Kvika banki Fjárfestarnir sem veðjuðu á Alvotech – og eygja von um að hagnast ævintýralega Þegar ljóst varð fyrir mánuði að samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir stærstu lyf Alvotech væri nánast í höfn áttu íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt vel undir þriggja prósenta hlut í þessu langsamlega verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni – og höfðu þá engir nýir sjóðir bæst í hluthafahópinn frá því að FDA setti félaginu stólinn fyrir dyrnar tíu mánuðum áður. Risastór veðmál sumra sjóðastýringarfélaga á Alvotech, með því að halda stöðu sinni við krefjandi markaðsaðstæður og jafnvel bæta við hana, hefur skilað sjóðum þeirra nærri hundrað prósenta ávöxtun síðustu mánuði á meðan önnur mátu áhættuna of mikla og losuðu um hlut sinn, eins og greining Innherja á umfangi innlendra fagfjárfesta sem eiga bréf í Alvotech skráð hér heima leiðir í ljós. Innherji 21.2.2024 17:34 Á von á meiri erlendri fjárfestingu í ríkisbréf ef vaxtamunurinn „þrengist ekki“ Þrátt fyrir tugmilljarða innflæði fjármagns í íslensk ríkisskuldabréf síðustu mánuði þá hefði mátt reikna með að það yrði enn meira frá því að vaxtahækkunarferli Seðlabankans hófst, að sögn aðalhagfræðings Kviku banka, en fá dæmi eru um vestræn ríki þar sem skuldabréfafjárfestar geta komist í jafn háa vexti. Ef vaxtamunur Íslands við útlönd minnkar ekki að ráði er líklegt að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum hér á landi, sem er umtalsvert minni borið saman við önnur þróuð hagkerfi, muni halda áfram að aukast. Innherji 20.2.2024 16:13 Um hagnað bankanna Í hönd fer senn uppgjörstímabil skráðra félaga. Jafnan verður það tilefni til umræðu um afkomu banka líkt og annarra fyrirtækja. Skoðun 31.1.2024 15:01 Sagan sýnir að annað eins bætist við kjarasamninga í formi launaskriðs Aðalhagfræðingur Kviku bendir á að þótt samið yrði um almenna krónutöluhækkun launa í yfirstandi kjarasamningum, sem gæti virst hófstillt, sýnir sagan að ofan á hana leggist síðan annað eins í formi launaskriðs. Hann telur jafnframt að jafnvel þótt kjarasamningar verði hófstilltir gæti Seðlabankinn viljað sjá skýr merki um hjöðnun verðbólgunnar áður en stóru skrefin verða stigin til að minnka vaxtaaðhaldið. Innherji 30.1.2024 11:52 Ráðinn aðalhagfræðingur Kviku banka Hafsteinn Hauksson hefur tekið við starfi aðalhagfræðings Kviku. Viðskipti innlent 18.1.2024 10:19 Straumur frá Rapyd til Adyen Straumur, íslenskt fyrirtæki í greiðslumiðlun og dótturfélag Kviku banka, hefur skrifað undir samstarfssamning við fjártæknifyrirtækið Adyen um færsluhirðingu og vöruþróun á sviði fjártækni. Viðskipti innlent 4.1.2024 08:28 Nokkur óskuldbindandi tilboð gerð í TM Nokkur óskuldbindandi tilboð hafa borist Kviku í hlutabréf TM, bæði í félagið í heild og að hluta. Fjórum aðilum hefur verið boðið að halda áfram í söluferlinu. Viðskipti innlent 22.12.2023 12:53 Kvika á mikið inni, segir greinandi Kvika á mikið inni, að sögn hlutabréfagreinenda sem metur bankann um 23 prósentum yfir markaðsvirði, en gengi bréfa bankans hefur hækkað um fimmtung á einum mánuði. „Það er von á hraustlegri arðgreiðslu eða endurkaupum,“ segir í verðmati um væntanlega sölu á TM. Innherji 21.12.2023 12:22 Ólöf kveður Kviku og heilsar Íslandsbanka Ólöf Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Einstaklingssviðs Íslandsbanka. Hún hefur undanfarið verið framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kviku banka. Viðskipti innlent 18.12.2023 08:20 Gunnar segir skilið við Kviku Gunnar Sigurðsson hefur óskað eftir að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Kviku Securities Ltd. í London (KSL), dótturfélags Kviku banka hf. Stjórn hefur ráðið Richard Beenstock sem nýjan framkvæmdastjóra. Viðskipti innlent 7.12.2023 10:43 Krefja Grindvíkinga ekki um afborganir í bili Stóru viðskiptabankarnir þrír bjóða Grindvíkingum allir upp á frystingu húsnæðislána vegna þeirrar stöðu sem uppi er í bænum. Fryst húsnæðislán safna þó vöxtum og verðbótum. Viðskipti innlent 14.11.2023 12:26 Aur gefur út debetkort með endurgreiðslu Aur, sem er í eigu Kviku, hefur opnað nýja bankaþjónustu og fullyrðir bankinn að boðið sé upp á bestu kjörin á debetkortum. Debetkortin eru án allra gjalda og þau fyrstu með endurgreiðslu, að því er segir í tilkynningu frá Kviku. Neytendur njóta ávinningsins af lítilli yfirbyggingu og snjöllum tæknilausnum, segir forstjóri Kviku. Viðskipti innlent 7.11.2023 10:23 Fjárfestar með „augun á baksýnisspeglinum“ og sjá ekki tækifæri Kviku Fjárfestar eru með „augun á baksýnisspeglinum“ gagnvart Kviku, þar sem þeir horfa framhjá tækifærum til sóknar á bankamarkaði eftir mikla fjárfestingu í fjártæknilausnum, og hratt lækkandi markaðsvirði bankans endurspeglar nú „engan veginn“ undirliggjandi virði í eignum félagsins, að mati vogunarsjóðsstjóra sem hefur byggt upp stöðu í bankanum. Þá segir hann Sýn vera „eitt undirverðlagðasta félagið“ á markaði um þessar mundir og metur mögulegt virði auglýsingamiðla fyrirtækisins á um eða yfir fimm milljarða. Innherji 6.11.2023 18:33 Skoða „ýmsar leiðir“ til að bæta afkomu Kviku af starfseminni í Bretlandi Erfiðar aðstæður á mörkuðum halda áfram að setja mark sitt á afkomu Kviku og minnkuðu tekjur af kjarnarekstri um liðlega 14 prósent á þriðja fjórðungi en framvirka bókin hjá bankanum er „miklu minni“ en áður sem hefur talsverð neikvæð áhrif á tekjumyndun, að sögn bankastjórans. Framlegðin af starfsemi Ortus í Bretlandi, sem hefur valdið vonbrigðum frá kaupunum í ársbyrjun 2022, ætti að halda áfram að batna með væntingum um hækkandi vaxtamun og verið sé að skoða „ýmsar leiðir“ til að bæta fjármögnunarkostnað félagsins. Innherji 3.11.2023 11:49 Kristján er nýr regluvörður Kviku banka Kristján Valdimarsson hefur verið ráðinn í starf regluvarðar Kviku banka. Kristján tekur við starfinu af Ernu Heiðrúnu Jónsdóttur sem hefur tekið við sem ritari stjórnar bankans og mun starfa á lögfræðisviði. Regluvörður heyrir undir forstjóra bankans. Viðskipti innlent 3.11.2023 09:47 Kvika hagnast um tæpa fjóra milljarða Hagnaður Kviku banka fyrir skatta nam 3.742 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2023. Heildareignir námu 328 milljörðum og eigið fé samstæðunnar voru 80 milljarðar króna. Viðskipti innlent 2.11.2023 19:45 Verðlagning margra skráðra félaga „með því lægra sem sést hefur í langan tíma“ Verðlagning margra fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöllinni eru með því lægra sem sést hefur í langan tíma, að sögn vogunarsjóðsstjóra, en frá ársbyrjun 2022 hefur ávöxtun hlutabréfamarkaðarins að teknu tilliti til verðbólgu verið neikvæð um meira en fimmtíu prósent. Verðkennitölur banka gefi til kynna að horfur í rekstri fari versnandi, sem standist illa skoðun, og þá séu horfur í smásölu bjartari eftir erfiða átján mánuði og „verðlagning þar farin að verða áhugaverð.