Fékk þrjátíu daga í fangelsi fyrir að hafa fíkniefni innvortis Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í þrjátíu daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir innflutning á hassi. Maðurinn var handtekinn við komuna frá Spáni hingað til lands í lok ágúst en hann hafði 219,69 grömm af hassi innvortis. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða 92.190 krónur í sakarkostnað. Innlent 16. nóvember 2006 11:04
Gekk ítrekað í skrokk á barnsmóður sinni Karlmaður á fertugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í sjö mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundið, fyrir líkamsárásir á fyrrum sambýliskonu sína og barnsmóður. Maðurinn var jafnframt dæmdur fyrir húsbrot, brot á nálgunarbanni og fíkniefnalagabrot. Hann var sýknaður af vopnalagabroti. Innlent 14. nóvember 2006 16:30
Fékk árs fangelsi fyrir árás á lögregluþjón Karlmaður var í dag dæmdur í árs fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að ráðast á lögregluþjón við skyldustörf og veita honum áverka. Hann var jafnframt dæmdur fyrir vörslu fíkniefna og að til að sæta upptöku þeirra. Innlent 13. nóvember 2006 15:41
Tveggja mánaða fangelsi fyrir að hefna framhjáhalds Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag tuttugu og sex ára karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, þar af tvo mánuði skilorðsbundið. Innlent 31. október 2006 13:21
Fimm sinnum tekinn fullur á tæpum tveimur mánuðum Hæstiréttur Íslands dæmi í dag karlmann á fimmtugsaldri í átján mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur. Maðurinn ók bifreið sinni undir áhrifum áfengis og var sviptur ökurétti fimm sinnum á tímabilinu frá 5. desember 2005 til 21. janúar 2006. Innlent 26. október 2006 16:37
Þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa í sumar nauðgað tvítugri stúlku á göngustíg í Breiðholti. Innlent 26. október 2006 11:06
Vilja breyta lögum ef þörf er á Þingmenn Samfylkingarinnar hafa beðið um fund í allsherjarnefnd til að ræða alvarlegar ásakanir um að réttarstaða barna hafi verið fyrir borð borin með mistökum í lagasetningu og skýrslutökum í dómshúsi en ekki í Barnahúsi. Helgi I. Jónsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur vísar gagnrýni forstjóra Barnaverndarstofu til föðurhúsanna og segir umdeilt hvort Barnahús geti talist hlutlaus vettvangur fyrir skýrslutöku á börnum sem sætt hafa kynferðislegu ofbeldi. Innlent 12. september 2006 18:48
Vilja dómsmálaráðherra fyrir nefndina Að ósk þriggja fulltrúa Samfylkingarinnar í alsherjanefnd mun nefndin koma saman, þriðjudaginn þann 5. september, til að funda um það ófremdarástand sem er í fangelsismálum landsins. Þar munu fulltrúarnir fara fram á að dómsmálaráðherra verði kallaður á fund nefndarinnar enda telji þeir hann ábyrgan fyrir ástandinu. Innlent 29. ágúst 2006 13:30
Strokufanga leitað Lögregla leitar enn fanga sem strauk úr læknisheimsókn á þriðjudag. Fanginn, sem var vistaður á Litla Hrauni, heitir Hilmar Ragnarsson og er 43 ára. Hann komst undan lögreglu með því að smeygja sér út um glugga á salerni. Hilmar er dökkhærður og grannvaxinn og var klæddur í dökka úlpu, dökkar buxur og ljósa skó. Þeir sem verða varir við hann eru beðnir að hringja í lögregluna í Reykjavík. Innlent 12. ágúst 2006 09:31
Penguin kaupir Forðist okkur Hin virta bókaútgáfa Penguin hefur gengið frá samningi við JPV um útgáfu á bókinni Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson. Penguin kaupir útgáfurétt fyrir bókina á ensku fyrir allan heiminn að Íslandi undanskildu. Forðist okkur kom út á síðasta ári, sett var upp leikrit eftir bókinni sem Hugleikur hlaut Grímuverðlaunin fyrir. Innlent 11. ágúst 2006 20:44
Fimm í haldi í strippbúllustríði Fimm voru handteknir á skemmtistaðnum Bóhem í Reykjavík laust eftir miðnætti í gærkvöldi. Þeir héldu starfsfólki staðarins í gíslingu. Lögreglan auk sérsveitarmanna handtók mennina sem eru enn í haldi. Innlent 31. júlí 2006 12:06
Hass í Kópavogi Lögreglan í Kópavogi lagði í nótt hald á nokkrar kannabisplöntur, sem hún fann við leit í íbúð í bænum. Jafnframt fannst þar talsvert af laufi, sem var í vinnslu. Þrír menn voru handteknir við rannsókn málsins en þeir voru látnir lausir að yfirheyrslum loknum. Grunur leikur á að afurðir úr ræktuninni hafi verið ætlaðar til sölu. Innlent 29. júlí 2006 10:18
Stjórn Tryggingastofnunar kölluð saman Kristinn H. Gunnarsson, stjórnarformaður Tryggingastofnunar, segir milljónafjársvik þjónustufulltrúa hjá Tryggingaststofnun, einsdæmi í 70 ára sögu stofnunarinnar. Hann segir að stjórn Tryggingastofnunar verði kölluð til fundar á næstu dögum vegna málsins. Innlent 28. júní 2006 22:15
Sancy heldur heim Færeyski togarinn Sancy hélt frá Eskifirði í gærkvöldi, eftir að tryggingar voru settar, og hefur skipstjórinn nú samviskusamlega kveikt á sjálfvirka fjareftirlits-búnaðinum. Innlent 23. júní 2006 12:57
