Verðlag Rætt um að ganga enn lengra en allir sammála um stýrivaxtahækkunina Allir fimm nefndarmenn í peningastefnunefnd Seðlabankans voru sammála tillögu Seðlabankastjóra um að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig í nóvember. Rætt var þó um að hækka þá enn meira. Viðskipti innlent 2.12.2021 07:37 Mál málanna Verðbólga er mál málanna þessa dagana en eftir nokkur ár af verðstöðugleika hér á landi er hún mætt aftur með töluverðum látum. Tólf mánaða verðbólga er búin að vera í kringum 4,5% allt árið og hefur ekki verið hærri frá árinu 2013. Uppsöfnuð verðbólga frá upphafi árs 2020 er að nálgast 10%. Umræðan 29.11.2021 10:01 Mjólkin hækkar í verði Verðlagsnefnd búvara hefur ákveðið að hækka lágmarksverð sem kúabændur fá fyrir mjólk. Þá hækkar einnig heildsöluverð mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Viðskipti innlent 26.11.2021 23:48 Íslandsbanki hækkar einnig vexti Íslandsbanki hefur tilkynnt um breytingar á vöxtum í kjölfar vaxtaákvörunar Seðlabanka Íslands þegar stýrivextir voru hækkaðir um 0,5 prósentustig. Stóru bankarnir þrír hafa því allir tilkynnt um vaxtahækkun. Neytendur 26.11.2021 13:02 Verðbólga undir væntingum en myndin á eftir að skýrast Verðbólgumæling Hagstofu Íslands var undir væntingum greinenda í fyrsta sinn síðan í nóvember í fyrra. „Í stuttu máli má þannig segja að verðbólgan sé að reynast þrálát en þó ekki eins kraftmikil og væntingar voru um,“ segir Birgir Haraldsson, sjóðstjóri hjá Akta. Innherji 25.11.2021 14:00 Landsbankinn hækkar vexti Landsbankinn hækkar breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,35 prósentustig í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans. Neytendur 24.11.2021 17:25 Spá því að fólk snúi aftur í verðtryggð húsnæðislán Árshækkun húsnæðis hefur ekki mælst meiri frá því í október 2017 og er raunverð húsnæðis nú í sögulegum hæðum. Húsnæðisverð hefur því hækkað um 4,3% síðustu þrjá mánuði og um 17,1% undanfarna tólf mánuði, samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár. Viðskipti innlent 19.11.2021 16:35 Hvað getur hið opinbera gert til að draga úr verðbólgunni? Verðbólgan hefur náð sér á strik undanfarna mánuði. Hún mældist 4,5% í síðasta mánuði og ýmsar spár gera ráð fyrir að hún verði um eða yfir 5% í þessum mánuði. Skoðun 19.11.2021 11:30 Seðlabankastjóri: „SA sömdu klárlega af sér" „Ég er hissa að séu stórar yfirlýsingar um að himinn og jörð séu að farast þegar við erum fyrirsjáanlega að hækka vexti núna. Vextir eru í 2 prósentum. Þeir voru í 4,5 prósentum þegar Lífskjarasamningurinn var gerður. Mér finnst svona yfirlýsingar úr korti við alla skynsemi og úr takti við raunveruleikann,” sagði Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri á fundi Viðskiptaráðs Íslands sem fram fór í morgun og bar yfirskriftina Er vinnumarkaðurinn týndi hlekkurinn? Innherji 18.11.2021 10:09 Hagvaxtarauki kemur fyrirtækjum spánskt fyrir sjónir Hagvaxtarauki lífskjarasamninganna, sem kveður á um launahækkun vegna hagvaxtar þessa árs og tekur gildi frá maí á næsta ári, skýtur skökku við að mati, viðmælenda Innherja í veitinga- og smásölugeiranum. Innherji 18.11.2021 06:43 Komi ekki til greina að henda hagvaxtaraukum út um gluggann Forseti ASÍ segir ekki koma til greina