Leigumarkaður Helsjúkur leigumarkaður í Reykjavík Við í Flokki fólksins viljum ræða leigumarkaðinn í Reykjavík á næsta borgarstjórnarfundi sem er 16. maí næstkomandi. Leiga er að sliga fjölmarga leigjendur sem eiga ekki krónu afgangs þegar búið er að greiða leigu og aðrar nauðsynjar. Grunnvandinn er húsnæðisskortur sem er mikill í Reykjavík. Það sárvantar húsnæði af öllu stærðum og gerðum. Skoðun 14.5.2023 07:00 Eignasöluferli Heimstaden gæti tekið fimm ár Leigufélagið Heimstaden er ekki á leiðinni af íslenskum fasteignamarkaði strax heldur er félagið einungis að skoða hvernig það eigi að minnka við sig. Að sögn tilvonandi framkvæmdastjóra félagsins á Íslandi er það eina sem hægt er að staðfesta að félagið muni ekki stækka við sig hér á landi. Viðskipti innlent 11.5.2023 17:27 Leigufélög enn spennandi fjárfesting þrátt fyrir brotthvarf Heimstaden Leigufélagið Heimstaden mun á næstu mánuðum minnka íbúðasafn sitt á Íslandi. Ástæðan mun vera sú að lífeyrissjóðir vildu ekki fjárfesta í félaginu. Að sögn framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs þýðir þetta ekki að leigufélög þyki minna spennandi vara fyrir fjárfesta. Viðskipti innlent 11.5.2023 11:52 Hartnær áttatíu prósent leigjenda ná ekki endum saman Sjötíu prósent íslenskumælandi leigjenda og áttatíu prósent enskumælandi eiga erfitt með að ná endum saman. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svörum við spurningum glænýrrar könnunar sem Samtök leigjenda standa að. Niðurstöðurnar sýna kolsvarta stöðu leigjenda á Íslandi. Innlent 11.5.2023 11:20 „Það er Alma sem slær tóninn og hinir elta“ Formaður Samtaka leigjenda segir ekki rétt að Alma leigufélag sé ekki verðleiðandi á leigumarkaði hér á landi. Alma slái tóninn með hækkunum og almennir leigusalar elti. Hann hvetur leigjendur hjá Ölmu til að hafna hækkunum félagsins. Innlent 10.5.2023 23:30 „Ómögulegt með nokkurri sanngirni að kalla slíka hækkun leiguokur“ Stjórnarformaður Ölmu íbúðafélags hf. segir félagið ekki vera hluta af húsnæðisvandanum, það sé frekar hluti af lausninni. Hann segir ósanngjarnt að ætla að einstök dæmi um miklar hækkanir á leiguverði eigi við um allan markaðinn. Viðskipti innlent 10.5.2023 11:11 Málsvörn leigusala Málefni Ölmu íbúðafélags hf. hafa nokkuð verið til umræðu síðustu mánuði og þá sérstaklega vangaveltur um verðlagningu á leigusamningum félagsins. Skoðun 10.5.2023 11:01 Rekin úr íbúðinni vegna smáhunds fósturdóttur sinnar Monika Macowska leigjandi er afar ósátt við hvernig staðið var að riftun leigusamnings hennar og á hvaða forsendum. Smáhundur sem hún fékk fyrir fósturdóttur sína sem er að eiga við áfallastreituröskun eftir alvarlegt áfall er uppgefin ástæða uppsagnarinnar. Innlent 7.5.2023 09:04 Framkvæmdastjóri Ölmu segir útburð allra síðasta úrræði leigusala Framkvæmdastjóri Ölmu leigufélags segir útburðarferli allra síðasta úrræðið sem leigusalar leiti til. Félagið geri allt sem í sínu valdi stendur til að koma til móts við leigutaka í greiðsluvanda. Af og frá sé að tveggja mánaða skuld verði til þess að fólk sé borið út. Umboðsmaður skuldara segir rétt kröfuhafa mikinn. Innlent 6.5.2023 12:27 „Ætli ég sofi ekki bara í bílnum“ Áttræður maður var á þriðjudaginn borinn út úr íbúð sinni sem hann hafði á leigu hjá Ölmu leigufélagi. Þar bjó hann ásamt hreyfihömluðum syni sínum en þeir eru nú á götunni að eigin sögn og vita ekki hvað tekur