Skoðun

Flokkur fólksins leggur til auknar á­lögur á skuld­setta

Kristófer Már Maronsson skrifar

Í dag mælir formaður Flokks fólksins, fyrir hönd alls þingflokksins, fyrir tæplega sexföldun bankaskatts. Samkvæmt greinargerð er áætlað að aðgerðin skili 30 þúsund milljónum í ríkissjóð á ársgrundvelli. Hvaðan ætli þessir peningar komi? Svarið er einfalt, ef frumvarpið nær fram að ganga koma milljarðarnir þrjátíu frá skuldsettum heimilum og fyrirtækjum.

Bankaskattur hefur bein áhrif á álagningu á útlán banka

Það þarf að hafa í huga að við lifum í dýnamísku samfélagi. Ef bankaskattur hækkar, þá hækkar vaxtamunur banka. Bankarnir bregðast hratt við - eins og þeir lækkuðu vexti á lánum þegar bankaskatturinn var lækkaður (1,2). Hækkun bankaskatts þýðir að vextir verða hærri en ellegar - m.a. á húsnæðislánum og fyrirtækjalánum. Ef Flokkur fólksins vill gera eitthvað fyrir skuldsett heimili og fyrirtæki þá ætti flokkurinn að tala fyrir afnámi bankaskattsins og annarra sértækra skatta á fjármálafyrirtæki sem ekki þekkjast annars staðar í heiminum. Afleiðingarnar yrðu lægri vextir á húsnæðislánum og lægri vextir til fyrirtækja - sem stuðlar að lægra verðlagi að öðru óbreyttu.

Hvað stendur í skýrslu starfshópsins?

Í greinargerð frumvarpsins er vitnað í það að meðalvaxtamunur íslenskra banka var 2,7% árið 2022. Það sem ekki kemur fram í greinargerðinni er orðréttur fylgifiskur í skýrslunni:

„Þessar niðurstöður verður þó að skoða í því ljósi að um er að ræða stutt tímabil sem einkennist af verulegum sveiflum í efnahagsumhverfinu vegna heimsfaraldursins og mikillar verðbólgu í kjölfar þeirra víða um heim.”

Þessi vaxtamunur er svo í greinargerðinni borinn saman við banka af sambærilegri stærð á Norðurlöndunum þar sem meðalvaxtamunur var 1,6% árið 2022. Hér er verið að bera saman epli og appelsínur. Mér þætti gaman að sjá meðalvaxtamun sambærilegra banka á Norðurlöndunum ef þeir þyrftu að borga bankaskatt af útlánasafninu, 5,5% fjársýsluskatt á laun starfsmanna og 6% sérstakan fjársýsluskatt af stærstum hluta hagnaðar auk þess að vera með í kringum 21% eigið fé bundið í stað 12%. Íslenskir bankar búa við allt annað og strangara regluverk og skattaumhverfi heldur en bankar á Norðurlöndunum. Það bitnar ekki á neinum öðrum en viðskiptavinunum.

Einstaklingar greiða skatta fyrirtækja

Það að hækka skatta á fyrirtæki er lausn margra stjórnmálamanna við ýmsum vandamálum. Fyrirtækin eru oft sögð vond og jafnvel sökuð um glæpastarfsemi. Það er þó þannig að fyrirtæki greiða ekki skatta. Það eru viðskiptavinirnir sem greiða skattana. Viðskiptavinirnir eru stundum fyrirtæki en á endanum eru alltaf einstaklingar sem kaupa vöru eða þjónustu sem er búið að verðleggja m.t.t. skattlagningar. Eigendur fyrirtækja eru einnig alltaf á endanum einstaklingar, sem stundum þurfa að bera skattlagninguna. Jafnvel þótt lífeyrissjóðirnir eigi hlut í fyrirtækjunum, þá eru lífeyrissjóðirnir einnig í eigu einstaklinga. Skattahækkanir á fyrirtæki er skattahækkun á viðskiptavini þess fyrirtækis. Skattahækkun á banka er m.a. skattahækkun á skuldsett heimili, en óskuldsett taka ekki þátt í skattgreiðslunni. Það er vonandi að stjórnmálamenn nútímans fari að átta sig á þessu samhengi.

Höfundur er hagfræðingur og aðstoðarmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×