Liðið er búið að missa sinn besta leikmann 16. október 2006 20:45 Eiður og Ronaldinho verða í eldlínunni á Stamford Bridge á miðvikudagskvöldið - allt í beinni á Sýn NordicPhotos/GettyImages
Eiður Smári Guðjohnsen segir að hans menn í Barcelona verði að skora fyrsta markið í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni á miðvikudaginn, því það sé mjög erfitt að lenda undir gegn jafn vel skipulögðu liði og gömlu félögum hans í Chelsea. Hann segist líka vita af hverju Chelsea hefur ekki byrjað mjög vel í ensku úrvalsdeildinni í haust. "Chelsea er sterkt og vel skipulagt lið og því er mjög hættulegt að lenda undir í svona leik. Við verðum því að vera mjög einbeittir allan tímann, því þeir refsa okkur umsvifalaust ef við gerum mistök," sagði Eiður í samtali við Reuters fréttastofuna á blaðamannafundi í dag. Hann segist ekki undirbúa sig sérstaklega fyrir leikinn gegn sínum gömlu félögum. "Ég veit hvað ég get á knattspyrnuvellinum og það vita allir hjá Chelsea líka þar sem ég spilaði 250 leiki fyrir félagið. Ég hlakka mikið til leiksins, en ég hef ekkert að sanna fyrir neinum nema sjálfum mér þegar í leikinn er komið," sagði Eiður og var að lokum spurður hvort hann hefði kenningu um það af hverju Englandsmeistararnir hefðu hikstað í upphafi leiktíðar. "Af því liðið er búið að missa sinn besta leikmann," sagði Eiður glaðbeittur.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu Fótbolti „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ Handbolti „Sjúklega stolt af þessum hóp“ Handbolti Maté hættir með Hauka Körfubolti Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Körfubolti Fleiri fréttir Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Víkingur sækir lykilmenn bikarmeistaranna Júlíus og Sveinn Aron skoruðu í lokaumferðinni Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Bellingham og Mbappé tryggðu Madrídingum sigur McTominay tryggði Napoli fjögurra stiga forskot á toppnum Chelsea náði Arsenal að stigum en Tottenham tapaði stigum Draumadagur fyrir Rashford og Zirkzee: Amorim lestin lögð af stað Daníel Tristan með þrennu: Stuðningsmennirnir sungu nafnið hans Ísak Bergmann skoraði og liðið fékk hjálp í lokin Liverpool bara með einn sigur í síðustu níu leikjum á móti Man. City Rautt spjald eftir þrjátíu sekúndur en unnu samt úrslitaleikinn Arnar og Freyr ekki efstir á óskalista Óskars Hrafns Dagur Dan komst ekki í úrslitaleikinn Arne Slot: Hættuleg helgi fyrir Liverpool Fallbaráttulið Nantes tók stig af meisturunum Musiala bjargaði stigi fyrir Bayern AC Milan aftur á sigurbraut Mark dæmt af Elíasi en liðið upp um fjögur sæti Þrenna og vítaþrenna í leikjum dagsins Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið HM í fótbolta 2034 mun fara fram um vetur Börsungar töpuðu óvænt á heimavelli Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Messi segist sakna Barcelona Guardiola: Núna þarf ég að sanna mig Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti