Viðskipti erlent Mcdonald's hækkar verð á ostborgara í fyrsta sinn í fjórtán ár Skyndibitakeðjan McDonald's hefur hækkað verð á ostborgurum sínum í Bretlandi og Írlandi í fyrsta sinn í meira en fjórtán ár til að bregðast við kostnaðarhækkunum. Verðbólga mælist nú 9,4 prósent í Bretlandi og hefur ekki verið meiri í yfir 40 ár. Viðskipti erlent 27.7.2022 15:06 Dótturfélag Hyundai nýtti sér barnaþrælkun í Alabama Fyrirtækið SMART Alabama LLC nýtti sér barnaþrælkun við gerð parta fyrir bíla bifreiðaframleiðandans Hyundai. Í sumum tilvikum voru starfsmenn fyrirtækisins einungis tólf ára gamlir. Viðskipti erlent 22.7.2022 23:02 Hækka stýrivexti í fyrsta skipti í ellefu ár Seðlabanki Evrópu hækkaði stýrivexti í dag um hálft prósentustig til að stemma stigu við 8,6 prósent verðbólgu á evrusvæðinu. Hækkunin er sú fyrsta sem seðlabankinn ræðst í síðan 2011. Viðskipti erlent 21.7.2022 14:25 Dómstólar ákveða hvort Musk skuli kaupa Twitter Dómstólar í Delaware hafa komist að þeirri niðurstöðu að Elon Musk þurfi að fara fyrir dóm vegna kaupa sinna á Twitter eða hvort hann skuli standa við þau. Viðskipti erlent 20.7.2022 19:43 Misstu milljón notendur en virðið hækkar samt Streymisveitan Netflix missti 970 þúsund áskrifendur á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það er stærsti áskrifendamissir fyrirtækisins frá því það var stofnað fyrir 25 árum. Þrátt fyrir það er uppgjörið talið vera jákvætt. Viðskipti erlent 20.7.2022 13:16 Hætta neysludagsmerkingu á grænmeti og ávöxtum Breska verslunarkeðjan Marks og Spencer ætla sér að hætta að nota merkingar um síðasta neysludag á miklum fjölda grænmetis og ávaxta í verslunum. Viðskipti erlent 18.7.2022 13:03 Rafmyntaverkvangurinn Celsius lýsir yfir gjaldþroti Rafmyntaverkvangurinn Celsius tilkynni gjaldþrot í gær en í seinasta mánuði lokaði verkvangurinn fyrir sölu á rafmyntum til þess að vernda starfsemi sína. Viðskipti erlent 14.7.2022 13:54 Bill Gates heitir því að detta af listanum yfir auðugustu menn heims Auðjöfurinn og frumkvöðullinn Bill Gates hefur heitið því enn og aftur að gefa auðæfi sín og segist stefna að því að detta af listum yfir ríkustu einstaklinga veraldar. Eins og stendur er hann í fjórða sæti, á eftir Elon Musk, Jeff Bezos og Bernard Arnault og fjölskyldu. Viðskipti erlent 14.7.2022 10:51 Stefna á að geta fargað þremur milljónum tonna af koltvísýringi á ári Íslenska kolefnisbindifyrirtækið Carbfix hefur fengið sextán milljarða króna styrk úr nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins. Fjármununum verður varið í uppbyggingu stöðvar sem mun taka á móti og farga koltvísýringi frá öðru löndum. Stefnt er að því að stöðin nái fullum afköstum eftir tíu ár. Viðskipti erlent 13.7.2022 23:02 Mesta verðbólga Bandaríkjanna í fjörutíu ár Verðbólga í Bandaríkjunum í júní mældist 9,1 prósent á milli ára og hefur hún ekki mælst hærri vestanhafs í rúm fjörutíu ár. Í maí hafði verðbólgan mælst 8,6 prósent en hækkunin er að mestu rakin til hærra verðs eldsneytis og matvæla, auk hækkunar í leigu. Viðskipti erlent 13.7.2022 16:42 Ný Barbídúkka Jane Goodall komin á markað Mattel, framleiðendur Barbí hafa nú gefið út dúkku eftir útliti fremdardýrafræðingsins, Dr. Jane Goodall. Dúkka Goodall er hluti af línu Barbí sem einblínir á hvetjandi konur. Viðskipti erlent 13.7.2022 07:48 Stjórnendur Twitter höfða mál gegn Musk Stjórnendur Twitter hafa ákveðið að höfða mál gegn Elon Musk, eftir að auðjöfurinn hætti við 44 milljarða dala yfirtöku á fyrirtækinu. Forsvarsmenn Twitter hafa nú krafist þess fyrir dómstól í Delaware að Musk verði látin standa við tilboð sitt, upp á 54 dali fyrir hvern hlut. Viðskipti erlent 13.7.2022 07:48 Evran fékkst á dollara í fyrsta sinn í tuttugu ár Evran og Bandaríkjadollari voru jafn mikils virði fyrr í dag. Það er í fyrsta sinn í 20 ár sem gengi gjaldmiðlanna tveggja er það sama. Viðskipti erlent 12.7.2022 14:10 Twitter í betri stöðu en samkomulag talið líklegt Lagasérfræðingar vestanhafs segja samfélagsmiðlafyrirtækið Twitter vera með yfirhöndina gegn auðjöfrinum Elon Musk. Hann tilkynnti fyrir helgi að hann ætlaði að hætta við að kaupa samfélagsmiðilinn, þrátt fyrir að hafa skrifað undir kaupsamning upp á 44 milljarða dala. Viðskipti erlent 11.7.2022 15:07 Pringles biðlar til félags áttfætlufræða Snakkframleiðandinn Pringles vill að köngulóar tegund þekkt sem Kidney Garden spider (Araneus mitificus), verði nefnd Pringles spider eða Pringles köngulóin. Pringles biðlar nú til félags áttfætlufræða með undirskriftalista. Viðskipti erlent 9.7.2022 21:51 Musk vill hætta við en Twitter ætlar í mál Auðjöfurinn Elon Musk segir að hann vilji hætta við að kaupa samfélagsmiðilinn Twitter á 44 milljarða dala. Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast ætla að höfða mál gegn Musk og segjast vongóðir um að þeir muni bera sigur úr bítum. Viðskipti erlent 8.7.2022 22:15 Kaup Musks á Twitter sögð „í hættu“ Kaup auðjöfursins Elons Musk á samfélagsmiðlinum Twitter eru sögð í hættu. Musk heldur því fram að ekki sé hægt að sannreyna tölur Twitter um fjölda falskra reikninga og svokallaðra botta á samfélagsmiðlinum og er auðjöfurinn sagður vera hættur viðræðum um fjármögnun kaupanna. Viðskipti erlent 7.7.2022 23:29 Google muni eyða staðsetningargögnum til þess að vernda viðskiptavini Bandaríski netrisinn Google mun eyða staðsetningarupplýsingum notenda þegar þeir heimsækja staði sem bjóða upp á þungunarrofsþjónustu. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá fyrirtækinu. Viðskipti erlent 4.7.2022 12:07 Fyrsta Barbiedúkkan sem er trans konu til heiðurs Aktívistinn og leikkonan Laverne Cox verður að Barbiedúkku en þetta er í fyrsta sinn sem Mattel hefur búið til dúkku trans konu til heiðurs. Viðskipti erlent 1.7.2022 17:01 Byrja að nota stærstu farþegaþotur heims á ný Flugfélagið Lufthansa hyggst byrja að nota Airbus A380-farþegaþotur sínar að nýju. Flugfélagið hefur ekki notast við þoturnar síðan árið 2020 þar sem ekki var hægt að fylla þær af farþegum í miðjum heimsfaraldri. Viðskipti erlent 27.6.2022 20:33 „Frá Sviss“ hverfur af umbúðum Toblerone Toblerone-súkkulaði hefur alla tíð einungis verið framleitt í Sviss, en framleiðandinn hyggur nú á opnun nýrrar verksmiðju í Slóvakíu. Svissnesk lög kveða á um að vegna þessa þurfi nú að breyta því sem stendur á umbúðunum. Viðskipti erlent 27.6.2022 08:31 Juul fær áfram að selja vörur sínar eftir dómsúrskurð Alríkisáfrýjunardómstóll stöðvaði tímabundið bann sem Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna lagði á vörur rafrettuframleiðandans Juul. Stofnunin sagði fyrirtækið ekki hafa sýnt fram á að vörur þess gögnuðust lýðheilsu. Viðskipti erlent 25.6.2022 11:17 Hráolíuverð heldur áfram að lækka Heimsmarkaðsverð á Brent-hráolíu lækkaði á föstudag og stefnir í lækkun aðra vikuna í röð. Olíuverð náði miklum hæðum í kjölfar stríðsins í Úkraínu en frá maílokum hefur Brent-olíuverð lækkað úr 120 bandaríkjadölum á tunnu niður í um 109, næstum tíu prósent lækkun. Viðskipti erlent 24.6.2022 11:13 Stærsta rafrettuframleiðandanum skipað að taka vörur af markaði Rafrettuframleiðandanum Juul var skipað að fjarlægja vörur sínar af markaði í Bandaríkjunum í gær. Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) telur fyrirtækið ekki hafa sýnt fram á að vörur þess gagnist lýðheilsu. Viðskipti erlent 24.6.2022 10:19 Þrjú hundruð sagt upp hjá Netflix Bandaríska streymisveitan Netflix hefur sagt upp þrjú hundrið starfsmönnum. Ástæðan er sú að áskrifendum fer fækkandi. Viðskipti erlent 23.6.2022 22:35 Mesta vaxtahækkun í Noregi í tuttugu ár Norski seðlabankinn hækkaði í morgun stýrivexti um hálft prósentustig, úr 0,75 í 1,25 prósent. Norskir fjölmiðlar segja að þetta sé mesta hækkun stýrivaxta í landinu í heil tuttugu ár. Viðskipti erlent 23.6.2022 12:56 Húsleit gerð hjá dönsku dótturfélagi Eimskips Danska samkeppniseftirlitið framkvæmdi í dag húsleit hjá Atlantic Trucking, dönsku dótturfélagi í eigu Eimskipafélags Íslands, í Álaborg í Danmörku. Viðskipti erlent 20.6.2022 20:57 Musk og fyrirtækjum hans stefnt vegna pýramídasvindls með rafmynt Fjárfestir í rafmyntinni Dogecoin stefndi Elon Musk, rafbílaframleiðandanum Tesla og og geimferðafyrirtækinu SpaceX vegna meints pýramídasvindls með myntina í dag. Hann krefst 258 milljarða króna frá Musk og fyrirtækjum hans. Viðskipti erlent 16.6.2022 20:16 Rafmyntir í ólgusjó Einn versti dagur í sögu rafmyntamarkaðsins rann upp nú á mánudag. Markaðurinn hefur tekið vænar niðursveiflur á síðustu vikum vegna hækkandi vaxta og aukinnar verðbólgu en heildarvirði rafmyntamarkaðsins hrundi niður fyrir eina trilljón Bandaríkjadala. Viðskipti erlent 14.6.2022 16:39 Sriracha-sósuskortur vegna veðurs Skortur á Sriracha sósu er yfirvofandi vegna veðrabreytinga í Mexíkó en Huy Fong Foods, framleiðandi sósunnar notar um það bil fimmtíu þúsund tonn af eldpipar í sósurnar sínar. Þetta hráefni er nú veðursins vegna af skornum skammti. Viðskipti erlent 14.6.2022 13:18 « ‹ 13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 334 ›
Mcdonald's hækkar verð á ostborgara í fyrsta sinn í fjórtán ár Skyndibitakeðjan McDonald's hefur hækkað verð á ostborgurum sínum í Bretlandi og Írlandi í fyrsta sinn í meira en fjórtán ár til að bregðast við kostnaðarhækkunum. Verðbólga mælist nú 9,4 prósent í Bretlandi og hefur ekki verið meiri í yfir 40 ár. Viðskipti erlent 27.7.2022 15:06
Dótturfélag Hyundai nýtti sér barnaþrælkun í Alabama Fyrirtækið SMART Alabama LLC nýtti sér barnaþrælkun við gerð parta fyrir bíla bifreiðaframleiðandans Hyundai. Í sumum tilvikum voru starfsmenn fyrirtækisins einungis tólf ára gamlir. Viðskipti erlent 22.7.2022 23:02
Hækka stýrivexti í fyrsta skipti í ellefu ár Seðlabanki Evrópu hækkaði stýrivexti í dag um hálft prósentustig til að stemma stigu við 8,6 prósent verðbólgu á evrusvæðinu. Hækkunin er sú fyrsta sem seðlabankinn ræðst í síðan 2011. Viðskipti erlent 21.7.2022 14:25
Dómstólar ákveða hvort Musk skuli kaupa Twitter Dómstólar í Delaware hafa komist að þeirri niðurstöðu að Elon Musk þurfi að fara fyrir dóm vegna kaupa sinna á Twitter eða hvort hann skuli standa við þau. Viðskipti erlent 20.7.2022 19:43
Misstu milljón notendur en virðið hækkar samt Streymisveitan Netflix missti 970 þúsund áskrifendur á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það er stærsti áskrifendamissir fyrirtækisins frá því það var stofnað fyrir 25 árum. Þrátt fyrir það er uppgjörið talið vera jákvætt. Viðskipti erlent 20.7.2022 13:16
Hætta neysludagsmerkingu á grænmeti og ávöxtum Breska verslunarkeðjan Marks og Spencer ætla sér að hætta að nota merkingar um síðasta neysludag á miklum fjölda grænmetis og ávaxta í verslunum. Viðskipti erlent 18.7.2022 13:03
Rafmyntaverkvangurinn Celsius lýsir yfir gjaldþroti Rafmyntaverkvangurinn Celsius tilkynni gjaldþrot í gær en í seinasta mánuði lokaði verkvangurinn fyrir sölu á rafmyntum til þess að vernda starfsemi sína. Viðskipti erlent 14.7.2022 13:54
Bill Gates heitir því að detta af listanum yfir auðugustu menn heims Auðjöfurinn og frumkvöðullinn Bill Gates hefur heitið því enn og aftur að gefa auðæfi sín og segist stefna að því að detta af listum yfir ríkustu einstaklinga veraldar. Eins og stendur er hann í fjórða sæti, á eftir Elon Musk, Jeff Bezos og Bernard Arnault og fjölskyldu. Viðskipti erlent 14.7.2022 10:51
Stefna á að geta fargað þremur milljónum tonna af koltvísýringi á ári Íslenska kolefnisbindifyrirtækið Carbfix hefur fengið sextán milljarða króna styrk úr nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins. Fjármununum verður varið í uppbyggingu stöðvar sem mun taka á móti og farga koltvísýringi frá öðru löndum. Stefnt er að því að stöðin nái fullum afköstum eftir tíu ár. Viðskipti erlent 13.7.2022 23:02
Mesta verðbólga Bandaríkjanna í fjörutíu ár Verðbólga í Bandaríkjunum í júní mældist 9,1 prósent á milli ára og hefur hún ekki mælst hærri vestanhafs í rúm fjörutíu ár. Í maí hafði verðbólgan mælst 8,6 prósent en hækkunin er að mestu rakin til hærra verðs eldsneytis og matvæla, auk hækkunar í leigu. Viðskipti erlent 13.7.2022 16:42
