Viðskipti innlent

Tveimur verslunum Krambúðarinnar lokað

Jón Þór Stefánsson skrifar
Verslun Krambúðarinnar í Suðurveri lokar í dag. Í miða í glugga verslunarinnar er greint frá því að þrjátíu prósent afsláttur sé af öllum vörum.
Verslun Krambúðarinnar í Suðurveri lokar í dag. Í miða í glugga verslunarinnar er greint frá því að þrjátíu prósent afsláttur sé af öllum vörum. Vísir

Verslunum Krambúðarinnar í Grímsbæ og Suðurveri verður lokað í dag. Öllu starfsfólki hafi verið boðin önnur störf hjá Samkaupum, sem rekur Krambúðina.

Þetta staðfestir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs hjá Samkaupum, í samtali við fréttastofu.

Hún segir að leigusamningar í verslununum hafi runnið út og ákveðið hafi verið að framlengja þá ekki þar sem verslanirnar hafi ekki verið sjálfbærar í rekstri.

„Þá er bara skynsamlegasta ákvörðunin að loka þegar við sjáum ekki tækifæri á að halda áfram nema með tapi,“ segir Gunnur.

„Eins og allir sem eru í atvinnurekstri þekkja þá er rekstrarumhverfið alveg áskörun á þessum tíma. Við viljum að allar okkar verslanir alls staðar á landinu séu sjálfbærar í rekstri. Það er okkar vegferð. Ef þær eru það ekki þá auðvitað reynum við að leita allra leiða til að vinna með þeim, en svo þegar við sjáum að það gengur ekki þá þarf maður að taka erfiðar ákvarðanir og loka.“


Tengdar fréttir

Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin

Eyrún Magnúsdóttir fjölmiðlakona og íbúi í Bústaðahverfi segir níkótínsölumenn starfa nær óáreitta í skjóli sofandi stjórnvalda hér á landi. Hún segir Bústaðaveg brátt verða Níkótínstræti vegna opnunar nýrrar verslunar Svens í Grímsbæ. Hún spyr hvort leigutekjur Reita, sem séu að mestu í eigu lífeyrissjóða, séu mikilvægari en áform níkótínsala um að ná fótfestu í skólahverfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×