Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Segir Menntamálastofnun ekki hafa ráðið við stafræn samræmd próf „Menntamálastofnun réð ekki við framkvæmdina þrátt fyrir að við værum búin að aðstoða þá, koma með leiðbeiningar og tillögur að framkvæmd um hvernig væri hægt að gera þetta – þær bara gengu ekki upp.“ Innlent 25.7.2024 06:41 Þrettán vilja stýra ráðuneyti Svandísar Þrettán umsækjendur eru um embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins sem auglýst var um miðjan júní sl. en umsóknarfrestur rann út 19. júlí. Innlent 24.7.2024 15:21 Röng skilaboð að Yaris borgi það sama og stór jeppi Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að flatt kílómetragjald sem lagt er til á alla bíla undir 3,5 tonnum, sé ósanngjarnt. Það séu röng skilaboð til almennings að minni bílar sem mengi minna og slíti vegum minna, borgi það sama og stærri jeppar og pallbílar. Einnig þurfi að ræða gjaldtöku á þungu atvinnubílunum, en ef fram fer sem horfir mun gífurlegur kostnaður leggjast á landsbyggðina. Innlent 23.7.2024 20:35 Málflutningur Viðskiptaráðs óásættanlegur Menntamálaráðherra segir málflutning Viðskiptaráðs, um starfsfólk menntakerfisins óásættanlegan og hjákátlegan. Ráðið segir Kennarasamband Íslands hafa leitt málaflokkinn í öngstræti og hvetur stjórnvöld til að taka fyrir frekari afskipti sambandsins. Innlent 22.7.2024 12:00 Mikill meirihluti landsmanna mótfallinn sjókvíaeldi Í nýrri könnun Gallups kemur fram að rúm sextíu og fimm prósent þjóðarinnar er andsnúin sjókvíaeldi meðan tæp fjórtán prósent eru jákvæð. Innlent 22.7.2024 11:25 Landtöku Ísraela skuli hætt Utanríkisráðuneytið kallar eftir því í tilkynningu að Ísraelar láti af landtöku í Palestínu. Innlent 21.7.2024 10:46 Á undan áætlun í ríkisfjármálum Í nýbirtum ríkisreikningi fyrir árið 2023 kemur fram að heildarafkoma ríkissjóðs hafi verið um 100 milljörðum króna betri en gert hafði verið ráð fyrir í fjárlögum, það er að segja 20 milljarða halli í stað 120. Þar segir einnig að frumjöfnuður, með öðrum orðum afkoma ríkissjóðs án tillits til vaxtagjalda og -tekna, var jákvæður um 78 milljarða. Skoðun 20.7.2024 09:00 Umræða um ábyrgð starfsfólks MAST eigi ekki rétt á sér Matvælaráðherra segir umræðu um persónulega ábyrgð starfsfólks Matvælastofnunar á veitingu rekstrarleyfis til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi ekki eiga rétt á sér. Innlent 19.7.2024 16:56 Bjarni fór á fund konungs Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fór á fund Karls III Bretakonungs að loknum fundi Evrópuleiðtoga í Blenheimhöll. Karl Bretakonungur bauð leiðtogum til móttöku í höllinni. Innlent 19.7.2024 14:56 Búseturétthafar í Grindavík losna undan samningum Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ákveðið að styrkja búseturétthafa í Grindavík um 95 prósent af framreiknuðu búseturéttargjaldi þeirra. Búseturétthöfum í um þrjátíu íbúðum í bænum stendur nú til boða að losna undan samningi án uppsagnarfrestar. Innlent 15.7.2024 16:28 Utanríkisráðherra segir árásina hörmulega Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur bæst í hóp þeirra stjórnmálamanna sem fordæmt hafa árásina á Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í gær. Innlent 14.7.2024 15:18 Bjarni segir atburði gærkvöldsins átakanlega Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra Íslands, fordæmir skotárás sem beindist gegn Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem var framin í gær. Erlent 14.7.2024 11:37 Óttast að olíufélögin hækki álagningu Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að sterkt aðhald þurfi gagnvart því að tryggja að álagning á eldsneyti hækki ekki þegar bensín- og díselgjöld verða afnumin á næsta ári. Til stendur að leggja kílómetragjald á bensín- og díselbíla á næsta ári, en fella brott bensín- og olíugjöld sem greidd eru við kaup á jarðefnaeldsneyti. Í frumvarpsdrögunum stendur einnig til að hækka kolefnisgjaldið sem leggst á bensín- og díselbíla. Innlent 12.7.2024 21:22 Leggja kílómetragjald á bensín- og olíubíla Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur kynnt til samráðs mál um að kílómetragjald verði tekið upp fyrir bensín- og olíubíla. Gjaldið var lagt á rafmagns, tengiltvinnbíla, og vetnisbíla um síðustu áramót. Kílómetragjaldið á að koma í stað olíu- og bensíngjalda, sem nú eru greidd við kaup á jarðefnaeldsneyti. Áformað er að olíu- og bensíngjöld verði felld brott. Innlent 11.7.2024 18:50 Stjórnsýslufræðingur segir Þórarinn Inga brotlegan við siðareglur Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur telur blasa við að Þórarinn Ingi Pétursson Framsóknarflokki, hafi brotið siðareglur þingsins, þá er hann mælti fyrir breytingu á búvörulögum. Innlent 11.7.2024 16:30 Rússar herða fjandsamlegar aðgerðir gegn NATO-ríkjum Framkvæmdastjóri NATO segir Rússa hafa hert á skemmdarverkum og árásum á innviði aðildarríkja bandalagsins. Atlantshafsbandalagið bregðist við með því að auka varnir sínar og styrkja hernaðarmátt Úkraínu. Reiknað er með að Úkraínumenn fái langþráðar F16 herþotur í sumar. Erlent 10.7.2024 20:29 Segir dómgreindarleysi formannsins algert Bubbi Morthens tónlistarmaður hefur blandað sér í funheita umræðu um hvort Þórarinn Ingi Pétursson formaður atvinnuveganefndar hafi verið á réttu róli þegar hann, sem eigandi 0,6 prósents í Búsæld og þar með einn eigandi Kjarnafæðis, samþykkti lög sem heimiluðu sölu á Kjarnafæði til Kaupfélags Skagfirðinga. Innlent 10.7.2024 15:11 Bankasýsla ríkisins verði lögð niður Til stendur að leggja niður Bankasýslu ríkisins og flytja verkefni hennar til fjármála- og efnahagsráðuneytis. Fjármálaráðherra birti í samráðsgátt stjórnvalda drög til umsagnar að frumvarpi þar sem lagt er til að sérstök lög sem nú gilda um Bankasýsluna verði felld úr gildi. Innlent 10.7.2024 12:58 Íslendingar styrkja varnir kvenna í Úkraínu Utanríkisráðherra greindi frá sjötíu og fimm milljón króna framlagi Íslands á leiðtogafundi NATO í gærkvöldi, til að efla búnað kvenna á víglínunni í varnarbaráttu Úkraínu gegn innrás Rússa. Konur gegndu mikilvægu hlutverki í stríðinu og áríðandi að hlusta eftir röddum þeirra á þeirra eigin forsendum. Erlent 10.7.2024 12:32 Hagræðing í rekstri sé bændum og neytendum til heilla Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, segir öllum ljóst að gríðarleg tækifæri séu til hagræðingar í rekstri kjötafurðastöðva. Hagræðingin gangi út á að geta greitt bændum hærra afurðaverð, án þess að það þýði hækkun á verði til neytenda. Hún telur samruna Kaupfélags Skagfirðinga og Kjarnafæðis Norðlenska jákvætt skref í rétta átt. Innlent 9.7.2024 22:39 Stjórnvöld verði að stöðva erlendu veðmálasíðurnar Forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands segir það ólíðandi að erlendar veðmálasíður fái að troða sér inn í íslenskt samfélag. Stjórnvöld þurfi að bregðast við. Innlent 9.7.2024 19:07 Um traust og vantraust Traust er ein meginundirstaða viðskipta. Alþingi hefur í ýmsu tilliti stutt við bak einstaklinga og ýmissa hópa til að stuðla að jafnri stöðu í viðskiptum. Til grundvallar liggur sú hugmynd að jöfn staða stuðli að trausti og tilvist trausts liðki fyrir viðskiptum. Viðskipti eru meðal forsendna þróunar, framleiðni, nýsköpunar, tæknibreytinga o.fl. Skoðun 9.7.2024 15:31 Ráðherra beitir sér ekki og eftirlitið í öngum sínum Matvælaráðherra ætlar ekki að beita sér fyrir breytingum á undanþáguheimildum í búvörulögum. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins gagnrýnir ráðherra og atvinnuveganefnd og segir vinnubrögðin óforsvaranleg. Innlent 9.7.2024 13:57 Umræða um útlendinga oft harkaleg og ekki uppbyggileg Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir umræðu um útlendinga hafa verið harkalega og ekki uppbyggilega. Hann kynnti nýlega fyrstu stefnu Íslands í málefnum innflytjenda. Markmiðið með stefnunni er að búa til samfélag sem er jafnara og býður upp á sömu tækifæri fyrir alla, óháð uppruna. Í haust mun hann leggja fram tillögu til þingsályktunarum stefnuna til fimmtán ára og framkvæmdaáætlun til fjögurra ára. Innlent 9.7.2024 06:25 Ríkið taki við uppbyggingu hjúkrunarheimila Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur birt til umsagnar í samráðsgátt breytingu á lögum sem fellir brott skyldu sveitarfélaga til að greiða fimmtán prósent stofnkostnaðar við uppbyggingu hjúkrunarheimila. Einar Þorsteinsson borgarstjóri segist fagna breytingunum og að þær komi til með að létta byrði smærri sveitarfélaga sem gætu átt erfitt með að standa undir sínum hluta. Innlent 8.7.2024 21:20 Búið að afvopna neytendur Formaður atvinnuveganefndar segir það ekki tortryggilegt að hann eigi hlut í félagi sem keypt var af Kaupfélagi Skagfirðinga á grundvelli nýsamþykktra búvörulaga sem tekin voru fyrir í nefndinni. Þingmaður Viðreisnar segir nefndina hafa tekið gríðarmikilvægt vopn úr höndum neytenda. Neytendur 8.7.2024 20:22 Afmælisfundur NATO í skugga átaka í gjörbreyttum heimi Utanríkisráðherra segir 75 ára afmælisleiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Washington á morgun, haldinn í skugga meiriháttar breytinga og spennu í alþjóðakerfinu. Á fundinum muni bandalagsríkin formfesta stuðning sinn við Úkraínu til lengri tíma. Innlent 8.7.2024 19:20 Stefna að útrýmingu sauðfjárriðu innan tuttugu ára Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra undirritaði í dag landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu ásamt Hrönn Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Trausta Hjálmarssyni, formanni Bændasamtaka Íslands. Stefnt er að því að útrýma riðuveiki í sauðfé á Íslandi innan tuttugu ára. Innlent 8.7.2024 19:18 Flestir treysta ríkisstjórninni miklu verr eftir að Bjarni tók við Sjötíu og tvö prósent landsmanna treysta ríkisstjórninni verr eftir að Bjarni Benediktsson tók við embætti forsætisráðherra. Hins vegar treysta ellefu prósent ríkisstjórninni betur eftir að Bjarni tók við stjórnartaumunum en átján prósent jafn mikið. Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Maskínu. Innlent 8.7.2024 14:26 Þaulskipulagt af hagsmunaaðilum og þeirra fulltrúum á þingi Formaður atvinnuveganefndar Alþingis á hlut í félagi sem Kaupfélag Skagfirðinga er að kaupa. Kaupin ganga í gegn án aðkomu Samkeppniseftirlitsins vegna breytinga á búvörulögum sem atvinnuveganefnd gerði. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir um skipulagða aðgerða hagsmunaaðila og fulltrúa þeirra á þingi að ræða. Innlent 8.7.2024 13:41 « ‹ 19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 38 ›