“ Innherji 2.11.2023 18:20 Marinó tekur við Mílu af Marion Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka, hefur verið kjörinn stjórnarformaður Mílu. Hann tekur við hlutverkinu af Marion Calcine, sem sinnti hlutverkinu tímabundið en situr áfram í stjórn félagsins. Viðskipti innlent 26.10.2023 09:10 „Kreppuhundur“ gelti ekki á Breta heldur sýndi hagkerfið viðnámsþrótt Breska hagkerfið hefur sýnt meiri viðnámsþrótt en búist var við. „Þessi kreppuhundur sem fólk bjóst við að myndi gelta hefur þagað,“ segir hagfræðingur Kviku Securities í Bretlandi. Það skýrist annars vegar af því að verðbólguvandi hafi verið rangt greindur og hins vegar að hagkerfið var vel í stakk búið að standa af sér áföll. Innherji 6.10.2023 13:47 Það sé hluthöfum Kviku til hagsbóta að selja TM úr samstæðunni Eftir mikla lækkun á hlutabréfaverði Kviku að undanförnu er ljóst að TM er orðið verulega undirverðlagt innan samstæðu bankans og því eru það hagsmunir hluthafa að selja eininguna frá sér, að sögn greinanda á markaði, en líklegustu kaupendurnir verða að teljast Íslandsbanki og Landsbankinn. Sé litið á efnislegt eigið fé TM er markaðsvirði félagsins, miðað verðlagningu hinna tryggingafélaganna á markaði, líklega nokkuð vel undir 30 milljörðum um þessar mundir. Innherji 5.10.2023 14:36 Elísabet nýr framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku Elísabet G. Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku banka og tekur sæti í framkvæmdastjórn bankans. Viðskipti innlent 4.10.2023 19:21 Kvika boðar sölu á TM og vill styrkja „verulega“ bankastarfsemina Aðeins 30 mánuðum eftir að Kvika og TM sameinuðust formlega hefur stjórn bankans ákveðið að hefja undirbúning að sölu eða skráningu á tryggingafélaginu, sem hefur verið sagt líklega hið „ódýrasta“ á markaði, en tekjusamlegð af bankastarfsemi og tryggingarrekstri hefur reynst „takmörkuð.“ Horft er til þess að greiða út stóran hluta söluandvirðis til hluthafa en bæði greinendur og stórir hluthafar höfðu hvatt Kviku til að skoða sölu eigna með hliðsjón af því að markaðsgengi bankans væri undir upplausnarvirði. Innherji 3.10.2023 21:06 Kvika stefnir á sölu eða skráningu TM Í framhaldi af stefnumótunarvinnu Kviku banka hefur stjórn Kviku tekið ákvörðun um að hefja undirbúning að sölu eða skráningu TM trygginga hf.. Viðskipti innlent 3.10.2023 19:23 Ódýrasta tryggingafélagið á hlutabréfamarkaði sé „líklega“ TM Markaðsvirði Sjóvár og VÍS er næstum tvöfalt á við bókfært virði eigin fjár á meðan fjárfestar verðleggja Kviku, sem á TM, á tæplega bókfært eigið fé. „Þetta er sérstaklega athyglisvert því að rekstur TM er stór hluti“ í rekstri bankans, segir í hlutabréfagreiningu, og TM sé því „líklega“ ódýrasta tryggingafélagið á markaðinum. Innherji 26.9.2023 13:01 Hagnaður Kviku eignastýringar minnkaði um nærri tvo þriðju milli ára Afkoma Kviku eignastýringar, sem er í eigu samnefnds banka, versnaði verulega á fyrstu sex mánuðum ársins frá fyrra ári samhliða erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum. Samanlagður hagnaður fjögurra stærstu sjóðastýringarfélaga landsins minnkaði um liðlega tíu prósent á tímabilinu. Innherji 24.9.2023 17:48 Kvika ræðst í hagræðingu og segir upp á annan tug starfsmanna Innan við einum mánuði eftir innkomu Ármanns Þorvaldssonar sem nýs bankastjóra Kviku hefur bankinn ráðist í uppsagnir þvert