Icesave 8. hluti: Hlekkir eða líflína? 6. apríl 2011 07:00
Fólk hefur sjálfsagt tíu ástæður til að segja já eða nei við Icesave. Eða hundrað. Margvísleg rök á báða bóga hafa komið fram, alveg frá því að málið varð það vandræðamál sem það er. Helsta grundvallarspurningin er þessi: eigum við að borga? Nei, segja margir enda standi ekki til þess lagaleg rök. Hinir sömu telja að út af fyrir sig þurfi ekki að ræða málið frekar en geta engu að síður talið upp fjölda röksemda til að styðja mál sitt. Flestir þeirra sem segja já gera það ekki vegna þess að þeir meti lagaskylduna ljósa heldur telja þeir það rétt í pólitísku og efnahagslegu tilliti. Samþykkt auðveldi og flýti endurreisn samfélagsins. Andstæðingar samþykktar eru á hinn bóginn almennt þeirrar skoðunar að endurreisnin muni hafa sinn gang þótt Icesave verði fellt.Eignir og gengi Álitaefnin við samninginn eru að sönnu mörg og talsverð óvissa ríkir um ýmsar hliðar hans. Stóra spurningin er hversu hár reikningurinn verður á endanum. Til eru dæmi sem sýna að íslenska ríkið muni, þegar upp verður staðið, engan kostnað bera og önnur sem sýna himinháan kostnað. Tvennt ræður: virði eigna þrotabús Landsbankans og gengisþróun. Um hvort tveggja ríkir óvissa. Eignirnar eru þekktar og fyrir liggur mat skilanefndar bankans um hvað á endanum muni skila sér. Ekki er þó allt fast í hendi. Gengið er svo eins og veðrið, það er hægt að spá en ógjörningur að segja til um hvað endanlega verður. Hagdeild ASÍ segir að þróist allt til verri vegar, heimtur úr búinu versni umtalsvert og gengið falli um 25 prósent geti kostnaður ríkissjóðs orðið rúmlega 200 milljarðar. Friðrik Már Baldursson hagfræðiprófessor bendir á hinn bóginn á að raungengi krónunnar sé nú 20 til 30 prósentum fyrir neðan meðaltal síðustu áratuga.Dómstólaleiðin Verði Icesave-lögin felld í atkvæðagreiðslunni á laugardag blasir við að deilan fari fyrir dómstóla. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að hún telji að Íslendingum beri að ábyrgjast innstæður breskra og hollenskra sparifjáreigenda á Icesave-reikningunum að því ríflega tuttugu þúsund evra lágmarki sem Evróputilskipun um innstæðutryggingar kveður á um. Fari málið fyrir dómstól EFTA og hann dæmir Íslendinga brotlega gagnvart EES-samningnum er ekki þar með sagt að okkur verði gert að greiða. Til að svo fari þurfa Bretar og Hollendingar að höfða sérstakt skaðabótamál fyrir íslenskum dómstólum, og auðvitað vinna það.Lánshæfi og pólitík Vafamálin eru fleiri. Lánshæfismat ríkissjóðs, möguleikar íslenskra fyrirtækja á lánafyrirgreiðslu í útlöndum og vilji útlendinga til að fjárfesta á Íslandi eru allt veigamiklir þættir í áróðri já-sinna. Þeir telja allt þetta breytast til batnaðar með samþykkt. Andstæðingarnir eru á öndverðum meiði. Þeir segja enga tryggingu fyrir þíðu í fjármálaheimum og þar með aukna fjárfestingu felast í samþykkt, þvert á móti þýði samningurinn auknar skuldir íslenska ríkisins sem kunni að virka neikvætt á umheiminn. Pólitísk samskipti eru einnig undir. Íslendingar hljóta ævarandi skömm á alþjóðavettvangi ef ekki verður samið. Þeir standa ekki við orð sín og borga ekki skuldir sínar, segja fylgjendur. Á móti er sagt að ef samið verði hljóti Íslendingar ævarandi skömm á alþjóðavettvangi. Þeir verða taldar undirlægjur.Ítarefni Af þessari stuttu samantekt má sjá að allt er þetta býsna snúið og sjálfsagt ekki einfalt mál fyrir alla að móta afstöðu til málsins. Umræðan hefur líka verið hörð með afbrigðum og ekki alltaf hjálpleg. Í mörgum greinum og ræðum hefur fólk mátt moka sig í gegnum fúkyrðaflaum áður en það finnur sæmilega rökstudda skoðun eða gagnlegar upplýsingar. Á Vísi má finna fréttaskýringar Fréttablaðsins um málið, á alþingi.is eru helstu gögn þingsins um málið, fjármálaráðuneytið birtir efni á sínum vef og opinbera kynningarefnið sem Lagastofnun Háskóla Íslands vann er á kosning.is. Stofnað var til Icesave í október 2006. Frá 2008 hefur málið verið vandamál, fyrst í bréfum og á fundum sem ekki þoldu dagsljósið, síðan sem ein harðasta milliríkjadeila sem Ísland hefur átt í. Á laugardaginn ræðst framhaldið.