Segir Menntamálastofnun ekki hafa ráðið við stafræn samræmd próf „Menntamálastofnun réð ekki við framkvæmdina þrátt fyrir að við værum búin að aðstoða þá, koma með leiðbeiningar og tillögur að framkvæmd um hvernig væri hægt að gera þetta – þær bara gengu ekki upp.“ Innlent 25.7.2024 06:41
Þrettán vilja stýra ráðuneyti Svandísar Þrettán umsækjendur eru um embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins sem auglýst var um miðjan júní sl. en umsóknarfrestur rann út 19. júlí. Innlent 24.7.2024 15:21
Röng skilaboð að Yaris borgi það sama og stór jeppi Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að flatt kílómetragjald sem lagt er til á alla bíla undir 3,5 tonnum, sé ósanngjarnt. Það séu röng skilaboð til almennings að minni bílar sem mengi minna og slíti vegum minna, borgi það sama og stærri jeppar og pallbílar. Einnig þurfi að ræða gjaldtöku á þungu atvinnubílunum, en ef fram fer sem horfir mun gífurlegur kostnaður leggjast á landsbyggðina. Innlent 23.7.2024 20:35
Málflutningur Viðskiptaráðs óásættanlegur Menntamálaráðherra segir málflutning Viðskiptaráðs, um starfsfólk menntakerfisins óásættanlegan og hjákátlegan. Ráðið segir Kennarasamband Íslands hafa leitt málaflokkinn í öngstræti og hvetur stjórnvöld til að taka fyrir frekari afskipti sambandsins. Innlent 22.7.2024 12:00
Mikill meirihluti landsmanna mótfallinn sjókvíaeldi Í nýrri könnun Gallups kemur fram að rúm sextíu og fimm prósent þjóðarinnar er andsnúin sjókvíaeldi meðan tæp fjórtán prósent eru jákvæð. Innlent 22.7.2024 11:25
Landtöku Ísraela skuli hætt Utanríkisráðuneytið kallar eftir því í tilkynningu að Ísraelar láti af landtöku í Palestínu. Innlent 21.7.2024 10:46
Á undan áætlun í ríkisfjármálum Í nýbirtum ríkisreikningi fyrir árið 2023 kemur fram að heildarafkoma ríkissjóðs hafi verið um 100 milljörðum króna betri en gert hafði verið ráð fyrir í fjárlögum, það er að segja 20 milljarða halli í stað 120. Þar segir einnig að frumjöfnuður, með öðrum orðum afkoma ríkissjóðs án tillits til vaxtagjalda og -tekna, var jákvæður um 78 milljarða. Skoðun 20.7.2024 09:00
Umræða um ábyrgð starfsfólks MAST eigi ekki rétt á sér Matvælaráðherra segir umræðu um persónulega ábyrgð starfsfólks Matvælastofnunar á veitingu rekstrarleyfis til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi ekki eiga rétt á sér. Innlent 19.7.2024 16:56
Bjarni fór á fund konungs Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fór á fund Karls III Bretakonungs að loknum fundi Evrópuleiðtoga í Blenheimhöll. Karl Bretakonungur bauð leiðtogum til móttöku í höllinni. Innlent 19.7.2024 14:56
Búseturétthafar í Grindavík losna undan samningum Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ákveðið að styrkja búseturétthafa í Grindavík um 95 prósent af framreiknuðu búseturéttargjaldi þeirra. Búseturétthöfum í um þrjátíu íbúðum í bænum stendur nú til boða að losna undan samningi án uppsagnarfrestar. Innlent 15.7.2024 16:28
Utanríkisráðherra segir árásina hörmulega Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur bæst í hóp þeirra stjórnmálamanna sem fordæmt hafa árásina á Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í gær. Innlent 14.7.2024 15:18
Bjarni segir atburði gærkvöldsins átakanlega Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra Íslands, fordæmir skotárás sem beindist gegn Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem var framin í gær. Erlent 14.7.2024 11:37
Óttast að olíufélögin hækki álagningu Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að sterkt aðhald þurfi gagnvart því að tryggja að álagning á eldsneyti hækki ekki þegar bensín- og díselgjöld verða afnumin á næsta ári. Til stendur að leggja kílómetragjald á bensín- og díselbíla á næsta ári, en fella brott bensín- og olíugjöld sem greidd eru við kaup á jarðefnaeldsneyti. Í frumvarpsdrögunum stendur einnig til að hækka kolefnisgjaldið sem leggst á bensín- og díselbíla. Innlent 12.7.2024 21:22
Leggja kílómetragjald á bensín- og olíubíla Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur kynnt til samráðs mál um að kílómetragjald verði tekið upp fyrir bensín- og olíubíla. Gjaldið var lagt á rafmagns, tengiltvinnbíla, og vetnisbíla um síðustu áramót. Kílómetragjaldið á að koma í stað olíu- og bensíngjalda, sem nú eru greidd við kaup á jarðefnaeldsneyti. Áformað er að olíu- og bensíngjöld verði felld brott. Innlent 11.7.2024 18:50
Stjórnsýslufræðingur segir Þórarinn Inga brotlegan við siðareglur Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur telur blasa við að Þórarinn Ingi Pétursson Framsóknarflokki, hafi brotið siðareglur þingsins, þá er hann mælti fyrir breytingu á búvörulögum. Innlent 11.7.2024 16:30
Rússar herða fjandsamlegar aðgerðir gegn NATO-ríkjum Framkvæmdastjóri NATO segir Rússa hafa hert á skemmdarverkum og árásum á innviði aðildarríkja bandalagsins. Atlantshafsbandalagið bregðist við með því að auka varnir sínar og styrkja hernaðarmátt Úkraínu. Reiknað er með að Úkraínumenn fái langþráðar F16 herþotur í sumar. Erlent 10.7.2024 20:29
Segir dómgreindarleysi formannsins algert Bubbi Morthens tónlistarmaður hefur blandað sér í funheita umræðu um hvort Þórarinn Ingi Pétursson formaður atvinnuveganefndar hafi verið á réttu róli þegar hann, sem eigandi 0,6 prósents í Búsæld og þar með einn eigandi Kjarnafæðis, samþykkti lög sem heimiluðu sölu á Kjarnafæði til Kaupfélags Skagfirðinga. Innlent 10.7.2024 15:11
Bankasýsla ríkisins verði lögð niður Til stendur að leggja niður Bankasýslu ríkisins og flytja verkefni hennar til fjármála- og efnahagsráðuneytis. Fjármálaráðherra birti í samráðsgátt stjórnvalda drög til umsagnar að frumvarpi þar sem lagt er til að sérstök lög sem nú gilda um Bankasýsluna verði felld úr gildi. Innlent 10.7.2024 12:58
Íslendingar styrkja varnir kvenna í Úkraínu Utanríkisráðherra greindi frá sjötíu og fimm milljón króna framlagi Íslands á leiðtogafundi NATO í gærkvöldi, til að efla búnað kvenna á víglínunni í varnarbaráttu Úkraínu gegn innrás Rússa. Konur gegndu mikilvægu hlutverki í stríðinu og áríðandi að hlusta eftir röddum þeirra á þeirra eigin forsendum. Erlent 10.7.2024 12:32
Hagræðing í rekstri sé bændum og neytendum til heilla Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, segir öllum ljóst að gríðarleg tækifæri séu til hagræðingar í rekstri kjötafurðastöðva. Hagræðingin gangi út á að geta greitt bændum hærra afurðaverð, án þess að það þýði hækkun á verði til neytenda. Hún telur samruna Kaupfélags Skagfirðinga og Kjarnafæðis Norðlenska jákvætt skref í rétta átt. Innlent 9.7.2024 22:39
Stjórnvöld verði að stöðva erlendu veðmálasíðurnar Forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands segir það ólíðandi að erlendar veðmálasíður fái að troða sér inn í íslenskt samfélag. Stjórnvöld þurfi að bregðast við. Innlent 9.7.2024 19:07
Um traust og vantraust Traust er ein meginundirstaða viðskipta. Alþingi hefur í ýmsu tilliti stutt við bak einstaklinga og ýmissa hópa til að stuðla að jafnri stöðu í viðskiptum. Til grundvallar liggur sú hugmynd að jöfn staða stuðli að trausti og tilvist trausts liðki fyrir viðskiptum. Viðskipti eru meðal forsendna þróunar, framleiðni, nýsköpunar, tæknibreytinga o.fl. Skoðun 9.7.2024 15:31
Ráðherra beitir sér ekki og eftirlitið í öngum sínum Matvælaráðherra ætlar ekki að beita sér fyrir breytingum á undanþáguheimildum í búvörulögum. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins gagnrýnir ráðherra og atvinnuveganefnd og segir vinnubrögðin óforsvaranleg. Innlent 9.7.2024 13:57
Umræða um útlendinga oft harkaleg og ekki uppbyggileg Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir umræðu um útlendinga hafa verið harkalega og ekki uppbyggilega. Hann kynnti nýlega fyrstu stefnu Íslands í málefnum innflytjenda. Markmiðið með stefnunni er að búa til samfélag sem er jafnara og býður upp á sömu tækifæri fyrir alla, óháð uppruna. Í haust mun hann leggja fram tillögu til þingsályktunarum stefnuna til fimmtán ára og framkvæmdaáætlun til fjögurra ára. Innlent 9.7.2024 06:25
Ríkið taki við uppbyggingu hjúkrunarheimila Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur birt til umsagnar í samráðsgátt breytingu á lögum sem fellir brott skyldu sveitarfélaga til að greiða fimmtán prósent stofnkostnaðar við uppbyggingu hjúkrunarheimila. Einar Þorsteinsson borgarstjóri segist fagna breytingunum og að þær komi til með að létta byrði smærri sveitarfélaga sem gætu átt erfitt með að standa undir sínum hluta. Innlent 8.7.2024 21:20
Búið að afvopna neytendur Formaður atvinnuveganefndar segir það ekki tortryggilegt að hann eigi hlut í félagi sem keypt var af Kaupfélagi Skagfirðinga á grundvelli nýsamþykktra búvörulaga sem tekin voru fyrir í nefndinni. Þingmaður Viðreisnar segir nefndina hafa tekið gríðarmikilvægt vopn úr höndum neytenda. Neytendur 8.7.2024 20:22
Afmælisfundur NATO í skugga átaka í gjörbreyttum heimi Utanríkisráðherra segir 75 ára afmælisleiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Washington á morgun, haldinn í skugga meiriháttar breytinga og spennu í alþjóðakerfinu. Á fundinum muni bandalagsríkin formfesta stuðning sinn við Úkraínu til lengri tíma. Innlent 8.7.2024 19:20
Stefna að útrýmingu sauðfjárriðu innan tuttugu ára Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra undirritaði í dag landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu ásamt Hrönn Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Trausta Hjálmarssyni, formanni Bændasamtaka Íslands. Stefnt er að því að útrýma riðuveiki í sauðfé á Íslandi innan tuttugu ára. Innlent 8.7.2024 19:18
Flestir treysta ríkisstjórninni miklu verr eftir að Bjarni tók við Sjötíu og tvö prósent landsmanna treysta ríkisstjórninni verr eftir að Bjarni Benediktsson tók við embætti forsætisráðherra. Hins vegar treysta ellefu prósent ríkisstjórninni betur eftir að Bjarni tók við stjórnartaumunum en átján prósent jafn mikið. Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Maskínu. Innlent 8.7.2024 14:26
Þaulskipulagt af hagsmunaaðilum og þeirra fulltrúum á þingi Formaður atvinnuveganefndar Alþingis á hlut í félagi sem Kaupfélag Skagfirðinga er að kaupa. Kaupin ganga í gegn án aðkomu Samkeppniseftirlitsins vegna breytinga á búvörulögum sem atvinnuveganefnd gerði. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir um skipulagða aðgerða hagsmunaaðila og fulltrúa þeirra á þingi að ræða. Innlent 8.7.2024 13:41