Erlendar Ívar samdi við Reading til 2008 Ívar Ingimarsson hefur skrifað undir nýjan samning við fyrstu deildar liðið Reading, sem þýðir að hann verður hjá félaginu í þrjú ár til viðbótar. Ívar hefur verið í herbúðum liðsins síðan 2003, en samningur hans hefði runnið út í sumar. Sport 10.11.2005 14:06 Hef ekkert rætt við fulltrúa Arsenal Útsendari frá Arsenal fylgdist með Fernando Torres hjá Atletico Madrid spila um síðustu helgi og það gaf orðrómi um kaup Arsenal á framherjanum byr undir báða vængi í gær. Umboðsmaður Torres segist hinsvegar ekki hafa heyrt í neinum frá Arsenal í meira en eitt og hálft ár. Sport 10.11.2005 14:12 King og Lampard heilir Þrátt fyrir fréttir um hið andstæða í gær, virðist nú sem þeir Ledley King og Frank Lampard verði klárir í slaginn með enska landsliðinu gegn Argentínu á laugardaginn. Talið var að King gæti ekki spilað vegna hnémeiðsla, en bæði hann og Lampard komust í gegn um æfingu með enska liðinu í morgun. Sport 10.11.2005 13:57 Vitali Klitschko hættur Þungavigtarhnefaleikarinn Vitali Klitschko hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna 34 ára gamall vegna þrálátra meiðsla sem hann hefur átt við að stríða á undanförnum mánuðum. Fyrirhuguðum andstæðingi hans Hasim Rahman hefur því verið afhent WBC meistarabeltið, en þeir áttu að berjast núna 12. nóvember. Sport 10.11.2005 13:52 Nowitzki meiddist og Dallas tapaði Tólf leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Philadelphia sigraði Dallas auðveldlega 112-97 eftir að Dallas var án Dirk Nowitzki lengst af í leiknum, en hann meiddist í baki. Keith Van Horn skoraði 19 stig og hirti 13 fráköst fyrir Dallas, en Allen Iverson skoraði 25 stig fyrir Philadelphia. Sport 10.11.2005 12:15 Ballack verður ekki seldur í janúar Michael Becker, umboðsmaður miðjumannsins Michael Ballack hjá Bayern Munchen, segir að leikmaðurinn verði alls ekki seldur frá Bayern þegar félagaskiptaglugginn opnast í janúar, en fjöldi liða er á höttunum eftir Ballack sem hefur enn ekki gefið upp hvort hann ætli að framlengja samning sinn við Bayern. Sport 9.11.2005 17:42 Ledley King meiddur á hné Nú þykir ólíklegt að varnarmaðurinn Ledley King verði með enska landsliðinu þegar það mætir Argentínumönnum í æfingaleik á laugardaginn, eftir að hann gat ekki æft með liðinu í dag vegna hnémeiðsla. Sport 9.11.2005 17:36 Verður frá í tvo mánuði Miðvallarleikmaðurinn Mark van Bommel hjá Barcelona verður frá keppni í um tvo mánuði eftir að að hann meiddist illa á æfingu með hollenska landsliðinu. Hann fór í aðhlynningu hjá læknum í Amsterdam og hefur verið ráðlagt að fara ekki strax til Barcelona vegna þess að hann er enn mikið bólginn. Sport 9.11.2005 17:30 Philadelphia - Dallas í beinni Leikur Philadelphia 76ers og Dallas Mavericks verður í beinni útsendingu á NBA TV körfuboltastöðinni á Digital Ísland í kvöld. Þarna eru á ferðinni tvö skemmtileg lið, sem hafa á að skipa tveimur af betri leikmönnum heimsins, þeim Allen Iverson og Dirk Nowitzki. Sport 9.11.2005 14:17 Fékk Mike Tyson í heimsókn Tveir kóngar í íþróttaheiminum, knattspyrnuhetjan Diego Armando Maradona og hnefaleikakappinn Mike Tyson, fóru mikinn í sjónvarpsþætti þess fyrrnefnda í argentísku sjónvarpi í gær. Maradona og Tyson eiga ýmislegt sameiginlegt. Sport 9.11.2005 14:00 Sacramento fékk grínið borgað Skondin uppákoma varð fyrir leik Sacramento og Detroit í NBA í nótt. Í upphitun fyrir leik liðanna eru venjulega spiluð myndbrot á risaskjá fyrir ofan völlinn og þegar lið Detroit var kynnt, hafði einhverjum háðfuglinum dottið í hug að sýna myndir af brenndum bílum og ónýtum byggingum, til að gera grín af staðalmyndum um bílaborgina. Þetta fór ekki vel fyrir brjóstið á leikmönnum Detroit. Sport 9.11.2005 13:09 Hannover rekur þjálfarana Þýska úrvalsdeildarliðið Hannover 96 hefur rekið aðalþjálfarann Ewald Lienen og aðstoðarmann hans Michael Frontzeck, eftir að þeir náðu aðeins einum sigri í síðustu átta leikjum með liðið. Lienen er þriðji þjálfarinn sem tekur pokann sinn í úrvalsdeildinni í vetur, en áður höfðu þeir Klaus Augenthaler hjá Leverkusen og Wolfgan Wolf hjá Nurnberg verið látnir fara. Sport 9.11.2005 13:03 Þrælahald stundað í fótbolta Sextán ára knattspyrnumenn frá Afríku fara unnvörpum til Belgíu að reyna fyrirsér í atvinnumennskunni. Fæstir ná að uppfylla þann draum og þeir lenda á bótum hjá belgíska ríkinu. Sport 9.11.2005 13:46 Byrjar strax að æfa aftur Fyrirliði Newcastle, Alan Shearer, er strax kominn aftur heim til Newcastle eftir kviðslitsaðgerð sem hann gekkst undir í Þýskalandi í byrjun vikunnar og hefur þegar byrjað rólegar æfingar. Sport 9.11.2005 12:54 Tibúinn að mæta Argentínu David Beckham hefur átt eftirminnilegar stundir með enska landsliðinu þegar það hefur mætt Argentínumönnum á stórmótum og hlakkar til að mæta þeim í vináttuleik þann 12. næstkomandi. Sport 9.11.2005 12:41 Verðum að ná í 20 stig fyrir jól Birmingham hefur gengið skelfilega í ensku úrvalsdeildinni það sem af er leiktíð og liðið situr nú í 19. sæti deildarinnar með aðeins sex stig úr fyrstu tólf leikjunum. Steve Bruce hefur sett liðinu markmið og ætlar því að vera komið með 20 stig um jólin. Sport 9.11.2005 12:25 Detroit enn taplaust Detroit Pistons heldur áfram sigurgöngu sinni í upphafi leiktíðar í NBA og í gær rúllaði liðið yfir Sacramento á útivelli 102-88. Milwaukee Bucks tapaði sínum fyrsta leik, en Los Angeles Lakers byrjar ágætlega. Sport 9.11.2005 11:21 Memphis-Seattle í beinni Einn leikur verður í beinni útsendingu á NBA TV í nótt, en það er viðureign Memphis Grizzlies og Seattle Supersonics. Memphis hefur unnið tvo leiki og tapað einum, en Seattle hefur spilað tvo leiki og unnið annan þeirra. Pau Gasol er stigahæstur í liði Memphis með rúm 25 stig að meðaltali í leik, en Ray Allen hefur skorað rúmt 31 stig í leik fyrir Seattle. Leikurinn hefst klukkan eitt í nótt. Sport 8.11.2005 22:00 Graham Rix þjálfar Hearts Í dag var staðfest að fyrrum þjálfari Portsmouth, Graham Rix hefði verið ráðinn aðalþjálfari úrvalsdeildarliðs Hearts í Skotlandi. Á næstunni er svo fyrirhugað að ráða yfirmann knattspyrnumála til félagsins, en allir menn í þessum stöðum voru látnir fara eða sögðu upp