Bjarndís Helga Tómasdóttir

Fréttamynd

Kjósum með mann­réttindum á laugar­daginn

Á Íslandi hefur frelsi hinsegin fólks til að vera það sjálft og lagaleg réttindi tekið stakkaskiptum á síðustu árum, í kjölfar þrotlausrar áratugalangrar baráttu. Hér eru lagaleg réttindi og samfélagslegt samþykki hinsegin fólks orðin með því besta sem fyrirfinnst í heiminum.

Skoðun
Fréttamynd

Konur: ekki eins­leitur hópur

Við verðum að tala um kynbundið ofbeldi – en til þess að geta stuðlað að frelsi frá ofbeldi fyrir allar konur þurfum við að hafa hugfast að konur eru ekki einsleitur hópur. Konur sem tilheyra einnig öðrum jaðarhópum verða frekar fyrir ofbeldi og geta mismunabreyturnar verið margar, t.a.m. kynþáttur, fötlun, félagsleg staða.

Skoðun
Fréttamynd

Það er alltaf von: Sam­tökin ‘78 styðja Píeta

Við erum öll svo dýrmæt og hvert eitt og einasta okkar skiptir máli, þó að stundum kunni okkur að líða eins og svo sé ekki. Þetta einstaka dýrmæti hvers okkar þýðir að hvert sjálfsvíg heggur stórt skarð í líf þeirra sem eftir standa og áhrifin ná langt út fyrir innsta hring hvers einstaklings.

Skoðun
Fréttamynd

Ís­land í öðru sæti Regn­boga­kortsins um réttindi hin­segin fólks

Í dag fögnum við hjá Samtökunum ’78 þeim árangri sem náðst hefur í að bæta réttindastöðu hinsegin fólks á Íslandi. Árlega birtir ILGA-Europe, regnhlífarsamtök yfir 700 hinsegin félaga í Evrópu og Mið-Asíu, nýja útgáfu regnbogakortsins en kortið mælir lagalega réttindastöðu hinsegin fólks í 49 löndum.

Skoðun
Fréttamynd

Mál­efni trans fólks: Hingað erum við þá komin

Þessa dagana upplifum við hinsegin fólk ákveðið afturhvarf til fortíðar, þar sem sumt fólk telur eðlilegt að samfélagsumræða fari fram um tilvistarrétt fólks. Tilraun er gerð til að varpa rýrð á Samtökin ‘78 fyrir að sinna hagsmunagæslu fyrir trans fólk. Þetta er atburðarás sem við höfum þegar séð erlendis en við höfum einnig séð að með réttum viðbrögðum má minnka áhrifin.

Skoðun