Bjargaði stúlku úr brennandi íbúð 15. janúar 2005 00:01
Hinrik Ingi Guðbjargarson á Akureyri sýndi snarræði er hann bjargaði stúlku út úr brennandi íbúð í kjallaranum að Hafnarstræti 100 kl. 20.30 á föstudagskvöldið. "Það skíðlogaði í eldhúsinu en stúlkan lá meðvitundarlítil inni á baði," segir hann. Sjálfur býr hann í húsinu en það voru stúlkur í næstu íbúð fyrir ofan kjallarann sem urðu brunans varar og hringdu á slökkviliðið, sem mætti á staðinn örfáum mínútum eftir að stúlkunni var bjargað. Hinrik lýsir atburðinum svo: "Ég fór út á götu og þar var hópur af krökkum sem sögðust vera búin að berja á alla glugga en enginn hefði svarað. Ég ákvað samt að fara inn og þá fann ég stúlkuna." Að sögn slökkviliðs var talsverður eldur og mikill reykur á staðnum er það kom að en greiðlega gekk að slökkva eldinn og reykræsta íbúðina. Ekki er ljóst hvort kviknaði í út frá örbylgjuofni eða kerti en eldurinn var bundinn borði sem hvort tveggja stóð á. Stúlkan var flutt á sjúkrahús með snert af reykeitrun.
Fréttir Innlent Lífið Lög og regla Menning Mest lesið Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst Innlent „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Innlent Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Innlent Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Innlent Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Innlent „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent Mestu flokkaflakkararnir Innlent „Ég mun deyja á þessari hæð“ Innlent Fleiri fréttir Mestu flokkaflakkararnir Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Önnin kláruð með eðlilegum hætti í MR Tæplega helmingi líst vel á Samfylkingu og Viðreisn í ríkisstjórn Kennaraverkföllum frestað og áhrif veðursins á kosningar Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“ Miklar gleðifréttir og gott að fá nemendur og starfsfólk aftur í hús Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Svona verður kosningavaka Stöðvar 2 Næststærsta gosið hingað til Kennaraverkfalli frestað „Við setjum ekki líf og limi fólks í hættu til að flytja kjörgögn“ Tveir teknir með falin fíkniefni á leið til Ísafjarðar Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Engin kæra borist vegna upptakanna Svifryksmengun í borginni í dag og næstu daga Bein útsending: Fundur fólksins í Hörpu Óbreytt skólahald í Sunnulækjarskóla eftir helgi Ekkert D-vítamín í kæstum hákarli Fleiri gular viðvaranir á kjördag Slæm spá fjölgar þeim sem greitt hafa atkvæði Áframhaldandi gasmengun í Grindavík Margir greiða atkvæði utan kjörfundar fyrir austan Heilskimun Intuens enn til skoðunar hjá landlæknisembættinu Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í íshellaferð Æfing lögreglu og fíkniefnamál ollu misskilningi Þessi mættu best og verst í þinginu Sjá meira