Lög og regla Baugsmál: Búið að skipa dómara Fimm dómarar munu fjalla um Baugsmálið þegar frávísun Héraðsdóms í málinu verður tekin fyrir í Hæstarétti. Dómararnir eru Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir. Innlent 23.10.2005 15:00 Sakarefni hafa fyrnst Hluti sakarefna í málum Lífeyrissjóðs Austurlands hefur fyrnst í meðförum efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á síðustu mánuðum, samkvæmt svörum embættisins til fjögurra sjóðsfélaga í Lífeyrissjóði Austurlands sem kærðu fyrrverandi stjórn, framkvæmdastjóra og endurskoðanda sjóðsins fyrir ólöglega meðferð á fjármunum sjóðsins. Innlent 23.10.2005 15:00 Fordæmir vinnubrögð lögreglu Femínistafélag Íslands átelur vinnubrögð lögreglunnar í Reykjavík sem urðu til þess að saksóknari ákvað að láta niður falla mál þriggja manna sem sakaðir voru um hópnauðgun. Innlent 23.10.2005 15:00 Ketamín einnig notað hér á landi Ketamín, staðdeyfilyf fyrir hesta sem Sky-sjónvarpsstöðin greindi í dag frá að sé notað á breskum næturklúbbum sem vímugjafi, hefur borist hingað til lands á síðustu árum í nokkrum mæli að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík Innlent 23.10.2005 15:00 Hrossadeyfilyf notað sem dóp Deyfilyf fyrir hross eru nýjasta fíkniefnið í tísku á næturklúbbum Bretlands. Lyfið er mjög ávanabindandi og sífellt fleiri ungmenni þurfa á meðferð að halda eftir að hafa orðið háð því. Innlent 23.10.2005 15:00 Sjötug kona beitt ofbeldi Kona á sjötugsaldri varð fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum aðfarafótt sunnudags eftir að hafa kvartað undan hávaða hjá nágrönnum. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum er atburðarásin óljós, en konan virðist hafa bankað upp á í íbúðinni fyrir ofan hennar og gert athugasemdir við gleðskapinn. Innlent 23.10.2005 15:00 Barin fyrir að kvarta undan látum Kona á sjötugsaldri varð fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum eftir að hún hafði kvartað undan partílátum og næturhávaða aðfararnótt sunnudags. Innlent 23.10.2005 15:00 Kveiktu í gámum í Eyjum Ungir drengir kveiktu í óvitaskap í tveimur gámum í Vestmannaeyjum í gær með þeim afleiðingum að ýmis búnaður frjálsíþróttafélagsins Óðins, sem var í öðrum gámnum, stórskemmdist. Ekkert tjón varð í hinum gámnum. Drengirnir forðuðu sér en í gærkvöldi kom hið sanna í ljós og var rætt við foreldra drengjanna sem eru fullir iðrunar. Innlent 23.10.2005 15:00 Óvíst hvort skútu verður bjargað Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort reyna á að bjarga skútunni Vamos sem nú rekur stjórnlaust í vonskuveðri um 160-170 kílómetra frá Straumnesi norðvestur af Vestfjörðum. Kristján Þ. Jónsson hjá Landhelgisgæslunni sagði að vonskuveður væri á þessu svæði sem er innan grænlenskrar lögsögu en þó innan leitar- og björgunarsvæðis Landhelgisgæslunnar. Innlent 23.10.2005 15:00 Baugur undirbýr skaðabótamál Stjórnendur Baugs Group undirbúa skaðabótamál og ætla að kanna hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gerðum fimm einstaklinga vegna aðdraganda Baugsmálsins. Þetta eru þau Styrmir Gunnarsson, Jónína Benediktsdóttir, Jón Gerald Sullenberger, Jón Steinar Gunnlaugsson og Kjartan Gunnarsson. Innlent 23.10.2005 15:00 Tafir á umferð í Svínadal Lögreglan í Búðardal segir að töluverðar tafir verði á umferð um Svínadal í Dalasýslu fram eftir degi þar sem verið er að ná upp fjárflutningabíl sem valt þar í gær. Vegfarendum er bent á nota veginn um Fellsströnd í staðinn. Innlent 23.10.2005 15:00 Ný lögreglustöð Lögreglan í Reykjavík opnar í dag nýja lögreglustöð í Álfabakka 12 í Mjóddinni í stað stöðvarinnar í Völvufelli. Innlent 23.10.2005 15:00 Kærir vegna tölvupósts Jónína Benediktsdóttir hefur lagt fram kæru hjá lögreglu vegna þess að efni úr einkatölvupósti hennar hafi birst á síðum Fréttablaðsins. Innlent 23.10.2005 15:00 Flutningabíll valt við Rauðavatn Stór vöruflutningabíll valt á Suðurlandsvegi rétt austan við hirngtorgið við Rauðavatn snemma í morgun, en ökumaðaurinn, sem var einn í bílnum, slapp lítið meiddur. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en nokkrar tafir hafa verið á umferð vegna umfangs aðgerða við að ná bílnum á réttan kjöl. Innlent 23.10.2005 14:59 Björguðu manni af skútu í háska Áhöfn stóru þyrlu Landhelgisgæslunnar tókst í morgun með harðfylgi, að bjarga manni af skútu í sjávarháska á milli Íslands og Grænlands, en félagi hans fannst ekki og er talinn af. Innlent 23.10.2005 14:59 Efni og vog gerð upptæk Við húsleit á heimili 22 ára gamals manns í Grafarholti í Reykjavík í vor fann lögregla nokkurt magn fíkniefna sem að hluta til voru talin ætluð til sölu. Mál mannsins var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Innlent 23.10.2005 15:00 Óttast um bandaríska skútu Fokker-vél og stóra þyrla Landhelgisgæslunnar voru rétt í þessu að koma á vettvang bandarískrar skútu með tveimur mönnum um borð sem virðist í nauðum stödd í afleitu veðri um 110 sjómílur út af Vestfjörðum á milli Íslands og Grænlands. Sendingar frá neyðarsendi skútunnar fóru að heyrast upp úr klukkan hálfeitt í nótt. Innlent 23.10.2005 14:59 Varað við hvassviðri í Búðardal Lögregla í Búðardal varar við hvassviðri og krapa í Svínadal, en þar varð umferðarslys í morgun þegar tómur fjárflutningabíll fauk út af veginum og á hliðina. Tveir slösuðust í veltunni og voru þeir fluttir á Heilsugæslustöðina í Búðardal til aðhlynningar. Þá fauk lögreglubíllinn út af veginum á slysstað án þess að velta og er hann að sögn lögreglu óskemmdur. Innlent 23.10.2005 14:59 Stóðu í innbrotum og smáþjófnaði Átján ára piltur var nýlega dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa verið í hlutverki bílstjóra í innbrotaleiðangri þriggja annarra í Reykjavík í mars á þessu ári. Þá var hann dæmdur fyrir lítilræði af hassi sem fannst í bíl hans nokkrum dögum síðar. Innlent 23.10.2005 15:00 Einn talinn af eftir sjóslys Áhöfn stóru þyrlu Landhelgisgæslunnar tókst með harðfylgi í morgun að bjarga Bandaríkjamanni úr skútu sem var í sjávarháska á milli Íslands og Grænlands í miklu hvassviðri og haugasjó. Félagi hans, sem var skoskur, féll fyrir borð um miðnætti og er talinn af. Þyrlan er á leið til Rifs, þar sem hún tekur eldsneyti og er væntanleg með Bandaríkjamanninn til Reykjavíkur klukkan ellefu. Innlent 23.10.2005 14:59 Braut rúður í átta bílum Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðbundið í tvö ár, í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun vikunnar. Innlent 23.10.2005 15:00 Stúlka sem leitað var að fundin Sautján ára stúlka, sem Lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í gær, eftir að hafa verið saknað í rúman hálfan mánuð, fannst í heimahúsi í borginni í gær. Ástæða þess að ekki var lýst eftir henni fyrr er að vitað var að hún vildi fara huldu höfði. Hún hefur nú verið vistuð á viðeigandi stofnun. Innlent 23.10.2005 14:59 Hótaði, barði og skar konu Rúmlega fertugur karlmaður neitaði sök í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær þegar tekið var fyrir heimilisofbeldismál á hendur honum. Manninum er gefið að sök að hafa svipt konu frelsi sínu með því að halda henni fanginni á heimili sínu frá því klukkan fimm að morgni sunnudagsins 19. september í fyrra til klukkan tíu þegar henni tókst að komast út. Innlent 23.10.2005 14:59 Krefjast bæði sýknu af húsbroti Arna Ösp Magnúsardóttir sem ákærð er fyrir eignaspjöll og húsbrot á hótel Nordica í sumar þar sem skvett var grænu skyri á gesti álráðstefnu breytti í gær afstöðu sinni til ákærunnar um húsbrotið. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 23.10.2005 14:59 Gleymdi potti á eldavél Mikill reykur gaus upp úr potti sem gleymst hafði á logandi eldavél í sambýlishúsi á Akranesi í gærkvöldi, en með snarræði tókst húsráðanda að ná pottinum af eldavélinni áður en eldur kviknaði út frá honum. Slökkviliðið kom á vettvang og reykræsti íbúðina, en nokkurt tjón hlaust af reyknum. Innlent 23.10.2005 14:59 Lýst eftir 17 ára stúlku Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir eftir Söndru Baldursdóttur, til heimilis að Blöndubakka í Reykjavík. Sandra er fædd árið 1988. Hún er um einn og sextíu á hæð, ljóshærð með axlarsítt hár, er brúneygð og grannvaxin. Ekkert hefur spurst til Söndru síðan 10. september. Innlent 23.10.2005 14:59 Hafi sent gögn til Styrmis Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari sem var lögmaður Jóns Geralds Sullenbergers, sendi gögn skjólstæðings síns til Styrmis Gunnarssonar ritsjóra Morgunblaðsins. Þetta kemur fram í <em>Fréttablaðinu</em> í dag. Innlent 23.10.2005 14:59 Skyrslettumálið tekið fyrir Fyrirtaka var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli þeirra Ólafs Páls Sigurðssonar og Örnu Aspar Magnúsdóttir sem ákærð eru fyrir stórfelld eignaspjöll og húsbrot þegar þau slettu skyri á ráðstefnugesti á Hótel Nordica í sumar. Innlent 23.10.2005 14:59 Mál Auðar Laxness tekið fyrir Mál Auðar Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málinu var vísað frá Héraðsdómi fyrr á árinu vegan ýmissa annmnarka á stefnunni að mati dómsins, m.a. að lýsing málsástæðna væri ágripskennd. Hæstiréttur vísaði svo málinu aftur í hérað í síðustu viku. Innlent 23.10.2005 14:59 Sakir aðeins fyrndar að hluta Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar enn möguleg brot stjórnenda Lífeyrissjóðs Austurlands þó svo að sakir stjórnarmanna vegna eftirlitsábyrgðar kunni að vera fyrndar. Aðstandendur kæru hafa eftir lögreglu að hylli undir lok rannsóknar. Innlent 23.10.2005 14:59 « ‹ 28 29 30 31 32 33 34 35 36 … 120 ›
Baugsmál: Búið að skipa dómara Fimm dómarar munu fjalla um Baugsmálið þegar frávísun Héraðsdóms í málinu verður tekin fyrir í Hæstarétti. Dómararnir eru Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir. Innlent 23.10.2005 15:00
Sakarefni hafa fyrnst Hluti sakarefna í málum Lífeyrissjóðs Austurlands hefur fyrnst í meðförum efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á síðustu mánuðum, samkvæmt svörum embættisins til fjögurra sjóðsfélaga í Lífeyrissjóði Austurlands sem kærðu fyrrverandi stjórn, framkvæmdastjóra og endurskoðanda sjóðsins fyrir ólöglega meðferð á fjármunum sjóðsins. Innlent 23.10.2005 15:00
Fordæmir vinnubrögð lögreglu Femínistafélag Íslands átelur vinnubrögð lögreglunnar í Reykjavík sem urðu til þess að saksóknari ákvað að láta niður falla mál þriggja manna sem sakaðir voru um hópnauðgun. Innlent 23.10.2005 15:00
Ketamín einnig notað hér á landi Ketamín, staðdeyfilyf fyrir hesta sem Sky-sjónvarpsstöðin greindi í dag frá að sé notað á breskum næturklúbbum sem vímugjafi, hefur borist hingað til lands á síðustu árum í nokkrum mæli að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík Innlent 23.10.2005 15:00
Hrossadeyfilyf notað sem dóp Deyfilyf fyrir hross eru nýjasta fíkniefnið í tísku á næturklúbbum Bretlands. Lyfið er mjög ávanabindandi og sífellt fleiri ungmenni þurfa á meðferð að halda eftir að hafa orðið háð því. Innlent 23.10.2005 15:00
Sjötug kona beitt ofbeldi Kona á sjötugsaldri varð fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum aðfarafótt sunnudags eftir að hafa kvartað undan hávaða hjá nágrönnum. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum er atburðarásin óljós, en konan virðist hafa bankað upp á í íbúðinni fyrir ofan hennar og gert athugasemdir við gleðskapinn. Innlent 23.10.2005 15:00
Barin fyrir að kvarta undan látum Kona á sjötugsaldri varð fyrir líkamsárás í Vestmannaeyjum eftir að hún hafði kvartað undan partílátum og næturhávaða aðfararnótt sunnudags. Innlent 23.10.2005 15:00
Kveiktu í gámum í Eyjum Ungir drengir kveiktu í óvitaskap í tveimur gámum í Vestmannaeyjum í gær með þeim afleiðingum að ýmis búnaður frjálsíþróttafélagsins Óðins, sem var í öðrum gámnum, stórskemmdist. Ekkert tjón varð í hinum gámnum. Drengirnir forðuðu sér en í gærkvöldi kom hið sanna í ljós og var rætt við foreldra drengjanna sem eru fullir iðrunar. Innlent 23.10.2005 15:00
Óvíst hvort skútu verður bjargað Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort reyna á að bjarga skútunni Vamos sem nú rekur stjórnlaust í vonskuveðri um 160-170 kílómetra frá Straumnesi norðvestur af Vestfjörðum. Kristján Þ. Jónsson hjá Landhelgisgæslunni sagði að vonskuveður væri á þessu svæði sem er innan grænlenskrar lögsögu en þó innan leitar- og björgunarsvæðis Landhelgisgæslunnar. Innlent 23.10.2005 15:00
Baugur undirbýr skaðabótamál Stjórnendur Baugs Group undirbúa skaðabótamál og ætla að kanna hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gerðum fimm einstaklinga vegna aðdraganda Baugsmálsins. Þetta eru þau Styrmir Gunnarsson, Jónína Benediktsdóttir, Jón Gerald Sullenberger, Jón Steinar Gunnlaugsson og Kjartan Gunnarsson. Innlent 23.10.2005 15:00
Tafir á umferð í Svínadal Lögreglan í Búðardal segir að töluverðar tafir verði á umferð um Svínadal í Dalasýslu fram eftir degi þar sem verið er að ná upp fjárflutningabíl sem valt þar í gær. Vegfarendum er bent á nota veginn um Fellsströnd í staðinn. Innlent 23.10.2005 15:00
Ný lögreglustöð Lögreglan í Reykjavík opnar í dag nýja lögreglustöð í Álfabakka 12 í Mjóddinni í stað stöðvarinnar í Völvufelli. Innlent 23.10.2005 15:00
Kærir vegna tölvupósts Jónína Benediktsdóttir hefur lagt fram kæru hjá lögreglu vegna þess að efni úr einkatölvupósti hennar hafi birst á síðum Fréttablaðsins. Innlent 23.10.2005 15:00
Flutningabíll valt við Rauðavatn Stór vöruflutningabíll valt á Suðurlandsvegi rétt austan við hirngtorgið við Rauðavatn snemma í morgun, en ökumaðaurinn, sem var einn í bílnum, slapp lítið meiddur. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en nokkrar tafir hafa verið á umferð vegna umfangs aðgerða við að ná bílnum á réttan kjöl. Innlent 23.10.2005 14:59
Björguðu manni af skútu í háska Áhöfn stóru þyrlu Landhelgisgæslunnar tókst í morgun með harðfylgi, að bjarga manni af skútu í sjávarháska á milli Íslands og Grænlands, en félagi hans fannst ekki og er talinn af. Innlent 23.10.2005 14:59
Efni og vog gerð upptæk Við húsleit á heimili 22 ára gamals manns í Grafarholti í Reykjavík í vor fann lögregla nokkurt magn fíkniefna sem að hluta til voru talin ætluð til sölu. Mál mannsins var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Innlent 23.10.2005 15:00
Óttast um bandaríska skútu Fokker-vél og stóra þyrla Landhelgisgæslunnar voru rétt í þessu að koma á vettvang bandarískrar skútu með tveimur mönnum um borð sem virðist í nauðum stödd í afleitu veðri um 110 sjómílur út af Vestfjörðum á milli Íslands og Grænlands. Sendingar frá neyðarsendi skútunnar fóru að heyrast upp úr klukkan hálfeitt í nótt. Innlent 23.10.2005 14:59
Varað við hvassviðri í Búðardal Lögregla í Búðardal varar við hvassviðri og krapa í Svínadal, en þar varð umferðarslys í morgun þegar tómur fjárflutningabíll fauk út af veginum og á hliðina. Tveir slösuðust í veltunni og voru þeir fluttir á Heilsugæslustöðina í Búðardal til aðhlynningar. Þá fauk lögreglubíllinn út af veginum á slysstað án þess að velta og er hann að sögn lögreglu óskemmdur. Innlent 23.10.2005 14:59
Stóðu í innbrotum og smáþjófnaði Átján ára piltur var nýlega dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa verið í hlutverki bílstjóra í innbrotaleiðangri þriggja annarra í Reykjavík í mars á þessu ári. Þá var hann dæmdur fyrir lítilræði af hassi sem fannst í bíl hans nokkrum dögum síðar. Innlent 23.10.2005 15:00
Einn talinn af eftir sjóslys Áhöfn stóru þyrlu Landhelgisgæslunnar tókst með harðfylgi í morgun að bjarga Bandaríkjamanni úr skútu sem var í sjávarháska á milli Íslands og Grænlands í miklu hvassviðri og haugasjó. Félagi hans, sem var skoskur, féll fyrir borð um miðnætti og er talinn af. Þyrlan er á leið til Rifs, þar sem hún tekur eldsneyti og er væntanleg með Bandaríkjamanninn til Reykjavíkur klukkan ellefu. Innlent 23.10.2005 14:59
Braut rúður í átta bílum Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðbundið í tvö ár, í Héraðsdómi Reykjavíkur í byrjun vikunnar. Innlent 23.10.2005 15:00
Stúlka sem leitað var að fundin Sautján ára stúlka, sem Lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í gær, eftir að hafa verið saknað í rúman hálfan mánuð, fannst í heimahúsi í borginni í gær. Ástæða þess að ekki var lýst eftir henni fyrr er að vitað var að hún vildi fara huldu höfði. Hún hefur nú verið vistuð á viðeigandi stofnun. Innlent 23.10.2005 14:59
Hótaði, barði og skar konu Rúmlega fertugur karlmaður neitaði sök í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær þegar tekið var fyrir heimilisofbeldismál á hendur honum. Manninum er gefið að sök að hafa svipt konu frelsi sínu með því að halda henni fanginni á heimili sínu frá því klukkan fimm að morgni sunnudagsins 19. september í fyrra til klukkan tíu þegar henni tókst að komast út. Innlent 23.10.2005 14:59
Krefjast bæði sýknu af húsbroti Arna Ösp Magnúsardóttir sem ákærð er fyrir eignaspjöll og húsbrot á hótel Nordica í sumar þar sem skvett var grænu skyri á gesti álráðstefnu breytti í gær afstöðu sinni til ákærunnar um húsbrotið. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 23.10.2005 14:59
Gleymdi potti á eldavél Mikill reykur gaus upp úr potti sem gleymst hafði á logandi eldavél í sambýlishúsi á Akranesi í gærkvöldi, en með snarræði tókst húsráðanda að ná pottinum af eldavélinni áður en eldur kviknaði út frá honum. Slökkviliðið kom á vettvang og reykræsti íbúðina, en nokkurt tjón hlaust af reyknum. Innlent 23.10.2005 14:59
Lýst eftir 17 ára stúlku Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir eftir Söndru Baldursdóttur, til heimilis að Blöndubakka í Reykjavík. Sandra er fædd árið 1988. Hún er um einn og sextíu á hæð, ljóshærð með axlarsítt hár, er brúneygð og grannvaxin. Ekkert hefur spurst til Söndru síðan 10. september. Innlent 23.10.2005 14:59
Hafi sent gögn til Styrmis Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari sem var lögmaður Jóns Geralds Sullenbergers, sendi gögn skjólstæðings síns til Styrmis Gunnarssonar ritsjóra Morgunblaðsins. Þetta kemur fram í <em>Fréttablaðinu</em> í dag. Innlent 23.10.2005 14:59
Skyrslettumálið tekið fyrir Fyrirtaka var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli þeirra Ólafs Páls Sigurðssonar og Örnu Aspar Magnúsdóttir sem ákærð eru fyrir stórfelld eignaspjöll og húsbrot þegar þau slettu skyri á ráðstefnugesti á Hótel Nordica í sumar. Innlent 23.10.2005 14:59
Mál Auðar Laxness tekið fyrir Mál Auðar Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málinu var vísað frá Héraðsdómi fyrr á árinu vegan ýmissa annmnarka á stefnunni að mati dómsins, m.a. að lýsing málsástæðna væri ágripskennd. Hæstiréttur vísaði svo málinu aftur í hérað í síðustu viku. Innlent 23.10.2005 14:59
Sakir aðeins fyrndar að hluta Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar enn möguleg brot stjórnenda Lífeyrissjóðs Austurlands þó svo að sakir stjórnarmanna vegna eftirlitsábyrgðar kunni að vera fyrndar. Aðstandendur kæru hafa eftir lögreglu að hylli undir lok rannsóknar. Innlent 23.10.2005 14:59