Viðskipti innlent Guðrún Halla ráðin framkvæmdastjóri hjá Norðuráli Guðrún Halla Finnsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Norðuráli. Fram kemur í tilkynningu frá Norðuráli að Guðrún muni meðal annars leiða vinnu við raforkusamninga fyrirtækisins. Viðskipti innlent 21.4.2023 13:04 Gísli hættir og Karl Óttar tekur við Karl Óttar Einarsson mun um mánaðamótin taka við af Gísla Páli Pálssyni sem forstjóra Grundarheimilanna. Gísli mun þó ekki kveðja heimilin þar sem hann hefur verið ráðinn í hlutastarf sem stjórnarformaður Grundar. Viðskipti innlent 21.4.2023 11:15 Byltingarsinnaðir fjárfestar veðja á nýjan leik CCP: „Heimsyfirráð eða dauði“ á nýjan leik Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, á tveggja áratuga starf að baki hjá fyrirtækinu, en lítur svo á að hann sé rétt að byrja. Þróun er hafin á nýjum tölvuleik, sem gerist í sama umhverfi og EVE Online, en þar sem fjármálakerfið verður byggt á bálkakeðjutækni. Peningarnir verða með öðrum orðum í sömu mynd og Bitcoin. Viðskipti innlent 20.4.2023 09:00 Árdís Björk nýr framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi Árdís Björk Ármannsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi. Hún hefur undanfarin ár verið yfirlæknir og sinnt stjórnun við Södra Älvsborgs Sjukhus í Borås í Svíþjóð. Hún tekur við af Stefáni Yngvasyni sem sagði upp störfum að eigin ósk. Viðskipti innlent 19.4.2023 21:26 Krefst þess að Jón Arnar víki vegna tengsla við PwC Reimar Pétursson, lögmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar, krefst þess að Jón Arnar Baldurs taki ekki sæti sem sérfróður meðdómsmaður í hópmálsókn gegn Björgólfi. Þinghald um meint vanhæfi Jóns Arnars fór fram í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Viðskipti innlent 19.4.2023 12:18 Katrín selur allt sitt í Hagvangi Katrín S. Óladóttir hefur selt allt sitt hlutafé í Hagvangi til þriggja lykilstarfsmanna fyrirtækisins. Samhliða sölunni mun hún hætta sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins og tekur Geirlaug Jóhannsdóttir við af henni. Viðskipti innlent 19.4.2023 10:14 „Harla ólíklegt að við verðum ekki komin á markað í ár“ „Ég var aðallega hissa, meira en neitt annað,“ segir Róbert Wessmann, forstjóri Alvotech, um viðbrögð sín við ákvörðun Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA), um að veita líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við gigtarlyfið Humira ekki markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 18.4.2023 23:41 Verktakar frá Þýskalandi, Japan og Spáni vilja smíða Ölfusárbrú Verktakar frá Þýskalandi, Japan og Spáni eru í hópi þeirra sem óskuðu formlega eftir því í dag að fá að smíða nýja Ölfusárbrú við Selfoss. Vegagerðin stefnir að því að klára verksamning fyrir loks árs. Viðskipti innlent 18.4.2023 22:00 Sala á bjórkútum jókst um 48 prósent og rekstrarhagnaður stóreykst milli tímabila Rekstarhagnaður Ölgerðarinnar á fjórða ársfjórðungi hækkaði um 439 milljónir króna milli tímabila fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta. Vörusala Ölgerðarinnar var 20,7% hærri á fjárhagsárinu og var 48% magnaukning á bjórkútum. Hagnaður samstæðunnar á fjárhagsárinu var 2,5 milljarðar króna eftir skatta. Viðskipti innlent 18.4.2023 18:29 Arndís Ósk ráðin framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar. Ásamt því tekur hún sæti í yfirstjórn og framkvæmdastjórn Vegagerðarinnar. Alls bárust tuttugu og ein umsókn um starfið. Viðskipti innlent 18.4.2023 13:51 Færslurnar leiðréttar og korthafar þurfi ekki að hafa áhyggjur Allar röngu færslurnar sem fóru í gegnum kerfi Rapyd um helgina hafa verið leiðréttar en bankarnir geta verið mislengi að lesa inn leiðréttinguna hjá viðskiptavinum. Jónína Ingvadóttir, markaðsstjóri Rapyd segir að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af fjármunum sínum. Viðskipti innlent 18.4.2023 12:55 Inga Hlín ráðin framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins Inga Hlín Pálsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og mun hún hefja störf í byrjun maí. Alls bárust þrjátíu og sjö umsóknir um starfið. Viðskipti innlent 18.4.2023 11:25 Brim klárar tólf milljarða kaup á danskri fiskvinnslu Útgerðarfyrirtækið Brim hefur lokið við kaup á helmingshlut í félaginu Polar Seafood Denmark. Kaupverðið eru samanlagt 625 milljónir danskra króna, eða um tólf milljarðar íslenskra króna. Viðskipti innlent 18.4.2023 11:04 Margrét Anna skipuð sendiherra ELTA fyrir Ísland Margrét Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Justikal, hefur verið skipuð sem sendiherra Evrópusamtakanna í lögfræðitækni (ELTA). Meginmarkmið samtakanna er að efla tækni í lögfræðigeiranum í Evrópu. Viðskipti innlent 18.4.2023 10:36 Þorkell og Sævar til SIV SIV eignastýring hf. hefur ráðið til sín Þorkel Magnússon sem forstöðumanns sjóðastýringar og Sævar Haraldsson sem sjóðstjóra skuldabréfasjóða. Félagið bíður nú starfsleyfis sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða með viðbótarheimild til eignastýringar. Viðskipti innlent 18.4.2023 09:46 Ný þota gefur færi á beinu flugi til Mexíkó og Indlands Tækifæri Íslendinga til að komast í beint flug til fjarlægari áfangastaða gætu stóraukist með kaupum Icelandair á langdrægum Airbus-þotum. Kalifornía, Mexíkó, Texas og jafnvel Suður-Ameríka en einnig Indland og Norður-Afríka gætu þannig bæst í leiðakerfið. Viðskipti innlent 17.4.2023 20:50 Bónusgrísinn reiður kortafyrirtækjum „Kortafyrirtækin klúðruðu uppfærslu á sínum kerfum og því hafa margir lent í röngum færslum,“ segir í færslu á Facebooksíðu verslunarkeðjunnar Bónus. Með færslunni fylgir mynd af Bónusgrísnum fræga, sem er heldur reiður á svip. Viðskipti innlent 17.4.2023 18:04 Friðrik hættir sem kaupfélagsstjóri Friðrik Mar Guðmundsson hefur ákveðið að láta af störfum sem kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Hann hefur starfað hjá félögunum undanfarin nítján ár. Viðskipti innlent 17.4.2023 15:37 Telur sérfróðan meðdómanda vanhæfan Reimar Pétursson, verjandi Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur lagt fram kröfu um meint vanhæfi sérhæfs meðdómanda í málsókn þriggja málsóknarfélaga hluthafa Landsbankans. Krafan snýst um vanhæfi Jóns Arnars Baldurs, endurskoðanda og sérfræðings í reikningsskilum. Viðskipti innlent 17.4.2023 14:00 Mastercard hafar Íslandsbanka fengu sjokk í morgun Villur hafa komið upp á Mastercard greiðslukortum Íslandsbanka eftir aurarnir voru felldir niður á laugardag. Villurnar eru hins vegar að koma fram núna í morgun. Dæmi eru um að færslur séu að hundraðfaldast, en einnig eru villur í hina áttina. Viðskipti innlent 17.4.2023 11:27 Tímamót í viðskiptum með fasteignir Eftir margra ára undirbúning er fyrsta rafræna þinglýsingin í fasteignaviðskiptum orðin að veruleika. Fyrsta afsalinu var þinglýst rafrænt fyrir helgi og gert er ráð fyrir að rafrænar þinglýsingar á kaupsamningum komi með haustinu. Fasteignasali segir að um mikla búbót sé að ræða og að starfsgreinin sé ekki í hættu. Viðskipti innlent 16.4.2023 16:00 Símon Orri stýrir sölu smartbíla Símon Orri Sævarsson hefur verið ráðinn til Bílaumboðsins Öskju. Símon mun gegna starfi sölustjóra smartbíla og Mercedes-Benz sendibíla. Bílaframleiðandinn Smart býður upp á rafknúna bíla og er nýjasta viðbótin í vöruframboði Öskju. Viðskipti innlent 14.4.2023 18:17 Truflanir á greiðslukortafærslum eftir að aurarnir hurfu Niðurfelling aura úr greiðslukortakerfum hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig. Vegna villu í Danmörku margfölduðust heimildir á greiðslukortum. Viðskipti innlent 14.4.2023 14:10 Kristín Soffía og Hlöðver Þór nýir leitarar Kristín Soffía Jónsdóttir og Hlöðver Þór Árnason hafa verið ráðin til starfa hjá Leitar Capital Partners sem svokallaðir leitarar. Undir hatti Leitar munu Kristín Soffía og Hlöðver stýra eigin leitarsjóðum, annars vegar Hringur Capital ehf. og hins vegar Seek ehf. Þeir munu kaupa fyrirtæki sem Kristín Soffía og Hlöðver sjá um að stýra. Viðskipti innlent 14.4.2023 10:32 Selur allt sitt í Nova Stærsti einstaki hluthafi fjarskiptafyrirtækisins Nova hefur selt öll hlutabréf sín í fyrirtækinu. Félagið, Nova Acquisition Holding ehf., átti 11,1 prósent hlut í Nova eða 424.495.186. Hlutabréfin voru seld á genginu 4,8 krónur fyrir rúmlega tvo milljarða króna. Viðskipti innlent 14.4.2023 10:28 Hrun hjá bréfum Alvotech eftir tíðindi næturinnar Virði bréfa Alvotech hefur fallið um rúm tuttugu prósent eftir að í ljós kom að fyrirtækið fær ekki enn grænt ljós frá Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA) fyrir líftæknilyfjahliðstæðu við gigtarlyfið Humira. Viðskipti innlent 14.4.2023 10:20 Samskip fá vetnisknúin flutningaskip Samskip hafa samið um smíði á tveimur vetnisknúnum flutningaskipum. Um er að ræða skip sem ætluð eru til notkunar á skemmri siglingaleiðum í Evrópu. Félagið segir að samningurinn sé skref í átt að útblásturlausum skipaflutningum. Viðskipti innlent 14.4.2023 10:11 Landsliðskona ráðin fræðslu- og þróunarstjóri Elísa Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hefur verið ráðin sem fræðslu- og þróunarstjóri hjá íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Feel Iceland. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun á fæðubótaefnum sem innihalda kollagen prótein úr íslensku fiskroði. Viðskipti innlent 14.4.2023 09:54 Egill tekur við Gauta sem framkvæmdastjóri Heimstaden Egill Lúðvíksson er nýr framkvæmdastjóri Heimstaden á Íslandi. Hann tekur við stöðunni af Gauta Reynissyni í sumar. Síðustu fjögur ár hefur Egill starfað hjá móðurfélagi Heimstaden í Kaupmannahöfn við fjárfestingar, stefnumótun og fjármögnunn á ýmsum starfssvæðum fyrirtækisins. Viðskipti innlent 14.4.2023 09:27 Kaupa allan búnað N4 og veðja á dagskrárgerð á Húsavík Framleiðslufyrirtækið Film Húsavík hefur fest kaup á öllum tækjabúnaði þrotabús norðlensku sjónvarpsstöðvarinnar N4. Einn forvarsmanna fyrirtækisins segir það ætla að veðja á innlenda dagskrárgerð á Húsavík en ekki standi til að endurvekja sjónvarpsstöðina. Viðskipti innlent 13.4.2023 21:55 « ‹ 73 74 75 76 77 78 79 80 81 … 334 ›
Guðrún Halla ráðin framkvæmdastjóri hjá Norðuráli Guðrún Halla Finnsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Norðuráli. Fram kemur í tilkynningu frá Norðuráli að Guðrún muni meðal annars leiða vinnu við raforkusamninga fyrirtækisins. Viðskipti innlent 21.4.2023 13:04
Gísli hættir og Karl Óttar tekur við Karl Óttar Einarsson mun um mánaðamótin taka við af Gísla Páli Pálssyni sem forstjóra Grundarheimilanna. Gísli mun þó ekki kveðja heimilin þar sem hann hefur verið ráðinn í hlutastarf sem stjórnarformaður Grundar. Viðskipti innlent 21.4.2023 11:15
Byltingarsinnaðir fjárfestar veðja á nýjan leik CCP: „Heimsyfirráð eða dauði“ á nýjan leik Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, á tveggja áratuga starf að baki hjá fyrirtækinu, en lítur svo á að hann sé rétt að byrja. Þróun er hafin á nýjum tölvuleik, sem gerist í sama umhverfi og EVE Online, en þar sem fjármálakerfið verður byggt á bálkakeðjutækni. Peningarnir verða með öðrum orðum í sömu mynd og Bitcoin. Viðskipti innlent 20.4.2023 09:00
Árdís Björk nýr framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi Árdís Björk Ármannsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi. Hún hefur undanfarin ár verið yfirlæknir og sinnt stjórnun við Södra Älvsborgs Sjukhus í Borås í Svíþjóð. Hún tekur við af Stefáni Yngvasyni sem sagði upp störfum að eigin ósk. Viðskipti innlent 19.4.2023 21:26
Krefst þess að Jón Arnar víki vegna tengsla við PwC Reimar Pétursson, lögmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar, krefst þess að Jón Arnar Baldurs taki ekki sæti sem sérfróður meðdómsmaður í hópmálsókn gegn Björgólfi. Þinghald um meint vanhæfi Jóns Arnars fór fram í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur. Viðskipti innlent 19.4.2023 12:18
Katrín selur allt sitt í Hagvangi Katrín S. Óladóttir hefur selt allt sitt hlutafé í Hagvangi til þriggja lykilstarfsmanna fyrirtækisins. Samhliða sölunni mun hún hætta sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins og tekur Geirlaug Jóhannsdóttir við af henni. Viðskipti innlent 19.4.2023 10:14
„Harla ólíklegt að við verðum ekki komin á markað í ár“ „Ég var aðallega hissa, meira en neitt annað,“ segir Róbert Wessmann, forstjóri Alvotech, um viðbrögð sín við ákvörðun Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA), um að veita líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við gigtarlyfið Humira ekki markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 18.4.2023 23:41
Verktakar frá Þýskalandi, Japan og Spáni vilja smíða Ölfusárbrú Verktakar frá Þýskalandi, Japan og Spáni eru í hópi þeirra sem óskuðu formlega eftir því í dag að fá að smíða nýja Ölfusárbrú við Selfoss. Vegagerðin stefnir að því að klára verksamning fyrir loks árs. Viðskipti innlent 18.4.2023 22:00
Sala á bjórkútum jókst um 48 prósent og rekstrarhagnaður stóreykst milli tímabila Rekstarhagnaður Ölgerðarinnar á fjórða ársfjórðungi hækkaði um 439 milljónir króna milli tímabila fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta. Vörusala Ölgerðarinnar var 20,7% hærri á fjárhagsárinu og var 48% magnaukning á bjórkútum. Hagnaður samstæðunnar á fjárhagsárinu var 2,5 milljarðar króna eftir skatta. Viðskipti innlent 18.4.2023 18:29
Arndís Ósk ráðin framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar. Ásamt því tekur hún sæti í yfirstjórn og framkvæmdastjórn Vegagerðarinnar. Alls bárust tuttugu og ein umsókn um starfið. Viðskipti innlent 18.4.2023 13:51
Færslurnar leiðréttar og korthafar þurfi ekki að hafa áhyggjur Allar röngu færslurnar sem fóru í gegnum kerfi Rapyd um helgina hafa verið leiðréttar en bankarnir geta verið mislengi að lesa inn leiðréttinguna hjá viðskiptavinum. Jónína Ingvadóttir, markaðsstjóri Rapyd segir að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af fjármunum sínum. Viðskipti innlent 18.4.2023 12:55
Inga Hlín ráðin framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins Inga Hlín Pálsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og mun hún hefja störf í byrjun maí. Alls bárust þrjátíu og sjö umsóknir um starfið. Viðskipti innlent 18.4.2023 11:25
Brim klárar tólf milljarða kaup á danskri fiskvinnslu Útgerðarfyrirtækið Brim hefur lokið við kaup á helmingshlut í félaginu Polar Seafood Denmark. Kaupverðið eru samanlagt 625 milljónir danskra króna, eða um tólf milljarðar íslenskra króna. Viðskipti innlent 18.4.2023 11:04
Margrét Anna skipuð sendiherra ELTA fyrir Ísland Margrét Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Justikal, hefur verið skipuð sem sendiherra Evrópusamtakanna í lögfræðitækni (ELTA). Meginmarkmið samtakanna er að efla tækni í lögfræðigeiranum í Evrópu. Viðskipti innlent 18.4.2023 10:36
Þorkell og Sævar til SIV SIV eignastýring hf. hefur ráðið til sín Þorkel Magnússon sem forstöðumanns sjóðastýringar og Sævar Haraldsson sem sjóðstjóra skuldabréfasjóða. Félagið bíður nú starfsleyfis sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða með viðbótarheimild til eignastýringar. Viðskipti innlent 18.4.2023 09:46
Ný þota gefur færi á beinu flugi til Mexíkó og Indlands Tækifæri Íslendinga til að komast í beint flug til fjarlægari áfangastaða gætu stóraukist með kaupum Icelandair á langdrægum Airbus-þotum. Kalifornía, Mexíkó, Texas og jafnvel Suður-Ameríka en einnig Indland og Norður-Afríka gætu þannig bæst í leiðakerfið. Viðskipti innlent 17.4.2023 20:50
Bónusgrísinn reiður kortafyrirtækjum „Kortafyrirtækin klúðruðu uppfærslu á sínum kerfum og því hafa margir lent í röngum færslum,“ segir í færslu á Facebooksíðu verslunarkeðjunnar Bónus. Með færslunni fylgir mynd af Bónusgrísnum fræga, sem er heldur reiður á svip. Viðskipti innlent 17.4.2023 18:04
Friðrik hættir sem kaupfélagsstjóri Friðrik Mar Guðmundsson hefur ákveðið að láta af störfum sem kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Hann hefur starfað hjá félögunum undanfarin nítján ár. Viðskipti innlent 17.4.2023 15:37
Telur sérfróðan meðdómanda vanhæfan Reimar Pétursson, verjandi Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur lagt fram kröfu um meint vanhæfi sérhæfs meðdómanda í málsókn þriggja málsóknarfélaga hluthafa Landsbankans. Krafan snýst um vanhæfi Jóns Arnars Baldurs, endurskoðanda og sérfræðings í reikningsskilum. Viðskipti innlent 17.4.2023 14:00
Mastercard hafar Íslandsbanka fengu sjokk í morgun Villur hafa komið upp á Mastercard greiðslukortum Íslandsbanka eftir aurarnir voru felldir niður á laugardag. Villurnar eru hins vegar að koma fram núna í morgun. Dæmi eru um að færslur séu að hundraðfaldast, en einnig eru villur í hina áttina. Viðskipti innlent 17.4.2023 11:27
Tímamót í viðskiptum með fasteignir Eftir margra ára undirbúning er fyrsta rafræna þinglýsingin í fasteignaviðskiptum orðin að veruleika. Fyrsta afsalinu var þinglýst rafrænt fyrir helgi og gert er ráð fyrir að rafrænar þinglýsingar á kaupsamningum komi með haustinu. Fasteignasali segir að um mikla búbót sé að ræða og að starfsgreinin sé ekki í hættu. Viðskipti innlent 16.4.2023 16:00
Símon Orri stýrir sölu smartbíla Símon Orri Sævarsson hefur verið ráðinn til Bílaumboðsins Öskju. Símon mun gegna starfi sölustjóra smartbíla og Mercedes-Benz sendibíla. Bílaframleiðandinn Smart býður upp á rafknúna bíla og er nýjasta viðbótin í vöruframboði Öskju. Viðskipti innlent 14.4.2023 18:17
Truflanir á greiðslukortafærslum eftir að aurarnir hurfu Niðurfelling aura úr greiðslukortakerfum hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig. Vegna villu í Danmörku margfölduðust heimildir á greiðslukortum. Viðskipti innlent 14.4.2023 14:10
Kristín Soffía og Hlöðver Þór nýir leitarar Kristín Soffía Jónsdóttir og Hlöðver Þór Árnason hafa verið ráðin til starfa hjá Leitar Capital Partners sem svokallaðir leitarar. Undir hatti Leitar munu Kristín Soffía og Hlöðver stýra eigin leitarsjóðum, annars vegar Hringur Capital ehf. og hins vegar Seek ehf. Þeir munu kaupa fyrirtæki sem Kristín Soffía og Hlöðver sjá um að stýra. Viðskipti innlent 14.4.2023 10:32
Selur allt sitt í Nova Stærsti einstaki hluthafi fjarskiptafyrirtækisins Nova hefur selt öll hlutabréf sín í fyrirtækinu. Félagið, Nova Acquisition Holding ehf., átti 11,1 prósent hlut í Nova eða 424.495.186. Hlutabréfin voru seld á genginu 4,8 krónur fyrir rúmlega tvo milljarða króna. Viðskipti innlent 14.4.2023 10:28
Hrun hjá bréfum Alvotech eftir tíðindi næturinnar Virði bréfa Alvotech hefur fallið um rúm tuttugu prósent eftir að í ljós kom að fyrirtækið fær ekki enn grænt ljós frá Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA) fyrir líftæknilyfjahliðstæðu við gigtarlyfið Humira. Viðskipti innlent 14.4.2023 10:20
Samskip fá vetnisknúin flutningaskip Samskip hafa samið um smíði á tveimur vetnisknúnum flutningaskipum. Um er að ræða skip sem ætluð eru til notkunar á skemmri siglingaleiðum í Evrópu. Félagið segir að samningurinn sé skref í átt að útblásturlausum skipaflutningum. Viðskipti innlent 14.4.2023 10:11
Landsliðskona ráðin fræðslu- og þróunarstjóri Elísa Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hefur verið ráðin sem fræðslu- og þróunarstjóri hjá íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Feel Iceland. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun á fæðubótaefnum sem innihalda kollagen prótein úr íslensku fiskroði. Viðskipti innlent 14.4.2023 09:54
Egill tekur við Gauta sem framkvæmdastjóri Heimstaden Egill Lúðvíksson er nýr framkvæmdastjóri Heimstaden á Íslandi. Hann tekur við stöðunni af Gauta Reynissyni í sumar. Síðustu fjögur ár hefur Egill starfað hjá móðurfélagi Heimstaden í Kaupmannahöfn við fjárfestingar, stefnumótun og fjármögnunn á ýmsum starfssvæðum fyrirtækisins. Viðskipti innlent 14.4.2023 09:27
Kaupa allan búnað N4 og veðja á dagskrárgerð á Húsavík Framleiðslufyrirtækið Film Húsavík hefur fest kaup á öllum tækjabúnaði þrotabús norðlensku sjónvarpsstöðvarinnar N4. Einn forvarsmanna fyrirtækisins segir það ætla að veðja á innlenda dagskrárgerð á Húsavík en ekki standi til að endurvekja sjónvarpsstöðina. Viðskipti innlent 13.4.2023 21:55