Verðlag Íslendingar vinna einna minnst en þéna mest Íslendingar vinna einna minnst en þéna mest á mánuði, talsvert meira borið saman við aðrar Norðurlandaþjóðir, samkvæmt gögnum frá OECD. „Við getum varðveitt þessa stöðu svo lengi sem verðmætasköpun stendur undir henni,“ segir aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Innherji 1.12.2023 07:01 ASÍ kallar ríki og sveitarfélög til ábyrgðar í baráttu við verðbólgu Verkalýðshreyfingin kallar ríki, sveitarfélög og fyrirtæki til ábyrgðar í baráttunni við verðbólguna. Engin merki væru á lofti um að þessir aðilar ætli að leggja sitt af mörkum, sem geti sett stórt strik í reikninginn fyrir komandi kjarasamninga. Innlent 30.11.2023 19:20 Hægir verulega á hagvexti Verulega hægir á hagvexti á þriðja ársfjórðungi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni. Viðskipti innlent 30.11.2023 10:06 Segir ríkisstjórnina skila auðu í baráttunni við verðbólguna Formaður Viðreisnar gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag fyrir aðgerðarleysi í baráttunni við verðbólgu og háa vexti. Það eina sem ríkisstjórnin hyggðist gera til að draga úr útgjöldum ríkissjóðs væri flatur niðurskurður án allrar forgangsröðunar. Ekkert væri gert til að draga í raun úr útgjöldum ríkissjóðs. Innlent 29.11.2023 20:06 Verðbólgan hækkar lítillega í átta prósent Verðbólga hefur hækkað lítillega og í nóvember mældist hún átta prósent hér á landi, sé litið til síðastliðinna tólf mánaða. Viðskipti innlent 29.11.2023 14:32 Verkalýðshreyfingin vill stöðva kjaraviðræður vegna gjaldskrárhækkana Formaður VR reiknar með að öllum viðræðum verkalýðshreyfingarinnar við stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins verði hætt fram yfir áramót vegna boðaðra gjaldskrárhækkana sveitarfélaga og aðgerðaleysis stjórnvalda. Verkalýðshreyfingin geti ekki ein staðið undir því að keyra niður verðbólguna. Innlent 29.11.2023 12:03 Spá því að verðbólgan aukist Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólgan aukist um 0,2 prósent milli mánaða og verði 8,1 prósent. Þá muni hún hækka enn meira í desember og verða 8,3 prósent. Viðskipti innlent 27.11.2023 10:31 Erum einfaldlega saman á báti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Undirliggjandi verðbólga hefur hjaðnað og áfram eru vísbendingar um að tekið sé að hægja á einkaneyslu og fjárfestingu. Því miður hafa verðbólguhorfur þó versnað, spennan í þjóðarbúinu reynist meiri og gengi krónunnar lækkað. Skoðun 23.11.2023 07:00 Biðleikur Seðlabanka gefur færi á víðtæku samstarfi Meginvextir Seðlabankans verða óbreyttir fram yfir gildisíma núgildandi kjarasamninga í lok janúar. Seðlabankastjóri segir að líta megi á þessa ákvörðun sem biðleik en ef ekki fari að draga úr þrálátri verðbólgu væri peningastefnunefnd nauðugur sá kostur að hækka stýrivexti enn meira. Innlent 22.11.2023 19:21 Hærri álagning fyrirtækja vegur ekki „þungt í þróun verðbólgu“ Miklar launahækkanir hafa verið „megin drifkraftur“ mikillar verðbólgu hérlendis, ekki aukinn hagnaður fyrirtækja. Aukinn hlutur hagnaðar fyrirtækja hefur verið nokkru minni en aukinn launakostnaður á undanförnum árum, sagði Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, á fundi þar sem vaxtaákvörðun var kynnt í morgun. Innherji 22.11.2023 13:36 Þrálát verðbólga heldur vöxtum áfram háum Verðbólga hefur verið og verður samkvæmt spá Seðlabankans þrálátari en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Þrátt fyrir það og vegna aukinnar óvissu í efnahagsmálum í tengslum við jarðhræringar á Reykjanesi ákvað peningastefnunefnd Seðlabankans að halda meginvöxtum óbreyttum í morgun. Viðskipti innlent 22.11.2023 12:23 Vöxtum Seðlabankans haldið óbreyttum þótt verðbólguhorfur hafi versnað Þrátt fyrir meiri spennu í þjóðarbúinu og versnandi verðbólguhorfur þá hefur peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum í 9,25 prósentum í annað skiptið í röð vegna óvissu um efnahagslegu áhrifin af jarðhræringunum á Reykjanesskaga. Ákvörðunin er í takt við væntingar nærri allra markaðsaðila og greinenda en peningastefnunefndin undirstrikar að mögulega þurfi að hækka vexti enn frekar síðar meir. Innherji 22.11.2023 08:56 Óvissan á Reykjanesskaga knýr Seðlabankann til að halda vöxtum óbreyttum Allt útlit er fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans haldi vöxtum óbreyttum í vikunni vegna þess óvissuástands sem ríkir út af jarðhræringunum á Reykjanesskaga en markaðsaðilar og hagfræðingar hafa ekki verið eins samstíga í væntingum sínum um ákvörðun nefndarinnar um langa hríð. Nánast allir þátttakendur í vaxtakönnun Innherja eiga von á biðleik hjá peningastefnunefndinni í annað sinn í röð enda séu merki um að hátt vaxtastig sé farið að kæla einkaneysluna og þá muni náttúruhamfarirnar draga mátt úr hagkerfinu á næstu mánuðum og þensla á vinnumarkaði minnka. Innherji 20.11.2023 11:02 Seðlabankinn þarf nú að lækka stýrivexti Staðan er sú að háir stýrivextir hafa verið að auka verðbólguna undanfarið. Það er vegna þess að skuldabyrði fyrirtækja hefur þyngst með þessum óvenju miklu hækkunum stýrivaxta sem gengið hafa yfir á síðastliðnu ári. Það hefur ýtt undir verðhækkanir. Skoðun 18.11.2023 13:30 Væntingar um vaxtatoppinn „klárlega að koma niður“ vegna óvissunnar Jarðhræringar og óvissan um framvindu mála á Reykjanesskaga hafa slökkt í öllum væntingum skuldabréfafjárfesta um mögulega vaxtahækkun þegar peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næstu viku. Ávöxtunarkrafa styttri ríkisskuldabréfa hefur lækkað skarpt síðustu daga samtímis því að undirliggjandi raunvextir eru að koma niður, að sögn sjóðstjóra á markaði, en útlit er fyrir að fjármögnunarþörf ríkissjóðs eigi eftir að aukast talsvert frá fyrri áætlun vegna meiri hallareksturs. Innherji 15.11.2023 10:46 Fram og aftur í verðbólgumistri Ég held að flestir átti sig á að sú staðreynd að laun hækkuðu um 8,7% frá febrúar 2022 til febrúar 2023 samkvæmt launavísitölu Hagstofunnar segir ekki allt um þróun launa á þessu tímabili. Það skiptir líka máli – og að margra mati meira máli – að raunlaun lækkuðu á þessum tíma um 1,4% vegna þess að verðbólgan var 10,2%. Auðvitað skipta báðar tölurnar máli. Skoðun 13.11.2023 10:32 Hopp hækkar verðið Hopp Ísland hækkaði í dag startgjald í fyrsta sinn síðan rafhlaupahjólaleigan var opnuð árið 2019. Þá hækkar mínútugjald einnig. Framkvæmdastjóri segir hækkunina beina afleiðingu verðbólgu. Neytendur 10.11.2023 14:56 Vilja seðlabankastjóra burt og neyðarlög um lækkun vaxta Þingmaður Flokks fólksins og formaður VR krefjast þess að seðlabankastjóra verði vikið úr embætti fyrir meint mistök í vaxtamálum sem hafi aukið byrðar heimilanna í landinu. Þá verði stjórnvöld nú þegar að setja neyðarlög sem keyri vextina niður svo heimilin verði ekki ein látin bera ábyrgð á því að koma verðbólgunni niður. Viðskipti innlent 6.11.2023 12:13 Norræn lífskjör: Alltaf meira basl á Íslandi Atvinnurekendur tala gjarnan um að laun á Íslandi séu ein þau hæstu í Evrópu. En þeir horfa framhjá því að hér er verðlag það hæsta (ásamt Sviss). Húsnæðiskostnaður tekur hér stærri hluta af ráðstöfunartekjum þeirra yngri og tekjulægri en víða í grannríkjunum. Skoðun 2.11.2023 13:31 Stýrivaxtahækkanir farnar að bera árangur Verðbólga hjaðnar um 0,1 prósentustig milli mánaða og stendur nú í 7,9 prósentum. Hagfræðingur hjá Landsbankanum segir mælinguna ekki koma á óvart og að ljóst sé að stýrivaxtahækkanir Seðlabankans séu farnar að bera árangur. Viðskipti innlent 30.10.2023 11:40 Verðbólga hjaðnar um 0,1 prósentustig Vísitala neysluverðs hækkar um 0,6 prósent milli mánaða. Er verðbólga því 7,9 prósent á ársgrundvelli og hjaðnar um 0,1 prósentustig milli mánaða. Viðskipti innlent 30.10.2023 09:21 Ein stærsta millifærsla í áratugi á sér stað úr vasa sparifjáreigenda til skuldara Ein stærsta millifærsla í áratugi hefur nú átt sér stað úr vasa sparifjáreigenda til skuldara í gegnum neikvæða raunvexti. Verulega miklar fjárhæðir hafa verið færðir til. Það gengur ekki til lengdar að sparifjáreigendur standi undir þessu. Verðbólguskellurinn hefur því ekki fallið á heimilin í sama mæli og ef þau væru flest með verðtryggð lán, sagði seðlabankastjóri. Innherji 26.10.2023 14:24 Forstjóri Haga hefur áhyggjur af „sterkum hækkunartakti“ á innlendri framleiðslu Teikn eru á lofti um að hægt hefur á verðhækkunum á innfluttri dagvöru, segir forstjóri Haga, en hann hefur áhyggjur af „sterkum hækkunartakti“ á innlendri framleiðsluvöru. Innherji 19.10.2023 15:01 Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Ársfundur atvinnulífsins hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur atvinnulífs og stjórnmála til að ræða brýn málefni samfélagsins og leiðir til að bæta lífskjör landsmanna. Fundurinn hefst klukkan 15 og stendur í klukkustund. Viðskipti innlent 19.10.2023 14:01 Mikil hækkun launakostnaðar ein helsta áhættan fyrir ytri stöðu þjóðarbúsins Mikil hækkun launakostnaðar á framleidda einingu hér á landi á síðustu árum er „langt yfir“ þeim viðmiðunarmörkum sem Hagstofa Evrópusambandsins (Eurostat) hefur sett til að meta mögulegt ójafnvægi á ytri stöðu hagkerfa. Verði framhald á launahækkunum umfram framleiðnivöxt mun það að líkindum leiða til verðbólgu, meiri viðskiptahalla og um leið gengislækkunar krónunnar, að mati Seðlabankans. Innherji 19.10.2023 11:47 Þórdís Kolbrún segir hækkun launa í krónutölu ekki málið Eftir stuttar hamingjuóskir var hart sótt að Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur nýjum fjármála- og efnahagsráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. Hún sagði ekki tekjuvanda heldur útgjaldavanda hjá ríkinu. Sá vandi yrði ekki leystur með nýjum fjárfrekum verkefnum. Innlent 19.10.2023 11:20 Tveir úr peningastefnunefnd vildu hækka stýrivexti Tveir meðlimir peningastefnunefndar vildu hækka stýrivexti um 0,25 prósent þegar nefndin fundaði í upphafi mánaðar. Nefndin tilkynnti óbreytta stýrivexti þann 4. október síðastliðinn. Viðskipti innlent 18.10.2023 20:43 Enn og aftur ræðum við fátækt Í dag 17. október er alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt. Það hefur gengið illa að uppræta fátækt á Íslandi þó fátækt sé alvarlegt samfélagslegt mein sem bitnar því miður hvað mest á börnum. Árið 2021 (Hagstofan) átti rúmlega 51% einstæðra foreldra erfitt með að láta enda ná saman og víst er að staðan er mun verri núna og versnar hratt í því umhverfi sem vaxtahækkanir valda, minnkandi kaupmáttur, hækkun útgjalda og húsnæðiskostnaðar svo dæmi séu nefnd. Skoðun 17.10.2023 22:30 Væri til bóta að stjórnvöld taki upp tekjureglu þegar það „rignir inn krónum“ Varaseðlabankastjóri kallar eftir því að stjórnvöld bæti við sérstakri tekjureglu í lög um opinber fjármál. Ef það „rignir inn krónum“ í ríkiskassann, meira en gert var ráð fyrir, þarf að gæta þess að þeim verði ekki öllum varið í aukin útgjöld. Innherji 17.10.2023 15:41 Hagvöxtur töluvert minni næstu ár og stýrivaxtahækkunum lokið Í nýútgefinni hagspá Landsbankans til ársins 2026 segir að hátt vaxtastig hafi tekið að slá á eftirspurn, bæði einkaneyslu og fjárfestingu og að útlit sé fyrir að verðbólga hjaðni hægt og rólega á næstu mánuðum. Viðskipti innlent 17.10.2023 09:04 « ‹ 7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 31 ›
Íslendingar vinna einna minnst en þéna mest Íslendingar vinna einna minnst en þéna mest á mánuði, talsvert meira borið saman við aðrar Norðurlandaþjóðir, samkvæmt gögnum frá OECD. „Við getum varðveitt þessa stöðu svo lengi sem verðmætasköpun stendur undir henni,“ segir aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Innherji 1.12.2023 07:01
ASÍ kallar ríki og sveitarfélög til ábyrgðar í baráttu við verðbólgu Verkalýðshreyfingin kallar ríki, sveitarfélög og fyrirtæki til ábyrgðar í baráttunni við verðbólguna. Engin merki væru á lofti um að þessir aðilar ætli að leggja sitt af mörkum, sem geti sett stórt strik í reikninginn fyrir komandi kjarasamninga. Innlent 30.11.2023 19:20
Hægir verulega á hagvexti Verulega hægir á hagvexti á þriðja ársfjórðungi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni. Viðskipti innlent 30.11.2023 10:06
Segir ríkisstjórnina skila auðu í baráttunni við verðbólguna Formaður Viðreisnar gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag fyrir aðgerðarleysi í baráttunni við verðbólgu og háa vexti. Það eina sem ríkisstjórnin hyggðist gera til að draga úr útgjöldum ríkissjóðs væri flatur niðurskurður án allrar forgangsröðunar. Ekkert væri gert til að draga í raun úr útgjöldum ríkissjóðs. Innlent 29.11.2023 20:06
Verðbólgan hækkar lítillega í átta prósent Verðbólga hefur hækkað lítillega og í nóvember mældist hún átta prósent hér á landi, sé litið til síðastliðinna tólf mánaða. Viðskipti innlent 29.11.2023 14:32
Verkalýðshreyfingin vill stöðva kjaraviðræður vegna gjaldskrárhækkana Formaður VR reiknar með að öllum viðræðum verkalýðshreyfingarinnar við stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins verði hætt fram yfir áramót vegna boðaðra gjaldskrárhækkana sveitarfélaga og aðgerðaleysis stjórnvalda. Verkalýðshreyfingin geti ekki ein staðið undir því að keyra niður verðbólguna. Innlent 29.11.2023 12:03
Spá því að verðbólgan aukist Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólgan aukist um 0,2 prósent milli mánaða og verði 8,1 prósent. Þá muni hún hækka enn meira í desember og verða 8,3 prósent. Viðskipti innlent 27.11.2023 10:31
Erum einfaldlega saman á báti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Undirliggjandi verðbólga hefur hjaðnað og áfram eru vísbendingar um að tekið sé að hægja á einkaneyslu og fjárfestingu. Því miður hafa verðbólguhorfur þó versnað, spennan í þjóðarbúinu reynist meiri og gengi krónunnar lækkað. Skoðun 23.11.2023 07:00
Biðleikur Seðlabanka gefur færi á víðtæku samstarfi Meginvextir Seðlabankans verða óbreyttir fram yfir gildisíma núgildandi kjarasamninga í lok janúar. Seðlabankastjóri segir að líta megi á þessa ákvörðun sem biðleik en ef ekki fari að draga úr þrálátri verðbólgu væri peningastefnunefnd nauðugur sá kostur að hækka stýrivexti enn meira. Innlent 22.11.2023 19:21
Hærri álagning fyrirtækja vegur ekki „þungt í þróun verðbólgu“ Miklar launahækkanir hafa verið „megin drifkraftur“ mikillar verðbólgu hérlendis, ekki aukinn hagnaður fyrirtækja. Aukinn hlutur hagnaðar fyrirtækja hefur verið nokkru minni en aukinn launakostnaður á undanförnum árum, sagði Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, á fundi þar sem vaxtaákvörðun var kynnt í morgun. Innherji 22.11.2023 13:36
Þrálát verðbólga heldur vöxtum áfram háum Verðbólga hefur verið og verður samkvæmt spá Seðlabankans þrálátari en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Þrátt fyrir það og vegna aukinnar óvissu í efnahagsmálum í tengslum við jarðhræringar á Reykjanesi ákvað peningastefnunefnd Seðlabankans að halda meginvöxtum óbreyttum í morgun. Viðskipti innlent 22.11.2023 12:23
Vöxtum Seðlabankans haldið óbreyttum þótt verðbólguhorfur hafi versnað Þrátt fyrir meiri spennu í þjóðarbúinu og versnandi verðbólguhorfur þá hefur peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum í 9,25 prósentum í annað skiptið í röð vegna óvissu um efnahagslegu áhrifin af jarðhræringunum á Reykjanesskaga. Ákvörðunin er í takt við væntingar nærri allra markaðsaðila og greinenda en peningastefnunefndin undirstrikar að mögulega þurfi að hækka vexti enn frekar síðar meir. Innherji 22.11.2023 08:56
Óvissan á Reykjanesskaga knýr Seðlabankann til að halda vöxtum óbreyttum Allt útlit er fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans haldi vöxtum óbreyttum í vikunni vegna þess óvissuástands sem ríkir út af jarðhræringunum á Reykjanesskaga en markaðsaðilar og hagfræðingar hafa ekki verið eins samstíga í væntingum sínum um ákvörðun nefndarinnar um langa hríð. Nánast allir þátttakendur í vaxtakönnun Innherja eiga von á biðleik hjá peningastefnunefndinni í annað sinn í röð enda séu merki um að hátt vaxtastig sé farið að kæla einkaneysluna og þá muni náttúruhamfarirnar draga mátt úr hagkerfinu á næstu mánuðum og þensla á vinnumarkaði minnka. Innherji 20.11.2023 11:02
Seðlabankinn þarf nú að lækka stýrivexti Staðan er sú að háir stýrivextir hafa verið að auka verðbólguna undanfarið. Það er vegna þess að skuldabyrði fyrirtækja hefur þyngst með þessum óvenju miklu hækkunum stýrivaxta sem gengið hafa yfir á síðastliðnu ári. Það hefur ýtt undir verðhækkanir. Skoðun 18.11.2023 13:30
Væntingar um vaxtatoppinn „klárlega að koma niður“ vegna óvissunnar Jarðhræringar og óvissan um framvindu mála á Reykjanesskaga hafa slökkt í öllum væntingum skuldabréfafjárfesta um mögulega vaxtahækkun þegar peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næstu viku. Ávöxtunarkrafa styttri ríkisskuldabréfa hefur lækkað skarpt síðustu daga samtímis því að undirliggjandi raunvextir eru að koma niður, að sögn sjóðstjóra á markaði, en útlit er fyrir að fjármögnunarþörf ríkissjóðs eigi eftir að aukast talsvert frá fyrri áætlun vegna meiri hallareksturs. Innherji 15.11.2023 10:46
Fram og aftur í verðbólgumistri Ég held að flestir átti sig á að sú staðreynd að laun hækkuðu um 8,7% frá febrúar 2022 til febrúar 2023 samkvæmt launavísitölu Hagstofunnar segir ekki allt um þróun launa á þessu tímabili. Það skiptir líka máli – og að margra mati meira máli – að raunlaun lækkuðu á þessum tíma um 1,4% vegna þess að verðbólgan var 10,2%. Auðvitað skipta báðar tölurnar máli. Skoðun 13.11.2023 10:32
Hopp hækkar verðið Hopp Ísland hækkaði í dag startgjald í fyrsta sinn síðan rafhlaupahjólaleigan var opnuð árið 2019. Þá hækkar mínútugjald einnig. Framkvæmdastjóri segir hækkunina beina afleiðingu verðbólgu. Neytendur 10.11.2023 14:56
Vilja seðlabankastjóra burt og neyðarlög um lækkun vaxta Þingmaður Flokks fólksins og formaður VR krefjast þess að seðlabankastjóra verði vikið úr embætti fyrir meint mistök í vaxtamálum sem hafi aukið byrðar heimilanna í landinu. Þá verði stjórnvöld nú þegar að setja neyðarlög sem keyri vextina niður svo heimilin verði ekki ein látin bera ábyrgð á því að koma verðbólgunni niður. Viðskipti innlent 6.11.2023 12:13
Norræn lífskjör: Alltaf meira basl á Íslandi Atvinnurekendur tala gjarnan um að laun á Íslandi séu ein þau hæstu í Evrópu. En þeir horfa framhjá því að hér er verðlag það hæsta (ásamt Sviss). Húsnæðiskostnaður tekur hér stærri hluta af ráðstöfunartekjum þeirra yngri og tekjulægri en víða í grannríkjunum. Skoðun 2.11.2023 13:31
Stýrivaxtahækkanir farnar að bera árangur Verðbólga hjaðnar um 0,1 prósentustig milli mánaða og stendur nú í 7,9 prósentum. Hagfræðingur hjá Landsbankanum segir mælinguna ekki koma á óvart og að ljóst sé að stýrivaxtahækkanir Seðlabankans séu farnar að bera árangur. Viðskipti innlent 30.10.2023 11:40
Verðbólga hjaðnar um 0,1 prósentustig Vísitala neysluverðs hækkar um 0,6 prósent milli mánaða. Er verðbólga því 7,9 prósent á ársgrundvelli og hjaðnar um 0,1 prósentustig milli mánaða. Viðskipti innlent 30.10.2023 09:21
Ein stærsta millifærsla í áratugi á sér stað úr vasa sparifjáreigenda til skuldara Ein stærsta millifærsla í áratugi hefur nú átt sér stað úr vasa sparifjáreigenda til skuldara í gegnum neikvæða raunvexti. Verulega miklar fjárhæðir hafa verið færðir til. Það gengur ekki til lengdar að sparifjáreigendur standi undir þessu. Verðbólguskellurinn hefur því ekki fallið á heimilin í sama mæli og ef þau væru flest með verðtryggð lán, sagði seðlabankastjóri. Innherji 26.10.2023 14:24
Forstjóri Haga hefur áhyggjur af „sterkum hækkunartakti“ á innlendri framleiðslu Teikn eru á lofti um að hægt hefur á verðhækkunum á innfluttri dagvöru, segir forstjóri Haga, en hann hefur áhyggjur af „sterkum hækkunartakti“ á innlendri framleiðsluvöru. Innherji 19.10.2023 15:01
Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Ársfundur atvinnulífsins hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur atvinnulífs og stjórnmála til að ræða brýn málefni samfélagsins og leiðir til að bæta lífskjör landsmanna. Fundurinn hefst klukkan 15 og stendur í klukkustund. Viðskipti innlent 19.10.2023 14:01
Mikil hækkun launakostnaðar ein helsta áhættan fyrir ytri stöðu þjóðarbúsins Mikil hækkun launakostnaðar á framleidda einingu hér á landi á síðustu árum er „langt yfir“ þeim viðmiðunarmörkum sem Hagstofa Evrópusambandsins (Eurostat) hefur sett til að meta mögulegt ójafnvægi á ytri stöðu hagkerfa. Verði framhald á launahækkunum umfram framleiðnivöxt mun það að líkindum leiða til verðbólgu, meiri viðskiptahalla og um leið gengislækkunar krónunnar, að mati Seðlabankans. Innherji 19.10.2023 11:47
Þórdís Kolbrún segir hækkun launa í krónutölu ekki málið Eftir stuttar hamingjuóskir var hart sótt að Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur nýjum fjármála- og efnahagsráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. Hún sagði ekki tekjuvanda heldur útgjaldavanda hjá ríkinu. Sá vandi yrði ekki leystur með nýjum fjárfrekum verkefnum. Innlent 19.10.2023 11:20
Tveir úr peningastefnunefnd vildu hækka stýrivexti Tveir meðlimir peningastefnunefndar vildu hækka stýrivexti um 0,25 prósent þegar nefndin fundaði í upphafi mánaðar. Nefndin tilkynnti óbreytta stýrivexti þann 4. október síðastliðinn. Viðskipti innlent 18.10.2023 20:43
Enn og aftur ræðum við fátækt Í dag 17. október er alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt. Það hefur gengið illa að uppræta fátækt á Íslandi þó fátækt sé alvarlegt samfélagslegt mein sem bitnar því miður hvað mest á börnum. Árið 2021 (Hagstofan) átti rúmlega 51% einstæðra foreldra erfitt með að láta enda ná saman og víst er að staðan er mun verri núna og versnar hratt í því umhverfi sem vaxtahækkanir valda, minnkandi kaupmáttur, hækkun útgjalda og húsnæðiskostnaðar svo dæmi séu nefnd. Skoðun 17.10.2023 22:30
Væri til bóta að stjórnvöld taki upp tekjureglu þegar það „rignir inn krónum“ Varaseðlabankastjóri kallar eftir því að stjórnvöld bæti við sérstakri tekjureglu í lög um opinber fjármál. Ef það „rignir inn krónum“ í ríkiskassann, meira en gert var ráð fyrir, þarf að gæta þess að þeim verði ekki öllum varið í aukin útgjöld. Innherji 17.10.2023 15:41
Hagvöxtur töluvert minni næstu ár og stýrivaxtahækkunum lokið Í nýútgefinni hagspá Landsbankans til ársins 2026 segir að hátt vaxtastig hafi tekið að slá á eftirspurn, bæði einkaneyslu og fjárfestingu og að útlit sé fyrir að verðbólga hjaðni hægt og rólega á næstu mánuðum. Viðskipti innlent 17.10.2023 09:04