fyrir stuttu vegna deilna við eiganda félagsins. Sport 8.11.2005 17:32 Ég á skilið að vera í landsliðinu David James, markvörður Manchester City segir að trú hans á sjálfan sig hafi gert honum kleift að vinna sér aftur inn sæti í enska landsliðinu, en James missti sæti sitt í liðinu eftir skelfilega frammistöðu gegn Dönum á Parken í ágúst. Sport 8.11.2005 17:59 Rooney má ekki vera undir pressu Landsliðsþjálfari Þjóðverja telur að enska landsliðið hafi fulla burði til að verða heimsmeistari í Þýskalandi á næsta ári, en segir að Englendingar verði að gæta þess að setja ekki of mikla pressu á hinn unga Wayne Rooney. Sport 8.11.2005 16:14 Á yfir höfði sér frekari refsingu Lauren Robert gæti átt yfir höfði sér aðra refsingu sína á stuttum tíma frá félagi sínu Portsmouth, eftir að hann gagnrýndi liðið harðlega í viðtölum eftir tapið gegn Wigan um helgina. Sport 8.11.2005 15:46 Maradona var svindlari Paul Robinson, markvörður Tottenham og enska landsliðsins, hefur gefið góð fyrirheit fyrir vináttulandsleik Englands og Argentínu þann 12. nóvember næstkomandi, því á blaðamannafundi í dag sagði hann að Maradona hefði verið svindlari. Sport 8.11.2005 13:32 Vill snúa sér að þjálfun í framtíðinni Steven Gerrard segir að hann langi að gerast þjálfari hjá Liverpool þegar hann leggur skóna á hilluna og segist vonast til að verða í herbúðum Liverpool allan sinn feril. Sport 8.11.2005 13:23 Seinna prófið líka jákvætt Knattspyrnumaðurinn Abel Xavier hjá Middlesbrough á yfir höfði sér árs leikbann eftir að í ljós kom að seinna lyfjaprófið sem tekið var af honum eftir leik í Evrópukeppninni á dögunum, var einnig jákvætt og sýndi fram á steraneyslu að því er talið er. Sport 8.11.2005 13:19 Ferguson staðfestir janúarkaup Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur staðfest að félagið muni styrkja leikmannahóp sinn þegar opnar fyrir félagaskiptagluggann í janúar. Sport 8.11.2005 13:12 San Antonio þurfti framlengingu í Chicago Fimm leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Meistarar San Antonio lögðu Chicago 104-95 í framlengdum leik og LA Clippers tapaði sínum fyrsta leik í vetur. Þá er Toronto enn án sigurs. Sport 8.11.2005 12:42 Bolton í þriðja sætið Bolton vann góðan sigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, 1-0 með marki frá Kevin Nolan á 31. mínútu og lyfti sér í þriðja sæti deildarinnar. Heimamenn voru ívið betri í leiknum, en bæði lið fengu reyndar nokkur góð marktækifæri í rokinu á Reebok Stadium í kvöld. Sport 7.11.2005 22:14 Bolton og Tottenham mætast í kvöld Einn leikur er á dagskrá í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í kvöld klukkan 20, þar sem Bolton tekur á móti Tottenham. Bæði lið hafa byrjað mjög vel í haust og ætla sér sæti í Evrópukeppninni á næsta ári. Sport 7.11.2005 17:55 Við getum endurtekið sigurgönguna Eiður Smári Guðjohnsen segir að keppinautum Chelsea í ensku úrvalsdeildinni beri að vara sig, því meistararnir séu fullfærir um að endurtaka 40 leikja taplausa hrinu sína í deildinni. Sport 7.11.2005 17:31 « ‹ 256 257 258 259 260 261 262 263 264 … 264 ›
