Skoðun

Sveitar­stjórn, stattu með sjálfri þér í dag og segðu Nei!

Margrét Erlendsdóttir skrifar

Umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir byggingu Hvammsvirkjunar verður afgreidd á fundi sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps kl. 17 í dag. Ef sveitarstjórnin ætlar ekki að ganga gegn eigin orðum og svíkja sjálfa sig þá á hún aðeins einn kost. Hún verður að hafna umsókninni.

Þann 15. febrúar sl. var haldinn íbúafundur í Árnesi þar sem kynnt var staða framkvæmdaleyfis hjá sveitarstjórn. Frá því er skemmst að segja að sveitarstjórinn fór þar ýtarlega yfir hvort sveitarfélagið myndi hafa einhvern fjárhagslegan ávinning af Hvammsvirkjun. Stutta svarið var nei og afstaða sveitarstjórans var skýr þegar hann sagði: „Mér finnst nærsamfélagið ekki hafa neitt upp úr þessu mér finnst við ekki njóta ávinnings af þessari starfsemi. Þeim mun meiri gögn sem ég hef fengið og þeim mun meira sem ég fer í gegn um það þeim mun betri mynd fæ ég af þessu.“

Sveitarstjórinn skýrði m.a. út að samspil tekna sveitarsjóðs og framlags úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga gæti orðið til þess að sveitarsjóður myndi beinlínis tapa á framkvæmdinni.

Sveitarstjórinn sagði enga hafa dregið í efa að útreikningar hans væru réttir. Hann sagði líka að orkumálaráðherra, forstjóri Landsvirkjunar og hann sjálfur væru sammála því að setja þyrfti einhvers konar breytingar í lög til að tryggja nærumhverfinu sanngjarna skiptingu á auðlindinni. Og sjálfur sagðist hann telja að þetta þyrfti Alþingi að gera fyrir vorið.

Efasemdir um lögmæti

Á íbúafundinum sagði sveitarstjóri frá því að hann hefði fengið lögfræðing sveitarfélagsins til að óska eftir lögfræðiáliti á því hvort sveitarstjórn sem beri ábyrgð á rekstri sveitarfélags sé heimilt að lögum að veita leyfi til framkvæmda sem hafa hugsanlega neikvæð fjárhagsleg áhrif á sveitarfélagið.

Það sem blasir við

Engar breytingar hafa verið gerðar á lögum. Ekkert hefur breyst sem gerir það að verkum að sveitarstjórn geti veitt leyfi fyrir Hvammsvirkjun með fullvissu fyrir því að framkvæmdin muni skapa sveitarfélaginu fjárhagslegan ávinning, hvað þá meira. Það hefur reyndar verið skipaður starfshópur á vegum fjármálaráðherra til að hefja skoðun á skattalegu umhverfi orkuvinnslu en hvað út úr því kemur og hvenær er ómögulegt að segja.

Það er vandséð hvernig ábyrg sveitarstjórn getur veitt framkvæmdaleyfi fyrir byggingu Hvammsvirkjunar að svo stöddu þó svo hún líti eingöngu á fjárhagslega hlið málsins. Allt hitt, sem er auðvitað svo miklu stærra en peningahlið þessa máls, verður ekki rætt um hér. Ekki nema til að segja það sem öllum ætti löngu að vera ljóst, að tjónið og skaðinn sem Hvammsvirkjun mun valda á náttúru og samfélag verður aldrei bætt.

Höfundur er fædd og uppalin í Gnúpverjahreppi með sterk tengsl við sveitina.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×