Erlent Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Ráðamenn í Rússlandi vilja hækka fjárútlát til varnarmála um tæpan þriðjung á næsta ári, samanborið við þetta ár. Þetta kemur fram í fjárlagadrögum sem birt voru í gær. Um metupphæð er að ræða en verðbólga hefur hækkað hratt í Rússlandi á undanförnum mánuðum. Erlent 1.10.2024 11:30 Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Dominique Pelioct, sem byrlaði eiginkonu sinni ólyfjan og fékk tugi manna til að nauðga henni um árabil, er til rannsóknar vegna fimm annarra mála og þar á meðal eins morðs. Málin þykja keimlík einni nauðgunartilraun sem Pelicot hefur játað og morði sem hann hefur verið ákærður fyrir. Erlent 1.10.2024 10:16 Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Brennslu kola til rafmagnsframleiðslu er lokið í Bretlandi eftir 142 ára sögu. Slökkt var á síðasta kolaorkuveri landsins í nótt. Meiri en helmingur af raforku er nú framleidd með endurnýjanlegum hætti í Bretlandi. Erlent 1.10.2024 08:43 Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Í fyrra var meðalaldur ungs fólks í Evrópu þegar það flutti að heima í 26,3 ára. Það er minna en það var árinu áður þegar meðalaldurinn var 26,4 ára. Hæsti meðalaldurinn er í Króatíu þar sem ungt fólk er að meðaltali 31,8 ára þegar það flytur að heiman. Erlent 1.10.2024 08:17 Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, heldur í dag upp á hundrað ára afmæli sitt en hann hefur verið í líknandi meðferð í tæplega tvö ár. Forsetinn fyrrverandi hefur fengið kveðjur víðsvegar að úr heiminum. Erlent 1.10.2024 08:03 Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Donald Trump heimsótti í gær bæinn Valdosta í Georgíuríki en bærinn er sem rústir einar eftir að fellibylurinn Helena gekk þar yfir. Erlent 1.10.2024 07:24 Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Ísraelsher hefur staðið í afmörkuðum hernaðaraðgerðum í Líbanon í alla nótt en lítið áhlaup var gert á landið í gær. Talsmenn hersins segja að verið sé að ráðast gegn ákveðnum skotmörkum innan landamæranna sem lúti stjórn Hezbollah-samtakanna. Erlent 1.10.2024 06:40 Rutte tekur við af Stoltenberg Hinn norski Jens Stoltenberg mun láta af embætti framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, NATO, í dag eftir tíu ár í embætti. Mark Rutte, fyrrverandi forsætisráðherra Hollands, tekur við stöðunni. Erlent 1.10.2024 06:34 Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Ísraelsher hefur sent hermenn inn í Líbanon og lokað þar af ýmis svæði. Herinn segir áhlaupin beinast gegn hernaðarmannvirkjum Hezbollah í nokkrum þorpum nærri landamærunum. Erlent 30.9.2024 23:28 Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun Herforingi í flugher Bandaríkjanna segir rússneska flugmenn hafa hagað sér mjög ófagmannlega þegar bandarískir flugmenn flugu að fjórum rússneskum herflugvélum nærri Alasaka. Flugvélarnar fjórar sáust á ratsjám þann 23. september og voru flugmenn sendir til móts við þær. Erlent 30.9.2024 16:11 „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Neyðarástand ríkir víða í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum eftir að fellibylurinn Helena olli þar „fordæmalausum“ hörmungum. Úrhellið sem fylgdi Helenu olli þar stórum skyndiflóðum og aurskriðum og eru minnst 37 dánir en búist er við að talan muni hækka enn frekar. Erlent 30.9.2024 15:16 Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Naim Kassem, næstráðandi í Hezbollah samtökunum, hét því í ávarpi í morgun að berjast áfram gegn Ísrael. Þá sagði hann samtökin tilbúin til langvarandi átaka, þrátt fyrir að margir af æðstu leiðtogum Hezbollah hafi verið felldir af Ísraelum. Erlent 30.9.2024 13:02 Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Frelsisflokkurinn vann sigur í þingkosningunm í Austurríki í gær og varð fyrsti hægriöfgaflokkurinn til að vinna kosningasigur í landinu frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Óljóst er hvort sigurinn skili flokknum sæti í ríkisstjórn. Erlent 30.9.2024 08:48 Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Shigeru Ishiba, leiðtogi japanska stjórnarflokksins Frjálslynda lýðræðisflokksins, segir að hann muni boða til þingkosninga í landinu þann 27. október um leið og hann tekur formlega við embætti forsætisráðherra á morgun. Erlent 30.9.2024 07:40 Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Dómari í Kaliforníu hefur komist að þeirri niðurstöðu að það hefði verið rangt af Netflix að halda því fram að þættirnir Baby Reindeer væru „sönn saga“ í upphafi þáttarins. Erlent 30.9.2024 06:44 Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Að minnsta kosti þrjátíu létu lífið og fjölda annarra er saknað í einni og sömu sýslunni í Norður Karólínu í Bandaríkjunum eftir að fellibylurinn Helena gekk þar yfir. Erlent 30.9.2024 06:35 Ísraelar herja á miðborg Beirút Ísraelar beina nú eldflaugaárásum á miðborg Beirút, höfuðborgar Líbanon. Erlent 29.9.2024 23:00 Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Kosið var til þings í Austurríki í dag og benda fyrstu útgönguspár til þess að Frelsisflokkurinn verði stærstur flokka með 29,1 prósent atkvæða. Erlent 29.9.2024 16:57 Ísrael gerir loftárásir á Jemen Ísraelski herinn hefur greint frá því að gerðar hafi verið loftárásir í Jemen. Skotmörkin hafi verið athafnasvæði Húta, sem ísraelski herinn segir að hafi verið notuð meðal annars til að flytja inn hergögn frá Íran. Erlent 29.9.2024 16:20 Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Hera Björk Brynjarsdóttir, Íslendingur sem býr í Valdosta í Georgíu þar sem fellibylurinn Helen reið yfir um helgina, segist aldrei hafa upplifað annað eins. Gífurlegar skemmdir eru á bænum eftir að tré hrundu ofan á hús og rafmagnslínur. Rafmagnslaust er í bænum og ekkert heitt vatn er heima hjá Heru. Ekki verður hægt að gera við rafmagnslínur fyrr en næsta laugardag. Erlent 29.9.2024 14:18 Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Að minnsta kosti 120 manns eru látnir í Nepal síðan á föstudaginn eftir gífurlega úrkomu sem kom af stað flóðum og skriðuföllum þar í landi. Fjöl margra er enn saknað. Erlent 29.9.2024 11:49 Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Átta ára drengur var skotinn í höfuð og andlit á bændabýli í Kumbaralandi í Englandi í gær. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús með sjúkraflugi en hann lést af sárum sínum í nótt. Erlent 29.9.2024 10:31 Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Að minnsta kosti fimmtán manns létu lífið í árásum Ísraelshers í Líbanon í nótt. Herinn greindi frá því í yfirlýsingu á Telegram að gerðar hefðu verið tugir árása á skotmörk úr röðum Hezbollah, tveimur dögum eftir að leiðtogi samtakanna var ráðinn af dögunum í loftárás. Erlent 29.9.2024 08:28 Segir Harris veika á geði Donald Trump, forsetaframbjóðandi Repúblikana í Bandaríkjunum, segir að Kamala Harris varaforseti og forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, sé veik á geði. Þetta sagði hann þegar hann var að ræða innflytjendamál á framboðsfundi í Wisconsin. Erlent 29.9.2024 00:07 Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að með drápinu á Hassan Nasrallah hafi Ísrael verið að framfylgja réttlætinu fyrir hönd fórnarlamba hans. Ísrael sé í fullum rétti á að verja sig gegn Hezbollah, Hamas, Hútum í Jemen og öðrum hryðjuverkasamtökum sem fjármögnuð eru af Íran. Erlent 28.9.2024 19:52 Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Minnst 66 eru látnir í Nepal eftir flóð og skriðuföll vegna gífurlegrar úrkomu sem hefur staðið yfir síðan á föstudag. Búist er við að áfram haldi að rigna um helgina. Ekki er vitað um afdrif 69 manna. Erlent 28.9.2024 18:50 Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Leiðtogi Hryðjuverksamtakanna Hezbollah var drepinn í loftárásum Ísraela á Beirút í nótt. Æðstiklerkur Íran segir alla múslima þurfa að standa með trúbræðrum sínum í Hezbollah. Talsmaður Ísraelshers segir samtökin draga Líbanon og nærliggjandi ríki inn í átök, sem Ísrael vilji ekki að breiðist út. Erlent 28.9.2024 18:10 Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Krókódíla ræktandi í Taílandi sem gengur undir nafninu „Crocodile X“ segist hafa neyðst til að aflífa 125 krókódíla af tegund sem er í bráðri útrýmingarhættu. Hætta var á að dýrin myndu sleppa af afgirtu svæði þar sem þau voru geymd og greip því eigandinn til þessa örþrifaráðs. Erlent 28.9.2024 16:35 Öllum flugferðum til Beirút aflýst Íranska flugfélagið, Iran Air, hefur aflýst öllum flugferðum sínum til og frá Beirút, höfuðborgar Líbanon, um óákveðinn tíma. Erlent 28.9.2024 14:24 Stefnir í sögulegan sigur hægriöfgaflokks í Austurríki Allt bendir til þess að Frelsisflokkurinn, sem lýst hefur verið sem hægriöfgaflokki, landi sögulegum sigri í austurrísku þingkosningunum sem fara fram á morgun. Erlent 28.9.2024 11:49 « ‹ 13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 334 ›
Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Ráðamenn í Rússlandi vilja hækka fjárútlát til varnarmála um tæpan þriðjung á næsta ári, samanborið við þetta ár. Þetta kemur fram í fjárlagadrögum sem birt voru í gær. Um metupphæð er að ræða en verðbólga hefur hækkað hratt í Rússlandi á undanförnum mánuðum. Erlent 1.10.2024 11:30
Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Dominique Pelioct, sem byrlaði eiginkonu sinni ólyfjan og fékk tugi manna til að nauðga henni um árabil, er til rannsóknar vegna fimm annarra mála og þar á meðal eins morðs. Málin þykja keimlík einni nauðgunartilraun sem Pelicot hefur játað og morði sem hann hefur verið ákærður fyrir. Erlent 1.10.2024 10:16
Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Brennslu kola til rafmagnsframleiðslu er lokið í Bretlandi eftir 142 ára sögu. Slökkt var á síðasta kolaorkuveri landsins í nótt. Meiri en helmingur af raforku er nú framleidd með endurnýjanlegum hætti í Bretlandi. Erlent 1.10.2024 08:43
Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Í fyrra var meðalaldur ungs fólks í Evrópu þegar það flutti að heima í 26,3 ára. Það er minna en það var árinu áður þegar meðalaldurinn var 26,4 ára. Hæsti meðalaldurinn er í Króatíu þar sem ungt fólk er að meðaltali 31,8 ára þegar það flytur að heiman. Erlent 1.10.2024 08:17
Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, heldur í dag upp á hundrað ára afmæli sitt en hann hefur verið í líknandi meðferð í tæplega tvö ár. Forsetinn fyrrverandi hefur fengið kveðjur víðsvegar að úr heiminum. Erlent 1.10.2024 08:03
Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Donald Trump heimsótti í gær bæinn Valdosta í Georgíuríki en bærinn er sem rústir einar eftir að fellibylurinn Helena gekk þar yfir. Erlent 1.10.2024 07:24
Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Ísraelsher hefur staðið í afmörkuðum hernaðaraðgerðum í Líbanon í alla nótt en lítið áhlaup var gert á landið í gær. Talsmenn hersins segja að verið sé að ráðast gegn ákveðnum skotmörkum innan landamæranna sem lúti stjórn Hezbollah-samtakanna. Erlent 1.10.2024 06:40
Rutte tekur við af Stoltenberg Hinn norski Jens Stoltenberg mun láta af embætti framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, NATO, í dag eftir tíu ár í embætti. Mark Rutte, fyrrverandi forsætisráðherra Hollands, tekur við stöðunni. Erlent 1.10.2024 06:34
Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Ísraelsher hefur sent hermenn inn í Líbanon og lokað þar af ýmis svæði. Herinn segir áhlaupin beinast gegn hernaðarmannvirkjum Hezbollah í nokkrum þorpum nærri landamærunum. Erlent 30.9.2024 23:28
Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun Herforingi í flugher Bandaríkjanna segir rússneska flugmenn hafa hagað sér mjög ófagmannlega þegar bandarískir flugmenn flugu að fjórum rússneskum herflugvélum nærri Alasaka. Flugvélarnar fjórar sáust á ratsjám þann 23. september og voru flugmenn sendir til móts við þær. Erlent 30.9.2024 16:11
„Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Neyðarástand ríkir víða í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum eftir að fellibylurinn Helena olli þar „fordæmalausum“ hörmungum. Úrhellið sem fylgdi Helenu olli þar stórum skyndiflóðum og aurskriðum og eru minnst 37 dánir en búist er við að talan muni hækka enn frekar. Erlent 30.9.2024 15:16
Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Naim Kassem, næstráðandi í Hezbollah samtökunum, hét því í ávarpi í morgun að berjast áfram gegn Ísrael. Þá sagði hann samtökin tilbúin til langvarandi átaka, þrátt fyrir að margir af æðstu leiðtogum Hezbollah hafi verið felldir af Ísraelum. Erlent 30.9.2024 13:02
Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Frelsisflokkurinn vann sigur í þingkosningunm í Austurríki í gær og varð fyrsti hægriöfgaflokkurinn til að vinna kosningasigur í landinu frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Óljóst er hvort sigurinn skili flokknum sæti í ríkisstjórn. Erlent 30.9.2024 08:48
Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Shigeru Ishiba, leiðtogi japanska stjórnarflokksins Frjálslynda lýðræðisflokksins, segir að hann muni boða til þingkosninga í landinu þann 27. október um leið og hann tekur formlega við embætti forsætisráðherra á morgun. Erlent 30.9.2024 07:40
Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Dómari í Kaliforníu hefur komist að þeirri niðurstöðu að það hefði verið rangt af Netflix að halda því fram að þættirnir Baby Reindeer væru „sönn saga“ í upphafi þáttarins. Erlent 30.9.2024 06:44
Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Að minnsta kosti þrjátíu létu lífið og fjölda annarra er saknað í einni og sömu sýslunni í Norður Karólínu í Bandaríkjunum eftir að fellibylurinn Helena gekk þar yfir. Erlent 30.9.2024 06:35
Ísraelar herja á miðborg Beirút Ísraelar beina nú eldflaugaárásum á miðborg Beirút, höfuðborgar Líbanon. Erlent 29.9.2024 23:00
Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Kosið var til þings í Austurríki í dag og benda fyrstu útgönguspár til þess að Frelsisflokkurinn verði stærstur flokka með 29,1 prósent atkvæða. Erlent 29.9.2024 16:57