Ívar samdi við Reading til 2008 Ívar Ingimarsson hefur skrifað undir nýjan samning við fyrstu deildar liðið Reading, sem þýðir að hann verður hjá félaginu í þrjú ár til viðbótar. Ívar hefur verið í herbúðum liðsins síðan 2003, en samningur hans hefði runnið út í sumar. Sport 10.11.2005 14:06
Hef ekkert rætt við fulltrúa Arsenal Útsendari frá Arsenal fylgdist með Fernando Torres hjá Atletico Madrid spila um síðustu helgi og það gaf orðrómi um kaup Arsenal á framherjanum byr undir báða vængi í gær. Umboðsmaður Torres segist hinsvegar ekki hafa heyrt í neinum frá Arsenal í meira en eitt og hálft ár. Sport 10.11.2005 14:12
King og Lampard heilir Þrátt fyrir fréttir um hið andstæða í gær, virðist nú sem þeir Ledley King og Frank Lampard verði klárir í slaginn með enska landsliðinu gegn Argentínu á laugardaginn. Talið var að King gæti ekki spilað vegna hnémeiðsla, en bæði hann og Lampard komust í gegn um æfingu með enska liðinu í morgun. Sport 10.11.2005 13:57
Vitali Klitschko hættur Þungavigtarhnefaleikarinn Vitali Klitschko hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna 34 ára gamall vegna þrálátra meiðsla sem hann hefur átt við að stríða á undanförnum mánuðum. Fyrirhuguðum andstæðingi hans Hasim Rahman hefur því verið afhent WBC meistarabeltið, en þeir áttu að berjast núna 12. nóvember. Sport 10.11.2005 13:52
Nowitzki meiddist og Dallas tapaði Tólf leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Philadelphia sigraði Dallas auðveldlega 112-97 eftir að Dallas var án Dirk Nowitzki lengst af í leiknum, en hann meiddist í baki. Keith Van Horn skoraði 19 stig og hirti 13 fráköst fyrir Dallas, en Allen Iverson skoraði 25 stig fyrir Philadelphia. Sport 10.11.2005 12:15
Ballack verður ekki seldur í janúar Michael Becker, umboðsmaður miðjumannsins Michael Ballack hjá Bayern Munchen, segir að leikmaðurinn verði alls ekki seldur frá Bayern þegar félagaskiptaglugginn opnast í janúar, en fjöldi liða er á höttunum eftir Ballack sem hefur enn ekki gefið upp hvort hann ætli að framlengja samning sinn við Bayern. Sport 9.11.2005 17:42
Ledley King meiddur á hné Nú þykir ólíklegt að varnarmaðurinn Ledley King verði með enska landsliðinu þegar það mætir Argentínumönnum í æfingaleik á laugardaginn, eftir að hann gat ekki æft með liðinu í dag vegna hnémeiðsla. Sport 9.11.2005 17:36
Verður frá í tvo mánuði Miðvallarleikmaðurinn Mark van Bommel hjá Barcelona verður frá keppni í um tvo mánuði eftir að að hann meiddist illa á æfingu með hollenska landsliðinu. Hann fór í aðhlynningu hjá læknum í Amsterdam og hefur verið ráðlagt að fara ekki strax til Barcelona vegna þess að hann er enn mikið bólginn. Sport 9.11.2005 17:30
Philadelphia - Dallas í beinni Leikur Philadelphia 76ers og Dallas Mavericks verður í beinni útsendingu á NBA TV körfuboltastöðinni á Digital Ísland í kvöld. Þarna eru á ferðinni tvö skemmtileg lið, sem hafa á að skipa tveimur af betri leikmönnum heimsins, þeim Allen Iverson og Dirk Nowitzki. Sport 9.11.2005 14:17