að hagvaxtaraukar, sem samið var um í lífskjarasamningunum, verði felldir úr gildi. Seðlabankastjóri sagði fyrr í dag að hagvaxtaraukarnir væru óheppilegir fyrir verðbólguþróunina. Innlent 17.11.2021 21:42 Hótun verkalýðsleiðtoga yfirlýsing um að þeir ætli að semja um verðbólgu Seðlabankastjóri telur að það hafi verið „mistök“ af hálfu aðila vinnumarkaðarins að ná ekki saman í haust um að falla frá hinum svonefnda hagvaxtarauka á næsta ári, sem tryggir launafólki hlutdeild í ávinningnum þegar landsframleiðsla á hvern íbúa eykst, en hann mun að óbreyttu virkjast og leiða til enn meiri launahækkana en áður var spáð. Innherji 17.11.2021 20:20 Seðlabankastjóri segir óheppilegt að launafólk fái hagvaxtarauka Seðlabankastjóri segir óheppilegt að laun hækki næsta vor með svo kölluðum hagvaxtarauka sem samið var um í lífskjarasamningunum. Miklar launahækkanir, hækkun á verði íbúðarhúsnæðis og hrávöru í útlöndum kyndi undir verðbólgunni. Innlent 17.11.2021 19:20 Versnandi verðbólguhorfur Verðbólguhorfur hafa versnað frá spá Seðlabanka Íslands í ágúst sem reiknar með að hún verði komin upp í 4,7 prósent undir lok þessa árs. Viðvarandi hækkun húsnæðisverðs og launa og verðs á hrávörum í útlöndum eru meginforsendurnar fyrir því að Seðlabankinn hækkaði meginvexti sína í morgun um 0,5 prósentustig. Viðskipti innlent 17.11.2021 13:14 Spá því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig Hagfræðideild Landsbankans spáir því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig í næstu viku og fari úr 1,5% í 1,75%. Telur deildin nokkrar líkur á 0,5 prósentustiga hækkun en að hin niðurstaðan verið ofan á. Viðskipti innlent 12.11.2021 09:06 Spá mestu verðbólgu í níu ár Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,5% hækkun vísitölu neysluverðs milli mánaða og að verðbólga fari úr 4,5% í 5,0% í nóvember. Ársverðbólga hefur ekki mælst svo mikil frá því í júní 2012. Viðskipti innlent 11.11.2021 10:55 Spá umtalsverðri hækkun verðbólgu í nóvember Greining Íslandsbanka spáir umtalsverðri hækkun ársverðbólgu og að hún mælist 5,1% í nóvember. Hún hefur ekki mælst svo mikil síðan um mitt ár 2012. Verðbólga mældist 4,5% í október en hækkandi íbúðaverð og innflutt verðbólga eru nú helstu áhrifaþættir þrálátrar verðbólgu. Viðskipti innlent 10.11.2021 10:11 Bátur dagsins er allur Bátur dagsins á Subway heyrir nú sögunni til og ekki er lengur hægt að kaupa stakan bát dagsins á sérstöku tilboðsverði. Þess í stað býður samlokurisinn nú upp á svokallaða máltíð dagsins sem inniheldur bát ásamt gosi og meðlæti. Neytendur 9.11.2021 15:49 Lyfjabúrið og Lyfja dýrustu apótekin Ódýrast er að kaupa lyf í apóteki Costco og í Rimaapóteki en dýrast í Lyfjabúrinu og Lyfju. Þetta kemur fram í nýjum verðsamanburði ASÍ, sem kynntur var í gær. Neytendur 6.11.2021 09:12 Matvælaverð ekki verið hærra í meira en áratug Matvælaverð hefur ekki verið hærra á heimsvísu í meira en áratug, að sögn Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO). Verð á matvörum hefur hækkað um yfir 30 prósent á síðastliðnu ári. Viðskipti erlent 5.11.2021 09:21 Jólasveinninn gæti lent í vandræðum Jólasveinum er vandi á höndum víða um Evrópu vegna mikilla verðhækkana á leikföngum. Og ekki aðeins er dótið dýrara, heldur er vöruskortur líka farinn að bíta leikfangaverslanir. Viðskipti erlent 30.10.2021 23:44 Húsnæðisverð hækkaði meira en spár gerðu ráð fyrir Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,59% milli mánaða í október og mælist nú 4,5 prósent. Þetta er mesta verðbólga á árinu frá því í apríl þegar hún mældist 4,6%. Verðbólgan er að miklu leyti til knúin áfram af miklum hækkunum á íbúðaverði að því er kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans. Viðskipti innlent 27.10.2021 16:22 Bjarni segir verðbólguna ekki komna úr böndunum Fjármálaráðherra segir verðbólguna ekki farna úr böndunum en hún hélt áfram að aukast í þessum mánuði og mælist nú fjögur komma fimm prósent. Hækkun húsnæðisverðs heldur áfram að drífa verðbólguna áfram en án hennar mælist verðbólgan þrjú prósent á síðustu tólf mánuðum. Innlent 27.10.2021 12:00 Senda Seðlabankanum tóninn og hyggjast sækja hverja einustu krónu Verkalýðshreyfingin mun ekki veita neinn afslátt í komandi kjaraviðræðum og hyggst sækja hverja einustu viðbótarkrónu sem heimilin hafa greitt í kjölfar vaxtahækkana Seðlabankans. Viðskipti innlent 26.10.2021 22:25 Twitter bregst við hækkun þriðjudagstilboðsins: „Jæja það er hrun“ Domino‘s á Íslandi hefur hækkað verð á hinu vinsæla þriðjudagstilboði úr þúsund krónum í 1.100 krónur. Tilboðið hefur verið eins konar fasti í skyndibitamenningu landans til fjölda ára, og ráku margir upp stór augu við að sjá það í dag að hið sígilda tilboð hefði runnið sitt skeið. Lífið 26.10.2021 17:01 Söguleg verðhækkun hjá Domino‘s Domino‘s á Íslandi hefur hækkað verð á hinu vinsæla þriðjudagstilboði úr þúsund krónum í 1.100 krónur. Ljóst má vera að margir viðskiptavinir Domino‘s ráku upp stór augu í dag þegar þeir tóku eftir hækkuninni, enda hafa fjölmargir haft samband við fréttastofu til að segja frá þessum tímamótum. Neytendur 26.10.2021 13:10 Við munum sækja hverja einustu krónu Við gerð síðustu kjarasamninga var litið til þess að samningar hefðu í för með sér lækkun vaxta. Við sömdum því með hófstilltari hætti til að leggja grunn að því að auka ráðstöfunartekjur launafólks með fleiri þáttum en beinum launahækkunum. Skoðun 26.10.2021 12:31 Umfjöllun hagsmunasamtaka fyrirtækja um verðlagningu – Reglur samkeppnislaga Á föstudaginn var, þann 22. október, gaf Samkeppniseftirlitið út tilkynninguþar sem vakin var athygli á því að umfjöllun hagsmunasamtaka um verð og verðlagningu fyrirtækja undir þeirra hatti væri sérstaklega varhugaverð og ætti ekki að eiga sér stað. Skoðun 25.10.2021 11:00 SA og VÍ svara Samkeppniseftirlitinu: „Verða settar skorður á Seðlabankann að tjá sig um verðlag í landinu?“ Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands segja engin ákvæði samkeppnislaga banna samtökum fyrirtækja þátttöku í opinberri umræðu. Það sé ekki úr lausu lofti gripið að verðhækkanir séu líklegar og það sé í raun óumflýjanlegt að hagsmunasamtök fyrirtækja láti sig verðlag í landinu varða. Viðskipti innlent 22.10.2021 18:25 Samkeppniseftirlitið slær á putta SA vegna ummæla Halldórs Samkeppniseftirlitið brýnir fyrir forsvarsmönnum hagsmunasamtaka að taka ekki þátt í umfjöllun um verðlagningu þar sem slíkt geti verið óheimilt samkvæmt samkeppnislögum. Viðskipti innlent 22.10.2021 13:44 « ‹ 26 27 28 29 30 31 … 31 ›
Rætt um að ganga enn lengra en allir sammála um stýrivaxtahækkunina Allir fimm nefndarmenn í peningastefnunefnd Seðlabankans voru sammála tillögu Seðlabankastjóra um að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig í nóvember. Rætt var þó um að hækka þá enn meira. Viðskipti innlent 2.12.2021 07:37
Mál málanna Verðbólga er mál málanna þessa dagana en eftir nokkur ár af verðstöðugleika hér á landi er hún mætt aftur með töluverðum látum. Tólf mánaða verðbólga er búin að vera í kringum 4,5% allt árið og hefur ekki verið hærri frá árinu 2013. Uppsöfnuð verðbólga frá upphafi árs 2020 er að nálgast 10%. Umræðan 29.11.2021 10:01
Mjólkin hækkar í verði Verðlagsnefnd búvara hefur ákveðið að hækka lágmarksverð sem kúabændur fá fyrir mjólk. Þá hækkar einnig heildsöluverð mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Viðskipti innlent 26.11.2021 23:48
Íslandsbanki hækkar einnig vexti Íslandsbanki hefur tilkynnt um breytingar á vöxtum í kjölfar vaxtaákvörunar Seðlabanka Íslands þegar stýrivextir voru hækkaðir um 0,5 prósentustig. Stóru bankarnir þrír hafa því allir tilkynnt um vaxtahækkun. Neytendur 26.11.2021 13:02
Verðbólga undir væntingum en myndin á eftir að skýrast Verðbólgumæling Hagstofu Íslands var undir væntingum greinenda í fyrsta sinn síðan í nóvember í fyrra. „Í stuttu máli má þannig segja að verðbólgan sé að reynast þrálát en þó ekki eins kraftmikil og væntingar voru um,“ segir Birgir Haraldsson, sjóðstjóri hjá Akta. Innherji 25.11.2021 14:00
Landsbankinn hækkar vexti Landsbankinn hækkar breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,35 prósentustig í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans. Neytendur 24.11.2021 17:25
Spá því að fólk snúi aftur í verðtryggð húsnæðislán Árshækkun húsnæðis hefur ekki mælst meiri frá því í október 2017 og er raunverð húsnæðis nú í sögulegum hæðum. Húsnæðisverð hefur því hækkað um 4,3% síðustu þrjá mánuði og um 17,1% undanfarna tólf mánuði, samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár. Viðskipti innlent 19.11.2021 16:35
Hvað getur hið opinbera gert til að draga úr verðbólgunni? Verðbólgan hefur náð sér á strik undanfarna mánuði. Hún mældist 4,5% í síðasta mánuði og ýmsar spár gera ráð fyrir að hún verði um eða yfir 5% í þessum mánuði. Skoðun 19.11.2021 11:30
Seðlabankastjóri: „SA sömdu klárlega af sér" „Ég er hissa að séu stórar yfirlýsingar um að himinn og jörð séu að farast þegar við erum fyrirsjáanlega að hækka vexti núna. Vextir eru í 2 prósentum. Þeir voru í 4,5 prósentum þegar Lífskjarasamningurinn var gerður. Mér finnst svona yfirlýsingar úr korti við alla skynsemi og úr takti við raunveruleikann,” sagði Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri á fundi Viðskiptaráðs Íslands sem fram fór í morgun og bar yfirskriftina Er vinnumarkaðurinn týndi hlekkurinn? Innherji 18.11.2021 10:09
Hagvaxtarauki kemur fyrirtækjum spánskt fyrir sjónir Hagvaxtarauki lífskjarasamninganna, sem kveður á um launahækkun vegna hagvaxtar þessa árs og tekur gildi frá maí á næsta ári, skýtur skökku við að mati, viðmælenda Innherja í veitinga- og smásölugeiranum. Innherji 18.11.2021 06:43
Komi ekki til greina að henda hagvaxtaraukum út um gluggann Forseti ASÍ segir ekki koma til greina að hagvaxtaraukar, sem samið var um í lífskjarasamningunum, verði felldir úr gildi. Seðlabankastjóri sagði fyrr í dag að hagvaxtaraukarnir væru óheppilegir fyrir verðbólguþróunina. Innlent 17.11.2021 21:42
Hótun verkalýðsleiðtoga yfirlýsing um að þeir ætli að semja um verðbólgu Seðlabankastjóri telur að það hafi verið „mistök“ af hálfu aðila vinnumarkaðarins að ná ekki saman í haust um að falla frá hinum svonefnda hagvaxtarauka á næsta ári, sem tryggir launafólki hlutdeild í ávinningnum þegar landsframleiðsla á hvern íbúa eykst, en hann mun að óbreyttu virkjast og leiða til enn meiri launahækkana en áður var spáð. Innherji 17.11.2021 20:20
Seðlabankastjóri segir óheppilegt að launafólk fái hagvaxtarauka Seðlabankastjóri segir óheppilegt að laun hækki næsta vor með svo kölluðum hagvaxtarauka sem samið var um í lífskjarasamningunum. Miklar launahækkanir, hækkun á verði íbúðarhúsnæðis og hrávöru í útlöndum kyndi undir verðbólgunni. Innlent 17.11.2021 19:20
Versnandi verðbólguhorfur Verðbólguhorfur hafa versnað frá spá Seðlabanka Íslands í ágúst sem reiknar með að hún verði komin upp í 4,7 prósent undir lok þessa árs. Viðvarandi hækkun húsnæðisverðs og launa og verðs á hrávörum í útlöndum eru meginforsendurnar fyrir því að Seðlabankinn hækkaði meginvexti sína í morgun um 0,5 prósentustig. Viðskipti innlent 17.11.2021 13:14
Spá því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig Hagfræðideild Landsbankans spáir því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig í næstu viku og fari úr 1,5% í 1,75%. Telur deildin nokkrar líkur á 0,5 prósentustiga hækkun en að hin niðurstaðan verið ofan á. Viðskipti innlent 12.11.2021 09:06
Spá mestu verðbólgu í níu ár Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,5% hækkun vísitölu neysluverðs milli mánaða og að verðbólga fari úr 4,5% í 5,0% í nóvember. Ársverðbólga hefur ekki mælst svo mikil frá því í júní 2012. Viðskipti innlent 11.11.2021 10:55
Spá umtalsverðri hækkun verðbólgu í nóvember Greining Íslandsbanka spáir umtalsverðri hækkun ársverðbólgu og að hún mælist 5,1% í nóvember. Hún hefur ekki mælst svo mikil síðan um mitt ár 2012. Verðbólga mældist 4,5% í október en hækkandi íbúðaverð og innflutt verðbólga eru nú helstu áhrifaþættir þrálátrar verðbólgu. Viðskipti innlent 10.11.2021 10:11
Bátur dagsins er allur Bátur dagsins á Subway heyrir nú sögunni til og ekki er lengur hægt að kaupa stakan bát dagsins á sérstöku tilboðsverði. Þess í stað býður samlokurisinn nú upp á svokallaða máltíð dagsins sem inniheldur bát ásamt gosi og meðlæti. Neytendur 9.11.2021 15:49
Lyfjabúrið og Lyfja dýrustu apótekin Ódýrast er að kaupa lyf í apóteki Costco og í Rimaapóteki en dýrast í Lyfjabúrinu og Lyfju. Þetta kemur fram í nýjum verðsamanburði ASÍ, sem kynntur var í gær. Neytendur 6.11.2021 09:12
Matvælaverð ekki verið hærra í meira en áratug Matvælaverð hefur ekki verið hærra á heimsvísu í meira en áratug, að sögn Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO). Verð á matvörum hefur hækkað um yfir 30 prósent á síðastliðnu ári. Viðskipti erlent 5.11.2021 09:21
Jólasveinninn gæti lent í vandræðum Jólasveinum er vandi á höndum víða um Evrópu vegna mikilla verðhækkana á leikföngum. Og ekki aðeins er dótið dýrara, heldur er vöruskortur líka farinn að bíta leikfangaverslanir. Viðskipti erlent 30.10.2021 23:44
Húsnæðisverð hækkaði meira en spár gerðu ráð fyrir Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,59% milli mánaða í október og mælist nú 4,5 prósent. Þetta er mesta verðbólga á árinu frá því í apríl þegar hún mældist 4,6%. Verðbólgan er að miklu leyti til knúin áfram af miklum hækkunum á íbúðaverði að því er kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans. Viðskipti innlent 27.10.2021 16:22
Bjarni segir verðbólguna ekki komna úr böndunum Fjármálaráðherra segir verðbólguna ekki farna úr böndunum en hún hélt áfram að aukast í þessum mánuði og mælist nú fjögur komma fimm prósent. Hækkun húsnæðisverðs heldur áfram að drífa verðbólguna áfram en án hennar mælist verðbólgan þrjú prósent á síðustu tólf mánuðum. Innlent 27.10.2021 12:00
Senda Seðlabankanum tóninn og hyggjast sækja hverja einustu krónu Verkalýðshreyfingin mun ekki veita neinn afslátt í komandi kjaraviðræðum og hyggst sækja hverja einustu viðbótarkrónu sem heimilin hafa greitt í kjölfar vaxtahækkana Seðlabankans. Viðskipti innlent 26.10.2021 22:25
Twitter bregst við hækkun þriðjudagstilboðsins: „Jæja það er hrun“ Domino‘s á Íslandi hefur hækkað verð á hinu vinsæla þriðjudagstilboði úr þúsund krónum í 1.100 krónur. Tilboðið hefur verið eins konar fasti í skyndibitamenningu landans til fjölda ára, og ráku margir upp stór augu við að sjá það í dag að hið sígilda tilboð hefði runnið sitt skeið. Lífið 26.10.2021 17:01
Söguleg verðhækkun hjá Domino‘s Domino‘s á Íslandi hefur hækkað verð á hinu vinsæla þriðjudagstilboði úr þúsund krónum í 1.100 krónur. Ljóst má vera að margir viðskiptavinir Domino‘s ráku upp stór augu í dag þegar þeir tóku eftir hækkuninni, enda hafa fjölmargir haft samband við fréttastofu til að segja frá þessum tímamótum. Neytendur 26.10.2021 13:10
Við munum sækja hverja einustu krónu Við gerð síðustu kjarasamninga var litið til þess að samningar hefðu í för með sér lækkun vaxta. Við sömdum því með hófstilltari hætti til að leggja grunn að því að auka ráðstöfunartekjur launafólks með fleiri þáttum en beinum launahækkunum. Skoðun 26.10.2021 12:31
Umfjöllun hagsmunasamtaka fyrirtækja um verðlagningu – Reglur samkeppnislaga Á föstudaginn var, þann 22. október, gaf Samkeppniseftirlitið út tilkynninguþar sem vakin var athygli á því að umfjöllun hagsmunasamtaka um verð og verðlagningu fyrirtækja undir þeirra hatti væri sérstaklega varhugaverð og ætti ekki að eiga sér stað. Skoðun 25.10.2021 11:00
SA og VÍ svara Samkeppniseftirlitinu: „Verða settar skorður á Seðlabankann að tjá sig um verðlag í landinu?“ Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands segja engin ákvæði samkeppnislaga banna samtökum fyrirtækja þátttöku í opinberri umræðu. Það sé ekki úr lausu lofti gripið að verðhækkanir séu líklegar og það sé í raun óumflýjanlegt að hagsmunasamtök fyrirtækja láti sig verðlag í landinu varða. Viðskipti innlent 22.10.2021 18:25
Samkeppniseftirlitið slær á putta SA vegna ummæla Halldórs Samkeppniseftirlitið brýnir fyrir forsvarsmönnum hagsmunasamtaka að taka ekki þátt í umfjöllun um verðlagningu þar sem slíkt geti verið óheimilt samkvæmt samkeppnislögum. Viðskipti innlent 22.10.2021 13:44