var þess heiðurs aðnjótandi að eiga í gærkvöldi,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem fór að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli í gær. Hann segir gosið nánast vera eins og gjöf til þjóðarinnar frá æðri máttarvöldum – leið til að kynna land og þjóð nú þegar verið er að opna á ferðalög á ný. Lífið 19.5.2021 14:30
Kostar 1.000 krónur frá og með deginum í dag að leggja við gosstöðvarnar Von er á tilkynningu frá Landeigendafélagi Hrauns sf. í dag, þar sem tilkynnt verður um gjaldtöku á bílastæðunum við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. Nú þegar er hægt að greiða fyrir að leggja bílnum í Parka-smáforritinu. Innlent 19.5.2021 06:27
Framkvæmd Suðurnesjalínu 2 í uppnámi Fyrirhuguð framkvæmd Landsnets á Suðurnesjalínu 2 er komin í uppnám að sögn upplýsingafulltrúa Landsnets, Steinunnar Þorsteinsdóttir. Þetta kemur þeim sem fylgst hafa með málinu kannski ekki á óvart en það hefur farið fram og til baka í kerfinu síðan árið 2008, þegar leggja átti svonefnda Suðvesturlínu. Innlent 19.5.2021 06:16
Segir sóun að ætla að stöðva hraunið með varnargörðum Hafist var handa í dag við að hækka varnargarða á gosstöðvunum upp í átta metra hæð eftir að ríkisstjórnin samþykkti í morgun að verja tuttugu milljónum króna til verksins. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur telur þetta sóun, engin leið sé að stöðva hraunið með varnargörðum. Innlent 18.5.2021 22:44
Tuttugu milljónir í að hækka varnargarðana Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að verja allt að 20 milljónum króna til þess að hækka varnargarða fyrir ofan Nátthaga. Nú þegar hafa verið reistir tveir fjögurra metra háir varnargarðar og verða þeir hækkaðir í allt að átta metra. Innlent 18.5.2021 11:17
Hraunið byrjað að banka upp á báða varnargarðana Almannavarnir vilja að strax verði farið í að hækka varnargarða á gosstöðvunum upp í átta metra hæð. Sérfræðingur telur að garðarnir muni að minnsta kosti tefja fyrir því að hraunið steypist niður í Nátthaga og þar með í átt að Suðurstrandarvegi. Innlent 17.5.2021 22:11
Stefna á að klára varnargarðana á morgun Áfram er unnið að því að reisa garða til að varna því að hraunið úr Geldingadölum renni niður í Nátthaga og ógni þannig Suðurstrandarvegi. Stefnt er að því að ljúka verkinu fyrir lok dags á morgun. Innlent 15.5.2021 19:16
Hófu í nótt gerð varnargarða við gosstöðvarnar Stór jarðýta hófst handa við það í nótt að ryðja upp varnargörðum við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. Innlent 14.5.2021 06:53
Versta brekkan orðin breiður göngustígur Aðalgönguleiðin að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli, svokölluð A-leið, er núna orðin mun greiðfærari og hættuminni en áður. Leiðin var lokuð í gær meðan unnið var að framkvæmdum en opnuð á ný í gærkvöldi. Innlent 13.5.2021 22:44
Telja varnargarða ekki mega bíða lengi Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir áhyggjuefni ef hrauntaumur rennur niður í Nátthaga og heldur þaðan áfram í átt að Suðurstrandarvegi. Bæjarráð Grindavíkur ályktaði í síðustu viku um það að gera þyrfti allt sem mögulegt væri til þess að hefta framrás hraunsins niður í Nátthaga og hefur nú þegar verið ráðist í hönnun á þess til gerðum mannvirkjum. Innlent 13.5.2021 16:00