við. Innlent 4.5.2023 19:41 Kæru börn eruð þið alltaf að flytja? Það eru til forvarnir Kæru börn og unglingar, viti þið hvað það þýðir að leigja íbúð? Þegar þú leigir íbúð borgar þú peninga til eigandans svo þú getir átt heimili. Það gerir fólk að leigusala, en stundum dregur það fram það versta í fólki, þeir sem eiga eina eða fleiri íbúði notfærir sér fólk í neyð eins og foreldra þína til að græða óhóflega mikið. Skoðun 4.5.2023 14:00 „Sá hópur sem stendur langverst eru einstæðir foreldrar“ Niðurstöður könnunar Vörðu, rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, sýna að nærri helmingur fólks á erfitt með að ná endum saman og fjölgar nokkuð í hópnum milli ára. Einstæðir foreldrar og innflytjendur eru þeir hópar sem koma verst út úr könnuninni. Innlent 4.5.2023 10:11 Selja íbúðina til að bjarga dóttur sinni af „snargölnum leigumarkaði“ Lára Ómarsdóttir, fyrrverandi fréttakona, segir leigumarkaðinn hér á landi vera kominn út fyrir öll velsæmismörk. Dóttir Láru var í íbúðarleit en eftir að hafa séð hversu dýrt leiguhúsnæði er orðið ákvað Lára að selja eigin íbúð til að geta hjálpað dóttur sinni. Innlent 3.5.2023 14:17 Komst af leigumarkaðnum á Verkalýðsdaginn Leikkonan María Thelma Smáradóttir og hnefaleikakappinn Steinar Thors hafa fest kaup í þríbýlishúsi í Hafnarfirði sem þau ætla að taka í gegn. María Thelma fagnar því að vera ekki leigjandi lengur. Hún hafi losnað af leigumarkaðnum á sjálfan verkalýðsdeginum. Lífið 2.5.2023 15:37 Leigjandinn breytti íbúðinni í dópgreni Jóhannes Kristinn Hafsteinsson situr uppi með gífurlegt, og hugsanlega óbætanlegt, tjón vegna leigjanda sem bjó í íbúð hans í rúmlega hálft ár. Að sögn Jóhannesar tókst leigjandanum, og sambýlismanni hennar að rústa íbúðinni auk þess sem þar var stunduð fíkniefnasala. Innlent 29.4.2023 11:00 Fimmta hvert barn í leiguhúsnæði býr við sárafátækt Samtök leigjenda birtu nú á dögunum kolsvarta skýrslu um stöðuna á leigumarkaði og er vægast sagt dregin þar upp öllu nöturlegri mynd en við fáum yfirleitt að heyra. Skoðun 25.4.2023 16:00 Líklegra að læknast af ebólu en að komast af leigumarkaði Félagslegar hamfarir eru í uppsiglingu að mati formanns Leigjendasamtakanna en hann segir líklegra fyrir suma að læknast af ebólu en að komast af leigumarkaði. Samkvæmt nýrri úttekt samtakanna vill aðeins einn af hverjum tíu raunverulega vera á leigumarkaði og fjárfestar sópa til sín eignum með tilheyrandi afleiðingum. Grípa þurfi til raunverulegra aðgerða. Innlent 16.4.2023 21:00 Segir ráðuneytið reka fólk úr íbúðum svo leigja megi hælisleitendum Bæjarfulltrúi Umbótar í Reykjanesbæ segir bæinn vera kominn að þolmörkum þegar kemur að móttöku flóttafólks. Hún segir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið reka fólk úr íbúðum sínum svo leigja megi hælisleitendum þær. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja bæjarbúa ekki treysta yfirvöldum þegar kemur að málaflokknum. Innlent 6.4.2023 13:32 Leigusalar nýti sér slæma stöðu fólks til að græða Ekki er leyfi fyrir búsetu í leiguherbergjum við Funahöfða í Reykjavík, þar sem eldur kom upp í gær. Borgarfulltrúi segir að verið sé að nýta slæma stöðu leigjenda til að græða á þeim. Áratugur er síðan fjallað var um slæman aðbúnað í húsnæðinu. Innlent 5.4.2023 20:01 Húsaleiga hefur hækkað tvöfalt meira en verðlag, ..sem er furðu gott! Húsnæðis og mannvirkjastofnun birti í gær