Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO ELKO 14. nóvember 2024 09:59 Arinbjörn Hauksson, forstöðumaður markaðssviðs ELKO segir efst á lista sé helst að finna tæki sem eru í notkun nær alla daga, allan ársins hring og þurfi gjarnan að endurnýja. Elko Annað árið í röð er jólagjöf ársins snjallsími en yfir fimm þúsund svör bárust í árvissri jólakönnun ELKO sem send er á á viðtakendur póstlista fyrirtækisins í aðdraganda jóla. Efst á óskalista svarenda er jafnframt að finna snjallúr, pizzaofna, leikjatölvur og heyrnartól. „Samkvæmt könnuninni eru Íslendingar sérlega áhugasamir um gjafir sem bæta lífsgæði og gera lífið skemmtilegra, hvort sem um er að ræða raftæki tengd afþreyingu eða þrifum,“ segir Arinbjörn Hauksson, forstöðumaður markaðssviðs ELKO. „Samnefnarinn með þeim tækjum sem koma efst á lista er kannski sá að þar er um að ræða tæki sem eru í notkun nær alla daga, allan ársins hring og endurnýjast hratt eins og símar, snjallúr og heyrnartól.“ Ást, umhyggja og samverustundir eru númer 7 á listanum Varan sem kom á óvart Arinbjörn segir helst hafa komið á óvart í sviptingum á listanum að pizzaofnar hafi tekið stökk upp úr fimmta sæti í það þriðja í ár. „En kannski er það ekkert skrýtið því föstudagspizzan hefur víða skipað sér fastan sess í fjölskyldum og ekkert sem jafnast á við góða heimagerða pizzu.“ Í fyrra seldust stafrænir myndarammar upp fyrir jólin og nutu þannig laumuvinsælda, en í þá er hægt að hlaða myndum úr símum eða tengja þá við stafræn myndaalbúm. Þeir eru núna í tuttugasta sæti listans og eru kjörin gjöf fyrir þá sem eiga allt. Jólabókin situr í 12. sæti listans Hefðbundnar gjafir á borð við góða bók eiga líka sinn fasta sess, en jólabókin situr í 12. sæti listans. „Svo grunar mig að Stanley Quencher brúsarnir komi einnig til með að verða vinsæl jólagjöf en þeir hafa verið gríðarlega vinsældir frá því þeir voru teknir í sölu síðasta vetur eftir sannkallað æði fyrir slíkum brúsum vestanhafs. Einnig má segja að hár- og hármótunarvörur séu orðnar klassísk jólagjöf en þessar vörur rata alltaf á óskalistann og eru hástökkvarinn á óskalistanum í ár,“ segir Arinbjörn. Nærri helmingur fær sér jóladagatal Könnunin náði til fleiri þátta en vinsælda áveðinna gjafa og má greina aukningu í að fólk yfir 18 ára aldri fái í skóinn á aðfangadag, en það gera um 30 prósent landsmanna samkvæmt könnuninni. Þá kaupa rúm 45 prósent jóladagatal, en úrval slíkra dagatala hefur aukist síðustu ár, frá hefðbundnum súkkulaðidagatölum yfir í unaðsvörudagatöl og allt þar á milli. „Svo má sjá að ný jólahefð er að ryðja sér til rúms en það kemur fram að rúm 15 prósent heimila taka þátt í prakkarastrikum álfsins í desember, en það er erlend hefð kennd við Elf in a shelf. Við sjáum líka á listanum samverustundir, upplifanir og ferðalög, auk þess að oft er nefndur fatnaður og spil,“ segir Arinbjörn. Heildarmyndin sem draga megi upp af niðurstöðunum segir hann sýna að hér sé enn haldið fast í gamlar og góðar jólahefðir, þó einhverjar þeirra hafi mögulega verið lagaðar að nýrri tækni svo sem lesbrettum fyrir jólabækur, og svo nýjungar á borð við prakkarastrik jólaálfsins. Arinbjörn segir líka koma fram að tæp 60 prósent hafi þurft að skila gjöf, en réttur til skila er framlengdur í ELKO um jól og nær út janúarmánuð. „Það á enginn að þurfa að rjúka til milli jóla og nýárs til þess að skila og skipta gjöfum, en viðskiptavinir fá alltaf fullt verð vöru við skil óháð því hvort hún sé komin á útsölu eða ekki.“ Efstu vörur á listanum: 1. Snjallsímar 2. Snjallúr 3. Pizzaofn 4. Leikjatölva 5. Heyrnartól 6. Air fryer ofn 7. Ást, umhyggja og samverustundir 8. Hárvara 9. Ryksuga 10. Sjónvarp 11. Vatnsflaska 12. Lesbretti eða bók 13. VR gleraugu 14. Upplifun og ferðalög 15. Spjaldtölva 16. Fartölva 17. Kaffivél 18. Nuddtæki 19. Hátalari 20. Stafrænn myndarammi 21. Hitateppi 22. Gjafabréf 23. Plötuspilari 24. Snjallheimilisvörur 25. Blandari 26. Grill 27. Föt og skór 28. Gufusléttari 29. Spil 30. Ninja Creami Jól Mest lesið „Hápunktur morgunsins er síðan rómantíski kaffibíltúrinn“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá þjónustumiðstöð Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Atvinnulíf Driffjöður Vertonet: „Við erum að setja kjöt á beinin núna“ Atvinnulíf Áhrif kosninga á starfsfólk og vinnustaði í næstu viku Atvinnulíf Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Viðskipti erlent Ólöf til liðs við Athygli Viðskipti innlent Hafa samið við Fossvélar um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar Viðskipti innlent Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu Viðskipti innlent „Við megum ekki gleyma að lifa og njóta sko“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Barnamálaráðherra keypti fyrsta Jólaálfinn EX90 sló í gegn á frumsýningu hjá Brimborg Reykskynjara vantar of víða – Eldvarnarátak stendur nú yfir Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Greiðsluáskorun Eini sjö sæta rafbíllinn frá Peugot Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Sjá meira
„
1. Snjallsímar 2. Snjallúr 3. Pizzaofn 4. Leikjatölva 5. Heyrnartól 6. Air fryer ofn 7. Ást, umhyggja og samverustundir 8. Hárvara 9. Ryksuga 10. Sjónvarp 11. Vatnsflaska 12. Lesbretti eða bók 13. VR gleraugu 14. Upplifun og ferðalög 15. Spjaldtölva 16. Fartölva 17. Kaffivél 18. Nuddtæki 19. Hátalari 20. Stafrænn myndarammi 21. Hitateppi 22. Gjafabréf 23. Plötuspilari 24. Snjallheimilisvörur 25. Blandari 26. Grill 27. Föt og skór 28. Gufusléttari 29. Spil 30. Ninja Creami
Jól Mest lesið „Hápunktur morgunsins er síðan rómantíski kaffibíltúrinn“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá þjónustumiðstöð Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Atvinnulíf Driffjöður Vertonet: „Við erum að setja kjöt á beinin núna“ Atvinnulíf Áhrif kosninga á starfsfólk og vinnustaði í næstu viku Atvinnulíf Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Viðskipti erlent Ólöf til liðs við Athygli Viðskipti innlent Hafa samið við Fossvélar um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar Viðskipti innlent Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu Viðskipti innlent „Við megum ekki gleyma að lifa og njóta sko“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Barnamálaráðherra keypti fyrsta Jólaálfinn EX90 sló í gegn á frumsýningu hjá Brimborg Reykskynjara vantar of víða – Eldvarnarátak stendur nú yfir Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Greiðsluáskorun Eini sjö sæta rafbíllinn frá Peugot Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Sjá meira