Fékk Mike Tyson í heimsókn Tveir kóngar í íþróttaheiminum, knattspyrnuhetjan Diego Armando Maradona og hnefaleikakappinn Mike Tyson, fóru mikinn í sjónvarpsþætti þess fyrrnefnda í argentísku sjónvarpi í gær. Maradona og Tyson eiga ýmislegt sameiginlegt. Sport 9.11.2005 14:00
Sacramento fékk grínið borgað Skondin uppákoma varð fyrir leik Sacramento og Detroit í NBA í nótt. Í upphitun fyrir leik liðanna eru venjulega spiluð myndbrot á risaskjá fyrir ofan völlinn og þegar lið Detroit var kynnt, hafði einhverjum háðfuglinum dottið í hug að sýna myndir af brenndum bílum og ónýtum byggingum, til að gera grín af staðalmyndum um bílaborgina. Þetta fór ekki vel fyrir brjóstið á leikmönnum Detroit. Sport 9.11.2005 13:09
Hannover rekur þjálfarana Þýska úrvalsdeildarliðið Hannover 96 hefur rekið aðalþjálfarann Ewald Lienen og aðstoðarmann hans Michael Frontzeck, eftir að þeir náðu aðeins einum sigri í síðustu átta leikjum með liðið. Lienen er þriðji þjálfarinn sem tekur pokann sinn í úrvalsdeildinni í vetur, en áður höfðu þeir Klaus Augenthaler hjá Leverkusen og Wolfgan Wolf hjá Nurnberg verið látnir fara. Sport 9.11.2005 13:03
Þrælahald stundað í fótbolta Sextán ára knattspyrnumenn frá Afríku fara unnvörpum til Belgíu að reyna fyrirsér í atvinnumennskunni. Fæstir ná að uppfylla þann draum og þeir lenda á bótum hjá belgíska ríkinu. Sport 9.11.2005 13:46
Byrjar strax að æfa aftur Fyrirliði Newcastle, Alan Shearer, er strax kominn aftur heim til Newcastle eftir kviðslitsaðgerð sem hann gekkst undir í Þýskalandi í byrjun vikunnar og hefur þegar byrjað rólegar æfingar. Sport 9.11.2005 12:54
Tibúinn að mæta Argentínu David Beckham hefur átt eftirminnilegar stundir með enska landsliðinu þegar það hefur mætt Argentínumönnum á stórmótum og hlakkar til að mæta þeim í vináttuleik þann 12. næstkomandi. Sport 9.11.2005 12:41
Verðum að ná í 20 stig fyrir jól Birmingham hefur gengið skelfilega í ensku úrvalsdeildinni það sem af er leiktíð og liðið situr nú í 19. sæti deildarinnar með aðeins sex stig úr fyrstu tólf leikjunum. Steve Bruce hefur sett liðinu markmið og ætlar því að vera komið með 20 stig um jólin. Sport 9.11.2005 12:25
Detroit enn taplaust Detroit Pistons heldur áfram sigurgöngu sinni í upphafi leiktíðar í NBA og í gær rúllaði liðið yfir Sacramento á útivelli 102-88. Milwaukee Bucks tapaði sínum fyrsta leik, en Los Angeles Lakers byrjar ágætlega. Sport 9.11.2005 11:21
Memphis-Seattle í beinni Einn leikur verður í beinni útsendingu á NBA TV í nótt, en það er viðureign Memphis Grizzlies og Seattle Supersonics. Memphis hefur unnið tvo leiki og tapað einum, en Seattle hefur spilað tvo leiki og unnið annan þeirra. Pau Gasol er stigahæstur í liði Memphis með rúm 25 stig að meðaltali í leik, en Ray Allen hefur skorað rúmt 31 stig í leik fyrir Seattle. Leikurinn hefst klukkan eitt í nótt. Sport 8.11.2005 22:00
Graham Rix þjálfar Hearts Í dag var staðfest að fyrrum þjálfari Portsmouth, Graham Rix hefði verið ráðinn aðalþjálfari úrvalsdeildarliðs Hearts í Skotlandi. Á næstunni er svo fyrirhugað að ráða yfirmann knattspyrnumála til félagsins, en allir menn í þessum stöðum voru látnir fara eða sögðu upp fyrir stuttu vegna deilna við eiganda félagsins. Sport 8.11.2005 17:32