Þjófur náðist á flótta Lögreglan í Reykjavík handtók ökumann, eftir snarpa en stutta eftirför undir morgun, sem grunaður er um aðild að nokkrum innbrotum á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Andvirði þýfisins nemur mörg hundruð þúsundum króna. Innlent 23. júní 2006 09:18
Þrír í gæsluvarðhald Þrír menn voru í gærkvöldi úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn á skotárás, sem gerð var á raðhús í Vallahverfi í Hafnarfirði á miðvikudagsmorgun. Innlent 23. júní 2006 09:06
20 ára fangelsi fyrir morð Hæstiréttur Jóhannesborgar hefur dæmt 44 ára konu í 20 ára fangelsi fyrir morðið á Íslendingnum Gísla Þorkelssyni. Gísli var myrtur í júlí á síðusta ári og lík hans falið í ruslatunnu. Konan játaði fyrir dómi aðild sína að morðinu en félagi hennar Willie Theron hefur neitað sök. Innlent 22. júní 2006 12:39
Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir í yfirlýsingu að nýjasta ákæran í Baugsmálinu hafi beðið hnekki þegar dómari málsins óskaði eftir skýringum saksóknara á henni fyrir dómi í dag. Innlent 21. júní 2006 18:00
Krefjast ekki afsagnar Jónasar Jónas Garðarsson var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Tveir létust þegar bátur hans steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi í september. Innlent 6. júní 2006 18:45
Jónas Garðarsson dæmdur í þriggja ára fangelsi Jónas Garðarsson formaður Sjómannafélags Reykjavíkur var nú áðan dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi af Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir manndráp af gáleysi. Jónas var ákærður fyrir að hafa þann tíunda september síðastliðinn, stýrt skemmtibátnum Hörpu undir áhrifum áfengis, en báturinn steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi með þeim afleiðingum að tveir létust. Jónas var ekki viðstaddur uppkvaðningu dóms í Héraðsdómi Reykjavíkur en fullvíst má telja að dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar. Innlent 6. júní 2006 13:03
Forkaupsréttur á jörð Ekki var fallist á forkaupsrétt eins eigenda jarðarinnar Garðs í Aðaldælahreppi að öðrum hlutum hennar samkvæmt dómi Hæstaréttar. Fór maðurinn fram á riftun samninga við aðra kaupendur vegna þessa. Innlent 19. maí 2006 09:03
Fallið frá beiðni um gæsluvarðhald Tveir ungir menn voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 30. maí fyrir að nema mann á brott og misþyrma honum í Heiðmörk um síðustu helgi. Þriðji maðurinn var einnig talinn tengjast málinu en í morgun var fallið frá beiðni um gæsluvarðhald yfir honum. Innlent 17. maí 2006 13:15
Sautján ára í tveggja og hálfs árs fangelsi Atli Karl Gíslason var í dag dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot og að nema sautján ára pilt af vinnustað sínum. Þann pilt neyddi Atli Karl til að taka pening út úr hraðbanka og láta sig hafa. Innlent 11. maí 2006 22:43
Sýknað af fimm milljóna bótakröfu Hæstiréttur sýknaði Olíufélagið í dag af skaðabótakröfu fyrrum starfsmanns vegna vinnuslyss sem hann varð fyrir. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Olíufélagið til að greiða starfsmanninum tæpar fimm milljónir króna í bætur. Innlent 11. maí 2006 18:00
Fimmtán mánuðir fyrir nauðgun Hæstiréttur dæmdi karlmann í dag til fimmtán mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir nauðgun. Dómurinn er nokkuð mildari en dómur Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi manninn í eins og hálfs árs fangelsi. Innlent 11. maí 2006 17:40
Í gæsluvarðhald fyrir íkveikjur Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag eins mánaðar gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem kveikti í bíl föður síns í Kópavogi fyrr í vikunni. Áður hafði maðurinn kveikt í blaðabunka í stofu foreldra sinna svo mikill eldur hlaust af. Innlent 10. maí 2006 20:45
Dómarinn þarf ekki að víkja Hæstiréttur hafnaði rétt í þessu beiðni Jóns Geralds Sullenbergers um að dómari í máli hans og þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar viki frá málinu. Innlent 9. maí 2006 16:36
Dæmdur fyrir líkamsárás Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi karlmann í dag til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir líkamsárás. Hann var hins vegar sýknaður af annarri ákæru um líkamsárás þar sem hún þótti ekki sönnuð. Innlent 9. maí 2006 15:36
Brotalöm á rannsókninni Verjandi Jónasar Garðarssonar gagnrýndi rannsókn sjóslysins í Héraðsdómi í dag og sagði vafa í málinu það mikinn að ekki væri hægt að dæma Jónas. Saksóknari telur hins vegar óhyggjandi sannanir fyrir því að Jónas hafi stýrt skemmtibátnum Hörpu þegar hann steytti á Skarfaskeri en tvennt lést í slysinu. Innlent 8. maí 2006 22:14
Krefst þriggja ára fangelsisdóms Saksóknari í málinu gegn Jónasi Garðarssyni, vegna strands skemmtibátsins Hörpunnar, fer fram á að Jónas verði dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi. Bótakröfur sem settar hafa verið fram í málinu nema hátt í 20 milljónum króna. Innlent 8. maí 2006 17:34