á svið samstæðunnar. Stöðugildum innan bankans var þannig fækkað um liðlega fjögur prósent í aðgerðum dagsins í dag sé tekið mið af heildarstarfsmannafjölda félagsins, samkvæmt upplýsingum Innherja. Innherji 12.9.2023 19:06 Sigurður Hreiðar stýrir verðbréfamiðlun Íslandsbanka Sigurður Hreiðar Jónsson, sem hefur starfað um skamma hríð hjá Kviku banka, hefur verið ráðinn forstöðumaður verðbréfamiðlunar Íslandsbanka, samkvæmt upplýsingum Innherja. Innherji 7.9.2023 17:28 Viðbrögðin við Íslandsbankasáttinni úr öllu hófi Marinó Örn Tryggvason, sem lét nýlega af störfum sem forstjóri Kviku banka, segir að sér þyki samfélagið hafa farið ósanngjörnum höndum um stjórnendur Íslandsbanka í kjölfar þess að sátt Fjármálaeftirlitsins við bankann var opinberuð. Viðbrögðin hafi verið úr öllu hófi. Viðskipti innlent 6.9.2023 13:55 Forstjóri Kviku mun ekki hafa frumkvæði að sameiningu við stóran banka Nýr bankastjóri Kviku hefur ekki hug á því að endurvekja samrunaviðræður við Íslandsbanka og telur að sameining við einn af stóru bönkunum myndi kalla á yfirtökuálag fyrir hluthafa Kviku miðað við núverandi markaðsgengi eigi það að vera raunhæfur kostur, segir hann í viðtali við Innherja. Bankinn mun í framhaldinu jafnframt ekki eiga frumkvæði að því að skoða viðræður við Arion eða VÍS en forstjóri Kviku segist vilja fara í öfluga samkeppni við stóru viðskiptabankanna. Innherji 31.8.2023 07:06 Thomas Skov lætur af störfum hjá Kviku Thomas Skov Jensen, framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku banka, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta kemur fram í tilkynningu bankans til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 30.8.2023 20:41 « ‹ 1 2 3 4 5 … 5 ›
Fjárfestarnir sem veðjuðu á Alvotech – og eygja von um að hagnast ævintýralega Þegar ljóst varð fyrir mánuði að samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir stærstu lyf Alvotech væri nánast í höfn áttu íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt vel undir þriggja prósenta hlut í þessu langsamlega verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni – og höfðu þá engir nýir sjóðir bæst í hluthafahópinn frá því að FDA setti félaginu stólinn fyrir dyrnar tíu mánuðum áður. Risastór veðmál sumra sjóðastýringarfélaga á Alvotech, með því að halda stöðu sinni við krefjandi markaðsaðstæður og jafnvel bæta við hana, hefur skilað sjóðum þeirra nærri hundrað prósenta ávöxtun síðustu mánuði á meðan önnur mátu áhættuna of mikla og losuðu um hlut sinn, eins og greining Innherja á umfangi innlendra fagfjárfesta sem eiga bréf í Alvotech skráð hér heima leiðir í ljós. Innherji 21.2.2024 17:34
Á von á meiri erlendri fjárfestingu í ríkisbréf ef vaxtamunurinn „þrengist ekki“ Þrátt fyrir tugmilljarða innflæði fjármagns í íslensk ríkisskuldabréf síðustu mánuði þá hefði mátt reikna með að það yrði enn meira frá því að vaxtahækkunarferli Seðlabankans hófst, að sögn aðalhagfræðings Kviku banka, en fá dæmi eru um vestræn ríki þar sem skuldabréfafjárfestar geta komist í jafn háa vexti. Ef vaxtamunur Íslands við útlönd minnkar ekki að ráði er líklegt að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum hér á landi, sem er umtalsvert minni borið saman við önnur þróuð hagkerfi, muni halda áfram að aukast. Innherji 20.2.2024 16:13
Um hagnað bankanna Í hönd fer senn uppgjörstímabil skráðra félaga. Jafnan verður það tilefni til umræðu um afkomu banka líkt og annarra fyrirtækja. Skoðun 31.1.2024 15:01