Ég á skilið að vera í landsliðinu David James, markvörður Manchester City segir að trú hans á sjálfan sig hafi gert honum kleift að vinna sér aftur inn sæti í enska landsliðinu, en James missti sæti sitt í liðinu eftir skelfilega frammistöðu gegn Dönum á Parken í ágúst. Sport 8.11.2005 17:59
Rooney má ekki vera undir pressu Landsliðsþjálfari Þjóðverja telur að enska landsliðið hafi fulla burði til að verða heimsmeistari í Þýskalandi á næsta ári, en segir að Englendingar verði að gæta þess að setja ekki of mikla pressu á hinn unga Wayne Rooney. Sport 8.11.2005 16:14
Á yfir höfði sér frekari refsingu Lauren Robert gæti átt yfir höfði sér aðra refsingu sína á stuttum tíma frá félagi sínu Portsmouth, eftir að hann gagnrýndi liðið harðlega í viðtölum eftir tapið gegn Wigan um helgina. Sport 8.11.2005 15:46
Maradona var svindlari Paul Robinson, markvörður Tottenham og enska landsliðsins, hefur gefið góð fyrirheit fyrir vináttulandsleik Englands og Argentínu þann 12. nóvember næstkomandi, því á blaðamannafundi í dag sagði hann að Maradona hefði verið svindlari. Sport 8.11.2005 13:32
Vill snúa sér að þjálfun í framtíðinni Steven Gerrard segir að hann langi að gerast þjálfari hjá Liverpool þegar hann leggur skóna á hilluna og segist vonast til að verða í herbúðum Liverpool allan sinn feril. Sport 8.11.2005 13:23
Seinna prófið líka jákvætt Knattspyrnumaðurinn Abel Xavier hjá Middlesbrough á yfir höfði sér árs leikbann eftir að í ljós kom að seinna lyfjaprófið sem tekið var af honum eftir leik í Evrópukeppninni á dögunum, var einnig jákvætt og sýndi fram á steraneyslu að því er talið er. Sport 8.11.2005 13:19
Ferguson staðfestir janúarkaup Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur staðfest að félagið muni styrkja leikmannahóp sinn þegar opnar fyrir félagaskiptagluggann í janúar. Sport 8.11.2005 13:12
San Antonio þurfti framlengingu í Chicago Fimm leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Meistarar San Antonio lögðu Chicago 104-95 í framlengdum leik og LA Clippers tapaði sínum fyrsta leik í vetur. Þá er Toronto enn án sigurs. Sport 8.11.2005 12:42
Bolton í þriðja sætið Bolton vann góðan sigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, 1-0 með marki frá Kevin Nolan á 31. mínútu og lyfti sér í þriðja sæti deildarinnar. Heimamenn voru ívið betri í leiknum, en bæði lið fengu reyndar nokkur góð marktækifæri í rokinu á Reebok Stadium í kvöld. Sport 7.11.2005 22:14
Bolton og Tottenham mætast í kvöld Einn leikur er á dagskrá í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í kvöld klukkan 20, þar sem Bolton tekur á móti Tottenham. Bæði lið hafa byrjað mjög vel í haust og ætla sér sæti í Evrópukeppninni á næsta ári. Sport 7.11.2005 17:55
Við getum endurtekið sigurgönguna Eiður Smári Guðjohnsen segir að keppinautum Chelsea í ensku úrvalsdeildinni beri að vara sig, því meistararnir séu fullfærir um að endurtaka 40 leikja taplausa hrinu sína í deildinni. Sport 7.11.2005 17:31
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið