Almannavarnir Telja líkur á öðru eldgosi Áframhaldandi landris eykur líkur á öðru kvikuhlaupi þó eldgos sé yfirstandandi Meiri óvissa um þróun jarðhræringanna næstu daga eða vikur. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 19.4.2024 15:51 Öllum rýmingum aflétt á Austurlandi Hættustigi og rýmingum vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði hefur verið aflétt. Rýmingar sem gripið var til á Austurlandi hafi því verið aflétt að fullu. Óvissustig vegna snjófljóðahættu er enn í gildi á Austfjörðum. Innlent 8.4.2024 15:41 Endurmeta rýmingar í fyrramálið Rýmingar á merktum svæðum á Seyðisfirði og í Neskaupstað vegna snjóflóðahættu eru enn í gildi. Veðurstofa metur stöðuna að nýju í fyrramálið. Innlent 7.4.2024 21:44 Fólk á Austfjörðum sleppi því að vera á ferðinni Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi fundaði fyrir skemmstu með Veðurstofu og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum. Gert er ráð fyrir talsverðri úrkomu í nótt. Búið er að rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað. Innlent 6.4.2024 21:13 Rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað vegna snjóflóðahættu Veðurstofa Íslands hefur eflt til rýminga á tveimur svæðum á Seyðisfirði og einu á Neskaupstað frá klukkan tíu í kvöld vegna snjóflóðahættu. Innlent 6.4.2024 18:24 Af neyðarstigi á hættustig vegna eldgossins Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig Almannavarna vegna eldgossins á Reykjanesskaga. Innlent 3.4.2024 21:40 Eldgosið í beinni Enn er kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og Stóra-Skógfells. Dregið hefur úr virkninni en þetta gos hefur þó staðið lengur en þrjú síðustu gos á undan. Innlent 3.4.2024 13:15 Kvika undir Öskju heldur áfram að þrýsta sér upp Eldstöðin Askja sýnir merki um að hún sé að búa sig undir gos. Þar varð skjálftahrina í gær og Veðurstofan sendi í dag frá sér tilkynningu um að landris haldi þar áfram. Innlent 26.3.2024 22:22 Jörðin í Grindavík gaf sig undan vinnuvél Vinnutæki af gerð sem kölluð er búkolla í daglegu máli hrundi að hluta til ofan í sprungu í Grindavík í dag. Verið var að álagsprófa nokkrar götur sem lokaðar voru almenningi. Vitað var af nokkrum sprungum og holrýmum og þungum ökutækjum var ekið um svæðið til að kanna burðargetu og öryggi gatnanna. Innlent 25.3.2024 15:53 Níu svæði í Grindavík girt af Búið er að girða af níu svæði í Grindavík sem talin eru hættuleg og vísbendingar eru um holrými. Það var gert um helgina í kjölfar niðurstaðna jarðkönnunnarverkefnis almannavarna. Verkefnastjóri segir vísbendingar um að fleiri svæði í bænum séu verr farin. Innlent 25.3.2024 12:13 Íbúar í Höfnum loki gluggum vegna mengunar Á mælum Umhverfisstofununar mælist nú mikil mengun í Höfnum. Vegna þess mæla Almannavarnir með að íbúar á svæðinu loki gluggum og slökkvi á loftræstingu. Innlent 24.3.2024 13:50 Vísbendingar um að gosið geti varað lengi Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn stöðug nú þegar hátt í fjórir sólarhringar eru frá því það hófst. Jarðeðlisfræðingur segir vísbendingar um að þetta eldgos gæti orðið svipað þeim sem urðu í Fagradalsfjalli og því varað lengur. Innlent 20.3.2024 11:16 Landris geti leitt til lengra goss Sérfræðingur hjá Almannavörnum segir núverandi eldgos skera sig úr hinum þremur sem orðið hafa á Reykjanesskaganum síðustu mánuði að því leyti að landris sé hafið að nýju meðan það gýs enn. Það geti leitt til þess að eldgosið, sem er þegar orðið lengra en síðustu þrjú, lengist enn fremur. Innlent 19.3.2024 20:53 Svartsengi rýmt vegna gasmengunar Forsvarsmenn HS Orku ákváðu að rýma starfsstöðina í Svartsengi í morgun vegna gasmengunar sem leggur yfir svæðið vegna eldgossins í Sundhnúkagígaröðinni. Innlent 18.3.2024 11:39 Grindvíkingar búi í óvissu þrátt fyrir tölfræðileiki „Þetta hlýtur að vera mjög erfitt. Það er erfitt að setja sig spor þessa fólks að horfa enn og aftur upp á þetta. En þetta er það sem má búast við,“ segir Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, um þá erfiðu stöðu sem Grindvíkingar séu í vegna enn eins eldgossins. Innlent 17.3.2024 19:48 Óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Ekki er talin hætta í byggð að svo stöddu en aðstæður geta breyst þegar líður á veðrið. Innlent 17.3.2024 10:34 Hrauntungan 100 metrum frá Njarðvíkuræðinni Sviðsstjóri almannavarna segir enn töluvert hraunrennsli úr eldgosinu sem hófst í gærkvöldi. Hætta er á gufusprengingum og gasmengun nái hraunið út í sjó. Vindur og úrkoma verði þó líklega til þess að það dreifist mjög hratt úr því og ekki stafi hætta af, nema þá staðbundin. Innlent 17.3.2024 10:29 Vaktin: Meiri gasmökkur nú en í öllum hinum gosunum Hraun flæðir enn frá eldgosi sem hófst milli Skógfells og Hagafells á níunda tímanum í gærkvöldi. Þó hefur dregið töluvert úr virkni og gosrennsli. Innlent 17.3.2024 06:58 „Það er verið að rýma Grindavík“ Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í loftið yfir gossvæðið á Reykjanesi til að afla upplýsinga um eldgosið sem hófst á níunda tímanum. Verið er að lýsa yfir neyðarstigi á svæðinu. Innlent 16.3.2024 21:08 Vaktin: Eldgos er hafið á Sundhnúkagígaröðinni Eldgos hófst við Sundhnúka milli Stóra-Skógfells og Hagafells klukkan 20:23 í kvöld. Aðdragandinn var stuttur. Hraun rennur í tvær áttir og ógnar bæði Grindavíkurvegi og Suðurstrandarvegi. Innlent 16.3.2024 20:27 Segja umbrotum við Grindavík geta lokið innan eins til tveggja mánaða Hópur jarðvísindamanna við Háskóla Íslands, með prófessorana Þorvald Þórðarson og Ármann Höskuldsson í fararbroddi, segir kvikuinnflæði inn undir Svartsengi hafa helmingast frá því í seinni hluta desember. Þeir segja að haldi þessi þróun áfram með sama hraða gætu umbrotin á Sundhnúksgígaröðinni norðan Grindavíkur tekið enda innan eins til tveggja mánaða. Innlent 16.3.2024 13:00 Spá því að umbrotum við Grindavík ljúki síðsumars „Við teljum að nú liggi fyrir vísindagögn, sem leyfa okkur að áætla hvenær kvikuhreyfingum og gosum lýkur í Sundhnúks gígaröðinni,“ segja jarðvísindamennirnir Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur og Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur í sameiginlegri grein sem birt er á eldfjallabloggi Haraldar. Niðurstaða þeirra, sem þeir kalla einfalda spá, er að umbrotunum við Grindavík ljúki síðsumars árið 2024, eftir fjóra til fimm mánuði. Innlent 14.3.2024 14:44 Kvikumagn komið yfir þau mörk sem hleypt hafa af stað eldgosi Veðurstofan varar við því að heildarmagn kviku undir Svartsengi sé núna komið yfir þau mörk, sem sett hafa af stað kvikuhlaup og eldgos í Sundhnúksgígaröðinni. Því séu auknar líkur á nýju kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu dögum. Innlent 12.3.2024 22:11 Býst við eldgosi á næstu dögum og það gæti orðið með sírennsli Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðiprófessor telur líklegt að eldgos brjótist upp á næstu dögum og langlíklegasta staðsetning verði á miðri Sundhnúkssprungunni. Hann telur þá sviðsmynd mögulega að næsta gos detti í sírennsli hraunkviku. Innlent 11.3.2024 21:21 Fara yfir öryggisbúnað og uppfæra hættumat Almannavarnanefnd Austurlands hefur ásamt sveitarfélögunum Múlaþingi og Fjarðabyggð hafið vinnu við að rýna verkferla varðandi skíðasvæðin í Stafdal og Oddsskarði. Snjóflóð féllu þar um síðustu helgi. Innlent 7.3.2024 10:24 Endurvekjum rannsóknarnefnd almannavarna Á dögunum lagði ég fram frumvarp um rannsóknarnefnd almannavarna. Með frumvarpinu er lagt til að rannsóknarnefnd almannavarna verði að nýju tekin upp í lög um almannavarnir. Á málinu eru ásamt mér meðflutningsmenn úr flestum flokkum á Alþingi og því um þverpólitískt mál að ræða. Skoðun 6.3.2024 06:31 Hættustig lækkað á tveimur svæðum Veðurstofa Íslands hefur uppfært hættumat vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Í ljósi þróunar á virkninni frá því í gær hefur hættustig verið lækkað á tveimur svæðum. Á öðrum svæðum er hættumatið það sama og var í gildi fyrir atburðarás gærkvöldsins. Innlent 3.3.2024 12:14 Snjóflóðahætta á Norðurlandi og Austfjörðum Varasamar snjóaðstæður eru á Norðurlandi og á Austfjörðum. Talsvert hefur snjóað á Austfjörðum og nýr snjór sem fallið hefur síðan á þriðjudag virðist bindast illa við eldri snjó sem hefur gengið í gegnum hláku. Erlent 3.3.2024 11:29 Uppfært hættumat Veðurstofa Íslands hefur uppfært nýtt hættumat og fylgir því hættumatskort sem skiptist upp í sjö hættusvæði. Hættan er talin mjög mikil á tveimur þeirra, lengju sem nær frá Klifhólahrauni norðan við Grindavík yfir Sundhnúksgíga og norður að Kálffellsheiði handan við hraunið frá því í desember í fyrra. Innlent 2.3.2024 17:34 Vaktin: Kvikuhlaup skammt frá Sýlingarfelli Kvikuhlaup sem hófst skammt frá Sýlingarfelli um 16 í dag virðist hafa stöðvast í bili þar sem smáskjálftavirkni á svæðinu er hætt. Enn er þó of snemmt að fullyrða að kvikuhlaupinu sé lokið og að ekki komi til eldgoss. Innlent 2.3.2024 16:11 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 … 37 ›
Telja líkur á öðru eldgosi Áframhaldandi landris eykur líkur á öðru kvikuhlaupi þó eldgos sé yfirstandandi Meiri óvissa um þróun jarðhræringanna næstu daga eða vikur. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 19.4.2024 15:51
Öllum rýmingum aflétt á Austurlandi Hættustigi og rýmingum vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði hefur verið aflétt. Rýmingar sem gripið var til á Austurlandi hafi því verið aflétt að fullu. Óvissustig vegna snjófljóðahættu er enn í gildi á Austfjörðum. Innlent 8.4.2024 15:41
Endurmeta rýmingar í fyrramálið Rýmingar á merktum svæðum á Seyðisfirði og í Neskaupstað vegna snjóflóðahættu eru enn í gildi. Veðurstofa metur stöðuna að nýju í fyrramálið. Innlent 7.4.2024 21:44
Fólk á Austfjörðum sleppi því að vera á ferðinni Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi fundaði fyrir skemmstu með Veðurstofu og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum. Gert er ráð fyrir talsverðri úrkomu í nótt. Búið er að rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað. Innlent 6.4.2024 21:13
Rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað vegna snjóflóðahættu Veðurstofa Íslands hefur eflt til rýminga á tveimur svæðum á Seyðisfirði og einu á Neskaupstað frá klukkan tíu í kvöld vegna snjóflóðahættu. Innlent 6.4.2024 18:24
Af neyðarstigi á hættustig vegna eldgossins Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig Almannavarna vegna eldgossins á Reykjanesskaga. Innlent 3.4.2024 21:40
Eldgosið í beinni Enn er kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og Stóra-Skógfells. Dregið hefur úr virkninni en þetta gos hefur þó staðið lengur en þrjú síðustu gos á undan. Innlent 3.4.2024 13:15
Kvika undir Öskju heldur áfram að þrýsta sér upp Eldstöðin Askja sýnir merki um að hún sé að búa sig undir gos. Þar varð skjálftahrina í gær og Veðurstofan sendi í dag frá sér tilkynningu um að landris haldi þar áfram. Innlent 26.3.2024 22:22
Jörðin í Grindavík gaf sig undan vinnuvél Vinnutæki af gerð sem kölluð er búkolla í daglegu máli hrundi að hluta til ofan í sprungu í Grindavík í dag. Verið var að álagsprófa nokkrar götur sem lokaðar voru almenningi. Vitað var af nokkrum sprungum og holrýmum og þungum ökutækjum var ekið um svæðið til að kanna burðargetu og öryggi gatnanna. Innlent 25.3.2024 15:53
Níu svæði í Grindavík girt af Búið er að girða af níu svæði í Grindavík sem talin eru hættuleg og vísbendingar eru um holrými. Það var gert um helgina í kjölfar niðurstaðna jarðkönnunnarverkefnis almannavarna. Verkefnastjóri segir vísbendingar um að fleiri svæði í bænum séu verr farin. Innlent 25.3.2024 12:13
Íbúar í Höfnum loki gluggum vegna mengunar Á mælum Umhverfisstofununar mælist nú mikil mengun í Höfnum. Vegna þess mæla Almannavarnir með að íbúar á svæðinu loki gluggum og slökkvi á loftræstingu. Innlent 24.3.2024 13:50
Vísbendingar um að gosið geti varað lengi Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn stöðug nú þegar hátt í fjórir sólarhringar eru frá því það hófst. Jarðeðlisfræðingur segir vísbendingar um að þetta eldgos gæti orðið svipað þeim sem urðu í Fagradalsfjalli og því varað lengur. Innlent 20.3.2024 11:16
Landris geti leitt til lengra goss Sérfræðingur hjá Almannavörnum segir núverandi eldgos skera sig úr hinum þremur sem orðið hafa á Reykjanesskaganum síðustu mánuði að því leyti að landris sé hafið að nýju meðan það gýs enn. Það geti leitt til þess að eldgosið, sem er þegar orðið lengra en síðustu þrjú, lengist enn fremur. Innlent 19.3.2024 20:53
Svartsengi rýmt vegna gasmengunar Forsvarsmenn HS Orku ákváðu að rýma starfsstöðina í Svartsengi í morgun vegna gasmengunar sem leggur yfir svæðið vegna eldgossins í Sundhnúkagígaröðinni. Innlent 18.3.2024 11:39
Grindvíkingar búi í óvissu þrátt fyrir tölfræðileiki „Þetta hlýtur að vera mjög erfitt. Það er erfitt að setja sig spor þessa fólks að horfa enn og aftur upp á þetta. En þetta er það sem má búast við,“ segir Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, um þá erfiðu stöðu sem Grindvíkingar séu í vegna enn eins eldgossins. Innlent 17.3.2024 19:48
Óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Ekki er talin hætta í byggð að svo stöddu en aðstæður geta breyst þegar líður á veðrið. Innlent 17.3.2024 10:34
Hrauntungan 100 metrum frá Njarðvíkuræðinni Sviðsstjóri almannavarna segir enn töluvert hraunrennsli úr eldgosinu sem hófst í gærkvöldi. Hætta er á gufusprengingum og gasmengun nái hraunið út í sjó. Vindur og úrkoma verði þó líklega til þess að það dreifist mjög hratt úr því og ekki stafi hætta af, nema þá staðbundin. Innlent 17.3.2024 10:29
Vaktin: Meiri gasmökkur nú en í öllum hinum gosunum Hraun flæðir enn frá eldgosi sem hófst milli Skógfells og Hagafells á níunda tímanum í gærkvöldi. Þó hefur dregið töluvert úr virkni og gosrennsli. Innlent 17.3.2024 06:58
„Það er verið að rýma Grindavík“ Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í loftið yfir gossvæðið á Reykjanesi til að afla upplýsinga um eldgosið sem hófst á níunda tímanum. Verið er að lýsa yfir neyðarstigi á svæðinu. Innlent 16.3.2024 21:08
Vaktin: Eldgos er hafið á Sundhnúkagígaröðinni Eldgos hófst við Sundhnúka milli Stóra-Skógfells og Hagafells klukkan 20:23 í kvöld. Aðdragandinn var stuttur. Hraun rennur í tvær áttir og ógnar bæði Grindavíkurvegi og Suðurstrandarvegi. Innlent 16.3.2024 20:27
Segja umbrotum við Grindavík geta lokið innan eins til tveggja mánaða Hópur jarðvísindamanna við Háskóla Íslands, með prófessorana Þorvald Þórðarson og Ármann Höskuldsson í fararbroddi, segir kvikuinnflæði inn undir Svartsengi hafa helmingast frá því í seinni hluta desember. Þeir segja að haldi þessi þróun áfram með sama hraða gætu umbrotin á Sundhnúksgígaröðinni norðan Grindavíkur tekið enda innan eins til tveggja mánaða. Innlent 16.3.2024 13:00
Spá því að umbrotum við Grindavík ljúki síðsumars „Við teljum að nú liggi fyrir vísindagögn, sem leyfa okkur að áætla hvenær kvikuhreyfingum og gosum lýkur í Sundhnúks gígaröðinni,“ segja jarðvísindamennirnir Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur og Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur í sameiginlegri grein sem birt er á eldfjallabloggi Haraldar. Niðurstaða þeirra, sem þeir kalla einfalda spá, er að umbrotunum við Grindavík ljúki síðsumars árið 2024, eftir fjóra til fimm mánuði. Innlent 14.3.2024 14:44
Kvikumagn komið yfir þau mörk sem hleypt hafa af stað eldgosi Veðurstofan varar við því að heildarmagn kviku undir Svartsengi sé núna komið yfir þau mörk, sem sett hafa af stað kvikuhlaup og eldgos í Sundhnúksgígaröðinni. Því séu auknar líkur á nýju kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu dögum. Innlent 12.3.2024 22:11
Býst við eldgosi á næstu dögum og það gæti orðið með sírennsli Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðiprófessor telur líklegt að eldgos brjótist upp á næstu dögum og langlíklegasta staðsetning verði á miðri Sundhnúkssprungunni. Hann telur þá sviðsmynd mögulega að næsta gos detti í sírennsli hraunkviku. Innlent 11.3.2024 21:21
Fara yfir öryggisbúnað og uppfæra hættumat Almannavarnanefnd Austurlands hefur ásamt sveitarfélögunum Múlaþingi og Fjarðabyggð hafið vinnu við að rýna verkferla varðandi skíðasvæðin í Stafdal og Oddsskarði. Snjóflóð féllu þar um síðustu helgi. Innlent 7.3.2024 10:24
Endurvekjum rannsóknarnefnd almannavarna Á dögunum lagði ég fram frumvarp um rannsóknarnefnd almannavarna. Með frumvarpinu er lagt til að rannsóknarnefnd almannavarna verði að nýju tekin upp í lög um almannavarnir. Á málinu eru ásamt mér meðflutningsmenn úr flestum flokkum á Alþingi og því um þverpólitískt mál að ræða. Skoðun 6.3.2024 06:31
Hættustig lækkað á tveimur svæðum Veðurstofa Íslands hefur uppfært hættumat vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Í ljósi þróunar á virkninni frá því í gær hefur hættustig verið lækkað á tveimur svæðum. Á öðrum svæðum er hættumatið það sama og var í gildi fyrir atburðarás gærkvöldsins. Innlent 3.3.2024 12:14
Snjóflóðahætta á Norðurlandi og Austfjörðum Varasamar snjóaðstæður eru á Norðurlandi og á Austfjörðum. Talsvert hefur snjóað á Austfjörðum og nýr snjór sem fallið hefur síðan á þriðjudag virðist bindast illa við eldri snjó sem hefur gengið í gegnum hláku. Erlent 3.3.2024 11:29
Uppfært hættumat Veðurstofa Íslands hefur uppfært nýtt hættumat og fylgir því hættumatskort sem skiptist upp í sjö hættusvæði. Hættan er talin mjög mikil á tveimur þeirra, lengju sem nær frá Klifhólahrauni norðan við Grindavík yfir Sundhnúksgíga og norður að Kálffellsheiði handan við hraunið frá því í desember í fyrra. Innlent 2.3.2024 17:34
Vaktin: Kvikuhlaup skammt frá Sýlingarfelli Kvikuhlaup sem hófst skammt frá Sýlingarfelli um 16 í dag virðist hafa stöðvast í bili þar sem smáskjálftavirkni á svæðinu er hætt. Enn er þó of snemmt að fullyrða að kvikuhlaupinu sé lokið og að ekki komi til eldgoss. Innlent 2.3.2024 16:11