Sagan sýnir að annað eins bætist við kjarasamninga í formi launaskriðs Aðalhagfræðingur Kviku bendir á að þótt samið yrði um almenna krónutöluhækkun launa í yfirstandi kjarasamningum, sem gæti virst hófstillt, sýnir sagan að ofan á hana leggist síðan annað eins í formi launaskriðs. Hann telur jafnframt að jafnvel þótt kjarasamningar verði hófstilltir gæti Seðlabankinn viljað sjá skýr merki um hjöðnun verðbólgunnar áður en stóru skrefin verða stigin til að minnka vaxtaaðhaldið. Innherji 30.1.2024 11:52
Ráðinn aðalhagfræðingur Kviku banka Hafsteinn Hauksson hefur tekið við starfi aðalhagfræðings Kviku. Viðskipti innlent 18.1.2024 10:19
Straumur frá Rapyd til Adyen Straumur, íslenskt fyrirtæki í greiðslumiðlun og dótturfélag Kviku banka, hefur skrifað undir samstarfssamning við fjártæknifyrirtækið Adyen um færsluhirðingu og vöruþróun á sviði fjártækni. Viðskipti innlent 4.1.2024 08:28
Nokkur óskuldbindandi tilboð gerð í TM Nokkur óskuldbindandi tilboð hafa borist Kviku í hlutabréf TM, bæði í félagið í heild og að hluta. Fjórum aðilum hefur verið boðið að halda áfram í söluferlinu. Viðskipti innlent 22.12.2023 12:53
Kvika á mikið inni, segir greinandi Kvika á mikið inni, að sögn hlutabréfagreinenda sem metur bankann um 23 prósentum yfir markaðsvirði, en gengi bréfa bankans hefur hækkað um fimmtung á einum mánuði. „Það er von á hraustlegri arðgreiðslu eða endurkaupum,“ segir í verðmati um væntanlega sölu á TM. Innherji 21.12.2023 12:22
Ólöf kveður Kviku og heilsar Íslandsbanka Ólöf Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Einstaklingssviðs Íslandsbanka. Hún hefur undanfarið verið framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kviku banka. Viðskipti innlent 18.12.2023 08:20
Gunnar segir skilið við Kviku Gunnar Sigurðsson hefur óskað eftir að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Kviku Securities Ltd. í London (KSL), dótturfélags Kviku banka hf. Stjórn hefur ráðið Richard Beenstock sem nýjan framkvæmdastjóra. Viðskipti innlent 7.12.2023 10:43
Krefja Grindvíkinga ekki um afborganir í bili Stóru viðskiptabankarnir þrír bjóða Grindvíkingum allir upp á frystingu húsnæðislána vegna þeirrar stöðu sem uppi er í bænum. Fryst húsnæðislán safna þó vöxtum og verðbótum. Viðskipti innlent 14.11.2023 12:26
Aur gefur út debetkort með endurgreiðslu Aur, sem er í eigu Kviku, hefur opnað nýja bankaþjónustu og fullyrðir bankinn að boðið sé upp á bestu kjörin á debetkortum. Debetkortin eru án allra gjalda og þau fyrstu með endurgreiðslu, að því er segir í tilkynningu frá Kviku. Neytendur njóta ávinningsins af lítilli yfirbyggingu og snjöllum tæknilausnum, segir forstjóri Kviku. Viðskipti innlent 7.11.2023 10:23
Fjárfestar með „augun á baksýnisspeglinum“ og sjá ekki tækifæri Kviku Fjárfestar eru með „augun á baksýnisspeglinum“ gagnvart Kviku, þar sem þeir horfa framhjá tækifærum til sóknar á bankamarkaði eftir mikla fjárfestingu í fjártæknilausnum, og hratt lækkandi markaðsvirði bankans endurspeglar nú „engan veginn“ undirliggjandi virði í eignum félagsins, að mati vogunarsjóðsstjóra sem hefur byggt upp stöðu í bankanum. Þá segir hann Sýn vera „eitt undirverðlagðasta félagið“ á markaði um þessar mundir og metur mögulegt virði auglýsingamiðla fyrirtækisins á um eða yfir fimm milljarða. Innherji 6.11.2023 18:33