Icesave fréttaskýringar Skroll-Fréttir Tengdar fréttir Icesave 1. hluti: Svo einfalt í fyrstu Icesave, sem byrjaði sem saklaus leið Landsbankans til að fjármagna sig, snerist við hrunið upp í andhverfu sína og er eitt flóknasta og erfiðasta viðfangsefni sem þjóðin hefur tekist á við. 6. apríl 2011 07:00 Icesave 6.hluti: ESA telur skyldur Íslendinga skýrar Líkur verða að teljast á að Ísland myndi tapa máli sem rekið yrði fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave-deilunnar. Skiptar skoðanir eru um málið meðal lögmanna. Álit ESA er að með afstöðu sinni brjóti Ísland í bága við EES-samninginn. Fyrstu skrefin í málarekstri ESA hafa þegar verið tekin. Næstu skref verða tekin felli þjóðin nýjan Icesave-samning í atkvæðagreiðslunni næsta laugardag. 6. apríl 2011 07:00 Icesave 3. hluti: Gengið og heimtur þrotabús valda óvissu Meðal þess sem gæti ráðið úrslitum þegar gengið verður til atkvæða um Icesave-samninginn er mat kjósenda á því hversu mikill kostnaður fellur á ríkið. Nokkrir óvissuþættir flækja kostnaðarmatið. 6. apríl 2011 07:00 Icesave 2. hluti: Eins og að deila við dómarann Að mótmæla viðbrögðum lánshæfismatsfyrirtækja við höfnun Icesave-samkomulags er eins og að deila við dómarann. 6. apríl 2011 07:00 Icesave 4. hluti: Í höftum virðist áhættan lítil Kostnaður vegna Icesave getur aukist eða minnkað í samræmi við gengisþróun krónunnar. Yfirlýsingar Seðlabankans um hvernig staðið verður að losun gjaldeyrishafta draga þó úr líkum á að gengið hafi veruleg áhrif. Verði Icesave samþykkt er málið talið úr sögunni að mestu eftir tvö ár, en þá verða enn eftir önnur tvö ár í gjaldeyrishöftum. 6. apríl 2011 07:00 Icesave 7. hluti: Lítill hluti kostnaðar við hrun bankanna Standist áætlun samninganefndar Íslands vegna Icesave mun 32 milljarða króna kostnaður falla á ríkissjóð samþykki landsmenn Icesave-samninginn næsta laugardag. Þótt sú upphæð sé há í flestu samhengi bliknar hún í samanburði við annan kostnað ríkisins vegna bankahrunsins. 6. apríl 2011 07:00 Icesave 5. hluti: Óvissa um minnihluta eigna þrotabúsins Mat á eignum þrotabús Landsbankans skiptir höfuðmáli þegar reynt er að meta hversu há upphæð gæti fallið á íslenska skattgreiðendur vegna Icesave. Í eignasafninu leynast hundruð milljarða í reiðufé, útlánum og í hlutabréfum í félögum á borð við verslunarkeðjuna Iceland Foods. 6. apríl 2011 07:00 Mest lesið Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst Innlent „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Innlent Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Innlent Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Innlent Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Innlent „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent „Ég mun deyja á þessari hæð“ Innlent Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Erlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Önnin kláruð með eðlilegum hætti í MR Tæplega helmingi líst vel á Samfylkingu og Viðreisn í ríkisstjórn Kennaraverkföllum frestað og áhrif veðursins á kosningar Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“ Miklar gleðifréttir og gott að fá nemendur og starfsfólk aftur í hús Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Svona verður kosningavaka Stöðvar 2 Næststærsta gosið hingað til Kennaraverkfalli frestað „Við setjum ekki líf og limi fólks í hættu til að flytja kjörgögn“ Tveir teknir með falin fíkniefni á leið til Ísafjarðar Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Engin kæra borist vegna upptakanna Svifryksmengun í borginni í dag og næstu daga Bein útsending: Fundur fólksins í Hörpu Óbreytt skólahald í Sunnulækjarskóla eftir helgi Ekkert D-vítamín í kæstum hákarli Fleiri gular viðvaranir á kjördag Slæm spá fjölgar þeim sem greitt hafa atkvæði Áframhaldandi gasmengun í Grindavík Margir greiða atkvæði utan kjörfundar fyrir austan Heilskimun Intuens enn til skoðunar hjá landlæknisembættinu Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í íshellaferð Æfing lögreglu og fíkniefnamál ollu misskilningi Þessi mættu best og verst í þinginu Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Sjá meira
Icesave 1. hluti: Svo einfalt í fyrstu Icesave, sem byrjaði sem saklaus leið Landsbankans til að fjármagna sig, snerist við hrunið upp í andhverfu sína og er eitt flóknasta og erfiðasta viðfangsefni sem þjóðin hefur tekist á við. 6. apríl 2011 07:00
Icesave 6.hluti: ESA telur skyldur Íslendinga skýrar Líkur verða að teljast á að Ísland myndi tapa máli sem rekið yrði fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave-deilunnar. Skiptar skoðanir eru um málið meðal lögmanna. Álit ESA er að með afstöðu sinni brjóti Ísland í bága við EES-samninginn. Fyrstu skrefin í málarekstri ESA hafa þegar verið tekin. Næstu skref verða tekin felli þjóðin nýjan Icesave-samning í atkvæðagreiðslunni næsta laugardag. 6. apríl 2011 07:00
Icesave 3. hluti: Gengið og heimtur þrotabús valda óvissu Meðal þess sem gæti ráðið úrslitum þegar gengið verður til atkvæða um Icesave-samninginn er mat kjósenda á því hversu mikill kostnaður fellur á ríkið. Nokkrir óvissuþættir flækja kostnaðarmatið. 6. apríl 2011 07:00
Icesave 2. hluti: Eins og að deila við dómarann Að mótmæla viðbrögðum lánshæfismatsfyrirtækja við höfnun Icesave-samkomulags er eins og að deila við dómarann. 6. apríl 2011 07:00
Icesave 4. hluti: Í höftum virðist áhættan lítil Kostnaður vegna Icesave getur aukist eða minnkað í samræmi við gengisþróun krónunnar. Yfirlýsingar Seðlabankans um hvernig staðið verður að losun gjaldeyrishafta draga þó úr líkum á að gengið hafi veruleg áhrif. Verði Icesave samþykkt er málið talið úr sögunni að mestu eftir tvö ár, en þá verða enn eftir önnur tvö ár í gjaldeyrishöftum. 6. apríl 2011 07:00
Icesave 7. hluti: Lítill hluti kostnaðar við hrun bankanna Standist áætlun samninganefndar Íslands vegna Icesave mun 32 milljarða króna kostnaður falla á ríkissjóð samþykki landsmenn Icesave-samninginn næsta laugardag. Þótt sú upphæð sé há í flestu samhengi bliknar hún í samanburði við annan kostnað ríkisins vegna bankahrunsins. 6. apríl 2011 07:00
Icesave 5. hluti: Óvissa um minnihluta eigna þrotabúsins Mat á eignum þrotabús Landsbankans skiptir höfuðmáli þegar reynt er að meta hversu há upphæð gæti fallið á íslenska skattgreiðendur vegna Icesave. Í eignasafninu leynast hundruð milljarða í reiðufé, útlánum og í hlutabréfum í félögum á borð við verslunarkeðjuna Iceland Foods. 6. apríl 2011 07:00