Lög og regla Framlengja varðhald vegna morðs Gæsluvarðhald yfir Phu Tién Nguyen sem grunaður er um að hafa orðið Vu Van Pong að bana í Kópavogi í maí hefur verið framlengt til 5. október næstkomandi. Hann hefur játað á sig morðið og telur lögreglan í Kópavogi sig hafa lokið rannsókn málsins og verður það sent ríkissaksóknara til umfjöllunar á morgun eða í næstu viku. Innlent 13.10.2005 19:45 Kærði nauðgun í Bolungarvík Lögreglan í Bolungarvík rannsakar nauðgun sem sextán ára stúlka kærði um miðjan mánuðinn. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins og enginn er grunaður. Lögreglan leitar enn upplýsinga. Innlent 13.10.2005 19:45 Stöðumælarnir burt á Akureyri Frá og með morgundeginum verður frítt að leggja bílum á Akureyri. Bæjaryfirvöld þar hafa ákveðið að treysta bæjarbúum til að virða tímamörk og stilla klukku í stað þess að borga í mæla. Þá verður skorin upp herör gegn ófötluðum sem leggja í stæði fyrir fatlaða. Innlent 13.10.2005 19:45 Aron til landsins í næstu viku Aron Pálmi Ágústsson, sem setið hefur í fangelsi í Texas síðustu átta ár, er væntanlegur til landsins í næstu viku. Fréttastofan ræddi við Aron Pálma í morgun. Innlent 13.10.2005 19:45 Hraðakstur við grunnskóla Lögeglan í Keflavík hélt uppi eftirliti við grunnskóla á skólatíma í gær. Á Skólavegi voru fjórir kærðir fyrir hraðakstur þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund. Sá sem hraðast ók mældist á 70 kílómetra hraða. Innlent 13.10.2005 19:45 Fjögur sjúkraflug frá Akureyri Fjögur sjúkraflug voru farin frá Akureyri í gær. Sóttur var veikur maður til Grænlands og á Vopnafjörð þar sem slys hafði orðið. Þá var flogið með sjúkling frá Akureyri til Reykjavíkur þar sem hann þurfti að gangast undir aðgerð. Fjórða vélin var svo kölluð á Egilsstaði upp úr klukkan sex til að ná í sjúkling og flytja hann til Reykjavíkur. Innlent 13.10.2005 19:45 Stór björg féllu úr Óshlíð Töluverðar skemmdir urðu á veginum um Óshlíð og varnargirðingum í hlíðinni þegar stór björg féllu úr hlíðinni í gær. Björgin féllu á þriðja tímanum og þykir mildi að björgin lentu ekki á bílum sem óku um Óshlíðina. Innlent 13.10.2005 19:45 Bandaríkjamanns leitað á hálendinu Björgunarsveitir frá Höfn í Hornafirði og Egilsstöðum leituðu í nótt á hálendinu að bandarískum ferðamanni sem skilaði sér ekki til byggða á tilætluðum tíma. Að sögn lögreglu á Höfn var maðurinn á leið frá Snæfelli, en ætlaði að koma niður af hálendinu á Lónsöræfum við Illakamb um klukkan tvö í gær. Innlent 13.10.2005 19:45 Ofbeldisverkum í miðborg fækkar Ofbeldisverkum í miðborg Reykjavíkur hefur fækkað um 40 prósent frá árinu 2000 samkvæmt nýrri rannsókn. Stór hluti skýringarinnar er eftirlitsmyndavélar, frjáls afgreiðslutími skemmtistaða og það að ferðir næturvagna SVR voru aflagðar. Innlent 13.10.2005 19:45 Lítið gert við athugasemdum Svo virðist sem lítið sem ekkert sé að gert þótt Persónuvernd geri athugasemdir við notkun öryggismyndavéla. Til dæmis hefur lögreglan ekki gengið úr skugga um að búið sé að fjarlægja myndavél úr búningsklefa líkamsræktarstöðvarinnar World Class. Innlent 13.10.2005 19:45 Vont ferðaveður á Austurlandi Mjög vont ferðaveður er nú á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs og hefur veðurstofan sent úr stormviðvörun. Þar er nú mikið rok og sviptivindasamt, en vegna veðursins var mikið um grjóthrun í Hvalnes- og Þvottaskriðum á milli Djúpavogs og Hafnar í nótt. Að sögn lögreglunnar á Höfn er enn þá vont ferðaveður og vill lögreglan hvetja ökumenn til að fara varlega. Innlent 13.10.2005 19:45 Sakar lögfræðing um ærumeiðingar Fasteignasali í Reykjavík hefur kært lögfræðing Húseigendafélagsins til Ríkislögreglustjóra fyrir ærumeiðingar og brot á friðhelgi einkalífs. Kæran kemur í kjölfar kæru Húseigendafélagsins á hendur fasteignasalanum fyrir að misnota aðstöðu sína og selja syni sínum íbúð í Hlíðunum. Innlent 13.10.2005 19:45 Gripinn eftir glæfraakstur Ökumaður með barn í bíl sínum var í gær stöðvaður í Borgarnesi eftir glæfraakstur í Norðurárdal. Lögreglan á Hólmavík mældi manninn á 146 kílómetra hraða en ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum og gaf í þegar hann varð var við lögregluna. Ökumaðurinn stofnaði lífi sínu og annarra í stórhættu með akstrinum, en hann var stöðvaður af lögreglunni í Borgarnesi. Innlent 13.10.2005 19:45 Ofbeldisbrotum fækkar í miðbænum Skráðum ofbeldisverkum í miðborg Reykjavíkur fækkaði um 40 prósent frá árinu 2000 til loka ársins 2004 samkvæmt úttekt sem gerð var fyrir lögregluna í Reykjavík og kynnt var í gær. Þykir lögregluyfirvöldum þetta sýna að umtalsverður árangur hefur náðst og þakka það helst öryggismyndavélum og breyttum opnunartíma skemmti- og veitingastaða. Innlent 13.10.2005 19:45 Lausn Arons hugsanlega í sjónmáli Lausn Arons Pálma Ágústssonar gæti verið í sjónmáli innan mjög skamms tíma, en nafn hans er að finna á lista yfir fanga sem löggjafarþing fylkisins hefur lagt til að verði látnir lausir. Verður listinn lagður fyrir ríkisstjórann til staðfestingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Einari S. Einarssyni, einum forsvarsmanna stuðningsnefndar Arons Pálma, en hópurinn hefur undanfarið unnið að framsali hans til Íslands. Innlent 13.10.2005 19:44 Lögreglan var við að missa tökin Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir ástandið á menningarnótt hafa verið ískyggilegt og ekki sé hægt að líða slíkt ár eftir ár. Mikið fyllerí, unglingafyllerí, fíkniefnaneysla, spennuþrungið og hættulegt ástand. Þannig lýsir Jóna Hrönn Bolladóttir miðborgarprestur ástandinu í miðborginni eftir miðnætti umrædda nótt. Innlent 13.10.2005 19:45 Nauðgun kærð í Bolungarvík Lögregla í Bolungarvík og á Ísafirði hefur til rannsóknar kæru 16 ára gamallar stúlku sem segir að sér hafi verið nauðgað á kvennasalerni á unglingadansleik í veitingahúsinu Víkurbæ í Bolungarvík aðfaranótt laugardagsins 13. ágúst. Innlent 13.10.2005 19:45 Allnokkrir ótryggðir og óskoðaðir Það er nokkuð algengt að í umferðinni séu ökutæki sem eru hvorki tryggð né hafa farið í gegnum skoðun. Þetta segir upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. Innlent 13.10.2005 19:44 Áfram í gæsluvarðhaldi Lögreglan í Kópavogi hefur farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Phu Tién Nguyen sem handtekinn var í vor grunaður um morðið á Vu Van Phong í íbúð þess síðarnefnda þann 17. maí. Innlent 13.10.2005 19:45 Játningar liggja fyrir Játningar liggja nú fyrir í þeim tveimur alvarlegu málum sem upp komu í Reykjavík um síðustu helgi. Annars vegar var maður handtekinn grunaður um morð í húsi á Hverfisgötu snemma á laugardaginn og annar maður var handtekinn grunaður um að hafa stungið annan mann í bakið með hníf á Menningarnótt. Innlent 13.10.2005 19:45 Játaði á sig morð við Hverfisgötu Sá sem grunaður er um að hafa orðið ungum manni að bana í íbúð við Hverfisgötu á laugadagsmorgun hefur játað verknaðinn fyrir lögreglu. Innlent 13.10.2005 19:44 Tölvu stolið í innbroti Brotist var inn í húsnæði Alnæmissamtakanna á Íslandi á Hverfisgötu aðfaranótt miðvikudags og tölvu stolið. Birna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri samtakanna, segir að gluggi hafi verið spenntur upp, rótað hafi verið til og sími eyðilagður. Engu hafi þó verið stolið utan tölvunnar. Innlent 13.10.2005 19:45 Borguðu ekki launatengd gjöld Þrír menn sæta ákæru vegna fyrirtækisins CRM markaðslausna ehf. sem tekið var til gjaldþrotaskipta í sumar, framkvæmdastjóri, stjórnarformaður og stjórnarmaður. Innlent 13.10.2005 19:45 Aron gæti komið í september Líklegt þykir að Aroni Pálma Ágústssyni verði sleppt úr fangelsi í Texas á næstunni. Þing Texas hefur samþykkt lausnarbeiðnina sem bíður nú undirskriftar ríkisstjórans. Ef allt gengur að óskum kemur Aron Pálmi til Íslands í september. Innlent 13.10.2005 19:44 Efast um niðurstöðu krufningar Verjandi Lofts Jens Magnússonar, sem gefið er að sök að hafa banað manni á veitingastaðnum Ásláki í Mosfellsbæ í desember, gagnrýnir krufningarskýrslu sem fyrir liggur í málinu. Hann vill að kvaddir verið til matsmenn til að fara yfir skýrsluna. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:45 Segir símtal ekki tengjast morði Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir símtal til neyðarlínu tæpum klukkutíma fyrir morðið á Hverfisgötu á laugardagsmorgunn ekki tengjast morðinu eða þeim sem þar komu við sögu á nokkurn hátt. Innlent 13.10.2005 19:44 Ákærðir fyrir skattsvik Framkvæmdastjóri og tveir stjórnarmenn markaðsfyrirtækis hafa verið ákærðir af ríkislögreglustjóra fyrir skattsvik upp á sjöttu milljóna króna. Þeim er gefið að sök að láta undir höfuð leggjast að standa skil á virðisaukaskatti upp á tæplega átta hundruð þúsund krónur. Enn fremur eru þeir sakaðir um að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda upp á rétt tæplega fimm milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:45 Lögreglan við það að missa tökin "Okkur fannst á tímabili að við værum jafnvel að missa þetta allt saman yfir okkur. Það var alveg á mörkunum," segir Geir Jón Þórisson um ástandið, sem skapaðist í miðborg Reykjavíkur eftir miðnætti á nýafstaðinni menningarnótt. Innlent 13.10.2005 19:45 Segir símtal ekki tengjast morði Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir símtal til neyðarlínu tæpum klukkutíma fyrir morðið á Hverfisgötu á laugardagsmorgun ekki tengjast morðinu eða þeim sem þar komu við sögu á nokkurn hátt. Geir Jón segir það grafalvarlegt að ásaka lögregluna um að sinna ekki skyldum sínum eins og DV gerir. Innlent 13.10.2005 19:45 Réttað yfir ræningjum Réttað var í gær yfir tveimur mönnum, 42 og 18 ára gömlum, í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna ránstilraunar við Hamarsgerði í Reykjavík í mars í fyrra. Þar réðust þeir á mann með trékylfu og slógu hann ítrekað með henni og krepptum hnefa. Innlent 13.10.2005 19:44 « ‹ 38 39 40 41 42 43 44 45 46 … 120 ›
Framlengja varðhald vegna morðs Gæsluvarðhald yfir Phu Tién Nguyen sem grunaður er um að hafa orðið Vu Van Pong að bana í Kópavogi í maí hefur verið framlengt til 5. október næstkomandi. Hann hefur játað á sig morðið og telur lögreglan í Kópavogi sig hafa lokið rannsókn málsins og verður það sent ríkissaksóknara til umfjöllunar á morgun eða í næstu viku. Innlent 13.10.2005 19:45
Kærði nauðgun í Bolungarvík Lögreglan í Bolungarvík rannsakar nauðgun sem sextán ára stúlka kærði um miðjan mánuðinn. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins og enginn er grunaður. Lögreglan leitar enn upplýsinga. Innlent 13.10.2005 19:45
Stöðumælarnir burt á Akureyri Frá og með morgundeginum verður frítt að leggja bílum á Akureyri. Bæjaryfirvöld þar hafa ákveðið að treysta bæjarbúum til að virða tímamörk og stilla klukku í stað þess að borga í mæla. Þá verður skorin upp herör gegn ófötluðum sem leggja í stæði fyrir fatlaða. Innlent 13.10.2005 19:45
Aron til landsins í næstu viku Aron Pálmi Ágústsson, sem setið hefur í fangelsi í Texas síðustu átta ár, er væntanlegur til landsins í næstu viku. Fréttastofan ræddi við Aron Pálma í morgun. Innlent 13.10.2005 19:45
Hraðakstur við grunnskóla Lögeglan í Keflavík hélt uppi eftirliti við grunnskóla á skólatíma í gær. Á Skólavegi voru fjórir kærðir fyrir hraðakstur þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund. Sá sem hraðast ók mældist á 70 kílómetra hraða. Innlent 13.10.2005 19:45
Fjögur sjúkraflug frá Akureyri Fjögur sjúkraflug voru farin frá Akureyri í gær. Sóttur var veikur maður til Grænlands og á Vopnafjörð þar sem slys hafði orðið. Þá var flogið með sjúkling frá Akureyri til Reykjavíkur þar sem hann þurfti að gangast undir aðgerð. Fjórða vélin var svo kölluð á Egilsstaði upp úr klukkan sex til að ná í sjúkling og flytja hann til Reykjavíkur. Innlent 13.10.2005 19:45
Stór björg féllu úr Óshlíð Töluverðar skemmdir urðu á veginum um Óshlíð og varnargirðingum í hlíðinni þegar stór björg féllu úr hlíðinni í gær. Björgin féllu á þriðja tímanum og þykir mildi að björgin lentu ekki á bílum sem óku um Óshlíðina. Innlent 13.10.2005 19:45
Bandaríkjamanns leitað á hálendinu Björgunarsveitir frá Höfn í Hornafirði og Egilsstöðum leituðu í nótt á hálendinu að bandarískum ferðamanni sem skilaði sér ekki til byggða á tilætluðum tíma. Að sögn lögreglu á Höfn var maðurinn á leið frá Snæfelli, en ætlaði að koma niður af hálendinu á Lónsöræfum við Illakamb um klukkan tvö í gær. Innlent 13.10.2005 19:45
Ofbeldisverkum í miðborg fækkar Ofbeldisverkum í miðborg Reykjavíkur hefur fækkað um 40 prósent frá árinu 2000 samkvæmt nýrri rannsókn. Stór hluti skýringarinnar er eftirlitsmyndavélar, frjáls afgreiðslutími skemmtistaða og það að ferðir næturvagna SVR voru aflagðar. Innlent 13.10.2005 19:45
Lítið gert við athugasemdum Svo virðist sem lítið sem ekkert sé að gert þótt Persónuvernd geri athugasemdir við notkun öryggismyndavéla. Til dæmis hefur lögreglan ekki gengið úr skugga um að búið sé að fjarlægja myndavél úr búningsklefa líkamsræktarstöðvarinnar World Class. Innlent 13.10.2005 19:45
Vont ferðaveður á Austurlandi Mjög vont ferðaveður er nú á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs og hefur veðurstofan sent úr stormviðvörun. Þar er nú mikið rok og sviptivindasamt, en vegna veðursins var mikið um grjóthrun í Hvalnes- og Þvottaskriðum á milli Djúpavogs og Hafnar í nótt. Að sögn lögreglunnar á Höfn er enn þá vont ferðaveður og vill lögreglan hvetja ökumenn til að fara varlega. Innlent 13.10.2005 19:45
Sakar lögfræðing um ærumeiðingar Fasteignasali í Reykjavík hefur kært lögfræðing Húseigendafélagsins til Ríkislögreglustjóra fyrir ærumeiðingar og brot á friðhelgi einkalífs. Kæran kemur í kjölfar kæru Húseigendafélagsins á hendur fasteignasalanum fyrir að misnota aðstöðu sína og selja syni sínum íbúð í Hlíðunum. Innlent 13.10.2005 19:45
Gripinn eftir glæfraakstur Ökumaður með barn í bíl sínum var í gær stöðvaður í Borgarnesi eftir glæfraakstur í Norðurárdal. Lögreglan á Hólmavík mældi manninn á 146 kílómetra hraða en ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum og gaf í þegar hann varð var við lögregluna. Ökumaðurinn stofnaði lífi sínu og annarra í stórhættu með akstrinum, en hann var stöðvaður af lögreglunni í Borgarnesi. Innlent 13.10.2005 19:45
Ofbeldisbrotum fækkar í miðbænum Skráðum ofbeldisverkum í miðborg Reykjavíkur fækkaði um 40 prósent frá árinu 2000 til loka ársins 2004 samkvæmt úttekt sem gerð var fyrir lögregluna í Reykjavík og kynnt var í gær. Þykir lögregluyfirvöldum þetta sýna að umtalsverður árangur hefur náðst og þakka það helst öryggismyndavélum og breyttum opnunartíma skemmti- og veitingastaða. Innlent 13.10.2005 19:45
Lausn Arons hugsanlega í sjónmáli Lausn Arons Pálma Ágústssonar gæti verið í sjónmáli innan mjög skamms tíma, en nafn hans er að finna á lista yfir fanga sem löggjafarþing fylkisins hefur lagt til að verði látnir lausir. Verður listinn lagður fyrir ríkisstjórann til staðfestingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Einari S. Einarssyni, einum forsvarsmanna stuðningsnefndar Arons Pálma, en hópurinn hefur undanfarið unnið að framsali hans til Íslands. Innlent 13.10.2005 19:44
Lögreglan var við að missa tökin Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir ástandið á menningarnótt hafa verið ískyggilegt og ekki sé hægt að líða slíkt ár eftir ár. Mikið fyllerí, unglingafyllerí, fíkniefnaneysla, spennuþrungið og hættulegt ástand. Þannig lýsir Jóna Hrönn Bolladóttir miðborgarprestur ástandinu í miðborginni eftir miðnætti umrædda nótt. Innlent 13.10.2005 19:45
Nauðgun kærð í Bolungarvík Lögregla í Bolungarvík og á Ísafirði hefur til rannsóknar kæru 16 ára gamallar stúlku sem segir að sér hafi verið nauðgað á kvennasalerni á unglingadansleik í veitingahúsinu Víkurbæ í Bolungarvík aðfaranótt laugardagsins 13. ágúst. Innlent 13.10.2005 19:45
Allnokkrir ótryggðir og óskoðaðir Það er nokkuð algengt að í umferðinni séu ökutæki sem eru hvorki tryggð né hafa farið í gegnum skoðun. Þetta segir upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. Innlent 13.10.2005 19:44
Áfram í gæsluvarðhaldi Lögreglan í Kópavogi hefur farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Phu Tién Nguyen sem handtekinn var í vor grunaður um morðið á Vu Van Phong í íbúð þess síðarnefnda þann 17. maí. Innlent 13.10.2005 19:45
Játningar liggja fyrir Játningar liggja nú fyrir í þeim tveimur alvarlegu málum sem upp komu í Reykjavík um síðustu helgi. Annars vegar var maður handtekinn grunaður um morð í húsi á Hverfisgötu snemma á laugardaginn og annar maður var handtekinn grunaður um að hafa stungið annan mann í bakið með hníf á Menningarnótt. Innlent 13.10.2005 19:45
Játaði á sig morð við Hverfisgötu Sá sem grunaður er um að hafa orðið ungum manni að bana í íbúð við Hverfisgötu á laugadagsmorgun hefur játað verknaðinn fyrir lögreglu. Innlent 13.10.2005 19:44
Tölvu stolið í innbroti Brotist var inn í húsnæði Alnæmissamtakanna á Íslandi á Hverfisgötu aðfaranótt miðvikudags og tölvu stolið. Birna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri samtakanna, segir að gluggi hafi verið spenntur upp, rótað hafi verið til og sími eyðilagður. Engu hafi þó verið stolið utan tölvunnar. Innlent 13.10.2005 19:45
Borguðu ekki launatengd gjöld Þrír menn sæta ákæru vegna fyrirtækisins CRM markaðslausna ehf. sem tekið var til gjaldþrotaskipta í sumar, framkvæmdastjóri, stjórnarformaður og stjórnarmaður. Innlent 13.10.2005 19:45
Aron gæti komið í september Líklegt þykir að Aroni Pálma Ágústssyni verði sleppt úr fangelsi í Texas á næstunni. Þing Texas hefur samþykkt lausnarbeiðnina sem bíður nú undirskriftar ríkisstjórans. Ef allt gengur að óskum kemur Aron Pálmi til Íslands í september. Innlent 13.10.2005 19:44
Efast um niðurstöðu krufningar Verjandi Lofts Jens Magnússonar, sem gefið er að sök að hafa banað manni á veitingastaðnum Ásláki í Mosfellsbæ í desember, gagnrýnir krufningarskýrslu sem fyrir liggur í málinu. Hann vill að kvaddir verið til matsmenn til að fara yfir skýrsluna. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:45
Segir símtal ekki tengjast morði Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir símtal til neyðarlínu tæpum klukkutíma fyrir morðið á Hverfisgötu á laugardagsmorgunn ekki tengjast morðinu eða þeim sem þar komu við sögu á nokkurn hátt. Innlent 13.10.2005 19:44
Ákærðir fyrir skattsvik Framkvæmdastjóri og tveir stjórnarmenn markaðsfyrirtækis hafa verið ákærðir af ríkislögreglustjóra fyrir skattsvik upp á sjöttu milljóna króna. Þeim er gefið að sök að láta undir höfuð leggjast að standa skil á virðisaukaskatti upp á tæplega átta hundruð þúsund krónur. Enn fremur eru þeir sakaðir um að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda upp á rétt tæplega fimm milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:45
Lögreglan við það að missa tökin "Okkur fannst á tímabili að við værum jafnvel að missa þetta allt saman yfir okkur. Það var alveg á mörkunum," segir Geir Jón Þórisson um ástandið, sem skapaðist í miðborg Reykjavíkur eftir miðnætti á nýafstaðinni menningarnótt. Innlent 13.10.2005 19:45
Segir símtal ekki tengjast morði Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir símtal til neyðarlínu tæpum klukkutíma fyrir morðið á Hverfisgötu á laugardagsmorgun ekki tengjast morðinu eða þeim sem þar komu við sögu á nokkurn hátt. Geir Jón segir það grafalvarlegt að ásaka lögregluna um að sinna ekki skyldum sínum eins og DV gerir. Innlent 13.10.2005 19:45
Réttað yfir ræningjum Réttað var í gær yfir tveimur mönnum, 42 og 18 ára gömlum, í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna ránstilraunar við Hamarsgerði í Reykjavík í mars í fyrra. Þar réðust þeir á mann með trékylfu og slógu hann ítrekað með henni og krepptum hnefa. Innlent 13.10.2005 19:44