nýja mánaðarskýrslu um stöðuna á húsnæðismarkaði, einu mikilvægasta viðfangsefni samtímans. Í skýrslunni er dregin upp greining á stöðunni, bæði á leigu- og kaupendamarkaði. Sú greining sem kemur frá stofnunni gefur annað hvort tilefni til viðbragða stjórnvalda eða ekki og hefir því mikil áhrif. Það er þess vegna mikilvægt að greining og framsetning sé vel unnin og að ekki þurfi að efast um heilindi né tilgang í framsetningu. Skoðun 29.3.2023 09:01 Ríkið hreki leigjendur úr íbúðum á Suðurnesjum með yfirboðum Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ástandið á Suðurnesjum vera orðið ógnvænlegt og óbærilegt vegna aukins fjölda hælisleitenda, hræðslu og ógnandi umhverfis. Fjöldinn hafi þau áhrif að leigjendur á almennum markaði á Suðurnesjum hrekist úr íbúðum sínum þar sem Vinnumálastofnun yfirbjóði leiguna til að hægt sé að tryggja þeim húsnæði. Innlent 28.3.2023 14:10 Óli Björn boðar óbreytt ástand Aukinn ójöfnuður og neyðarástand á húsnæðismarkaði fer ekki framhjá neinum. Með þetta í huga er áhugavert að lesa hvaða lausnir Óli Björn Kárason hefur á vandanum í nýlegri grein1. Lausnir Óla virðast ekki vera aðrar en óbreytt ástand. Skoðun 10.3.2023 10:01 Milljón íbúða verkefnið Besta vopnið gegn verðbólgu og háum vöxtum er langtíma stöðugleiki á húsnæðismarkaði. Skoðun 9.3.2023 20:30 „Akkúrat ekkert“ sem réttlæti svona hátt leiguverð Formaður VR vakti í dag athygli á háu leiguverði fyrir þriggja herbergja íbúð í Reykjavík. Leiguverðið var 375 þúsund krónur. Formaður Samtaka leigjenda segir að ekkert geti réttlætt slíkt verð, það sé þó ekki einsdæmi. Innlent 2.3.2023 21:54 Leiguverð orðið hærra en lágmarkslaunin Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir stöðuna á húsnæðismarkaði orðna algerlega sturlaða. Hann bendir á nýlega auglýsingu, 3 herbergja íbúð sem boðin er til leigu á 375 þúsund krónur á mánuði. Innlent 2.3.2023 10:14 Tilgangurinn með húsnæðisstuðningi ekki að „fita leigufélögin“ Stjórnvöld hækkuðu ekki húsnæðisstuðning til að fita tiltekin leigufélög. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, í svari sínu við fyrirspurn sem Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar lagði fyrir hana á Alþingi í dag. Innlent 27.2.2023 17:23 Lífeyrissjóðir enn í viðræðum um kaup á hlut Heimstaden á Íslandi Sænska leigufélagið Heimstaden á enn í viðræðum við íslenska lífeyrissjóði um mögulega kaup þeirra á hlut í starfseminni á Íslandi og er stefnt að því að klára viðskiptin á fyrsta ársfjórðungi, að sögn framkvæmdastjóra félagsins á Íslandi. Innherji 21.2.2023 06:00 Láglaunafólk og leigumarkaðurinn Stærsti hluti láglaunafólks á Íslandi býr á leigumarkaði og hefur húsnæðiskostnaður þeirra aukist mikið umfram laun síðastliðinn áratug. Frá árinu 2011 hefur til dæmis álag húsaleigu á lágmarkslaun aukist að minnsta kosti um 15% þ.e. hlutfall lágmarkslauna sem fer í húsaleigu. Skoðun 6.2.2023 07:30 „Ég held að það muni algjörlega frysta markaðinn“ Vaxtaákvarðanir Seðlabankans hafa skilað árangri að sögn fasteignasala sem segir húsnæðisverð ekki fara hækkandi. Frekari vaxtahækkanir muni þó frysta markaðinn. Viðskipti innlent 28.1.2023 21:21 Staðan á húsnæðismarkaði hrikaleg Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir stöðu leigjenda hrikalega og það sé alfarið á ábyrgð Seðlabankans og stjórnvalda sem hafa algjörlega brugðist. Innlent 25.1.2023 11:53 « ‹ 2 3 4 5 6 7 8 9 … 9 ›
Helsjúkur leigumarkaður í Reykjavík Við í Flokki fólksins viljum ræða leigumarkaðinn í Reykjavík á næsta borgarstjórnarfundi sem er 16. maí næstkomandi. Leiga er að sliga fjölmarga leigjendur sem eiga ekki krónu afgangs þegar búið er að greiða leigu og aðrar nauðsynjar. Grunnvandinn er húsnæðisskortur sem er mikill í Reykjavík. Það sárvantar húsnæði af öllu stærðum og gerðum. Skoðun 14.5.2023 07:00
Eignasöluferli Heimstaden gæti tekið fimm ár Leigufélagið Heimstaden er ekki á leiðinni af íslenskum fasteignamarkaði strax heldur er félagið einungis að skoða hvernig það eigi að minnka við sig. Að sögn tilvonandi framkvæmdastjóra félagsins á Íslandi er það eina sem hægt er að staðfesta að félagið muni ekki stækka við sig hér á landi. Viðskipti innlent 11.5.2023 17:27
Leigufélög enn spennandi fjárfesting þrátt fyrir brotthvarf Heimstaden Leigufélagið Heimstaden mun á næstu mánuðum minnka íbúðasafn sitt á Íslandi. Ástæðan mun vera sú að lífeyrissjóðir vildu ekki fjárfesta í félaginu. Að sögn framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs þýðir þetta ekki að leigufélög þyki minna spennandi vara fyrir fjárfesta. Viðskipti innlent 11.5.2023 11:52
Hartnær áttatíu prósent leigjenda ná ekki endum saman Sjötíu prósent íslenskumælandi leigjenda og áttatíu prósent enskumælandi eiga erfitt með að ná endum saman. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svörum við spurningum glænýrrar könnunar sem Samtök leigjenda standa að. Niðurstöðurnar sýna kolsvarta stöðu leigjenda á Íslandi. Innlent 11.5.2023 11:20
„Það er Alma sem slær tóninn og hinir elta“ Formaður Samtaka leigjenda segir ekki rétt að Alma leigufélag sé ekki verðleiðandi á leigumarkaði hér á landi. Alma slái tóninn með hækkunum og almennir leigusalar elti. Hann hvetur leigjendur hjá Ölmu til að hafna hækkunum félagsins. Innlent 10.5.2023 23:30
„Ómögulegt með nokkurri sanngirni að kalla slíka hækkun leiguokur“ Stjórnarformaður Ölmu íbúðafélags hf. segir félagið ekki vera hluta af húsnæðisvandanum, það sé frekar hluti af lausninni. Hann segir ósanngjarnt að ætla að einstök dæmi um miklar hækkanir á leiguverði eigi við um allan markaðinn. Viðskipti innlent 10.5.2023 11:11
Málsvörn leigusala Málefni Ölmu íbúðafélags hf. hafa nokkuð verið til umræðu síðustu mánuði og þá sérstaklega vangaveltur um verðlagningu á leigusamningum félagsins. Skoðun 10.5.2023 11:01
Rekin úr íbúðinni vegna smáhunds fósturdóttur sinnar Monika Macowska leigjandi er afar ósátt við hvernig staðið var að riftun leigusamnings hennar og á hvaða forsendum. Smáhundur sem hún fékk fyrir fósturdóttur sína sem er að eiga við áfallastreituröskun eftir alvarlegt áfall er uppgefin ástæða uppsagnarinnar. Innlent 7.5.2023 09:04
Framkvæmdastjóri Ölmu segir útburð allra síðasta úrræði leigusala Framkvæmdastjóri Ölmu leigufélags segir útburðarferli allra síðasta úrræðið sem leigusalar leiti til. Félagið geri allt sem í sínu valdi stendur til að koma til móts við leigutaka í greiðsluvanda. Af og frá sé að tveggja mánaða skuld verði til þess að fólk sé borið út. Umboðsmaður skuldara segir rétt kröfuhafa mikinn. Innlent 6.5.2023 12:27
„Ætli ég sofi ekki bara í bílnum“ Áttræður maður var á þriðjudaginn borinn út úr íbúð sinni sem hann hafði á leigu hjá Ölmu leigufélagi. Þar bjó hann ásamt hreyfihömluðum syni sínum en þeir eru nú á götunni að eigin sögn og vita ekki hvað tekur við. Innlent 4.5.2023 19:41
Kæru börn eruð þið alltaf að flytja? Það eru til forvarnir Kæru börn og unglingar, viti þið hvað það þýðir að leigja íbúð? Þegar þú leigir íbúð borgar þú peninga til eigandans svo þú getir átt heimili. Það gerir fólk að leigusala, en stundum dregur það fram það versta í fólki, þeir sem eiga eina eða fleiri íbúði notfærir sér fólk í neyð eins og foreldra þína til að græða óhóflega mikið. Skoðun 4.5.2023 14:00
„Sá hópur sem stendur langverst eru einstæðir foreldrar“ Niðurstöður könnunar Vörðu, rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, sýna að nærri helmingur fólks á erfitt með að ná endum saman og fjölgar nokkuð í hópnum milli ára. Einstæðir foreldrar og innflytjendur eru þeir hópar sem koma verst út úr könnuninni. Innlent 4.5.2023 10:11
Selja íbúðina til að bjarga dóttur sinni af „snargölnum leigumarkaði“ Lára Ómarsdóttir, fyrrverandi fréttakona, segir leigumarkaðinn hér á landi vera kominn út fyrir öll velsæmismörk. Dóttir Láru var í íbúðarleit en eftir að hafa séð hversu dýrt leiguhúsnæði er orðið ákvað Lára að selja eigin íbúð til að geta hjálpað dóttur sinni. Innlent 3.5.2023 14:17
Komst af leigumarkaðnum á Verkalýðsdaginn Leikkonan María Thelma Smáradóttir og hnefaleikakappinn Steinar Thors hafa fest kaup í þríbýlishúsi í Hafnarfirði sem þau ætla að taka í gegn. María Thelma fagnar því að vera ekki leigjandi lengur. Hún hafi losnað af leigumarkaðnum á sjálfan verkalýðsdeginum. Lífið 2.5.2023 15:37
Leigjandinn breytti íbúðinni í dópgreni Jóhannes Kristinn Hafsteinsson situr uppi með gífurlegt, og hugsanlega óbætanlegt, tjón vegna leigjanda sem bjó í íbúð hans í rúmlega hálft ár. Að sögn Jóhannesar tókst leigjandanum, og sambýlismanni hennar að rústa íbúðinni auk þess sem þar var stunduð fíkniefnasala. Innlent 29.4.2023 11:00
Fimmta hvert barn í leiguhúsnæði býr við sárafátækt Samtök leigjenda birtu nú á dögunum kolsvarta skýrslu um stöðuna á leigumarkaði og er vægast sagt dregin þar upp öllu nöturlegri mynd en við fáum yfirleitt að heyra. Skoðun 25.4.2023 16:00
Líklegra að læknast af ebólu en að komast af leigumarkaði Félagslegar hamfarir eru í uppsiglingu að mati formanns Leigjendasamtakanna en hann segir líklegra fyrir suma að læknast af ebólu en að komast af leigumarkaði. Samkvæmt nýrri úttekt samtakanna vill aðeins einn af hverjum tíu raunverulega vera á leigumarkaði og fjárfestar sópa til sín eignum með tilheyrandi afleiðingum. Grípa þurfi til raunverulegra aðgerða. Innlent 16.4.2023 21:00
Segir ráðuneytið reka fólk úr íbúðum svo leigja megi hælisleitendum Bæjarfulltrúi Umbótar í Reykjanesbæ segir bæinn vera kominn að þolmörkum þegar kemur að móttöku flóttafólks. Hún segir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið reka fólk úr íbúðum sínum svo leigja megi hælisleitendum þær. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins segja bæjarbúa ekki treysta yfirvöldum þegar kemur að málaflokknum. Innlent 6.4.2023 13:32
Leigusalar nýti sér slæma stöðu fólks til að græða Ekki er leyfi fyrir búsetu í leiguherbergjum við Funahöfða í Reykjavík, þar sem eldur kom upp í gær. Borgarfulltrúi segir að verið sé að nýta slæma stöðu leigjenda til að græða á þeim. Áratugur er síðan fjallað var um slæman aðbúnað í húsnæðinu. Innlent 5.4.2023 20:01
Húsaleiga hefur hækkað tvöfalt meira en verðlag, ..sem er furðu gott! Húsnæðis og mannvirkjastofnun birti í gær nýja mánaðarskýrslu um stöðuna á húsnæðismarkaði, einu mikilvægasta viðfangsefni samtímans. Í skýrslunni er dregin upp greining á stöðunni, bæði á leigu- og kaupendamarkaði. Sú greining sem kemur frá stofnunni gefur annað hvort tilefni til viðbragða stjórnvalda eða ekki og hefir því mikil áhrif. Það er þess vegna mikilvægt að greining og framsetning sé vel unnin og að ekki þurfi að efast um heilindi né tilgang í framsetningu. Skoðun 29.3.2023 09:01
Ríkið hreki leigjendur úr íbúðum á Suðurnesjum með yfirboðum Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ástandið á Suðurnesjum vera orðið ógnvænlegt og óbærilegt vegna aukins fjölda hælisleitenda, hræðslu og ógnandi umhverfis. Fjöldinn hafi þau áhrif að leigjendur á almennum markaði á Suðurnesjum hrekist úr íbúðum sínum þar sem Vinnumálastofnun yfirbjóði leiguna til að hægt sé að tryggja þeim húsnæði. Innlent 28.3.2023 14:10
Óli Björn boðar óbreytt ástand Aukinn ójöfnuður og neyðarástand á húsnæðismarkaði fer ekki framhjá neinum. Með þetta í huga er áhugavert að lesa hvaða lausnir Óli Björn Kárason hefur á vandanum í nýlegri grein1. Lausnir Óla virðast ekki vera aðrar en óbreytt ástand. Skoðun 10.3.2023 10:01
Milljón íbúða verkefnið Besta vopnið gegn verðbólgu og háum vöxtum er langtíma stöðugleiki á húsnæðismarkaði. Skoðun 9.3.2023 20:30
„Akkúrat ekkert“ sem réttlæti svona hátt leiguverð Formaður VR vakti í dag athygli á háu leiguverði fyrir þriggja herbergja íbúð í Reykjavík. Leiguverðið var 375 þúsund krónur. Formaður Samtaka leigjenda segir að ekkert geti réttlætt slíkt verð, það sé þó ekki einsdæmi. Innlent 2.3.2023 21:54
Leiguverð orðið hærra en lágmarkslaunin Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir stöðuna á húsnæðismarkaði orðna algerlega sturlaða. Hann bendir á nýlega auglýsingu, 3 herbergja íbúð sem boðin er til leigu á 375 þúsund krónur á mánuði. Innlent 2.3.2023 10:14
Tilgangurinn með húsnæðisstuðningi ekki að „fita leigufélögin“ Stjórnvöld hækkuðu ekki húsnæðisstuðning til að fita tiltekin leigufélög. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, í svari sínu við fyrirspurn sem Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar lagði fyrir hana á Alþingi í dag. Innlent 27.2.2023 17:23
Lífeyrissjóðir enn í viðræðum um kaup á hlut Heimstaden á Íslandi Sænska leigufélagið Heimstaden á enn í viðræðum við íslenska lífeyrissjóði um mögulega kaup þeirra á hlut í starfseminni á Íslandi og er stefnt að því að klára viðskiptin á fyrsta ársfjórðungi, að sögn framkvæmdastjóra félagsins á Íslandi. Innherji 21.2.2023 06:00
Láglaunafólk og leigumarkaðurinn Stærsti hluti láglaunafólks á Íslandi býr á leigumarkaði og hefur húsnæðiskostnaður þeirra aukist mikið umfram laun síðastliðinn áratug. Frá árinu 2011 hefur til dæmis álag húsaleigu á lágmarkslaun aukist að minnsta kosti um 15% þ.e. hlutfall lágmarkslauna sem fer í húsaleigu. Skoðun 6.2.2023 07:30
„Ég held að það muni algjörlega frysta markaðinn“ Vaxtaákvarðanir Seðlabankans hafa skilað árangri að sögn fasteignasala sem segir húsnæðisverð ekki fara hækkandi. Frekari vaxtahækkanir muni þó frysta markaðinn. Viðskipti innlent 28.1.2023 21:21
Staðan á húsnæðismarkaði hrikaleg Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir stöðu leigjenda hrikalega og það sé alfarið á ábyrgð Seðlabankans og stjórnvalda sem hafa algjörlega brugðist. Innlent 25.1.2023 11:53