Skoða „ýmsar leiðir“ til að bæta afkomu Kviku af starfseminni í Bretlandi Erfiðar aðstæður á mörkuðum halda áfram að setja mark sitt á afkomu Kviku og minnkuðu tekjur af kjarnarekstri um liðlega 14 prósent á þriðja fjórðungi en framvirka bókin hjá bankanum er „miklu minni“ en áður sem hefur talsverð neikvæð áhrif á tekjumyndun, að sögn bankastjórans. Framlegðin af starfsemi Ortus í Bretlandi, sem hefur valdið vonbrigðum frá kaupunum í ársbyrjun 2022, ætti að halda áfram að batna með væntingum um hækkandi vaxtamun og verið sé að skoða „ýmsar leiðir“ til að bæta fjármögnunarkostnað félagsins. Innherji 3.11.2023 11:49
Kristján er nýr regluvörður Kviku banka Kristján Valdimarsson hefur verið ráðinn í starf regluvarðar Kviku banka. Kristján tekur við starfinu af Ernu Heiðrúnu Jónsdóttur sem hefur tekið við sem ritari stjórnar bankans og mun starfa á lögfræðisviði. Regluvörður heyrir undir forstjóra bankans. Viðskipti innlent 3.11.2023 09:47
Kvika hagnast um tæpa fjóra milljarða Hagnaður Kviku banka fyrir skatta nam 3.742 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2023. Heildareignir námu 328 milljörðum og eigið fé samstæðunnar voru 80 milljarðar króna. Viðskipti innlent 2.11.2023 19:45
Verðlagning margra skráðra félaga „með því lægra sem sést hefur í langan tíma“ Verðlagning margra fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöllinni eru með því lægra sem sést hefur í langan tíma, að sögn vogunarsjóðsstjóra, en frá ársbyrjun 2022 hefur ávöxtun hlutabréfamarkaðarins að teknu tilliti til verðbólgu verið neikvæð um meira en fimmtíu prósent. Verðkennitölur banka gefi til kynna að horfur í rekstri fari versnandi, sem standist illa skoðun, og þá séu horfur í smásölu bjartari eftir erfiða átján mánuði og „verðlagning þar farin að verða áhugaverð.“ Innherji 2.11.2023 18:20
Marinó tekur við Mílu af Marion Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka, hefur verið kjörinn stjórnarformaður Mílu. Hann tekur við hlutverkinu af Marion Calcine, sem sinnti hlutverkinu tímabundið en situr áfram í stjórn félagsins. Viðskipti innlent 26.10.2023 09:10
„Kreppuhundur“ gelti ekki á Breta heldur sýndi hagkerfið viðnámsþrótt Breska hagkerfið hefur sýnt meiri viðnámsþrótt en búist var við. „Þessi kreppuhundur sem fólk bjóst við að myndi gelta hefur þagað,“ segir hagfræðingur Kviku Securities í Bretlandi. Það skýrist annars vegar af því að verðbólguvandi hafi verið rangt greindur og hins vegar að hagkerfið var vel í stakk búið að standa af sér áföll. Innherji 6.10.2023 13:47
Það sé hluthöfum Kviku til hagsbóta að selja TM úr samstæðunni Eftir mikla lækkun á hlutabréfaverði Kviku að undanförnu er ljóst að TM er orðið verulega undirverðlagt innan samstæðu bankans og því eru það hagsmunir hluthafa að selja eininguna frá sér, að sögn greinanda á markaði, en líklegustu kaupendurnir verða að teljast Íslandsbanki og Landsbankinn. Sé litið á efnislegt eigið fé TM er markaðsvirði félagsins, miðað verðlagningu hinna tryggingafélaganna á markaði, líklega nokkuð vel undir 30 milljörðum um þessar mundir. Innherji 5.10.2023 14:36
Elísabet nýr framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku Elísabet G. Björnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku banka og tekur sæti í framkvæmdastjórn bankans. Viðskipti innlent 4.10.2023 19:21
