Endurreisnarmálverk sem fannst við tiltekt selt fyrir 24 milljónir evra Andri Eysteinsson skrifar 27. október 2019 18:44 Málverkið var boðið upp í París. Getty/Frederic Soltan
Málverkið Kristur hæddur var í dag selt fyrir meira en 24 milljónir evra á uppboði í París. Málverkið, sem er smátt í sniðum, hafði hangið fyrir ofan eldavél í bænum Compiegne í áraraðir. Fyrrverandi eigandi málverksins, kona á tíræðisaldri, kveðst aldrei hafa velt málverkinu fyrir sér. Hún hafi alla tíð talið að um væri að ræða gamla dýrlingamynd frá Rússlandi. Málverkið reyndist hins vegar vera meistaraverk eftir ítalska þrettándu aldar málarann Cimabue frá Flórens. Málverkið fékk hins vegar verðskuldaða athygli þegar konan hugðist flytja búferlum og ætlaði að losa sig við hluta innbúsins.Guardian greinir frá að þar hafi málverkið verið uppgötvað af starfsmanni uppboðshaldarans sem hafði ætlað að verðmeta húsgögn í eigu konunnar. Uppboðshaldarinn Dominique Le Coent sagði eftir uppboðið að málverkið sé það eina eftir Cimabue sem hefur farið á uppboð. Ellefu verk eftir Cimabue hafa verið uppgötvuð.
Frakkland Mest lesið Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi Innlent Biden náðar son sinn Erlent „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ Innlent Kosningavaktin: Sögulegar kosningar að baki Innlent „Ég ætla að standa mig betur“ Innlent Vaxandi lægð og gular viðvaranir víða um land Veður Vaktin: Halla fær formenn flokkanna á sinn fund Innlent „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Innlent Leita einstaklings sem grunaður er um líkamsárás Innlent Hver fær stjórnarmyndunarumboðið?: Forsetinn hittir formennina á Bessastöðum Innlent Fleiri fréttir Biden náðar son sinn Kynlífsverkafólk í Belgíu á nú rétt á fæðingarorlofi og lífeyri Ungur maður særði tvennt í skotárás á Grænlandi Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins Sjá meira