Rekstur Akureyrarbæjar á flugvellinum verður skoðaður Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 22. júní 2007 18:46
Samgönguráðherra segir að flugbrautin á Akureyrarflugvelli verði lengd við fyrsta tækifæri og skoðað verði hvort Akureyrarbær taki yfir rekstur flugvallarins óski bærinn eftir því. Kostnaður Flugstoða við reksturinn er áætlaður um tvö hundruð milljónir króna á þessu ári. Í gær kom fram í fréttum að Akureyrarbær hefði áhuga á að taka yfir rekstur Akureyrarflugvallar. Ein forsendan er lenging flugbrautarinnar. Þannig geti bærinn markaðssett flugvöllinn betur og meðal annars laðað að lággjaldaflugfélög. Kristján Möller samgönguráðherra sagði í samtali við fréttastofu í dag að flugbrautin verði lengd svo fljótt sem auðið er. Flugstoðir sjá um rekstur flugvallarins, eins og annarra áætlunarvalla á landinu fyrir utan Keflavíkurflugvöll. Kostnaðaráætlun Flugstoða við Akureyrarflugvöll á þessu ári er 196 milljónir. Hermann Jón Tómasson formaður bæjarráðs Akureyrar segir enn einungis um hugmynd að ræða, en í meirihlutasáttmála sé þetta eitt af þeim málum sem áhersla sé lögð á. Akureyrarbær færi fram á fjármagn frá ríkinu til rekstursins, eins og Flugstoðir fá í dag. Ef af þessu verður er hægt að auka þjónustu og markaðssetja bæði völlinn og Akureyrarbæ betur.
Innlent Mest lesið Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst Innlent „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Innlent Mestu flokkaflakkararnir Innlent Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Innlent Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Innlent Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Innlent „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ Innlent Kosningavaktin: Landsmenn kjósa sér nýtt þing Innlent Tæplega helmingi líst vel á Samfylkingu og Viðreisn í ríkisstjórn Innlent Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“ Innlent Fleiri fréttir Kosningavaktin: Landsmenn kjósa sér nýtt þing Mestu flokkaflakkararnir Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Önnin kláruð með eðlilegum hætti í MR Tæplega helmingi líst vel á Samfylkingu og Viðreisn í ríkisstjórn Kennaraverkföllum frestað og áhrif veðursins á kosningar Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“ Miklar gleðifréttir og gott að fá nemendur og starfsfólk aftur í hús Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Svona verður kosningavaka Stöðvar 2 Næststærsta gosið hingað til Kennaraverkfalli frestað „Við setjum ekki líf og limi fólks í hættu til að flytja kjörgögn“ Tveir teknir með falin fíkniefni á leið til Ísafjarðar Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Engin kæra borist vegna upptakanna Svifryksmengun í borginni í dag og næstu daga Bein útsending: Fundur fólksins í Hörpu Óbreytt skólahald í Sunnulækjarskóla eftir helgi Ekkert D-vítamín í kæstum hákarli Fleiri gular viðvaranir á kjördag Slæm spá fjölgar þeim sem greitt hafa atkvæði Áframhaldandi gasmengun í Grindavík Margir greiða atkvæði utan kjörfundar fyrir austan Heilskimun Intuens enn til skoðunar hjá landlæknisembættinu Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í íshellaferð Æfing lögreglu og fíkniefnamál ollu misskilningi Sjá meira