Kvika boðar sölu á TM og vill styrkja „verulega“ bankastarfsemina Aðeins 30 mánuðum eftir að Kvika og TM sameinuðust formlega hefur stjórn bankans ákveðið að hefja undirbúning að sölu eða skráningu á tryggingafélaginu, sem hefur verið sagt líklega hið „ódýrasta“ á markaði, en tekjusamlegð af bankastarfsemi og tryggingarrekstri hefur reynst „takmörkuð.“ Horft er til þess að greiða út stóran hluta söluandvirðis til hluthafa en bæði greinendur og stórir hluthafar höfðu hvatt Kviku til að skoða sölu eigna með hliðsjón af því að markaðsgengi bankans væri undir upplausnarvirði. Innherji 3.10.2023 21:06
Kvika stefnir á sölu eða skráningu TM Í framhaldi af stefnumótunarvinnu Kviku banka hefur stjórn Kviku tekið ákvörðun um að hefja undirbúning að sölu eða skráningu TM trygginga hf.. Viðskipti innlent 3.10.2023 19:23
Ódýrasta tryggingafélagið á hlutabréfamarkaði sé „líklega“ TM Markaðsvirði Sjóvár og VÍS er næstum tvöfalt á við bókfært virði eigin fjár á meðan fjárfestar verðleggja Kviku, sem á TM, á tæplega bókfært eigið fé. „Þetta er sérstaklega athyglisvert því að rekstur TM er stór hluti“ í rekstri bankans, segir í hlutabréfagreiningu, og TM sé því „líklega“ ódýrasta tryggingafélagið á markaðinum. Innherji 26.9.2023 13:01
Hagnaður Kviku eignastýringar minnkaði um nærri tvo þriðju milli ára Afkoma Kviku eignastýringar, sem er í eigu samnefnds banka, versnaði verulega á fyrstu sex mánuðum ársins frá fyrra ári samhliða erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum. Samanlagður hagnaður fjögurra stærstu sjóðastýringarfélaga landsins minnkaði um liðlega tíu prósent á tímabilinu. Innherji 24.9.2023 17:48
Kvika ræðst í hagræðingu og segir upp á annan tug starfsmanna Innan við einum mánuði eftir innkomu Ármanns Þorvaldssonar sem nýs bankastjóra Kviku hefur bankinn ráðist í uppsagnir þvert á svið samstæðunnar. Stöðugildum innan bankans var þannig fækkað um liðlega fjögur prósent í aðgerðum dagsins í dag sé tekið mið af heildarstarfsmannafjölda félagsins, samkvæmt upplýsingum Innherja. Innherji 12.9.2023 19:06
Sigurður Hreiðar stýrir verðbréfamiðlun Íslandsbanka Sigurður Hreiðar Jónsson, sem hefur starfað um skamma hríð hjá Kviku banka, hefur verið ráðinn forstöðumaður verðbréfamiðlunar Íslandsbanka, samkvæmt upplýsingum Innherja. Innherji 7.9.2023 17:28
Viðbrögðin við Íslandsbankasáttinni úr öllu hófi Marinó Örn Tryggvason, sem lét nýlega af störfum sem forstjóri Kviku banka, segir að sér þyki samfélagið hafa farið ósanngjörnum höndum um stjórnendur Íslandsbanka í kjölfar þess að sátt Fjármálaeftirlitsins við bankann var opinberuð. Viðbrögðin hafi verið úr öllu hófi. Viðskipti innlent 6.9.2023 13:55
Forstjóri Kviku mun ekki hafa frumkvæði að sameiningu við stóran banka Nýr bankastjóri Kviku hefur ekki hug á því að endurvekja samrunaviðræður við Íslandsbanka og telur að sameining við einn af stóru bönkunum myndi kalla á yfirtökuálag fyrir hluthafa Kviku miðað við núverandi markaðsgengi eigi það að vera raunhæfur kostur, segir hann í viðtali við Innherja. Bankinn mun í framhaldinu jafnframt ekki eiga frumkvæði að því að skoða viðræður við Arion eða VÍS en forstjóri Kviku segist vilja fara í öfluga samkeppni við stóru viðskiptabankanna. Innherji 31.8.2023 07:06
Thomas Skov lætur af störfum hjá Kviku Thomas Skov Jensen, framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku banka, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta kemur fram í tilkynningu bankans til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 30.8.2023 20:41