Ólafur í vandræðum, sigur hjá Stefáni og dramatík í Austurríki Anton Ingi Leifsson skrifar 10. maí 2019 18:56 Stefán átti flottan leik í kvöld. vísir/getty
Íslendingaliðið West Wien er lent 1-0 undir gegn HC Hard í undanúrslitum austurríska handboltans eftir að hafa tapað fyrsta leik liðanna, 26-25, eftir framlengdan leik. Vinna þarf tvo leiki til þess að tryggja sér í úrslitaviðureignina svo Vínar-liðið þarf að ná í sigur á heimavelli á mánudaginn kemur. Viggó Kristjánsson var markahæstur hjá West Wien með sex mörk en Guðmundur Hólmar Helgason bætti við fimm mörkum. Ólafur Gústafsson og félagar í KIF Kolding eru ekki í góðum málum eftir fyrri umspilsleikinn gegn TM Tønder um laust sæti í dönsku úrvalsdeildinni á næstu lektíð. Kolding tapaði fyrstu rimmu liðanna á heimavelli í kvöld, 28-25, en liðið sem er fyrr til þess að vinna tvo leiki spilar í dönsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Ólafur var markahæsti leikmaður Kolding með fimm mörk ásamt því að standa vaktina í vörninni. KIF þarf því að vinna næsta leik liðanna á þriðjudaginn kemur. Félagi Ólafs úr Hafnarfirðinum, Stefán Rafn Sigurmannsson, var hins vegar í sigurliði í Ungverjalandi er Pick Szeged vann 37-29 sigur á Ceglédi í deildinni þar í landi. Stefán og félagar eru orðnir ungverskir meistarar en Hafnfirðingurinn skoraði fimm mörk í leiknum í kvöld.
Handbolti Mest lesið Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims Fótbolti „Þetta er mjög ljúft“ Handbolti Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Fótbolti Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Handbolti Hummels kom Rómverjum til bjargar Fótbolti Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Handbolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Hófu titilvörnina með öruggum sigri Handbolti Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Fótbolti „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Skrýtið en venst Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri ÍBV (eða Haukar) í erfiðan slag í bikarnum „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Porto lagði Val í Portúgal Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Sameinast litla bróður hjá Kolstad Tímabært að breyta til Benedikt markahæstur í sannfærandi sigri Kolstad Aftur eins marks tap en nú tekur EM við Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Sjá meira