Ný Barbídúkka Jane Goodall komin á markað Mattel, framleiðendur Barbí hafa nú gefið út dúkku eftir útliti fremdardýrafræðingsins, Dr. Jane Goodall. Dúkka Goodall er hluti af línu Barbí sem einblínir á hvetjandi konur. Viðskipti erlent 13.7.2022 07:48
Stjórnendur Twitter höfða mál gegn Musk Stjórnendur Twitter hafa ákveðið að höfða mál gegn Elon Musk, eftir að auðjöfurinn hætti við 44 milljarða dala yfirtöku á fyrirtækinu. Forsvarsmenn Twitter hafa nú krafist þess fyrir dómstól í Delaware að Musk verði látin standa við tilboð sitt, upp á 54 dali fyrir hvern hlut. Viðskipti erlent 13.7.2022 07:48
Evran fékkst á dollara í fyrsta sinn í tuttugu ár Evran og Bandaríkjadollari voru jafn mikils virði fyrr í dag. Það er í fyrsta sinn í 20 ár sem gengi gjaldmiðlanna tveggja er það sama. Viðskipti erlent 12.7.2022 14:10
Twitter í betri stöðu en samkomulag talið líklegt Lagasérfræðingar vestanhafs segja samfélagsmiðlafyrirtækið Twitter vera með yfirhöndina gegn auðjöfrinum Elon Musk. Hann tilkynnti fyrir helgi að hann ætlaði að hætta við að kaupa samfélagsmiðilinn, þrátt fyrir að hafa skrifað undir kaupsamning upp á 44 milljarða dala. Viðskipti erlent 11.7.2022 15:07
Pringles biðlar til félags áttfætlufræða Snakkframleiðandinn Pringles vill að köngulóar tegund þekkt sem Kidney Garden spider (Araneus mitificus), verði nefnd Pringles spider eða Pringles köngulóin. Pringles biðlar nú til félags áttfætlufræða með undirskriftalista. Viðskipti erlent 9.7.2022 21:51
Musk vill hætta við en Twitter ætlar í mál Auðjöfurinn Elon Musk segir að hann vilji hætta við að kaupa samfélagsmiðilinn Twitter á 44 milljarða dala. Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast ætla að höfða mál gegn Musk og segjast vongóðir um að þeir muni bera sigur úr bítum. Viðskipti erlent 8.7.2022 22:15
Kaup Musks á Twitter sögð „í hættu“ Kaup auðjöfursins Elons Musk á samfélagsmiðlinum Twitter eru sögð í hættu. Musk heldur því fram að ekki sé hægt að sannreyna tölur Twitter um fjölda falskra reikninga og svokallaðra botta á samfélagsmiðlinum og er auðjöfurinn sagður vera hættur viðræðum um fjármögnun kaupanna. Viðskipti erlent 7.7.2022 23:29
Google muni eyða staðsetningargögnum til þess að vernda viðskiptavini Bandaríski netrisinn Google mun eyða staðsetningarupplýsingum notenda þegar þeir heimsækja staði sem bjóða upp á þungunarrofsþjónustu. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá fyrirtækinu. Viðskipti erlent 4.7.2022 12:07
Fyrsta Barbiedúkkan sem er trans konu til heiðurs Aktívistinn og leikkonan Laverne Cox verður að Barbiedúkku en þetta er í fyrsta sinn sem Mattel hefur búið til dúkku trans konu til heiðurs. Viðskipti erlent 1.7.2022 17:01
Byrja að nota stærstu farþegaþotur heims á ný Flugfélagið Lufthansa hyggst byrja að nota Airbus A380-farþegaþotur sínar að nýju. Flugfélagið hefur ekki notast við þoturnar síðan árið 2020 þar sem ekki var hægt að fylla þær af farþegum í miðjum heimsfaraldri. Viðskipti erlent 27.6.2022 20:33
„Frá Sviss“ hverfur af umbúðum Toblerone Toblerone-súkkulaði hefur alla tíð einungis verið framleitt í Sviss, en framleiðandinn hyggur nú á opnun nýrrar verksmiðju í Slóvakíu. Svissnesk lög kveða á um að vegna þessa þurfi nú að breyta því sem stendur á umbúðunum. Viðskipti erlent 27.6.2022 08:31
Juul fær áfram að selja vörur sínar eftir dómsúrskurð Alríkisáfrýjunardómstóll stöðvaði tímabundið bann sem Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna lagði á vörur rafrettuframleiðandans Juul. Stofnunin sagði fyrirtækið ekki hafa sýnt fram á að vörur þess gögnuðust lýðheilsu. Viðskipti erlent 25.6.2022 11:17
Hráolíuverð heldur áfram að lækka Heimsmarkaðsverð á Brent-hráolíu lækkaði á föstudag og stefnir í lækkun aðra vikuna í röð. Olíuverð náði miklum hæðum í kjölfar stríðsins í Úkraínu en frá maílokum hefur Brent-olíuverð lækkað úr 120 bandaríkjadölum á tunnu niður í um 109, næstum tíu prósent lækkun. Viðskipti erlent 24.6.2022 11:13
Stærsta rafrettuframleiðandanum skipað að taka vörur af markaði Rafrettuframleiðandanum Juul var skipað að fjarlægja vörur sínar af markaði í Bandaríkjunum í gær. Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) telur fyrirtækið ekki hafa sýnt fram á að vörur þess gagnist lýðheilsu. Viðskipti erlent 24.6.2022 10:19
Þrjú hundruð sagt upp hjá Netflix Bandaríska streymisveitan Netflix hefur sagt upp þrjú hundrið starfsmönnum. Ástæðan er sú að áskrifendum fer fækkandi. Viðskipti erlent 23.6.2022 22:35
Mesta vaxtahækkun í Noregi í tuttugu ár Norski seðlabankinn hækkaði í morgun stýrivexti um hálft prósentustig, úr 0,75 í 1,25 prósent. Norskir fjölmiðlar segja að þetta sé mesta hækkun stýrivaxta í landinu í heil tuttugu ár. Viðskipti erlent 23.6.2022 12:56
Húsleit gerð hjá dönsku dótturfélagi Eimskips Danska samkeppniseftirlitið framkvæmdi í dag húsleit hjá Atlantic Trucking, dönsku dótturfélagi í eigu Eimskipafélags Íslands, í Álaborg í Danmörku. Viðskipti erlent 20.6.2022 20:57
Musk og fyrirtækjum hans stefnt vegna pýramídasvindls með rafmynt Fjárfestir í rafmyntinni Dogecoin stefndi Elon Musk, rafbílaframleiðandanum Tesla og og geimferðafyrirtækinu SpaceX vegna meints pýramídasvindls með myntina í dag. Hann krefst 258 milljarða króna frá Musk og fyrirtækjum hans. Viðskipti erlent 16.6.2022 20:16
Rafmyntir í ólgusjó Einn versti dagur í sögu rafmyntamarkaðsins rann upp nú á mánudag. Markaðurinn hefur tekið vænar niðursveiflur á síðustu vikum vegna hækkandi vaxta og aukinnar verðbólgu en heildarvirði rafmyntamarkaðsins hrundi niður fyrir eina trilljón Bandaríkjadala. Viðskipti erlent 14.6.2022 16:39
Sriracha-sósuskortur vegna veðurs Skortur á Sriracha sósu er yfirvofandi vegna veðrabreytinga í Mexíkó en Huy Fong Foods, framleiðandi sósunnar notar um það bil fimmtíu þúsund tonn af eldpipar í sósurnar sínar. Þetta hráefni er nú veðursins vegna af skornum skammti. Viðskipti erlent 14.6.2022 13:18