Ísrael gerir loftárásir á Jemen Ísraelski herinn hefur greint frá því að gerðar hafi verið loftárásir í Jemen. Skotmörkin hafi verið athafnasvæði Húta, sem ísraelski herinn segir að hafi verið notuð meðal annars til að flytja inn hergögn frá Íran. Erlent 29.9.2024 16:20
Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Hera Björk Brynjarsdóttir, Íslendingur sem býr í Valdosta í Georgíu þar sem fellibylurinn Helen reið yfir um helgina, segist aldrei hafa upplifað annað eins. Gífurlegar skemmdir eru á bænum eftir að tré hrundu ofan á hús og rafmagnslínur. Rafmagnslaust er í bænum og ekkert heitt vatn er heima hjá Heru. Ekki verður hægt að gera við rafmagnslínur fyrr en næsta laugardag. Erlent 29.9.2024 14:18
Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Að minnsta kosti 120 manns eru látnir í Nepal síðan á föstudaginn eftir gífurlega úrkomu sem kom af stað flóðum og skriðuföllum þar í landi. Fjöl margra er enn saknað. Erlent 29.9.2024 11:49
Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Átta ára drengur var skotinn í höfuð og andlit á bændabýli í Kumbaralandi í Englandi í gær. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús með sjúkraflugi en hann lést af sárum sínum í nótt. Erlent 29.9.2024 10:31
Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Að minnsta kosti fimmtán manns létu lífið í árásum Ísraelshers í Líbanon í nótt. Herinn greindi frá því í yfirlýsingu á Telegram að gerðar hefðu verið tugir árása á skotmörk úr röðum Hezbollah, tveimur dögum eftir að leiðtogi samtakanna var ráðinn af dögunum í loftárás. Erlent 29.9.2024 08:28
Segir Harris veika á geði Donald Trump, forsetaframbjóðandi Repúblikana í Bandaríkjunum, segir að Kamala Harris varaforseti og forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, sé veik á geði. Þetta sagði hann þegar hann var að ræða innflytjendamál á framboðsfundi í Wisconsin. Erlent 29.9.2024 00:07
Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að með drápinu á Hassan Nasrallah hafi Ísrael verið að framfylgja réttlætinu fyrir hönd fórnarlamba hans. Ísrael sé í fullum rétti á að verja sig gegn Hezbollah, Hamas, Hútum í Jemen og öðrum hryðjuverkasamtökum sem fjármögnuð eru af Íran. Erlent 28.9.2024 19:52
Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Minnst 66 eru látnir í Nepal eftir flóð og skriðuföll vegna gífurlegrar úrkomu sem hefur staðið yfir síðan á föstudag. Búist er við að áfram haldi að rigna um helgina. Ekki er vitað um afdrif 69 manna. Erlent 28.9.2024 18:50
Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Leiðtogi Hryðjuverksamtakanna Hezbollah var drepinn í loftárásum Ísraela á Beirút í nótt. Æðstiklerkur Íran segir alla múslima þurfa að standa með trúbræðrum sínum í Hezbollah. Talsmaður Ísraelshers segir samtökin draga Líbanon og nærliggjandi ríki inn í átök, sem Ísrael vilji ekki að breiðist út. Erlent 28.9.2024 18:10
Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Krókódíla ræktandi í Taílandi sem gengur undir nafninu „Crocodile X“ segist hafa neyðst til að aflífa 125 krókódíla af tegund sem er í bráðri útrýmingarhættu. Hætta var á að dýrin myndu sleppa af afgirtu svæði þar sem þau voru geymd og greip því eigandinn til þessa örþrifaráðs. Erlent 28.9.2024 16:35
Öllum flugferðum til Beirút aflýst Íranska flugfélagið, Iran Air, hefur aflýst öllum flugferðum sínum til og frá Beirút, höfuðborgar Líbanon, um óákveðinn tíma. Erlent 28.9.2024 14:24
Stefnir í sögulegan sigur hægriöfgaflokks í Austurríki Allt bendir til þess að Frelsisflokkurinn, sem lýst hefur verið sem hægriöfgaflokki, landi sögulegum sigri í austurrísku þingkosningunum sem fara fram á morgun. Erlent 28.9.2024 11:49