Skoðun

Lífeyrismál unga fólksins

Kristófer Már Maronsson skrifar

Það getur skipt sköpum að kynna sér lífeyrismálin fyrir tvítugt frekar en um fertugt eða seinna. Það er mikilvægt að velja sér lífeyrissjóð og kynna sér ávöxtunarleiðir, möguleika til að nýta sparnaðinn til fyrstu fasteignakaupa o.s.frv. þegar fyrstu launaseðlarnir berast. Það er samt aldrei of seint að skoða lífeyrismálin, en því fyrr því betra.

Raunhæf verkefni til að vekja áhuga

Ég býð mig fram í stjórn Almenna Lífeyrissjóðsins og vil m.a. nýta tíma minn í stjórn til þess að kynna lífeyrismál betur fyrir fólki, þá sérstaklega unga fólkinu. Ég tel að jafningjafræðsla sé besta leiðin til þess að kynna lífeyrismál fyrir ungu fólki, sem er ekki einu hálfnað á vegferð sinni að eftirlaunaaldri. Þetta vil ég t.d. gera með því að fá nemendur í framhaldsskólum um land allt til þess að taka þátt í raunhæfum verkefnum tengdum lífeyrismálum. Fyrir áratug var ég nemandi í Verzlunarskóla Íslands og þar unnum við raunhæf verkefni þar sem við þurftum til dæmis að vinna okkur í gegnum allt ferlið við að kaupa draumabílinn. Það þurfti að finna bílinn, fjármagna hann og skoða greiðsluáætlun ásamt því að skoða sérstaklega hversu mikið er greitt í vexti og lántökukostnað. Þetta opnaði augun hjá mér og líklega fleirum fyrir því hvað lántaka er dýr.

Lög um fyrstu fasteign

Þetta raunhæfa verkefni skilaði sér í því að þegar ég fór að huga að húsnæðiskaupum pældi ég mikið í því hvernig væri hægt að greiða lánið hratt niður til þess að lágmarka vaxtakostnað. Eftir miklar excel-æfingar taldi ég sniðugt að gefa fólki kost á því að nota lífeyrissparnaðinn til þess að greiða niður lánin sín í nokkur ár þegar það kaupir sína fyrstu fasteign og ritaði um það stuttan pistil. Umræðan fór á flug eftir pistilinn og mætti ég m.a. í Kastljós ásamt Gunnari Baldvinssyni, framkvæmdastjóra Almenna lífeyrissjóðsins, til þess að ræða málin. Umræðan rataði alla leið inn á Alþingi og nokkrum mánuðum síðar voru samþykkt lög um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð sem nýst hafa fjölda fólks sem eru að koma inn á markaðinn í fyrsta sinn.

Hver getur kosið?

Um 57.000 sjóðfélagar geta kosið í stjórnarkjörinu, en Almenni Lífeyrissjóðurinn er m.a. starfsgreinasjóður lækna, arkitekta, tæknifræðinga, hljómlistamanna og leiðsögumanna. Einnig getur um helmingur launþega valið að greiða í sjóðinn. Til þess að hugmyndir mínar nái fram að ganga þarf ég á öflugu umboði sjóðfélaga að halda. Rafrænar kosningar eru í gangi til kl. 16 í dag, 29. mars, og ég óska eftir þínum stuðningi - hvort sem þú getur kosið eða látið vini og vandamenn vita. Margt smátt gerir eitt stórt og í krafti fjöldans er hægt að gera breytingar til hins betra. Hafir þú áhuga á því að fylgjast með eða komast í samband við mig bendi ég á vefsíðu framboðsins.

Höfundur er hagfræðingur og býður sig fram í stjórn Almenna lífeyrissjóðsins.

- smelltu hér til að kjósa.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×